Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1987, Page 6
6
MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1987.
Viðskipti
Ríkið fiær hundruð milljóna
króna í tekjur af árekstrum
Ríkið fær hundruð milljóna króna í
tekjur af árekstriun á hveiju ári. Því
fleiri árekstrar því meiri tekjur til
ríkisins. Tekjur ríkisins á þessu ári
vegna tolla, vörugjalds og söluskatts
af varahlutum eru áætlaðar rúmlega
einn milljarður. Þá er áætlaður sölu-
skattur af iögjöldum bifreiðatrygg-
inga um 370 milljónir króna. Þetta
eru tölur frá Félagi íslenskra bif-
reiðaeigenda. Athugið að inni í
tölunni um tekjur af varahlutum eru
aö sjálfsögðu varahlutir vegna eðh-
legs viðhalds bíla.
Til viðbótar kemur söluskattur rík-
isins af vinnu sem innt er af hendi á
bílaverkstæðum, þegar gert er við
bílana. En það er ekki allt, Jónas
Bjamason, framkvæmdastjóri FÍB,
segir að um tvísköttun sé að ræða
vegna söluskattsins.
„Bíleigendur greiða söluskatt af
iðgjöldum bifreiðatryggingana. Síð-
an lendir bíllinn í árekstri og verður
fyrir tjóni. Tryggingafélögin greiða
varahlutina og vinnuna á verkstæð-
inu auk söluskatts með iðgjöldunum.
Þetta þýðir að verið er að greiöa sölu-
Bankakortin
tryggja aðeins
innstæðulaus-
ar ávísanir
- ekki falsaðar
Helgi Steingrímsson, sem sæti á í
starfshópi bankanna vegna banka-
kortanna, segir að þaö sé einfalt mál
að bankakort bankanna tryggi ekki
falsaðar ávísanir heldur innstæðu-
lausar og þá einungis í þeim tilvikum
þar sem tékkheftin eru í lagi og
bankakortin eru notuð.
Ábyrgð bankanna á ávísunum eru
nú að hámarki tíu þúsund krónur sé
bankakort notað. „Það er góð reynsla
af bankakortunum og þau hafa dreg-
ið úr fölsuðum tékkum í umferð.
Aðalatriðið er að verslunarfólk fylgi
eftir þeim reglum sem bankamir
setja,“ segir Helgi.
Helgi segir aöalatriðið að aldrei sé
lögð nægilega rík áhersla á það að
verslunarfólk láti viðkomandi út-
fylla tékkann á staðnum og að
bankakorti sé framvísað.
„Það skrifar enginn nafn eiganda
tékkheftis á eðlilegum hraða fyrir
framan afgreiöslumann nema eig-
andinn sjálfur. Þess vegna falsar
enginn tékka fyrir framan af-
greiðslumanninn og framvísar svo
bankakorti.“
Um það hvort ekki sé nauðsynlegt
að hafa mynd af eiganda tékkheftis-
ins á bankakortinu segir Helgi aö
hann tejji það ekki nauðsynlegt. Að-
alatriðið sé að starfsfólk verslana
láti viðskiptamennina nota banka-
kortin rétt. -JGH
Þorsteinn
Pálsson
sölustjóri
Hagkaups
Þorsteinn Pálsson hefur verið ráð-
inn sölustjóri Hagkaups. Þorsteinn
er 33 ára og hefur unnið hjá Hag-
kaupi síðan árið 1979, lengst af sem
innkaupastjóri. Hann tók við hinu
nýja starfi í október. Þorsteinn er
menntaður úr Verslunarskóla ís-
lands. Hann er kvæntur Kristínu
Árnadóttur.
-JGH
Blóðþrýstingur
mældur í
Kringlunni
Stjórnendur Kringlunnar hafa
ákveðið að janúar verði sérstakur
heilsumánuður í Kringlunni. Komiö
verður upp aðstöðu fyrir leikflmi og
léttar æfingar á götum verslunar-
hússins.
