Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1987, Síða 30
42
MÁNUDAGUR 19. OKTÓBER 1987.
Jarðarfarir
Sigurður Jónsson frá Úthlíð lést 11.
október sl. Hann fæddist 25. febrúar
árið 1900 í Brautarholti á Kjalarnesi.
Foreldrar hans voru Jón Einarsson
og Guðrún Jónsdóttir. Sigurður gift-
ist Jónínu Þorbjörgu Gísladóttur en
hún lést árið 1979. Þeim hjónum varð
sjö barna auðið. Útfór Sigurðar verð-
ur gerð frá Kópavogskirkju í dag kl.
13.30.
Marteinn Jónasson lést 14. október
sl. Hann fæddist 28. september 1916
á Flateyri við Önundarfjörð, sonur
Jónasar H. Guðmundssonar og konu
hans, Maríu J. Þorbjörnsdóttur.
Marteinn lauk fiskimannsprófi frá
Stýrimannaskólanum í Reykjavík
1939. Marteinn starfaði á togurum,
síðan sem stýrimaður en tók við
skipstjórn 1943 og var skipstjóri óslit-
ið til ársins 1962 en það ár fór hann
að starfa í landi hjá BÚR og tók við
framkvæmdastjóm þar 1964. Sem
framkvæmdastjóri starfaði hann til
ársins 1981 en síðan áfram sem ráð-
gjafi eftirmanna sinna til ársins 1985
er hann lét af störfum. Marteinn var
tvígiftur. Fyrri konu sína, Öglu Þór-
unni Egilsdóttir, missti hann 1959,
en þeim varð einnar dóttur auðið.
Seinni kona hans var Helga Guðna-
dóttir en saman áttu þau eina dóttur.
Marteinn missti seinni konu sína
árið 1979. Útfor hans verður gerð frá
Bústaðakirkju í dag kl. 15.
Jón Katarínusson verður jarðsung-
in í dag, mánudaginn 19. október, kl.
15 frá Fossvogskapellu.
Jóna Sigurbjörg Þorláksdóttir
verður jarðsungin í Dómkirkjunni
þriðjudaginn 20. október kl. 13.30.
LUKKUDAGAR
18. október
34907
Hljómplata frá
FÁLKANUM
að verðmæti
kr. 800,-
19. október
74259
Hljómplata frá
FÁLKANUM
að verðmæti
kr. 800,-
Vinningshafar hringi í sima
91-82580.
Um helgina
Hjálmtýr Baldursson fulltrúi:
Helgin óvenju slöpp
íþróttaþættimir skipa veglegan
sess í dagskránni hjá mér, þeir em
nánast friðlýstir á heinúlinu. Fjöl-
breytni þeirra er sæmileg en Bjami
og félagar á Ríkissjónvarpinu mættu
gjaman sýna meira af íshokkíi. Það
er íþrótt sem myndi undir eins slá í
gegn. Einnig finnst mér ömurlegt, í
ensku knattspymunni, að ensku
þulimir, sem era snillingar, fái ekki
að njóta sín.
Yfirleitt er horft á báða frétta-
tímana á mínu heimili. Stöð 2 hefur
unnið mikið á hvað varðar fréttatím-
ann. Ríkissjónvarpið þarf að bæta
sig töluvert ef það ætlar að halda
sínum hlut.
Endurkoma Þingsjár gleður mig
mjög, það er gott efni. í mínum aug-
um er spumingaþátturinn Spila-
Hjálmtýr Baldursson.
borgin auglýsingaplott. Innihaid
þáttarins virðist vera aukaatriði og
ekki geta heldur heppni sem er þar
í fyrirrúmi. Hann mætti gjarnan
vera metnaðarfyllri því þættir af
þessu tagi geta verið mjög skemmti-
legir.
Laugardagsbíómyndir Ríkissjón-
varpsins vora vel til þess fallnar að
sofna yfir þeim. Þó var Betsy öllu
betri mynd. Dagskrá Ríkissjón-
varpsins á sunnudögum er ákaflega
andvana og lítið um áhugaverða
þætti. Það mætti vel lífga upp sunnu-
dagana þvi þeir era einu frídagar
sumra.
Helgardagskráin var að þessu
sinni óvenju slöpp. Lítið var um
myndir eða þætti sem skildu eitt-
hvað eftir sig.
Alþjóðlega skákmótið í Ólafsvík:
Björgvin missti af áfanga
Jarðarfór Helga J. Halldórssonar,
fyrrverandi kennara við Stýri-
mannaskólann í Reykjavík, fer fram
frá Laugameskirkju fimmtudaginn
22. október kl. 13.30.
