Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1987, Síða 2
2
MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1987.
Sljóminál
Landsfundur Alþýðubandaiagsins:
Kom mer þægilega a ovart
- sagði Ólafur Ragnar Grimsson um yfíibuiðina í
„Með vissum hætti kom þessi
raiklu munur mér þægilega á óvart
þótt ég heföi síðustu vikumar fyrir
fundinn orðiö var við vaxandi
stuðning við framboð mitt og það
frá öllum landshlutum. Ég tel einn-
ig að svo afdráttarlaus stuöningur
viö hina nýju forystu fiokksins sé
dýrmætt veganesti fyrir hana og
ekki síst í Jjósi þess aö framundan
bíða mörg verkefni úrlausnar,“
sagði ÓMur Ragnar Grímsson í
samtali við DV eftir aö hann var
kjörinn formaður Alþýðubanda-
lagsins með aUmiklum yíirburðum
á iaugardaginn.
Ails kusu 370 landsfundarfulltrú-
ar og hlaut Ólafur Ragnar 221
atkvæði eða 59,7%. Sigríður Stef-
ánsdóttir hlaut 144 atkvæði eða
38,9%.
Svanfríöur Jónasdóttir frá Dalvik
var síðan kjörin varaformaður
flokksins, Bjöm Grétar Sveinsson
frá Höfri í Homafiröi ritari og
Bjargey Einarsdóttir frá Keflavík
gjaldkeri.
Feiknaleg spenna ríkti á fundin-
um meðan beðið var niðurstööu
talningar í formannskjörinu. Þegar
svo Adda Bára Sigfúsdóttir, fyrrum
borgarfulltrúi, kynnti úrslitin
bratust út mikil fagnaðarlæti með-
sitt, rauk á dyr og fór af fundinum.
Hann mætti svo ekki aftur fyrr en
í gærdag.
Fyrirfram var búist við jafhari
kosningu en raun varð á. Margir
héldu því fram eftir kjörið aö ræða,
sem Hjörleifur Guttormsson hélt
skömmu áöur en kosningin fór
fram, þar sem hann réðst að Ólafi
Ragnari á grófan hátt, aö mönnum
þótti, hafi orðið til þess að auka
Guðrún Þorbergsdóttir, eiginkona Olafs Ragnare, óakar manni sínum
til hamingju þegar niðurstaðan i formannskjörinu var tllkynnt.
DV-mynd BG
Stuðningsmenn Sigríðar voru að
sjálfsögðu sárir eftir og margir
reiðir. Hjörleifur Guttormsson al-
þingismaður gat ekki stillt skap
Margir andstæðinga Ólafs viö-
höföu stór orð eftir að úrslit lágu
fyrir. Aftur á móti þótti framkoma
Sigríðar Stefánsdóttur og ræða sem
hún hélt til mikillar fyrirmyndar
og henni til sóma.
-S.dór
Sigríður Stefánsdóttir og harðasti stuöningsmaður hennar, Guðrún Agústs-
dóttir, bíöa þess að kjöri formanns verði lýst. DV-mynd BG
Kjör til framkvæmdastjómar:
Andstæðingar Ólafs
náðu meirihlutanum
- meðan stuðningsmenn formannsins sváfii eftír sigurhátíð kvöldið áður
í gærmorgun, þegar kjörið var í
framkvæmdastjóm á landsfundi Al-
þýðubandalagsins, vantaöi stóran
hóp stuðningsmanna Ólafs Ragnars.
Þeir vora enn sofandi eftir mikla sig-
urhátíð sem þeir héldu kvöldið áöur.
Þetta notfærðu andstæöingar Ólafs
sér, vora tilbúnir með varamenn og
náðu meirihluta í framkvæmda-
stjóminni.
Þeir sem náðu kjöri í fram-
kvæmdastjóm era Álfheiður Inga-
dóttir, Ármann Ægir Magnússon,
Ásmundur Stefánsson, Bima Þórð-
ardóttir, Guðrún Ágústsdóttir,
Kristín Á. Ólafsdóttir, Óttar Proppé,
Siguijón Pétursson og Stefanía
Traustadóttir. Af þessum hópi er
Kristín Á. Ólafsdóttir eini stuðnings-
maður Ólafs. Til viðbótar koma í
stjómina öll flokksstjómin og síðan
tilnefna þingmenn flokksins þijá
menn í framkvæmdastjóm.