Ragnar Atli Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Kringlunnar, segir aö
ennfremur verði sett upp tæki svo
fólk geti látið mæla í sér blóðþrýst-
inginn. „Fyrirmyndin að þessu eru
stórmarkaðir í Bandaríkjunum en
þar hefur þetta líkað vel.“
Á næstunni ætla stjórnendur
Kringlunnar að vera með átak til að
fá fólk til að versla meira fyrri part
vikunnar en langmesta salan í
Kringlunni er nú á föstudögum og
laugardögum. -JGH
Bankastjóri bendir
Guðmundur Hauksson, bankastjóri
Útvegsbankans, kynnti á blaða-
mannafundi á dögunum nýjar
skipulagsbreytingar á bankanum.
Meginbreytingin er sú að enginn að-
albanki verður lengur hjá Útvegs-
bankanum heldur verður bankinn á
Lækjartorgi gerður að útibúi. Þá var
nýtt merki bankans sýnt. Síöast en
ekki síst greindi bankastjórinn frá
miklum gróða bankans eftir að hann
var gerður að hlutafélagsbanka í
vor. Ástæðan fyrir gróðanum er
sterk fjárhagsstaða bankans, en ríkið
lagði einn milljarö í bankann í vor,
og aukin innlán. -JGH
Guömundur Hauksson, bankastjóri Utvegsbankans.
DV-mynd GVA
Pétur Blondal:
Raunvextir eru orðnir allt of háir
„Raunvextir eru orðnir allt of háir
og ég tel að þeir geti ekki annað en
lækkað þegar til lengri tíma er htið.
Og þessi lækkun væri þegar komin
fram ef núverandi húsnæðislána-
kerfi heföi ekki komið til með mun
lægri raunvexti en gerist á markaön-
um,“ segir Pétur Blöndal, forstjóri
Kaupþings hf.
Pétur segir að húsnæðislánakerfið
dragi til sín það stóran hluta af fjár-
magni á markaðnum að umtalsverð-
ur skortur verði á fjármagni utan
húsnæðiskerfisins og það sé ástæðan
HörðurR.Ólafsson
hæstaréttarlögmaður
dómtúlkur í ensku
Njálsgötu 87 - sími
15627
fyrir svo háum vöxtum á þeim mark-
aði. Eftirspumin þar sé meiri en
framboðið. Auk þess valdi lægri
vextir á húsnæðislánum en gengur
og gerist meiri eftirspum í þau lán
og það þýði meiri heildareftirspum
eftir lánum á markaðnum.
„Þessir háu raunvextir, sem nú
gilda á markaönum, hvetja samt aft-
ur til spamaðar. Og það sjást augljós
merki um að spamaður fari vax-
andi. Það er hagstætt núna fyrir fólk
að draga úr eyðslu og fjárfestingu og
leggja fyrir og það er einmitt það sem
nú er að gerast. Þess vegna er að
koma aukið fjármagn fram á mark-
aðinn og við það ættu raunvextir að
lækka og ég held að það sé ekki langt
í að það gerist,“ segir Pétur.
Hann segir ennfremur að ef hús-
næðiskerfið heföi ekki orðið með
þeim hætti sem nú er væra raun-
vextir löngu komnir niður. „Mér
sýnist ekki fjarri lagi að álykta að
raunvextir á fj ármagnsmarkaðnum
væra þá um 5 prósent, að þar sé jafn-
vægiö.“
Að sögn Péturs ráðleggur hann
fólki að kaupa núna skuldabréf til
langs tíma á meðan raunvextir era
svo háir. Algengir raunvextir á
skuldabréfúm, sem boðin hafa verið
út að undanfömu, era um 8 til 10
prósent.
„Fólk ætti að frysta svo háa vexti
til langs tíma þar sem það er ekkert
sem segir að því bjóðist jafnháir
raunvextir eftir til dæmis tvö ár,“
segir Pétur Blöndal.
-JGH
Henson framleiðir skó
Halldór Einarsson fataframleið-
andi er að hefla framleiðslu á íþrótta-
skóm, tískuskóm, sem hann hyggst
setja á markað með vorinu. Skómir
verða framleiddir í Taiwan, að sögn
Halldórs.
