Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1987, Síða 32
44
Sandkom
MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1987.
PEUGEOT 205 GR
til sölu, skráður í júní 1987, ekinn 4500 km. Stað-
greiðsluverð aðeins kr. 360.000 (kostar nýr kr.
466.000 með ryðvörn og skráningu). Aðeins bein
sala. Innifalið í verði: útvarp með segulbandi, sætisá-
klæði, mottur, 4 nýjar felgur.
Upplýsingar í síma 68 63 75 og 61 22 63
Til sölu
Link-belt 20 tonna bílkrani,
árg. '75. Ný yfirfarinn.
R.B.- vélar og varahlutir
sími: 91-27020.
Gleymirðu stundum að
slökkva á ökuljósunum?
Verður bíllinn
rafmagnslaus
Við höfum lausnina -
Aðvörunarbjöllu sem
hringir ef Ijósin hafa
ekki verið slökkt þegar
svissað er af bílnum.
Passar í alla bíla.
Auðveld ísetning.
Verð aðeins kr. 300.-
Sveinn Egilsson hf.
Skeifan 17 — Sími: 685100
Kenfruck
Sænsku gæða lyfti- og pallettuvagnarnir
til afgreiðslu af lager.
Rjúpnaveiðimenn eru ánægöir meö
sinn hlut, ef marka má sögurnar sem
þeir segja af eigin veiöiskap.
Rjúpnaveiði-
menn í hár
saman
Það er ávallt talsverður
metingur á milli þeirra sem
stunda rjúpnaveiði um það
hverfærflestarijúpur. Nú
er uppi talsvert þjark á meðal
rjúpnaveiðimanna á Akur-
eyri. Þeir rengja veiðitölur
hver annars og gengur á
ýmsu. Einn segist t.d. hafa
skotið um 90 ijúpur á einum
degi í Bárðardal fyrir
skömmu. Annar segist eiga
metið þar í haust en hann
hafi þá skotið um 30 stykki.
Þama munar því ekki Utlu.
Heyrst hefur að bændur i
Bárðardal séu ekki mjög
hrifnir af sögum um mikla
veiöi þar í haust, sem þeir
segja stórlega ýktar. Telja
þeir að þessar tröllasögur
verði til þess að þar verði allt-
of mikil ásókn ijúpnaveiði-
manna, semerþó talsverö
fyrir. En á meðan halda sög-
urnar áfram að ganga manna
á milli og heldur hækka töl-
umar, eins og gjaman gerist
hjáveiðimönnum.
Hvað kostaði
afmælið?
Úlfhiidur Rögnvaldsdóttir,
bæjarfulltrúi Framsóknar-
flokksins á Akureyri, hefur
haft sig talsvert í frammi í
minnihlutanum á fundum
bæjarstjómar að undan-
fómu. Nýlega fór hún fram á
að bæjarstjóra væri falið að
taka saman kostnað vegna
afmælishaldsins í sumar er
Akureyrarbær átti 125 ára
kaupstaðarafmæli og kynna
bæjarstjórn niöurstöðumar.
Þessu erindi Úlfhildar var
hafnað en bæjarstjórinn
sagði að henni væri fijálst að
kynna sér kostnaðinn vegna
afmælisins. Það væri hins
vegar erfitt að henda reiður
á þessum kostnaði nákvæm-
lega vegna þess að hluti
starfsins vegna afmælisins
hefði verið unninn af bæjar-
starfsmönnum á venjulegum
vinnutíma þeirra.
En hvað sem því líður þá
mun nokkuð víst að kostnað-
urinn vegna afmælisins var
ekki mj ög hár og hefur verið
talað um 4-6 milljónir í því
sambandi. Davíð myndi varla
fmnastþaðmikið.
Bjargar Sam-
herji Sval-
barðseyri?
Segja má að Svalbarðseyri
sé nú staður í rúst eflitið er
til atvirmuástandsins þar og
ástæðuna ætti að vera óþarfi
að rekja. Nú kann hins vegar
að vera bjartara fram undan
á staðnum, því heyrst hefur
að útgérðarfyrirtækið Sam-
herji á Akureyri hyggist
kaupa eithvað af húseignum
á staðnum, sem nú em í eigu
Samvinnubankans.
Á Svalbarðseyri er m.a. lít-
ið frystihús sem Samheija-
menn em sagðir hafa hug á
að eignast og þegar þeir em
annars vegar kemur fátt á
óvart. Fyrirtækið, sem er
nokkurra ára gamalt, á nú
þijá togara og einn stóran bát
og rekstur þess er sagður í
blóma. Því gæti svo farið að
það verði Samherji sem kem-
ur eins og frelsandi engill til
Svalbarðseyrar og rífur at-
vinnulífið þar upp að nýju.
