Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1987, Qupperneq 37
MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1987,
49
Fólk í fréttum
Gunnar Ragnars
Gunnar Ragnars, forseti bæjar-
stjórnar Akureyrar, hefur verið í
fréttum DV vegna endumýjunar
fiskiskipaflota Akureyringa.
Gunnar Sverrir er fæddur 25. apríl
1938 og lauk viðskiptafræðiprófi frá
H.í. 1964. Hann var við framhalds-
nám í hagræðingu í Osló 1967 og
var starfsmaður Póst- og síma-
málastofnunarinnar. Gunnar
hefur verið forstjóri Slippstöðvar-
innar hf. á Akureyri frá 1970 og var
formaður fulltrúaráðs sjálfstæðis-
félaganna á Akureyri 1975-1978.
Hann var varabæjarfulltrúi á Ak-
ureyri 1978-1982 og aöalbæjarfull-
trúi á Akureyri frá 1982 og hefur
verið forseti bæjarstjórnar frá 1987.
Hann var formaður stjórnar Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri
1980-1986 og formaður Menningar-
málaráðs Akureyrar frá 1986.
Gunnar var í stjórn Verslunarráðs
íslands 1980-1985 og í fram-
kvæmdastjórn Vinnuveitendasam-
bands íslands 1981-1984. Hann
hefur verið í stjórn Félags dráttar-
brauta og skipasmiðja frá 1970 og
í stjórn Landsvirkjunar frá 1987.
Gunnar hefur verið í stjórn Eim-
skipafélagsins frá 1987 og í mið-
stjórn Sjálfstæðisflokksins frá 1985.
Fyrri kona Gunnars var Hörn
Harðardóttir, f. 14. október 1938,
kennari. Foreldrar hennar eru
Hörður Ágústsson, loftskeytamað-
ur í Rvík, og Guðríöur Einarsdóttir.
Börn Gunnars og Harnar eru
Ágústa, f. 29. nóvember 1960, gift
Kristbirni Sigurðssyni verslunar-
manni, og Ólafur Friðrik, f. 10.
október 1963, tölvunarfræðinemi,
kvæntur Guðrúnu Kristófersdótt-
ur hjúkrunarfræðinema. Seinni
kona Gunnars er Guðríður Eiríks-
dóttir, f. 30. ágúst 1943, húsmæðra-
kennari. Foreldrar hennar eru
Eiríkur Brynjólfsson, ráðsmaður á
Kristnesi, og kona hans, Kamilla
Þorsteinsdóttir. Börn Gunn^rs og
Guðríðar eru Ragnar Friðrik, f. 22.
mars 1975, Eiríkur Geir, f. 22. apríl
1979 og Gunnar Sverrir, f. 22. apríl
1979.
Systkini Gunnars voru Ragnar
Friðrik, f. 31. mars 1937, d. 29. mars
1958, læknanemi, Karl Agúst, f. 27.
febrúar 1941, vélaverkfræðingur,
framkvæmdastjóri Jarðborana
ríkisins, kvæntur Emelíu Jóns-
dóttur og eiga þau þrjú börn, og
Guðrún, f. 5. maí 1953, hjúkrunar-
fræðingur í Rvík, gift Jens Helga-
syni rafvirkja og eiga þau tvö börn.
Foreldrar Gunnars. eru Ólafur
Ragnars, kaupmaður á Siglufirði,
og kona hans, Ágústa Ragnars. Ól-
afur var bróðir Kjartans sendi-
ráðunautar, foður Áslaugar
Ragnars rithöfundar. Systir Ólafs
var Guðrún, móðir Sunnu Borg
leikkonu. Faðir Ólafs var Ragnar,
kaupmaður á Akureyri, Ólafsson,
gestgjafa á Skagaströnd, Jónsson-
ar, b. á Helgavatni, Ólafssonar.
Móðir Ragnars var Valgerður
Narfadóttir, systir Valentínusar,
langafa Erlu, móður Þórunnar
Valdimarsdóttur sagnfræðings.
Móðir Ólafs var Guðrún Jónsdótt-
ir, sýslumanns í Eskiíirði, Johnsen,
bróður Þóru, móður Ásmundar
Guðmundssonar biskups. Jón var
sonur Ásmundar, prófasts í Odda,
Jónssonar og konu hans Guðrúnar
Þorgrímsdóttur, systur Gríms
Thomsen. Móðir Guðrúnar var
Kristrún Hallgrímsdóttir, prófasts
á Hólmum, Jónssonar, prests í
Reykjahlíð, Þorsteinssonar, forfóð-
ur Reykjahlíðarættarinnar. Móðir
Kristrúnar var Kristrún Jónsdótt-
ir, systir Margrétar, ömmu Ólafs
Friðrikssonar, og langafa Ragn-
heiðar, móður Friðriks Páls Jóns-
sonar fréttastjóra. Systir Kristrún-
ar var Guðný, langamma Jónasar
Haraldz.
