Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1987, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1987, Side 10
10 MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1987. HANN VEIT HVAÐ HANN SYNGUR Úrval - ÓDÝRU flísarnar frá Portúgal - og allt til flísalagna. # AtFABORG ? BYGGINGAMARKAÐUR SKÚTUVOGI 4 - SÍMI 686755 Flísar í alla íbúðina - ítölsk hönnun og gæði Ti Jí Jí J? 3? Luxembom HELGARPAKKI til Luxemborgar fyrir aðeins kr. 18.320* . 09 SUPERPAKKI á aðeins kr. 20.010** Flogið með Flugleiðum og gist á hinu frábæra hóteli ■\^o6ucSjcu3 Swk! Það er margt að sjá og gera í Stórhertogadæm- inu Luxemborg. Fagurt landslag, fornar byggingar, fjölbreytt menningarlíf, verslanir og veitingastaðir. Nánari upplýsingar um HELGARPAKKA og SÚPERPAKKA færðu hjá söluskrifstofum Flugleiða, umboðsmönnum og ferðaskrifstofum. * frá 1/10 til 30/11 '87 *‘ frá 1/9 til 31/3 88 FLUGLEIDIR TRAUSTIR BÍLAR ÁGÓÐUM KJÖRUM Utlönd Ný sóknaráætlun gegn skæruliðum Filippseyski herinn kveöst hafa tekið upp nýja áætlun um sókn gegn uppreisnarmönnum úr rööum kommúnista. Hyggur herinn á sam- hæföa baráttu gegn kommúnistum í hvetju einasta þorpi Filippseyja og segir aö kommúnistar ætli að heröa ofbeldisherferð sína tii muna. Að sögn talsmanna hersins var ný áætlun um baráttu gegn kommúnist- um samþykkt á fundi á laugardag. Fundinn sátu hundrað og tíu hátt- settir liðsforingjar úr hemum, auk Corazon Aquino, forseta landsins. Þessi nýja áætlun nær til hernaðar- aðgerða, stjómmálalegrar baráttu gegn kommúnistum og efnahags- legra aðgerða gegn þeim. Sögðust talsmennimir vera bjart- sýnir á að með þessari nýju áætlun myndi takast að ganga miíli bols og höfuðs á kommúnistum á komandi ári. Filippseyski herinn telur að um þrjátíu prósent af þorpum í landinu séu annað hvort undir stjóm upp- reisnarmanna úr röðum kommún- ista eða að fjöldi þeirra hafl sest að í þorpunum. Herinn hefur undanfarið hvatt al- menna borgara til þess að mynda baráttuhópa gegn uppreisnarmönn- um. Mannréttindasamtök hafa mótmælt þessum baráttuhópum og sakað þá um að misnota vald sitt. Corazon Aquino kemur til fundarins á laugardag. Símamynd Reuter Fyrrum yfiimaður hers- ins styður Young-Sam Chung Sung-Hwa, fyrram yfirmaður hers Suður-Kóreu, skýrði frá því í morgun að hann hefði gengið í lið með Kim Young-Sam, forsetafram- bjóðanda annars af stærstu stjómar- andstöðuflokkum landins. Kvaðst hann verða ráðgjafi Kim Young-Sam í kosningabaráttunni. Chung gat sér það til frægðar að Chung Sung-Hwa og Kim Young-Sam á fundinum í Seoul í morgun. Símamynd Reuter lýsa yfir herlögum í Suður-Kóreu í október 1979 eftir að forseti landsins, Park Chung-Hee, var myrtur. Á þeim tíma sagðist Chung vilja sjá borgara- lega ríkisstjórn koma til valda í landinu. Honum var hins vegar steypt af stóh yfirmanns hersins tveim mánuðum síöar. Að falli hans stóð Chun Doo Hwan sem síöar varð forseti landsins. Kim Young-Sam var í morgun ein- róma kjörinn frambjóðandi flokks síns í forsetakosningum þeim sem fara eiga fram í desember. Hann býð- ur sig fram gegn Roh Tae-Woo, frambjóðanda stjómarflokks lands- ins, Kim Dae-Jung, leiðtoga annars stórs stjómarandstöðuflokks, og Kim Jong-Pil, fyrrum forsætisráð- herra Suður-Kóreu. Kennedy besti kosturinn Eftir tvær misheppnaðar tilnefn- ingar í embætti hæstaréttardómara búast aðstoðarmenn Reagans Banda- ríkjaforseta við aö hann velji Anthony Kennedy dómara síðar í þessari viku. Þetta kom fram í Was- hington Post í morgun. Blaðið hefur það eftir ónafngreind- um heimildarmönnum að Baker íjármálaráðherra og Meese dóms- málaráðherra þyki Kennedy besti kosturinn. Baker haföi viljað að Kennedy yrði tilnefndur í staö Gins- burg en það var Meese sem sann- færði Reagan um ágæti Ginsburgs. Kennedy er fimmtíu og eins árs gamall dómari frá Sacramento í Kah- fomíu og hefur Reagan þekkt hann í tuttugu ár. Kennedy kom til Was- Douglas Ginsburg greinir frétta- mönnum frá þvf aó hann hafi ákveðiö að draga sig til baka eftir fund meö Reagan Bandarikjafor- seta. Simamynd Reuter íhaldsmaðurinn Anthony Kennedy sem nú þykir Ifklegur til að veröa tilnefndur í embætti hæstaréttar- dómara. Simamynd Reuter hington á laugardaginn til fundar viö starfsmenn Hvíta hússins og dóms- málaráðuneytisins. Það var á laugardaginn sem Dou- glas Ginsburg tilkynnti að hann hefði beðið Reagan Bandaríkjaforseta um að draga tilnefninguna til baka þar sem umræður um fyrra lífemi hans skyggðu á skoðanir hans um dóms- mál og hæfni hans til að gegna embættinu. Tveimur dögum áður hafði Ginsburg látið þess getið að hann hefði neytt maríjúana á sjötta og sjöunda áratugnum. Á fóstudeginum hafði William Bennett, menntamálaráðherra Bandaríkjanna, hvatt Ginsburg til þess að draga sig til baka.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.