Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1987, Blaðsíða 38
MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1987.
5(T
Merming
Þrjar
tónlistartiátíðir
Fyrir utan seinni tónleika Tónlist-
arsambands Alþýðu í Háskólabíói
klukkan tvö voru tvennir tónleikar
á laugardaginn klukkan fimm.
Þetta voru því mikil hlaup á milli
staða, ekki síst þegar undirritaður
þurfti að auki að vera viðloðandi
frumsýningu hjá Alþýðuleikhús-
inu klukkan íjögur. Það var því
Tónlist
Leifur Þórarinsson.
varla nema reykurinn af réttunum
sem upp úr hafðist. Þetta voru allt
tónleikar sem tilheyrðu hverjir
sinni tónlistarhátíðinni. Já, það
voru þrjár tónlistarhátíðir í
Reykjavík um helgina, þar af
standa tvær langt fram í vikuna.
Er þetta ekki einum of mikið?
Tónlistardagar Dómkirkjunnar
hófust klukkan fimm í Dómkirkj-
unni. Þar lék afburðagóður fransk-
ur organisti verk eftir rómantíska
Niðurlendinga og Frakka: Franck
Boellman og Vierne. Þó akkústíkk-
in og hljóðfærið í Dómkirkjunni sé
hvort tveggja í þurrari.lagi hljóm-
aði þetta létt og snyrtilega, þ.e.a.s.
það sem í náðist, sem var að vísu
ekki alltof mikið.
Og þá var það seinni hluti opnun-
artónleika djassdaga Ríkisútvarps-
ins. Þeir voru á Borginni. Þar var
komin Stórsveit Ríkisútvarpsins
með liðsauka og „svingaði" svo að
annað eins hefur varla heyrst hér
síðan Basiebandið kom hér við.
Sænski básúnuleikarinn og tón-
skáldið Mikael Ráberg átti eflaust
stóran hlut í þessu en hann er hér
staddur til að æfa sveitina og kenna
Stórsveit Ríkisútvarpsins „svingaði" svo annað eins hefur varla heyrst
lengi.
íslenskum djassleikurum sitthvað
um hinn eina sanna stórsveitar-
hljóm. Útsetningamar, sem sveitin
lék þarna, eru væntanlega flestar
eftir Raberg. Þær eru einfaldar og
skýrar og vel til þess fallnar að láta
ljósin skína. Og básúnuleikur hans
í mörgum laganna var stórkostleg-
ur. Djassdögum Ríkisútvarpsins,
sem á verða bæði stórir og smáir
tónleikar (í beinni útsendingu), er
fagnað mjög af djassáhugamönn-
um í landinu. Þeim lýkur ekki fyrr
en þ. 14. nóvember. Tónlistardög-
um Dómkirkjunnar lýkur hins
vegar á miðvikudaginn en þá verð-
ur m.a. frumflutt nýtt söngverk
eftir Atla Heimi Sveinsson, „Vetr-
armynd úr kirkjunni" við ljóð eftir
Knut Ödegárd. LÞ
Tónlistarsamband alþýðu
Ég minnist ekki að hafa heyrt
getið um Tónlistarsamband alþýðu
(Tónal) fyrr en nú. Þetta virðast
vera samtök tónlistaráhugamanna
innan verkalýðsfélaga. Er það vel
að sú mikla „stofnun", verkalýðs-
hreyfmgin, gangi til liðs við frú
Músíku.
Sambandið var með tvenna tón-
leika, í Langholtskirkju sl. fóstudag
og í Háskólabíói á laugardaginn,
undir slagorðinu tónlistarhátíð.
Þeir sem komu þarna fram voru
þrír gestakórar, Porsgrunn
Kvinnekor og Fagf. Sangf. Bl. Kor
(samkvæmt efnisskrá), báðir frá
Noregi, HK-Koret frá Silkeborg á
Jótlandi, Samkór Trésmiðafélags-
ins,. Álafosskórinn, Rarik-kórinn
Hrein og bein söngvagleði leyndi sér hvergi. DV-mynd Brynjar Gauti
og Lúðrasveit verkalýðsins.