Móðir Gunnars, Ágústa, er dóttir
Ágústs J. Johnson, bankagjaldkera
í Rvík, Kristjánssonar, b. í Mar-
teinstungu í Holtum, Jónssonar.
Móðir Ágústu var Guðrún Tómas-
dóttir, b. á Barkarstööum í Fljóts-
hlíð, bróður Ólafar, móður Ágústs
Johnsen, Tómas var sonur Sigurð-
ar, b. á Barkarstöðum, ísleifssonar.
Móðir Tómasar var Ingibjörg, syst-
ir Tómasar „Fjölnismanns",
langafa Helga, foöur Ragnhildar
alþingismanns. Faðir Ingibjargar
var Sæmundur, b. í Eyvindarholti,
Gunnar Ragnars.
Ögmundsson, sonarsonur Högna
„prestafóður". Móðir Guðrúnar
var Guðríður Árnadóttir, b. á
Reynifelli, Guðmundssonar, b. á
Keldum, Brynjólfssonar, foður
Ingiríðar, langömmu Þórðar Frið-
jónssonar, forstöðumanns Þjóð-
hagsstofnunar. Móðir Guðríðar var
Guðrún Guðmundsdóttir, dóttur-
dóttir Þuríðar Jónsdóttur, systur
Páls „skálda", langafa Jensínu,
móður Ásgeirs Ásgeirssonar for-
seta.
Egill Bjarnson
Egill Bjarnason . ráðunautur,
Bárustíg 1, Sauðárkróki, er sextug-
ur í dag.
Egill er fæddur á Uppsölum í
Akrahreppi og alinn þar upp hjá
foreldrum sínum. Hann vann öll
algeng sveitastörf og var í vega-
vinnu. Hann fór haustið 1945 á
Hvanneyri og lauk búfræðikandí-
datsprófi úr fyrstu framhaldsdeild
skólans 1949. Egill hefur starfað
sem búnaðarráöunautur Skagfirð-
inga frá 1949 og verið búnaðar-
þingsfulltrúi. Hann hefur starfað í
fjölda nefnda á vegum bændasam-
takanna og landbúnaðarráðuneyt-
isins.
Kona Egils er Alda Vilhjálms-
dóttir, f. 1928. Foreldrar Öldu eru
Vilhjálmur Árnason, b. á Hvalnesi
á Skaga, og kona hans, Ásta Krist-
mundsdóttir.
Börn Egils og Öldu eru Vilhjálm-
ur, f. 18. 12. 1952, framkvæmda-
stjóri Verslunarráðs, varaþing-
maður og fv. formaður SUS,
kvæntur Ragnhildi Pálu Ófeigs-
dóttur og eiga þau fjögur börn;
Ásta, fóstra, f. 12.12.1953, gift Lár-
usi Sighvatssyni, skólastjóra
Tónlistarskólans á Akranesi, og
eiga þau einn son; Bjarni, b. á Hval-
nesi, f. 24. 1. 1955, sambýliskona
hans er Elín Guðbrandsdóttir og
eiga þau þrjú börn; og Árni, slátur-
hússtjóri Kaupfélags Skagfirðinga
á Sauðárkróki, f. 1.9.1959, kvæntur
Þórdísi Sif Þórisdóttur og eiga þau
eitt barn.
Foreldrar Egils eignuðust átta
börn en misstu einn son á fyrsta
ári. Systkini Egils eru Halldór,
verkamaður í Hveragerði, f. 1923;
Kristín, húsmóðir á Sauðárkróki,
f. 1925; Jónas rennismiöur, rekur
vélaverkstæði á Akureyri, f. 1926;
Gísli, barnakennari við Laugagerð-
isskóla á Snæfellsnesi, f. 1930; Árni,
b. á Uppsölum í Akrahreppi í
Skagafirði, f. 1931, og Helga, kenn-
Egill Bjarnason.
ari í Varmahlíð í Skagafirði, f. 1935.
Foreldrar Egils eru bæði látin,
þau voru Bjarni, b. að Uppsölum,
Halldórsson og kona hans, Sigur-
laug Jónasdóttir frá Völlum.
Föðurforeldrar Egils voru Halldór,
b. á Syðstu-Grund í Skagafirði, Ein-
arsson og Helga Sölvadóttir.
Móðurforeldrar Egils voru Jónas,
b. á Völlum, Egilsson og kona hans,
Anna Jónsdóttir.