Guðlaugur Brynjólfsson, andaðist
fimmtudaginn 1. október í Borgar-
spítalanum. Útfórin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hins látna.
Hulda Markúsdóttir frá Borgareyr-
um, verður jarðsungin frá Lang-
holtskirkju miðvikudaginn 21.
október nk. kl. 10.30.
Útför Guðrúnar Jónsdóttur frá Suð-
ureyri, Tálknafirði, fer fram frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn 20. okt-
óber kl. 13.30.
Ágúst Jakob Ormsson, Kleppsvegi
44, frá Kletti, verður jarösunginn frá
Dómkirkjunni 20. október kl. 15.
Tapað - Fundið
Hvolpur í óskilum
Lítill hvolpur fannst í Hamraborginni,
Kópavogi, 15. okt. Hann er svartur og með
hvíta sokka og bringu. Nánari upplýsingar
í símum 42516 og 641016.
Týnd læða
Tapast hefur grábröndótt læða frá Bald-
ursgötu 12. Síðast sást til hennar víð
Þórsgötu 7 mánud. 5. okt. Hún er með
gula hálsól, merkt þegar hún hvarf og
gegnir nafninu Táta. Fundarlaun. Finn-
endur vinsamlega hringi í síma 25859.
Læða týndist
Læða týndist frá Bólstaðarhlíð þann 6.
okt. síðastl. Hún er að mestu hvít en með
dökka rófu og haus og dökka bletti. Læðan
er merkt R. 7531 í eyranu. Um svipað leyti
var keyrt á kött á gatnamótum Lönguhlíð-
ar og Miklubrautar. Hugsanlegir sjónar-
vottar eru beðnir um að hringja í síma
32974.
Tilkyimingar
Ný íslensk hljómplata
Út er komin ný íslensk hljómplata sem er
önnur plata Torfa Ólafssonar og ber hún
nafnið Nóttin flýgur. Fyrsta hljómplata
Torfa var Kvöldvísa. Samtals eru lög og
ljóð nýju plötunnar tíu talsins og í flutn-
ingi margra söngvara. Meðal flytjenda
má telja Eirík Hauksson, Bjama Árason,
Torfa Ólafsson, Pálma Gunnarsson og
fleiri.
Fyrirlestur
Fyrirlestur um megrun
Kvenfélagið Seltjörn heldur fund þriðju-
daginn 20. okt. kl. 20.30 í félagsheimili
Seltjamamess. Guðrún Einarsdóttir
hjúkrunarfræðingur talar um áhrifaríkar
leiðir til þess að grennast.
Fyrirlestur um uppeldisrétt og
uppeldisskyldu
Þriðjudaginn 20. okt. flytur Sigurður Páls-
son, forstm. námsefnisgerðar, fyrirlestur á
vegum Rannsóknastofnunar uppeldismála
er nefnist: Uppeldisréttur og uppeldis-
skylda. Erindið fjallar um athugun og
umræðu á uppeldisrétti og uppeldisábyrgð
foreldra, hvemig rétturinn er tryggður í
lögum og alþjóðasamþykktum og á hvern
hátt hann er rökstuddur. Fyrirlesturinn
verður haldinn í Kennaraskólahúsinu við
Laufásveg og hefst kl. 16.30. öllum heim-
ill aðgangur.
Fundir
Fundur hjá Kvenfélagi Kópa-
vogs
Kvenfélag Kópavogs heldur fund fimmtud.
22. okt. kl. 20.30 í félagsheimilinu. Gestur
fundarins verður Hrafn Sæmundsson og
mun hann spjalla um málefni fatlaðra í
Kópavogi.
Spilakvöld
Spilakvöld Samtaka gegn
astma og ofnæmi og SÍBS
Samtök gegn astma og ofnæmi og SÍBS
deildimar í Rvk og Hafnarf. halda fyrsta
spilakvöld vetrarins þriðjud. 20. okt. kl.
20.30 í Múlabæ, Ármúla 34. Kaffiveiting-
ar. Allir velkomnir. Stjómirnar.
Sýningar
Sýning á Mokkakaffi
Laugardaginn 17. október opnaði
Svavar Ólafsson sýningu á myndum
sínum á Mokkakaffi við Skólavörðu-
stíg. Svavar er fæddur 1919 og hefur
starfað sem klæðskeri í Reykjavík.
Hann er einnig kunnur silungsveiði-
maður og aflakló. Hann er unnandi
íslenskrar náttúra og endurspeglast
áhrif hennar í verkum hans.
