Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1987, Side 18
18
MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1987.
$RINTEC|
BANDSLIPIVELAR
Bandslipivélar, verö frá
B j a rg -
vætturinn
hreinsar
með
glans!
Fyrir
vaska. baðkör,
w.c. flísar, keramik-
eldabellur og margt fleira.
Heildsala - smásala
jporlAksson og nordmann hf
Réttarhálsl 2 - síml 83833.
(H9
Paraline ál og stál
panell. Margar
gerðir. Uppsett sýn-
ishorn í sýningasal
okkar.
Loftklæðningar frá
okkur, prýða nú 19
verslanir í Kringl-
unni.
ÍSLENZKA
VERZLUNARFELAGIÐ HF
UMBOÐS- & HEILDVERZLUN
Bildshöfða 16,
sími 687550.
Fréttir__________________________________________________________________dv
Grindavík:
Deilt um staðsetningu
heilsugæslustöðvar
„Sparisjóðurinn í Keflavík hefur hefur fengist frá ríkinu er hins veg- mönnum því orðið aðkallandi aö fá kostur verður fyrir valinu verður
boöist til að lána Heilsugæslustöö ar alveg óvist hvenær hægt verður nýtt húsnæði heilsugæslustöðin á annarri hæö.
Suðumesja fyrir 85% byggingar- að hefjast handa viö byggingu Varðandi nýja heilsugæslustöð „Það hefur ekki veriö tekin nein
kostnaðar nýrrar heiisugæslu- nýrrar heDsugæslustöövar," sagöi er um að ræða tvo kostL Annar er ákvörðun um hvor kosturinn verð-
stöðvar ef byggt verður ofan á Jón Gunnar Stefánsson bæjarstjóri sá að byggja nýtt hús á einni hæð ur fyrir valinu en það vegur
húsnæði það sem sparisjóðurinn í samtali við DV. en hinn er aö taka boði Sparisjóös- vissulega þungt að Sparisjóðurinn
er í Af þessu láni þarf ekki aö Heilsugæslustöð Suðurnesja rek- ins í Keflavík og byggja ofan á í Keflavík er reiðubúinn að lána
borga fyrr en ríkissjóður hefúr urheilsugæslustöövarvíttogbreitt verslunarmiðstöð að Vfkurbraut fyrir hluta af byggingarkostnaöi,“
veitt fjármagn til byggingar nýrrar um Suöumes og þar á meðal í 62, sera sparisjóðurinn byggði að sagöi Jón Gunnar.
heiisugæslustöðvar hér í Grinda- Grindavík.Þarerheilsugæslustöð- hluta til, en við frumhönnun þess -J.Mar
vík. Ef bíða á með að hefja fram- in til húsa í kjallara og hefúr yfir húss var gert ráö fyrir stóru lyftu-
kvæmdir þangað til fjárveiting að ráða 80 fermetra rými og flnnst rýmioghægumstigagangi.Efþessi
Vestmannaeyjar:
Sýning
á björg-
unar-
búnaði
Ómar Garðarsson, DV, Vestm.eyjum;
JC-klúbburinn í Vestmannaeyj-
um hafði frumkvæði að sýningu
björgunarbúnaðar í Eyjum og
tóku allir þeir aðilar sem starfa
að björgunarstörfum þátt í sýn-
ingunni og ieyfðu fólki að sjá
björgunarbúnað sinn. Sýningin
var haldin á planinu fyrir framan
slökkvistöðina.
Tilgangurinn var að leggja
áherslu á öryggismál og kynna
þann öryggisbúnað sem björgun-
arsveitir og félög í Vestmannaeyj-
um hafa yfír að ráða.
Eftirtaldir aðilar tóku þátt í
sýningunni: Björgunarfélag
Vestmannaeyja, Félag farstöðva-
eigenda, Hjálparsveit skáta,
lögreglan, slökkviliðið, Slökkvi-
tækjaþjónustan, Stýrimanna-
skóhnn, Vinnueftirlit ríkisins og
fleiri.
Þama voru sýndir allir slökkvi-
bílar bæjarins, nýi sjúkrabíllinn
og Hjálparsveit skáta sýndi nýjan
björgunarbát. Björgunarfélag
Vestmannaeyja sýndi hvernig
björgunarstóll virkar og fengu
þeir sem áhuga höfðu tækifæri
til að prófa hann.
