Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1987, Page 28
40
MÁNUDAGUR 19. OKTÓBER 1987.
TIL SÖLU
DODGE VUY
Dodge Voyager, árgerð 1981, fyrst skráður júní 1982.
Lúxusútgáfa meö rafmagni í rúðum, speed control,
sjálfsk., vökvast., loftbremsur, sæti fyrir 12 manns,
dekurbíll, ekinn aðeins 52 þús. mílur.
Upplýsingar í síma 685544 og h/33298.
III REYKJKIÍKURBORG III
I* AM 0^________________ I* 0^ 0*
0* «N 0» 0*
MP Stödcci MT
BÓKASAFNSFRÆÐINGAR
Hjá skólasafnamiðstöð skólaskrifstofu Reykjavíkur
eru lausar til umsóknar nú þegar tvær stöður bóka-
safnsfræðinga:
1. SKÓLASAFNAFULLTRÚI
Skólasafnafulltrúi er forstöðumaður skóla-
safnamiðstöðvar. Hann hefur m.a. eftirlit og
umsjón með skólasöfnum í Reykjavík og
leiðbeinir skólasafnvörðum í starfi.
2. BÓKASAFNSFRÆÐINGUR
Bókasafnsfræðingur annast m.a. flokkun,
skráningu og önnur sérfræðistörf. Hlutastarf
kemur til greina.
Skólasafnamiðstöð skólaskrifstofu Reykjavíkur er
þjónustumiðstöð fyrir skólasöfn grunnskóla Reykja-
víkur, tvo framhaldsskóla og nokkrar sérdeildir. Hún
er til húsa i Miðbæjarskólanum við Fríkirkjuveg.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá skólasafnamiðstöð,
í síma 28544 (Auðbjörg) kl. 9.00-13.00 virka daga.
Umsóknarfrestur er til 30. október 1987.
Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á eyðublöðum
sem þar fást.
w,
CTI
Rúskinns
STÍGVÉL
Sviðsljós
Þessir sex krakkar eru allir (æddir sama dag, þann 18. október fyrir fimm árum. Þann dag hófst einnig rekstur
fyrirtækisins Kaupþings og því var þessum börnum boöið i afmælisveislu i tilefni dagsins. Á myndinni eru Pétur
Blöndal framkvæmdastjóri, Styrmir Gunnarsson, Páll Þórarinn Björnsson, Hlynur Freyr Sigurhansson, Ásgeir Jó-
hannsson, Fannar Þór Guðmundsson og Ásta Kristín Benediktsdóttir. DV-mynd Brynjar Gauti
Dallas-
ilmur
Bandaríkjamenn eru óendanlega
duglegir við að flnna upp aðferðir
til þess að græða peninga. Nú hefur
framleiðendum þáttanna um Dall-
assápuóperuna dottið í hug að
framleiða Dallasilmvatn. Fram-
leiðendurnir lýsa ilminum sem
„vestrænni ímynd valds og vel-
megunar" og reynir nú á hugarflug
lesenda að spá í hvemig sá ilmur
er.
í bígerð er 200 milljóna auglýs-
ingaherferð til þess að ná sem
stærstum hlut á markaðnum, bæði
í Bandaríkjunum og erlendis.
Reyndar er þetta ekki í fyrsta sinn
sem reynt er að græða þannig á
sápuóperum. Árið 1984 var kynut
ilmvatnið Krystle forever og ári
síðar Carrington cologne, allt byggt
á persónum úr Dynastyþáttunum.
Þau ku hafa gengið vel og því vilja
Dallasmenn vera ekki síðri.
Mmmm, hvað það er gott, nýja Dallasilmvatnið.
Á góðu verði!
Kr 3.026,-
Sendum í póstkröfu
Laugavegi 89 - s. 22450. Austurstræti 6 - s. 22453
Geldof er ekki mikið fyrir að snyrta sig til við hátiðlegar athafnir, i hans
augum er það innrætið sem gildir. Símamynd Reuter
Doktor
Bob
Geldof
Bob Geldof er ekki alveg fallinn í
gleymskunnar dá þótt hann hafi sig
lítt í frammi á tónlistarsviðinu. Því
veröur ekki gleymt hvað hann gerði
til styrktar hungruðum í Afríku með
Live Aid hljómleikunum ógleyman-
legu. Hann hefur orðið ýmiss konar
heiðurs aðnjótandi fyrir vikið og á
dögunum bættist enn á. Anna Breta-
prinsessa sæmdi Geldof doktorsorðu
við Lundúnaháskóla í hagfræðivís-
indum nýlega á afmæli skólans. >
Anna prinsessa er sjálf stjórnarfor-
maður við háskólann.