Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1987, Qupperneq 24
36
MÁNUDAGUR 19. OKTÓBER 1987.
Leiklist
Ekki er allt sem sýnist
Þjóðleikhúsið sýnir á Litla sviðinu:
Bilaverkstæði Badda.
Höfundur: Ólafur Haukur Simonarson.
Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson.
Leikmynd og búningar: Grétar Reynisson.
Lýsing: Bjöm Bergsteinn Guðmundsson.
Leikendur: Bessi Bjarnason, Jóhann Sig-
urðarson, Guðlaug Maria Bjarnadóttir,
Sigurður Sigurjónsson, Arnar Jónsson og
Árni Tryggvason.
Bílaverkstæði, einhvers staðar
ijarri ys og þys þéttbýlisins, er vett-
vangur válegra atburða í nýju
leikriti Ólafs Hauks Símonarsonar
sem frumsýnt var á Litla sviði Þjóð-
leikhússins í gærkvöldi.
Ólafur Haukur hefur auk annarra
ritstarfa verið afkastamikið og vax-
andi leikskáld undanfarin ár og er
áberandi í þessu nýja verki hversu
örugg tök hann hefur á efniviðnum
sem hann hefur vahð sér.
Það er sannarlega enginn viðvan-
ingur sem hér leikur sér aö áhorf-
endum eins og köttur að mús. Hann
er varla fyrr búinn að sýna okkur
inn í afmarkaðan heim þeirra Badda
og félaga, þar sem tilbreytingarley-
sið virðist eitt ráða ríkjum. þegar
þeim hugmyndum, sem við gerum
okkur um persónumar í upphafi, er
raskað.
Áhorfendur sjá fljótlega að ekki er
allt sem sýnist og höfundur spinniu
þráðinn fimlega þannig að lengi er
von óvæntra atburða.
Baddi og bílaverkstæðið hans
mega muna sinn fífil fegri. Verkefn-
in eru fá og fjölskylda Badda, ásamt
aðsatoðarmanninum, Ragnan, rétt
skrimtir á því sem það gefur af sér.
Byijunin er svo sem nógu sakleysis-
leg, en undir kraumar, og verulegur
skriður kemst á þegar fyrrverandi
starfsmaður Badda, Pétur, birtist.
Þá er flett ofan af gömlum atburöum
og skammt til skuldaskila.
Ekki er vert að rekja atburðarás-
ina frekar hér þvi að eins og í góðri
spennusögu skiptir það máli að
framvinda mála komi að nokkru á
óvart.
En er þetta verk þá helst í ætt við
Leiklist
Auður Eydal
innantóma spennusögu? Nei, hreint
ekki og þar kemur margt til.
Fyrst og fremst skiptir þar máli
að höfundur hefur öruggt vald á
uppbygg'ngu verks, máli og stíl.
Hann er ekki að færa okkur tilgangs-
lausa frásögn, heldur laglega fléttaða
svipmynd af heimi í hnotskum.
Sú mynd. sem hann vfll að við
fáiun af persónunum í upphaii, hgg-
m- fljótiega ljós fyrir. Ekki spilhr þar
Arnar Jónsson og Guðlaug María Bjarnadóttir i hlutverkum sínum.
að hafa þungavigtarmann á hverjum
pósti.
Þeir Bessi Bjamason, Baddi, Jó-
hann Sigurðarson, Haffl, og Sigurð-
ur Siguijónsson, Raggi, gefa okkur
í upphafi innsýn í þetta htla samfélag
og em, hver á sinn hátt, óborganleg-
ir. Þeir Bessi og Sigurður em
þekktari fyrir leik í gamanhlutverk-
um en sanna hér báðir hversu góðir
og fjölhæfir leikarar þeir era. það
sama gildir um Áma Tryggvason
þó að hann sé að visu svohtið spaugi-
legri persóna í leiknum. Hann leikur
héraðsskólakennarann Magnús,
sem ahtaf er að finna eitthað að bíln-
um sínum. í leikritinu er haim eini
tengihðurimi við veröldina fyrir ut-
an verkstæðið.
Ólafur Haukur getur skapað ákaf-
lega trúverðugar persónur og þrí-
eykið Baddi, Raggi og Haffl verður
alveg ljóshfandi. Þessa menn höfum
við ýmist hitt eða þekkt, hér og þar
í þjóðfélaginu. En erfiðara er að festa
hendur á Pétri sem Amar Jónsson
leikur af öryggi. Hann er margslung-
in persóna og þegar hann birtist er
komið að skuldadögum. Samskipti
þeirra Badda taka á sig nýjar og
nýjar myndir þangað til ahir þræðir
hggja saman í lokin.