Gestakórarnir komu fram í Lang-
holtskirkju á býsna löngum en alls
ekki leiðinlegum tónleikum. Efnis-
skráin var ótrúlega fjölbreytt og
spannaði u.þ.b. 400 ár evrópskrar
og amerískrar tónlistarsögu. Það
var hrein og bein söngvagleði,
áhuginn og hjartahlýjan leyndi sér
hvergi.
í Háskólabíói bættust íslending-
arnir, gestgjafarnir, við og ekki
verður annað sagt en að þeir hafi
staðið sig myndarlega. En svona
hátíð á að halda að sumarlagi og
það á að láta alþýðuna vita af þessu
svo hún mæti. Borgarana líka. En
auðvitað er alltaf gaman að syngja
og spila fyrir sjálfan sig.
Skák
Heimsmeistaraeinvígið í Sevilla:
Nýrri byrjun mætt
með gát
Jaröarfarir
Egill Gestsson tryggingamiðlari lést
1. nóvember sl. Hann fæddist 6. apríl
1916, sonur hjónanna Gests Árnason-
ar og Ragnheiðar Egilsdóttur. Egill
starfaði lengi hjá Almennum trygg-
ingum og síðan hjá Vátryggingafé-
laginu hf. í Reykjavík en stofnaöi
síðan sitt eigið fyrirtæki, Trygginga-
miðlun á Laugavegi 176, sem hann
starfrækti til dauðadags. Hann var
kvæntur Arnleifi S. Höskuldsdóttur
en hún lést árið 1986. Þau hjónin
eignuðust fjögur börn. Útför Egils
verður gerð frá Dómkirkjunni í dag
kl. 13.30.
Sæmundur Friðjónsson lést 30. okt-
óber sl. Hann fæddist á Hólum í
Hvammssveit í Dalasýslu 14. október
1903. Eftirlifandi eiginkona hans er
Ólöf Guðmundsdóttir. Útfór hans
verður gerð frá Laugarneskirkju í
dag kl. 13.30.
Óskar Sigurgeirsson, Kjarrhólma
36, Kópavogi, sem lést 30. október,
verður jarðsunginn frá Bústaða-
kirkju þriðjudaginn 10. nóvember kl.
13.30.
Sigríður Pétursdóttir, Laufásvegi
44, verður jarðsungin þriðjudaginn
10." nóvember kl. 15 frá Dómkirkj-
unni.
Guðríður Þorkelsdóttir, Snorra-
braut 73, Reykjavík, verður jarð-
sungin 11. nóvember kl. 13.30 frá
Hallgrímskirkju.
Oddur Þórðarson frá Eilífsdal, Álf-
heimum 46, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn 10.
nóvember kl. 15.
Þóra Pétursdóttir, Hamrahlíð 17,
lést á Borgarspítalanum 27. október
sl. Jarðarförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Guðbjörg Lilja Árnadóttir lést 2.
nóvember sl. Hún fæddist 4. sept-
ember 1909. Foreldrar hennar voru
Árni Jónsson og Guðbjörg Sigurðar-
dóttir. Eftirlifandi eiginmaður
hennar er Jóhannes Björnsson. Þau
eignuðust einn son. Útfór Guðbjarg-
ar verður gerð frá Fríkirkjunni í
Reykjavík í dag kl. 15.
LUKKUDAGAR
9. nóvember
32474
Hljómplata frá
FÁLKANUM
að verðmæti
kr. 800,-
Vinningshafar hringi í sima
91-82580
Ný umferðar-
IjósíÁrbænum
Ný umferðarljós voru tekin í notk-
un í Árbæjarhverfi á laugardaginn.
Umferðarljós hafa nú verið tengd á
gatnamótum Hraunbæjar, Bæjar-
háls og Bitruháls og önnur á mótum
Höfðabakka og Stekkjarbakka.
Að sögn lögreglunnar í Árbæjar-
hverfi var ekki vanþörf á að setja upp
ljós á þessum stöðum þvi umferð
hefur aukist gífurlega mikið um
Árbæinn að undanförnu. Margir aka
Stekkjarbakkann á leið sinni til
Hafnarfjarðar eftir að nýja Reykja-
nesbrautin var tekin í notkun. -ATA
Ekiðáhest
Ekið var á hest á Eyrarbakkavegi
rétt fyrir klukkan sjö á laugardag.