Amar Hauksson
Arnar Hauksson læknir, Sel-
vogsgrunni 20, Reykjavík, er fer-
tugur í dag. Arnar fæddist í
Reykjavík og ólst upp hjá foreld-
rum sínum á Jófríðarstöðum við
Kaplaskjólsveg. Hann lauk stúd-
entsprófi frá VÍ1968, embættisprófi
í læknisfræði frá HÍ 1975, öðlaðist
almennt lækningaleyfi 1976 og sér-
fræðileyfi í kvensjúkdómum og
fæðingarhjálp á íslandi og í Svíþjóð
1983. Arnar var aðstoðarlæknir á
Akureyri 1976-79, á kvennadeild
Landsspítalans 1979-1980 og við
Háskólasjúkrahúsið í Lundi í fram-
haldsnámi 1980-85. Arnar hefur
verið starfandi kvensjúkdóma-
læknir við Heilsuverndarstöðina í
Reykjavík, við Leitarstöð Krabba-
meinsfélagsins og við kvennadeild
Landspítalans frá 1985 en jafnframt
hefur hann stundað rannsóknir við
Háskólann í Lundi sl. sjö ár.
Kona Arnars er Elínborg, f. 26.
2. 1954 en foreldrar hennar eru
Björn tryggingayfirlæknir Önund-
arson prests Björnssonar og Sigríð-
ur frá Seljalandi í Reykjavík,
Sigurjónsdóttir.
Arnar og Elínborg eiga tvö börn:
Björn Önund, f. 6.4.1981; og Sigríði
Ösp f. 4.6.1983. Arnar átti svo dótt-
ur fyrir hjónaband, sem er
Gunnþórunn, f. 29. 6. 1969.
Arnar á tvö alsystkin, einn hálf-
bróður sammæðra og tvö hálf-
systkin samfeðra. Alsystkin
Arnars eru: Vilhelmína, ritari, f.
30. 8. 1950, hún á einn son, býr í
Reykjavík og er gift Þór Ragnars-
syni, þjóni og matsveini í Sjó-
mannaskólanum; Tómas Reynir,
rafvirki, f. 10.1.1957, kvæntur Silju
Ketonen og eiga þau einn son.
Bróðir Arnars sammæðra er Haf-
liði Pétursson sjómaður, f. 7.5.1937.
Systkini Arnars samfeðra eru Loft-
ur Bergmann, bifvélavirki, f. 30. 3.
1942, kvæntur Margréti Jóhanns-
dóttur; og Oddbjörg Kolbrún
húsmóðir, f. 25. 7. 1944, gift Gunn-
ari Þorlákssyni, félagsmálafulltrúa
Reykjavíkurborgar.
Foreldrar Arnárs: Haukur mál-
ari og sjómaður í Reykjavík, f. 4.
9. 1920, d. í mai 1968, Oddsson og
kona hans Sigríður Anna húsmóð-
ir, 30. 9. 1919, Magnúsdóttir.
Móðurforeldrar Arnars voru
Magnús b. í Ásahreppi og síðar
Arnar Hauksson.
verkamaður í Reykjavík, Stefáns-
son b. á Borg í Þykkvabæ, og kona
hans Anna, dóttir Péturs Magnús-
sonar og Önnu Benediktsdóttur.
Föðurforeldrar Arnars voru Oddur
Júlíus málarameistari í Reykjavík,
Tómasson, og Rannveig Margrét,
dóttir Guðmundar Sveinssonar og
Guðfmnu Magnúsdóttur. Tómas
langafl Arnars var skútuskipstjóri
hjá Geir Zoega í þrjátíu og sex ár
en hann mun hafa fyrstur útskrif-
ast frá Stýrimannaskólanum í
Reykjavík. Tómas var sonur Jóns
Oddssonar b. á Bala í Gnúpverja-
hreppi og Guðbjargar Halldórs-
dóttur frá Galtalæk í Biskupstung-
um. Kona Tómasar var Vilhelmína
Sofíía Sveinsdóttir af Grímsstaða-
holtinu í Reykjavík.
Andlát
„ ... „ . , . , , . Andreas S. J. Bergmann andaðist
Guðmundur Jónsson frá Asparvik Stefan Guðmundsson, fra Eystn- j Landakotsspítala 6. nóvember.
lést í Vífilsstaðaspítala 6. nóvemb- Hol í Landeyjum, andaðist t Vifils- .
er staðaspítala 5. nóvember. Dagny Bjork Guðmundsdóttir lést
í Landspítalanum 4. nóvember.
Afmæli
Einar Kvaran
Einar Kvaran, tölvufræðingur
DV, Hörpulundi 3, Garðabæ, er fer-
tugur í dag.