„Happy hour" heitir brennivínsaust-
urinn i Zebra.
Fjörugt
í Zebra
Sem kunnugt er hefur
skemmtistaðurinn H-100 á
Akureyri verið lagður niður.
Húsnæðinu var breytt mikið
og síðan var opnað aftur með
pompi og prakt og nú undir
nafninu Zebra. Eigandi stað-
arins hefur haft ýmsa tilburði
í frammi til að lokka að gesti
og mun hafa tekist þokkalega
upp. Eitt er að bjóða gestum
upp á „happy hour“ oger
þeim boðið upp á vildarkjör
á áfengi i klukkustund. Þetta
tilboð er þannig að gestur,
sem kaupir eitt glas, fær ann-
að ókeypis. Ef tvö em keypt
fylgja tvö með ókeypis o.s.
frv. Mun þetta hafa mælst
nokkuð vel fyrir og dæmi
hafa heyrst um að menn
kaupi sér 5-6 glös á einu
bretti, fái önnur 5-6 ókeypis
og taki síðan til starfa. Munu
margir hafa svifið ansi hátt
aö loknum „happy hour“ í
Zebra að undanfórnu.
Pétur leikhússtjóri Einarsson.
Við erum
bestir
Sýningar Leikfélags Akur-
eyrar á leikritinu Lokaæfing
efdr Svövu Jakobsdóttur
hafa gengið vel og hefur sýn-
ingin fengið ágæta dóma hjá
þeim sérfræðingum sem um
hana hafa fjallað. Pétur leik-
hússtjóri Einarsson er þvi að
vonum ánægður með fram-
vindu mála og hann segist
hafa fregnað að höfundurinn
hafi lýst því yfir að sýning
LA sé sú besta á verkinu sem
húnhefurséð.
Umsjón:
Gylfi Kristjánsson
Regnboginiv'Þijú hjól undir vagni:
Úr lágmenningar-
ruslatunnum
Kvi3anyndir
Þrjú hjól undir vagnl
Bresk frá Film four International
Framleiöandl: Sandy Liberson
Lelkstjórl: Alan Clarke
Handrit: Andrea Dunbar
Tónlist: Mlke McDuffe
Aöalhlutverk: George Costigan, Siob-
han Finneran, Michelle Holmes, Lesley
Sharp og Kulvinder Ghlr
Ekki er öll vitleysan eins. Það
má til sanns vegar færa um Kvik-
myndina Þijú hjól undir vagni sem
fjallar um fyrstu kynlífsreynslu
tveggja ungra breska stúlkna og
framhjáhald harðgifts manns.
Fyrsti hluti myndarinnar greinir
frá barnapíunum Ritu og Sue við
iðju sína. Upphefst leikurinn er
hjónin koma heim og eiginmaður-
inn býðst til að keyra stúlkumar
heim. Hann stoppar uppi á heiði
og tekur að fræða þær um lífsins
gagn og nauðsynjar varðandi kyn-
líf sem hefði sómað sér ágætlega í
fræðsluþætti um kynlíf. Bamap-
íumar og eiginmaðurinn fara að
gera þetta að reglu sinni að koma
við á heiðinni og gera sér glaðan
dag. Fer vel á með þeim þremur
uns eiginkonan kemst á sporið og
uppgvötar að ekki er allt með
felldu. Hún ákveður að heimsækja
stúlkumar og taka í hnakkadram-
bið á þeim og yfirgefur síðan
eiginmanninn með bæði bömin
meðferðis. Það virðist ekki hafa
mikil áhrif á eiginmanninn sem
býöur annarri að búa með sér en
hin fer að lifa með pakistana. í lok-
in sakna menn fyrri leikja og hjólin
Rita og Sue leggja á brautir lífsreynslunnar.
þrjú halda áfram að skrölta undir
vagninum.
Þijú hjól undir vagni er meö af-
brigðum vitlaus mynd, svo vitlaus
að vitleysan kemur manni til að
hlæja á köflum. Fólkið sem fram
kemur í myndinni er mestmegnis
lágstéttarfólk sem býr í verka-
mannabústöðum í Englandi. Það
er einmitt besti kostur myndarinn-
ar að sjá baksviðs lifnaðarhætti
sem fáir myndu sætta sig við hér á
landi. Leikurinn er ágætur, eink-
um hjá eiginkonunni Michelle sem
leikin er af Lesley Sharp, en sá sem
kom, sá og sigraði í þessari mynd
er faðir Sue, leikinn af Willie Ross.
Hann leikur atvinnulausan róna
framúrskarandi.
Sem fyrr segir hefur þessi mynd
lítið til síns ágætis nema helst til
að telja ágætan leik einstakra. Því
ættu þeir sem vilja leggja leið sína
í kvikmyndahús aö skoða hug sinn
vel áður.
-GKr