Halldór segir að skómir verði ekki
einungis seldir á íslandi heldur mimi
umboösmenn hans í Skotlandi, ír-
landi, Noregi og annars staðar á
Norðurlöndum selja þá.
Skómir verða með Henson merk-
inu eins og annar fatnaöur frá
Halldóri Einarssyni. -JGH
skatt tvívegis af þeim peningum sem
tryggingafélögin fá inn í formi ið-
gjalda."
Jónas segir ennfremur að tekjur
ríkisins af innflutningi bíla sé áætl-
aður á þessu ári um 3,1 milljarður
króna, tekjur af notkun bíla, (bensín-
gjald, hjólbarðar, skattar af vara-
hlutum og viðgeröum og þungaskatt-
ur), um 4,9 milljarðar og aðrar tekjur
eins og af iðgjöldum bifreiöatrygg-
inga um 450 milljónir króna. Og þetta
geri alls um 8,5 mifijarða í tekjur af
bíleigendum á ári.
Að lokum er rétt að benda á að rík-
iö verður fyrir útgjöldum vegna
árekstra samanber sjúkrahúss-
kostnað vegna þeirra sem slasast.
-JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR Innlán óverðtryggð (%) hæst
Sparisjóðsbækur ób. Sparireikningar 16-21,5 Sp
3ja mán. uppsögn 18-22,5 Sp
6 mán. uppsögn 19-24 Ab
12mán. uppsögn 22-26,5 Úb
18mán. uppsögn 31 Ib
Tékkareikningar 6-12 Sp
Sér-tékkareikningar Innlán verðtryggð 8-20,5 Sp
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 • Allir
6 mán. uppsögn 3,5-4 Ab.Úb, Lb.Vb
Innlán með sérkjörum Innlán gengistryggð 21,5-30 Úb
Bandaríkjadalir 6-8 Ab
Sterlingspund 8,5-9 Ab.Úb, Vb.Sb
Vestur-þýsk mörk 3-4 Ab
Danskar krónur 9-10 Ib
ÚTLÁNSVEXTIR Útlán óverðtryggð (%) lægst
Almennir víxlar(forv.) 30-33 Sb
Viöskiptavíxlar(forv.) (1) 30,5-31 eða kge
Almennskuldabréf 31-35 Sb
Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir
. Hlaupareikningar(yfirdr.) Útlán verðtryggo 32-35 Sb
Skuldabréf 9-9,5 Úb.Sb,
Útlán til framleiðslu Ab
Isl.krónur 29,5-31 Sb
SDR 8,25-9,2- Sp
Bandaríkjadalir 9,25-10, 75 Sp
Sterlingspund 11,50-12 Vb.Bb
Vestur-þýskmörk 5,75-6,7- Sp
Húsnæðislán 3,5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 45,6
MEÐALVEXTIR
överðtr. sept. 87 Verötr. sept. 87 31,5 9,1
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala nóv. 1841 stig
Byggingavísitala nóv. 341 stig
Byggingavísitala nóv. 106,5stig
Húsaleiguvísitala Hækkaði 9% 1. júli
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóöa (uppl. frá Fjárfestingarfélaginu);
Avöxtunarbréf 1,2885
Einingabréf 1 2,301
Einingabréf 2 1,356
Einingabréf 3 1.422
Fjölþjóöabréf 1,060
Gengisbréf 1,0295
Kjarabréf 2,401
Lífeyrisbréf 1,157
Markbréf 1.223
Sjóösbréf 1 1,166
Sjóðsbréf 2 1,126
Tekjubréf HLUTABRÉF 1,262
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 114 kr.
Eimskip 278 kr.
Flugleiðir 196 kr.
Hampiðjan 118 kr.
Hlutabr.sjóöurinn 119 kr.
lönaðarbankinn 143 kr.
Skagstrendingurhf. 182 kr.
Verslunarbankinn 126 kr.
Útgerðarf. Akure. hf. 160 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavixlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavlxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb= Otvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um penlngamarkað-
inn birtast í DV á fimmtudögum.