Mokkakaffi er opið alla daga frá
kl. 9.30 til 23.30 en á sunnudögum frá
kl. 14.00 til 23.30.
Björgvin Jónsson varð að láta sér
lynda jafntefli við pólska Svíann
Robert Bator í lokaumferðinni á al-
þjóðlega skákmótinu í Ólafsvík og
þar með missti hann af fyrsta áfanga
að alþjóðlegum meistaratitli. Björg-
vin hlaut 6A vinning og skorti
aðeins hálfan til viðbótar. Daninn
Henrik Danielsen átti meira láni að
fagna. Hann tryggði sér titiláfanga
með jafntefli við Björgvin í næstsíð-
ustu umferð. Skák hans við Ingvar
Ásmundsson í síðustu umferð var
tefld fyrr, því að Daninn þurfti að
hraða sér heim á leið á annað mót.
Önnur úrslit síðustu umferðar urðu
þau að Jón L. Ámason vann Norð-
manninn Petter Haugli, Karl Þor-
steins vann Sævar Bjamason, Lars
Schandorff vann Dan Hansson og
Þröstur Þórhallsson og Tómas
Bjömsson sömdu um jafntefli.
Lokastaðan á mótinu varð þessi:
1. Jón L. Ámason Vh v.
2. Danielsen (Danmörku) 7 v.
3. -4. Björgvin Jónsson og Schand-
orff (Danmörku) 6 /i v.
5. - 6. Karl Þorsteins og Þröstur Þór-
hallsson 6 v.
7. Ingvar Ásmundsson 5 v.
8. -10. Sævar Bjamason, Tómas
Bjömsson og Bator (Svíþjóð) 4% v.
11.-12. Dan Hansson og Haugh
(Noregi) 4 v.
Það er grátlegt að Björgvin skyldi
missa af alþjóðameistaraáfanga efdr
frábæra byrjun á mótinu. Þijá fyrstu
mótheija sína lagði hann að velli og
þar af tvo stigahæstu keppenduma.
Síðan kom reyndar nokkurt bakslag
í seglin þar til hann náði sér aftur á
strik. Þrátt fyrir allt kom Björgvin
sterkur út úr mótinu og sýndi að
hann nálgast alþjóðameistarastyrk
óðfluga.
Fyrirfram vora mestar vonir
bundnar við að Þresti Þórhallssyni
tækist að næla sér í lokaáfanga að
alþjóðameistaratitli en það tókst
honum ekki í þetta sinn. Þröstur
átti góða spretti í mótinu en var
mistækur. Hann á það til að tefla
harla vafasamar byijanir og það er
ljóst að ýmislegt í taflmennsku hans
mætti hann lagfæra. En efniviður-
inn er fyrir hendi og varla rennur
alþjóðameistaratitllinn honum eilíf-
lega úr greipum.
Ingvar Ásmundsson, aldursforseti
mótsins, tefldi vitaskuld lengstu og
þyngstu skákimar. Ingvar hefur lítið
teflt á mótum undanfarið og æfinga-
leysi hijáði hann nokkuð. Hann fékk
færri vinninga en stöður hans á tafl-
borðinu ættu eðlilega að gefa af sér.
Hann varð jafntefliskóngur með átta
jafhtefli en þó ekki vegna skorts á
baráttuþreki.
Þetta var frumraun Tómasar á
lokuðu alþjóðlegu móti og er upp er
staðið má hann vel við una. Hann
fékk flensu um miðbik mótsins en
lét samt engan bilbug á sér finna.
Dan lét tímahrakið fara illa með
margar góðar stöður og alþjóða-
meistaramir Sævar og Karl vora
langt frá sínu besta.
Erlendu keppendumir fjórir era
allir ungir að árum og áreiðanlega
talsvert sterkari en stig þeirra segja
til um. Haugli og Bator sóttu ekki
gull í greipar landans en Danimir
tveir vora mun hættulegri. Henrik
Skák
Jón L. Árnason
Danielsen hafði forystu allt inótið
og tefldi þeirra best. Hann er 21 árs
gamall og engum blöðum er um það
að fletta að þar er mikið skákmanns-
efni á ferð. Hann hefði sjálfsagt orðið
efstur á mótinu ef áfangaveiðamar
hefðu ekki byrgt honum sýn í lokin.
Hann tapaði fyrir Haugli í þriðju síð-
ustu umferð og þá fyrst hleypti hann
spennu í mótið.