Heimur bifvélavirkjanna er ein-
angraður og þetta er dæmigert
karlasamfélag. Þó er ein kona í leik-
ritinu og hún verður mikih örlaga-
valdur eins og móðir hennar hafði
verið fyrram. Mér fannst Sissa, sem
persóna, heldur óljós. Guðlaug Mar-
ía Bjamadóttir fer þó næmlega með
hlutverk þessarar dóttur Badda, en
hún hefur flúið óhijálegt líflð á bíla-
verkstæðinu, inn í eigin hugarheim.
Grétar Reynisson hefur brotið upp
rými Litla sviðsins og skapað leikrit-
inu raunsæislega umgjörð, einfaida
og þaulhugsaða í senn. Leikmyndin
er hráslagaleg og sýnir stöðnun og
niðumíðslu betur en nokkur orð fá
gert. Hún er opin og nær eftir endi-
löngum salnum, þannig að áhorf-
endur sitja báðum megin við hana.
Með lýsingu Bjöms Guðmundsson-
ar og búningum, sem Grétar valdi,
fær verkið þann bakgrann að heita
má fullkominn.
Þórhahur Sigurðsson leikstýrir
verkinu og á stóran þátt í því að
þetta er sýning sem „gengur upp“.
Gott val leikara og góð nýting á
sviðsmyndinni gerði verkið einkar
ásjálegt. Meira að segja átakasen-
umar urðu sannfærandi en ekki
hahærislegar eins og stundum vih
verða, sérstaklega í jafnmiklu návígi
og er þama á Litla sviðinu.
Frá höfundarins hendi er þetta
leikrit þar sem engu er ofaukið. Á
tiltölulega stuttum sýningartíma
tekst að koma fyrir stórskorinni og
margslunginni sögu um ástir og átök
þar sem höfundur veltir atburðará-
sinni nokkrum sinnum við og tekst
þannig að koma áhorfendum ræki-
lega á óvart. í annan stað er þetta
verk þar sem fjallað er um mannleg-
ar ástríður og hrikaleg örlög svo að
undir niðri leynist köld aivara.
AE
TUHfiUIIALA
Uppl. í simum 10004/21655/11109
Mímir
HMMBMBHaHÁNANAUSTUM 1SM
Ef þið viljið fylqjast með bridqe oq skák
ER MALIÐ MJÖG
EINFALT...
...ÞIB HRINGIÐ í SÍMA
2070022
og biðjið um áskrift að
Daglegir þættir með bridge og skák
Smáauglýsingar - Símí 27022:e> v
■ Húsnæði óskast
3ja-4ra herb. ibúð óskast til leigu
strax, þrennt fullorðið í heimili, fyrir-
framgreiðsla möguleg. Uppl. í síma
36777 og 33362.
Ég er einstæð móðir með 1 árs dóttur,
mig vantar 2ja-3ja herb. íbúð nú þeg-
ar. Get greitt allt að 25 þús. á mán. og
3 mán. fyrirfram. S. 12151 e.kl. 18.
Barnlaust par óskar eítir 2ja herb. íbúð
strax, góð umgengni og öruggar mán-
aðargreiðslur. Vs. 689066 og hs.
686886. Ásdís.
Einstaklingsíbúð eða herb. með eld-
húskrók óskast til leigu sem fyrst,
öruggar gr. Sími 27022 (innanhúss.
273) á daginn og 83889 á kv. Sigurj ón.
Góðar greiðslur. Ung hjón af lands-
byggðinni með 1 barn bráðvantar íbúð
til leigu á höfuðborgarsvæðinu í
nokkra mánuði. S. 623280 og 24086.
Hjón utan af landi með 13 ára dreng
óska eftir 3ja-4ra herb. íbúð í Rvík.
Uppl. í síma 623930 á daginn og 45008
á kvöldin og um helgar.
Snyrtifræðingur óskar eftir ibúð í
Reykjav. eða nágr. Reglusemi og góð
umgengni, skilvísar greiðslur og fyrir-
framgr. Sími 1473010825 og 96-23118.
Tvær stúlkur utan af landi óska eftir
3ja herb. íbúð í 6-8 mán., fyrirfrgr. ef
óskað er. Uppl. í síma 93-41558 og 93-
41497.