Óttar Proppé, ritstjórnarfulltrúi
Þjóðviljans, hlut flest atkvæði í fram-
kvæmdastjórnarkjörinu eöa 266 en
ritstjóri Þjóðviljans, Össur Skarp-
héðinsson, náði ekki kjöri en var þó
tilnefndur af kjömefnd. Ásmundur
Stefánsson hlaut 236 atkvæði en
Þröstur Ólafsson, framkvæmdastjóri
Dagsbrúnar, tilnefndur af kjömefnd,
náði ekki kjöri. Hann var aftur á
móti kjörinn varamaður en Össur
gaf ekki kost á sér sem varamaður.
Stuðningsmenn Ólafs héldu því
fram í gær að búið hefði verið að
gera samkomulag viö andstæðinga
Ólafs um að sameinast um að kjósa
ákveðna menn í framkvæmdastjóm.
Þetta samkomulag sögðu þeir að and-
stæðingar Ólafs hefðu svikið þegar
þeir sáu að þeir vom í meirihluta á
landsfundinum á sunnudagsmorgn-
inum. Ólafsmenn sögðu aö vegna
þessa yrði ekki um neitt samkomulag
að ræða þegar kosið yrði í miðstjórn
flokksins. -S.dór
Kreppist en klofnar ekki
- var álrt flestra sem rætt var við efdr formannskjörið á laugardag
Raddir hafa verið uppi um að
hætta væri á að Alþýðubandalagið
klofnaði ef Ólafur Ragnar Gríms-
son yrði kjörinn formaður flokks-
ins. Raunar voru ýmsir sem héldu
því fram að sama væri á hvorn veg
formannskjörið færi, flokkurinn
myndi klofna. Margir landsfundar-
fulltrúar, sem DV ræddi við strax
að formannskjörinu loknu, vom á
því að flokkurinn myndi kreppast
nokkuð fyrst á eftir en ekki klofna.
Margir töldu að einhverjir stuön-
ingsmenn Sigríðar Stefánsdóttur
muni draga sig í hlé í flokksstarfmu
á næstunni. Aftur á móti hafi sigur
Ólafs verið svo stór og' afdráttar-
laus að þeir sem hafi verið að hugsa
um að kljúfa flokkinn hafi enga
stöðu til þess.
Hér fara á eftir svör nokkurra
landsfundarfulltrúa sem spurðir
vom álits á úrslitum formanns-
kjörsins og einnig hvort þeir teldu
að flokkurinn myndi klofna:
Svavar Gestsson, fráfarandi
formaður
„Ég er út af fyrir sig ánægður
með að þessari lotu er lokið. Hún
hefur verið erfið fyrir flokkinn.
Fjölmiðlar hafa getað fylgst með
því sem hér hefur verið að gerast
enda er Alþýðubandalagið opnara
en nokkur annar sijómmálaflokk-
ur á íslandi.
Alþýðubandalagið klofnar ekki
og að því er ég best veit hefur ekk-
ert slíkt staðið til.“
Guðrún Ágústsdóttir borgar-
fulltrúi
„Ég er eindreginn stuðningsmað-
ur Sigríðar Stefánsdóttur og það
hefur alltaf legið ljóst fyrir. Auðvit-
að hefði ég viljað að Sigríður hefði
hlotið meginþorra atkvæða og þvi
hef ég orðið fyrir vonbrigðum.
Ég hef enga trú á því að fólk
flykkist úr flokknum en hins vegar
getur það tekið tíma fyrir okkur,
sem var hafnað sem landsfundar-
fulltrúum en höfum starfað í
flokknum í áraraðir, að jafna okkur
á því. Það fer mikið eftir framkomu
sigurvegaranna hvernig við tökum
þátt í starfinu áfram. Ég mun að
sjálfsögðu starfa áfram sem borg-
arfulltrúi en ég þarf aðeins að fá
að jafna mig eftir þá meðferð sem
ég hef fengið."