Dimmt var og skyggni ekki sem best
og sá ökumaðurinn hestinn ekki fyrr
en hann skaust í veg fyrir bifreiðina.
Aílífa varð hestinn.
Lögreglan á Selfossi stöðvaði bíl í
Ölfusinu um tvöleytið á sunnudag.
Bíllinn var á 145 kílómetra hraða og
missti ökumaðurinn prófið sam-
stundis vegna þessa háskalega
aksturslags. -ATA
Staðan er jöfn í heimsmeistara-
einvígi Karpovs og Kasparovs í
Lope de Vega leikhúsinu í Sevílla
á Spáni að loknum tíu skákum af
tuttugu og fjórum. Hvor hefur unn-
iö tvær skákir en sex hefur lokið
með jafntefli. Tíunda skákin, sem
tefld var á föstudag, var sú til-
þrifaminnsta í einvíginu til þessa.
Eftir tuttugu leiki bauð heims-
meistarinn, Kasparov, jafntefli sem
Karpov þáði eftir sjö mínútna um-
hugsun.
„Þetta var auðveldasta skákin
fyrir Karpov fram að þessu - Ka-
sparov náði engu úr byrjuninni,“
sagði sænski stórmeistarinn Ulf
Andersson, sem fylgist grannt með
gangi mála í Sevilla. Kasparov lék
kóngspeðinu fram í fyrsta leik í
fyrsta skipti í einvíginu og Karpov
svaraði með nýrri byrjun í sam-
skiptum þeirra félaga, Caro-Kann
vöm. Varla hefur byrjunarval
hans komið Kasparov á óvart því
að Karpov studdist viö þetta leik-
kerfi í einvígi sínu við Sokolov fyrr
á árinu. Samt var eins og Kasparov
ætti ekkert bitastætt í pokahorninu
til þess að mæta byijuninni, nema
hann ætli að geyma beittu járnin
þar til síðar.
Elleftu skákina tefla þeir í dag og
þá stýrir Karpov hvítu mönnunum.
Hvítt: Garri Kasparov
Svart: Anatoly Karpov
Caro-Kann vörn.
1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rd2 dxe4 4. Rxe4
Rd7 5. Rf3 Rgffi 6. Rxffi + Rxffi 7. c3
Sokolov komst ekkert áleiðis í
einvíginu við Karpov með 7. Re5,
sem talinn hefur verið beittari leik-
máti. Karpov svaraði ýmist með 7.
- Be6, eða 7. - Rd7. Það er eins og
þetta afbrigði sé skothelt í höndum
hans.
7. - Bg4 8. h3 Bxf3!
Gefur biskupaparið með glöðu
geði til þess að einfalda taflið. Vera
má að hvítur eigi heldur betra tafl
eftir þessi uppskipti en svarta stað-
an er sérlega traust.
9. Dxffi e6 10. Bc4 Be7 11. 0-0 Rd5 12.
Be3
Kasparov gælir við þá hugmynd
að opna f-línur a til sóknar, þ.e.a.s
ef svartur drepur biskupinn. Leik-
urinn ber samt ekki vott um mikið
baráttuskap. Eftir uppskiptin gefa
mislitir biskupar stöðunni jafnte-
flisblæ.
12. - Db6 13. De2 0-0 14. Hadl Bd6
15. Bb3
Betri vinningstilraun er 15. Bcl.
Karpov byggir nú upp varnarmúr.
15. - Rxe3 16. fxe3 c5 17. Hffi Hae8
18. Hdfl He7 19. Df2 Dc7 20. Dh4
Kasparov bauð jafntefli um leið og
hann lék, sem Karpov þáöi.
-JLÁ
t
Ykkur öllum, hvaðanæva af landinu, sem hafið fært okkur
samúðar- og vinarkveðjur í tilefni andláts og útfarar
HULDU MARKÚSDÓTTUR
frá Borgareyrum,
færum við hjartans þakkir og kveðjur.
Ólafur Jónsson,
Sigríður Magnúsdóttir, Markús Jónsson,
synir, systkini og aðrir ástvinir hinnar látnu.