Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1987, Page 10
SINGAMÓNUSTAN/SÍA
10
MÁNUDAGUR 19. OKTÓBER 1987.
Útlönd
VIII ríkin til baka
Nancy á batavegi
Spánveijlnn Federico Mayor,
sem um helgina var kjorinn næsti
framkværadastióri Menningar*
málastoftiunar Sameinuðu þjóð-
anna, UNBSCO, lýsti því yflr eftir
kjöriö aö hann liti á það sem for-
gangsverkefni að fá BandariMn,
BreÖand og Singapore aftur inn í
stofnunina, en ríkin þrjú yflrgáfu
hana vegna óánægju með fyrri
sljómendur.
Óvist er að Mayor veröi að ósk
sinni því öll ríkin þrjú hafa lýst
því yflr að þau hyggi ekki á frek-
ari þátttöku í UNESCO, þrátt fyrir
nýjan framkvæmdastjóra.
Takmarkaður árangur
Takmarkaður árangur hefur
enn sera komið er oröið af sókn
indverskra hersveita iim á Jaffna
skagann á Sri Lanka, gegn skæru-
liöasveitum tarafla þar. Indverjar
fluttu hðsauka til hersveita sinna
a skaganura nú um helgina en þá
komu um tvö þúsund hermenn
flugleiðis þangað.
Þá tilkynntu Indveijar að þeir
hefðu náö einni af aðalstöðvum
tamíla á sitt vald.
Nær engínn árangur
Nær enginn árangur hefur orðiö
af heirasókn Shultz, utanríkisráö-
herra Bandaríkjanna, tfl ísraels.
Sjálfur sagði utanríkisráðherrann
að ekkert hefði miðað i ftiöarátt í
Mið-Austurlöndura í viðræðura
hans við ísraelska ráðamenn.
Fellibylurinn Kelly gekk yfir
Japan á laugardag og olli þar
miklu eignatjóni, auk þess sem sex
manns aö minnsta kosti létu lífiö
af völdum veðurofsans.
Stórt flutningaskip barst upp á
kletta við Japanströnd undan
veðrinu og brotnaði þar i tvennt.
Ólaíur Amaisan, DV, New York
Líðan Nancy Reagan, forsetafrúar
Bandaríkjanna, var í gær mjög góð
eftir atvikum en á laugardag var
vinstra brjóst hennar fjarlægt vegna
krabbameins. Aðgerðin, heppnaðist
vel og engin merki era um að meinið
hafi breiðst út.
Forsetafrúin var nægilega hress tfl
að fara í stutta gönguferð með manni
sínum á sjúkrahúsinu í gær. Forsetinn
var í nokkra klukkutíma á sjúkrahús-
inu hjá konu sinni í gær. Hann færði
henni að gjöf lítinn spegfl sem frúin
hefur lengi haft augastað á.
Læknar segja að líkur á fullum bata
séu níutíu prósent. Hins vegar eru
tuttugu tfl tuttugu og fimm prósent
líkur á að forsetafrúin fái krabbamein
í hægra brjóstið. Hún fær að fara heim
í vikunni og þarf ekki á geislameðferð
eða annarri umönnun að halda. Hún
þarf hins vegar að fara sér hægt næstu
tvær tfl þrjár vikur.
Nancy Reagan er nú komin 1 hóp
þúsunda kvenna hér í Bandarikjunum
sem hafa gengist undir aðgerð af þessu
tagi. í þeim hópi er Betty Ford, fyrrum
forsetafrú Bandaríkjaima.
Nancy Reagan á fundi um aðgerðir gegn eiturlyfjum áður en hún lagðist inn
á sjúkrahús. Simamynd Reuter
töh/uprentarar
Tölvuprentarar frá STAR styöja þig í starfi. Þeir eru
áreiðanlegir, hraðvirkirog með úrval vandaðra leturgerða.
STAR prentarartengjastöllum IBM PC tölvum og öðrum
sambærilegum.
Leitin þarf ekki að verða lengri. Hjá Skrifstofuvélum hf. eigum
við ekki aðeins rélta prentarann, heldur einnig góð ráð. Nú er
tíminn til að fullkomna tölvuumhvertið með góðum prentara.
-STAR ER STERKUR LEIKUR.
Verð f rá kr. 25.500,-
- og við bjóðum þér góð kjör.
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
Hverfisgötu 33, sími: 62-37-37
Akureyri: Tölvutæki - Bókval
Kaupvangsstræti 4, sími: 26100