Einar er fæddur í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann lauk gagnfræða-
prófi 1964 og vann síðan í tvö ár í
Útvegsbankanum. Hann var eitt ár
við nám í London School of Foreign
Trade en síðan starfaði hann sem
tölvufræðingur hjá IBM frá
1968-1983, þar af þrjú ár í Noregi.
Hann var tölvufræðingur hjá Skrif-
stofuvélum hf. í Reykjavík
1983-1984 og hefur verið tölvufræð-
ingur hjá DV frá því í júní 1984.
Kona Einars er Kristín S. Kvaran,
f. 5. janúar 1946, frv. alþingismaður
og dagskrárgerðarmaður á Stöð 2.
Foreldrar hennar eru Stefán Guð-
mundsson, innheimtumaður í
Rvík, og kona hans, Guðrún Bene-
diktsdóttir.
Einar og Kristín eiga þrjár dæt-
ur. Þær eru: Bertha Gúðrún, f. 21.
júlí 1964, sambýlismaður hennar
er Jón Þ. Ólafsson, múrari í Hafn-
arfirði; Ragna Elíza, f. 29. janúar
1974; og Thelma Kristín, f. 19. sept-
ember 1984.
Einar á fimm systkini. Þau eru
dr. Guðrún Kvaran, f. 1943, ritstjóri
Orðabókar Háskólans, gift dr. Jak-
obi Yngvasyni, starfsmanni
Raunvísindastofnunar Háskólans,
og eiga þau tvö börn; Vilhjálmur
Kvaran, f. 1946, bílstjóri hjá Olgerð-
inni og búsettur í Garðabæ,
kvæntur Helgu Pálu Elíasdóttur og
eiga þau þrjú börn; Böðvar Kvaran,
f. 1949, húsgagnasmiður í Garðabæ,
kvæntur Ástu Árnadóttur og eiga
þau tvö börn; Hjörleifur, f. 1951,
fjármála- og hagsýslustjóri Reykja-
Einar Kvaran.
víkurborgar, kona hans er Kolbrún
Sveinsdóttir og eiga þau eina dótt-
ur, og Gísli, f. 1952, múrari á
Akranesi, kvæntur Önnu Alfreðs-
dóttur og eiga þau tvö börn.
Foreldrar Einars eru Böövar
Kvaran og kona hans, Guðrún
Kvaran. Faðir Böðvars var Einar
E. Kvaran, aðalbókari Útvegs-
bankans, Einarssonar H. Kvaran,
skálds og rithöfundar Hjörleifsson-
ar, prests á Undirfelli, Einarssonar.
Bróðir Einars í Útvegsbankanum *
var Ragnar, faðir Ævars R. Kvar-
an, leikara og rithöfundar. Móðir
Böðvars var Elínborg, systir Har-
aldar, útgerðarmanns á Akranesi.
Elínborg var dóttir Böðvars, kaup-
manns á Akranesi, Þorvaldssonar,
prests í Saurbæ á Hvalfjarðar-
strönd, Böðvarssonar. Móðir
Elínborgar var Helga Guðbrands-
dóttir frá Hvítadal. Móðir Einars,
Guðrún, var dóttir Vilhjálms, sjó-
manns í Rvík, Þorsteinssonar.
Móðir Guðrúnar var Ólafía Gísla-
dóttir.
90 ára________________________
Sigrún Grímsdóttir, Kleppsvegi 134,
Reykjavík, er níræð í dag.
Hansína Jónsdóttir, Keisbakka,
Skógarstrandarhreppi, er níræð í
dag.
Dýrunn Ólafsdóttir, Kárdalstungu,
Ásahreppi, er níræð í dag.
Guðlaugur Jóhannsson, Litla-Bakka,
Fremri-Torfustaðahreppi, er níræð-
ur í dag.
80 ára________________________
Páll Helgason, Aðalbraut 39A, Rauf-
arhafnarhreppi, er áttræður í dag.
75 ára
Sigurður Guðmundsson málari,
Skeiðarvogi 153, Reykjavík, er sjötíu
og fimm ára í dag. Hann verður að
heiman á afmælisdaginn.
Garðar Lárus Jónasson, Skipasundi
14, Reykjavík, er sjötiu og fimm ára
í dag. _____________________
70 ára
Aðalsteinn Símonarson, Laufskálum
I, Stafholtstungnahreppi, er sjötugur
í dag.
Brynjólfur Helgason, Lyngholti 14,
Akureyri, er sjötugur í dag.
Sérverslun
með blóm og
skreytingar.
Opi,) til /,/. 2/ iill k viiltl
0oDlóm
wQskír_ytnigii'
Laugauegi 55. simi 20266
Sendurr, um tand allL
V