Verkprýði hf. óskar eftir íbúð fyrir
starfsmann sinn strax. Mjög góðri
umgengni og relgusemi heitið. Sími
688460 á daginn og 83727 á kvöldin.
Óska eftir íbúð, er reglusamur og heið-
arlegur, bráðvantar, er á götunni, get
borgað 3 mán. fyrirfram ef óskað er.
Uppl. í síma 15263.
Löggiltir húsaleigusamningar fást á
smáauglýsingadeild DV, Þverholti 11,
síminn er 27022.
Einstaklings- eða 2ja herbergja íbúð
óskast fyrir fimmtugan karlmann.
Uppl. í síma 617671 eftir kl. 18.
Tréafl sf. óskac eftir 2-3 herb. íbúð
fyrir smið, má þarfnast lagfæringar.
Uppl. í síma 72318 e.kl. 18.
Herbergi óskast. Miðaldra, reglusöm
kona óskar eftir herbergi, hugsanlega
gegn heimilisaðstoð. Uppl. í síma
611877.
■ Atvinnuhúsnæði
Nýstandsett húsnæði á besta stað í
miðbænum til leigu, alls 320 m2, leig-
ist í einu lagi eða smærri einingum,
hentar vel fyrir skrifstofu eða aðra
skylda starfsemi. Hafið samband við
auglþj. DV í síma 27022. H-5749.
Hárgreiðslustofa auglýsir húsnæði
undir snyrtistofu til leigu. Hafið sam-
band við auglþj. DV í síma 27022.
H-5797.
Til leigu 115 fm iðnaðarhúsnæði á jarð-
hæð við Dugguvog, innkeyrsludyr.
Hafið samband við auglþj. DV í síma
27022. H-5792.
270 ferm iðnaðarhúsnæði til leigu mið-
svæðis í borginni, lofthæð 3,50. Góðar
aðkeyrsludyr. Up T. í síma 45617.
Til leigu iðnaðar- eða geymsluhúsnæði
við Laugaveg. Hafið samband við
auglþj. DV í síma 27022. H-5808.
Óska eftir bílskúr á leigu, helst í Graf-
arvogi. Uppl. í síma 675132 eftir kl. 19.
Óska eftir stórum bílskúr eða hentugu
húsnæði. Uppl. í síma 75976 e.kl. 17.
■ Atvinna í boöi
Söluturn í Kópavogi. Óska eftir góðu
fólki við afgreiðslustörf sem vill vinna
vaktavinnu, vakt þar sem er unnið í
2 daga, frí í 2 daga, einnig vakt þar
sem unnið er í 6 daga og frí í 2 daga,
8 tíma vaktir. Hafið samband við
auglþj. DV í síma 27022. H-5771.
Smáauglýsingaþjónusta DV. Þú getur
látið okkur sjá um að svara fyrir þig
símanum. Við tökum við upplýsingun-
um og þú getur síðan farið yfir þær í
ró og næði og þetta er ókeypis þjón-
usta. Síminn er 27022.
Garðabær. Bókaverslun óskar eftir
hressum og ábyggilegum starfskrafti
allan daginn, einnig kemur til greina
hálfs dags starf. Uppl. í síma 656020
og 651720 eftir kl. 19.
Starfskraftur óskast á kassa og einnig
til uppfyllingar í matvöruverslun. Um
er að ræða bæði heilsdagsstarf og
hálfsdagsstarf, kl. 14-18. Kjöthöllin,
Skipholti 70, sími 31270.
Dagheimllið Dyngjuborg. Okkur vantar
til starfa fóstrur, starfsfólk með aðra
uppeldismenntun eða reynslu af upp-
eldisstörfum. Um er að ræða heila
stöðu á 10 barna deild, 2ja-3ja ára
bama, og hálfa stöðu við stuðning
fyrir barn með sérþarfir. Uppl. hjá
Onnu í síma 38439.__________________
Viðgerðir/viðhald. Vantar traustan og
vandvirkan mann til viðgerða, við-
halds og smíði búnaðar. Bónusvinna.
Uppl. í síma 53822, eða á staðnum að
Suðurhrauni 1, Garðabæ. Norex hf.
Árbæingar. Okkur vantar góðan
starfskraft í vinnu frá 9-18 í verslun
og ýmis létt skrifstofustörf. Hringdu í
síma 688418, ef þú getur byrjað strax,
og pantaðu viðtalstíma.