Steingrímur Sigfússon al-
þingismaður
„Það er búið að kjósa nýjan for-
mann í Alþýðubandalaginu og ég
óska honum alls hins besta. Hans
bíða mikil verkefni og það er ein-
læg ósk allra alþýðubandalags-
manna að það takist að hafa
flokkinn samhentan og sameinað-
an.
Ég held að þessi orð mín svari
síðari spumingunni líka og aö
meira þurfi ekki aö segja. Það fylg-
ir góður hugur því sem ég hef sagt.“
Sigríður Stefánsdóttir
„Eg held að allir séu á þeirri skoð-
un að nú sé kominn tími til fyrir
fólk að fara að vinna í flokknum
og ég mun að sjálfsögðu leggja mig
alla fram um að gera það og taka
þátt í því starfi sem framundan er.
Það verður aö koma í ljós hvort
eitthvert bakslag kemur hjá fólki í
mínum stuöningshópi en ég vona
bara að fólk taki höndum saman
og fari að starfa.
Ég gerði mér grein fyrir því að
þessi kosning gæti farið hvemig
sem væri. Hennar vegna hef ég
haldið minni sálarró og hef verið
ákveðin í að gera það á hvorn veg
sem úrslitin yröu.“
Ragnar Arnalds alþingis-
maður
„Ég óska Ólafi Ragnari hjartan-
lega til hamingju með formanns-
stöðuna og engum alþýðubanda-
lagsmanni dettur annað í hug en
að standa fast viö bakið á nýkjöm-
um formanni. Ég mun gera allt sem
í mínu valdi stendur til aö honum
farnist vel í starfi.
Mér þykir það út í bláinn að tala
um klofning út af formannskjöri.
Það er fufl samstaða um málefni
og ég get ekki lesið neinn áherslu-
mun hjá formannsframbjóðendun-
um í þeim efnum. Flokkar em
myndaðir um málefni en ekki
menn.“
Skúli Alexandersson alþing-
ismaður
„Formannskjörið fór öðmvisi en
ég vildi en menn sætta sig viö orð-
inn hlut.
Það væri rangt að segja annað en
að líkur séu fyrir óróa innan
flokksins á næstunni en ég hef ekki
trú á því að flokkurinn klofni.“
Guðrún Helgadóttir alþingis-
maður
„Þessi niðurstaða er auðvitað
mikið gleðiefni fyrir þorra lands-
fundarfulltrúa. Olafur hefur hér
hlotið mikið traust. Ég er þess full-
viss að flokkurinn verður sterkari
eftir þennan landsfund en fyrir
hann.
Það er langt frá því að ég óttist
klofning. Orð Sigríðar Stefánsdótt-
ur hér áðan benda einmitt í
þveröfuga átt og það var ánægju-
legt að heyra það sem hún sagöi.“
Geir Gunnarsson alþingis-
maður
„Þama var ekki verið að kjósa á
milli pólitískra andstæðinga held-
ur samheija og ég er ánægður með
niðurstöðuna. Ég er á þeirri skoöun
aö flokkurinn þurfi nú að koma
sterkur út á hiö pólitíska svið og
ég hefþá skoðun að Ólafur Ragnar
sé líklegastur til að koma honum
þangað svo eftir verði tekið hjá
þjóðinni.
Ég óttast engin eftirköst."
Margrét Frímannsdóttir al-
þingismaður
„Ég viðurkenni að ég studdi ekki
Ólaf Ragnar en engu að síður hlaut
hann yfirgnæfandi meirihluta og
nú er það okkar allra að vinna sam-
an sem ein heild.
Ég óttast engin eftirköst og ég
held aö það hefði verið sama á
hvom veg formannskjörið hefði
farið hvað það snertir"
Hjörleifur Guttormsson vildi
ekki svara þessum spumingum
þegar hann var á leið út úr húsinu
eftir að niðurstaða formannskjörs-
ins lá fyrir. -S.dór