Sá er þetta ritar var eini stórmeist-
arinn í keppendahópnum og
samkvæmt því hefði sigurinn átt að
vera borðliggjandi. En eins og mál-
tækið segir nægir ekki að hafa mörg
stig, heldur verður einnig að tefla
vel. Ég tapaði í fyrstu umferð fyrir
Björgvin en náði mér fljótt á strik
þar til ég lék mig í mát í þriðja leik
með manni meira gegn Dan. Með
endaspretti tókst mér að krækja
ffamhjá keppinautunum og ná efsta
sæti á réttum tíma - þ.e. eftir loka-
umferðina.
Mótið var haldið í tilefni af 300 ára
verslunarafmæli staðarins og var
teflt í nýju og glæsilegu félagsheim-
ili, sem tekið var í notkun i ágúst.
Nokkur styr mun hafa staðið í bæj-
arstjóminni um byggingu hússins,
sem ásamt öðra varð þess valdandi
skömmu eftir að mótið hófst að sam-
starf meirihlutans rofnaði og bæjar-
stjórinn sagði af sér. Skákmenn urðu
þó ekki varir viö neinn glundroða í
bæjarmálunum því að mikill sam-
hugur virtist ríkja meðal heima-
manna varðandi framkvæmd
mótsins. Aðbúnaður var eins og best
varð á kosið og allir lögðust á eitt
um að sinna venjulegum umkvört-
unum kröfuharðra skákmanna.
Framkvæmdanefnd mótsins skip-
uðu Kristján Pálsson, Hermann
Hjartarson, Herbert Hjelm, Einar
Bjömsson, Hilmar Viggósson, Jó-
hann Þórir Jónsson og Torfi Stefáns-
son Hjaltalín, sem jafnframt var
mótsstjóri ásamt Einari Bjömssyni
og Gylfa Scheving. -
Hvítt: Karl Þorsteins
Svart: Ingvar Ásmundsson
Slavnesk vörn.
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rc3 c6 4. Rf3 Rf6
5. Bg5 dxc4 6. e4 b5 7. e5 h6 8. Bh4 g5
9. exfB gxh4 10. Re5 Dxf6 11. a4 c5!?
Þetta flókna afbrigði slavnesku
vamaminnar, sem oft er kennt við
fyrrum heimsmeistara, Mikhail Bo-
tviniúk, var vinsælt á mótinu.
Síðasti leikur svarts er líklegast nýr
af nálinni en hvítur getur skipt yfir
á þekktar slóðir með 12. Be2 Bb7 o.s.
frv.
12. Rxb5?! Ra6 13. Rxc4 cxd4 14.
Rbd6+ Kd7! 15. Rxf7
Nú er 15. - Dxf7?? auðvitað svarað
með 16. Re5+ og virrnur drottning-
una. Svartur á hins vegar sterkara
framhald, sem hrekur hvíta kónginn
einnig fram á borðið.
15. - Bb4+ 16. Ke2
16. - Bb7!
Öflugt svar. Ef nú 17. Rxh8, þá 17.
- Hf8! og vinnur, því að hvítur getur
ekki varið f2.
17. Rce5+ Ke7 18. Dxd4 Hhd8! 19.
Rxd8 Hxd8 20. Dxh4
Hvitur nær að skipta upp í enda-
tafl með skfptamun og tvö peð til
góða. En virkni svörtu mannanna
vegur þyngra en liðsmunurinn.
20. - Dxh4 21. Rg6+ Kffi 22. Rxh4 Rc5
23. Hcl Hd4?
Nú nær hvítur andanum aftur.
Rétt er 23. - Hd2+ 24. Ke3 Hxb2 og
hvítur á í mestu erfiðleikum. t.d. 25.
RÍ3 Hb3+ 26. Ke2 (26. Kf4 e5+! 27.
Rxe5 Re6+, eða 27. Kg4 Re4) Rd3!
með ýmsum ógnunum.
24. f4!
Eini leikurinn. Eftir 24. Rf3? Ba6+
25. Ke3 He4 yrði hvítur mát.
24. - Hd2+ 25. Ke3 Hxb2 26. Rf3 Re4
27. Bd3 Bc5+ 28. Rd4 e5 29. fxe5 Kxe5
30. Hc4 Bd5!
Fyndin hrúga á miðborðinu!
Svartur nær skiptamuninum aftur
og með nákvæmri taflmennsku tekst
honum að halda jöfnu.
31. Hfl Bxc4 32. Hf5+ Kd6 33. Bxc4
Rc3 34. Kd3 Bxd4 35. Kxd4 Rxa4 36.
Hffi+ Ke7 37. Hf7+ Ke8 38. Hxa7 Rb6
39. Be6 Hxg2 40. Hb7 Hb2 41. h3 Hd2+
42. Ke5 Rd7
- Og jafntefli samið.
-JLÁ