Óskum að ráða sveina, lærlinga og
aðstoðarmenn, mikil vinna, gott kaup.
Uppl. ekki veittar í síma. Borgarblikk,
Vagnhöfða 9.
Dagheimilið og leikskólann Iðuborg,
Iðufelli 16, vantar fóstru á dagheimil-
isdeild eftir hádegi frá 1. nóv. Uppl. í
símum 76989 og 46409.
Smiðir á lausu hjá Al-innréttingum hf.
Verslanir og fyrirtæki, getum bætt við
okkur verkefnum. Uppl. í síma 673033
eða 76615 eftir kl. 18.
Starfsmenn vantar strax til starfa við
dreifingu. Uppl. í afgreiðslu, ekki í
síma. Sanitas hf., Köllunarklettsvegi
4.__________________________________
Vantar starfskrafta fyrir viðskiptavini
okkar, t.d. í sérverslun, kranamann,
verslunarstjóra, ráðskonu o.fl. Land-
þjónustan, Skúíagötu 63, 623430.
Viljum ráða nokkra smiði og verka-
menn í vinnu við skipaviðgerðir, mikil
vinna, hlutastörf koma til greina.
Skipasmíðastöðin Dröfn hf., s. 50393.
Óskum að ráða trausta manneskju til
heimilisstarfa eftir hádegi, í vesturbæ.
Uppl. gefa Ólína og Sigurður í síma
13959.______________________________
Starfskraft vantar í vaktarvinnu, unnið
frá kl. 11-17 annan daginn og 17-23.30
hinn daginn. Uppl. í síma 19599.
Beitingafólk vantar á Sigurþór GK 43.
Uppl. í síma 92-68234.
Óskum eftir húshjálp einu sinni í viku.
Uppl. í síma 29445.
Verktakafyrirtæki óskar að ráða verk-
stæðismann, vörubílstjóra, aðstoðar-
mann í sprengingar og mann á
vökvaborvagn. Uppl. í símum 72281
og 687040.
■ Atvirma óskast
25 ára maður óskar eftir vinnu, hefur
skólann í rafv., bílpróf, góð ensku-
kunnátta, stundvisi og reglusemi
heitið. Uppl. í síma 71712 allan daginn.
Atvinnurekendur o.fl. Tek að mér sölu-
störf, innheimtu, dreifingu og annað
í þeim dúr, hef bíl. Hafið samband við
auglþj. DV í síma 27022. H-5805
Aukavinna. 21 árs verslunarmaður
óskar eftir kvöld- og/eða helgarvinnu,
afgreiðsla í söluturni kemur til greina.
Frekari uppl., simi 44176. Karl.
Tvítugur maður óskar eftir vinnu, allt
kemur til greina. Sími 46603 eftir kl.
17.
25 ára maður óskar eftir kvöldvinnu,
næturvinna kæmi einnig til greina.
Uppl. í síma 616569 á daginn.
Ræstitæknar. Óska eftir stórum og
‘-máum verkefnum. Hafið samband við
auglþj. DV í síma 27022. H-5784.
M Bamagæsla
Vantar þitt barn dagmömmu? Opnum
2. nóv. gæslu fyrir 3 mán.-7 ára börn,
frá kl. 8-13, erum þrjár með góða að-
stöðu, úti sem inni, keyrum bömin í
skóla, erum í alfaraleið í Garðabæ,
höfum leyfi. Uppl. í síma -.6425,
Óska eftir dagmömmu, helst í Hlíða-
hverfi. Uppl. í síma 687446.
P
■ Ymislegt
DjOupslökun. Vinsælu Hugeflisslök-
unarsnældurnar komnar aftur, 10
daga ábyrgð ef árangur næst ekki.
Sendum í póstkröfu. Uppl. í síma
622305.
■ Einkamál
Amerískir karlmenn vilja skrifast á við
íslenskar konur á ensku með vinskap
eða giftingu í huga. Sendið svar með
uppl. um aldur, stöðu og áhugamál
ásamt mynd til: Rainbow Ridge, Box
190DV, Kapaau, Hawaii 96755 U.S.A.
1000 stúlkur úti um allan heim vilja
kynnast þér, ný skrá, aðstoð við bréfa-
þýðingar. Sími 623606 frá kl. 16-20
alla daga. Fyllsta trúnaði heitið.