Það var mál manna að þetta
heföi verið hin ágætasta sýning
og kom mörgum á óvart hversu
mikið er til af alls kyns björgun-
arbúnaði hér í Eyjum, og kannski
ekki vanþörf á.
Tvö bakarí á Sauðárkróki
Nýtt bakarí hefur verið opnað á
Sauðárkróki og eru þar með tvö
bakarí starfrækt á staðnum.
Stofnandi og eigandi nýja bakar-
ísins er Gunnar Guðjónsson og ber
það nafn eiganda síns, heitir Gunn-
arsbakarí. Eldra bakaríið heitir
Sauðárkróksbakarí og starfaði
Gunnar þar til ársins 1983 en bak-
aríið var í eigu fóður hans.
„Það hefur kitlað mig frá því ég
hætti að byrja aftur í bakstrinum
og ég ákvað að skella mér í að opna
eigið bakari,“ sagði Gunnar Guð-
jónsson en Gunnars-bakarí ertil
húsa að Borgarteigi 7.
„Ég er þess fullviss að hér er
markaður fyrir tvö bakarí enda
hefur verið hér í búðum varningur
frá bakaríum utan bæjarins. Ég
verð ekki með neina búð, verð bara
í framleiðslunni sem ég ætla að
selja í búðir. Til að byija með verö
ég fyrst og fremst með brauð,
kleinuhringi, snúða og fleira í þeim
dúr,“ sagði Gunnar.
-ATA
Nýr bátur í flotann
Júlia Imsland, DV, Hö&i:
Máltækið segir „laugardagur til
lukku“ og vonandi fylgir lukka
Drífu, níu metra löngum fiskibáti
sem sjósettur var á Höfn á laugar-
degi.
Eigandi Drífu er Ragnar Þrúö-
marsson í Miðfelli. Ragnar keypti
bátinn óinnréttaðan á Skagaströnd
og hefur það tekið hann rúmlega tvo
mánuði að innrétta hann, koma fyrir
tækjum og búnaöi og gera bátinn sjó-
kláran.
DV-mynd Ragnar Imsland
Höfrí:
Fiskibáturinn Drífa sjósettur á Höfn i Hornafirði.
Vetraríþróttamiðstöð á Akureyri?
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Nú er unnið að því á Akureyri
að bærinn verði viðurkenndur sem
vetraríþróttamiðstöð landsins á
sama hátt og Laugarvatn er mið-
stöð sumaríþrótta. íþróttafulltrúi
Akureyrar hefur unnið að þessu
máli og íþróttaráð hefur nú falið
honum að vinna að frekari hug-
myndum sem leitt gætu til þess að
Akureyri yrði gerð að alhliða
íþróttamiðstöð á virkari hátt en
verið hefur.
„Ef þetta gengur upp þýöir það
mjög aukin framlög frá íþróttasam-
bandi og ríkinu,“ sagði Sigbjörn
Gunnarsson, formaður íþróttaráðs
Akureyrar, í samtali við DV. „Það
er enginn staður á landinu sem
hefur jafngóða aðstöðu upp á að
bjóða eins og Akureyri, sérstaklega
þegar við erum nú að fá vélfryst
skautasvell eins og lengi hefur
staðið til.
Ég vil taka það fram að það er
aðeins verið að skoða þetta mál.
Hins vegar erum við búnir að festa
okkur heitið íþróttamiðstöð og get-
um einir notað það nafn.“
Sigbjöm sagði að nú væri verið
að endurskoða rekstur skíðahótels-
ins í Hlíöarfjalli. Þar hefur undan-
farin ár verið leigð út svefnaðstaöa
fyrir hópa og matur verið fram-
reiddur á staðnum. Aðsóknin hefur
hins vegar verið lítil og því spurn-
ing hvort þessi þjónusta verður
lögð af. Niðurstöður athugunar-
innar gætu hins vegar leitt til þess
að þessi þjónusta yrði aukin ef það
þaetti hagkvæmt.
Á síðasta vetri var tekin í notkun
ný lyfta í Hlíðarfjalli. Sigbjörn
sagði að með tilkomu hennar heföi
þörfin á því að kaupa nýjan snjó-
troðara til viðbótar þeim sem fyrir
em stóraukist og væri orðið aðkall-
andi mál að leysa. Að öðru leyti
væm aðstæður allar í Hlíðarfjalli
nú hinar bestu.