Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1987, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1987, Síða 40
52 MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1987. Sviðsljós Ólyginn sagði,.. Angela Lansbury sem þekkt er meðal annars fyrir þættina Morðgáta hef- ur skrifað undir arðbæran samning. Hún gerði samn- ing viö pakkamatarfyrirtæki upp á 40 milljónir króna. Angela verður prentuð á bakhliðar milljóna pakka þar sem hún leggur fyrir neytendur léttar sakamála- þrautir. Auk þess mun hún Íeika í auglýsingum fyrir fyr- irtækið. Maður fær greini- lega ýmislegt upp í hendurnar þegar maður er frægur. Elizabeth Taylor gerði samning við sjón- varpsstöðina Network um daginn. Hún ætlar að leika í sjónvarpsþáttum bryðjuna Imeldu Marcos sem hvað þekktust er fyrir gífurlegt fata- og skartgripasafn sitt. Ef til vill gæti Liz lánað eitt- hvað af sínu safni í þáttinn. Liz fær aðeins smápeninga fyrir leik sinn, litlar 120 millj- ónir króna fastsett og meira ef vel gengur. Madonna hefur svo sannarlega átt misjafna daga. Hún barðist lengi fyrir vinsældum en það gekk mjög illa fyrst í stað. Hún var svo blönk að hún tók að sér að sitja fyrir á nektarmyndum fyrir Ijós- myndara. Einstaka sinnum átti hún ekki einu sinni fyrir mat og varð að éta upp úr ruslatunnum. í dag er það ekkert nema kampavín og rússneskur kavíar. x>v Eiður Guðnason, formaður Skátasambands Reykjavíkur, ávarpar veislu- gesti. Afmælistertan var nær tveggja metra löng. Skátastarf í 75 ár Mikil hátíðahöld standa nú yfir hjá skátum. Skáta- starf hófst hér á landi fyrir 75 árum og stendur yfir margs konar dagskrá um land allt í tilefni þess. Það var árið 1912 sem skátastarf hófst hér á landi.Tólf árumsíðarvarsíðan Bandalag ís- lenskra skáta stofnað, árið 1924. Starf kvenskáta hófst árið 1922 en þær fengu inngöngu í lands- sambandið árið 1944. í dag eru starfandi um 11.000 skátar á landinu í 40 skátafélögum og 120 deildum þannig að augljóst er að skátastarfið er öflugt. Um daginn tóku skátar á móti gestum í Skátahús- inu við Snorrabraut og voru þá þessar myndir teknar. Lífljósmyndara Það er oft ekki öfundsvert að vera ljósmyndari og eltast við Hollywoodstjörnur. Frægastur þeirra sem ekki þola ljósmyndara er líklega Sean Penn, eiginmaður Madonnu. Hann lætur hnefana tala í samskiptum viö ljósmyndara. En það eru fleiri sem eru erfibir. Ryan O’Neal, Robert De Niro, Bruce Willis og Barbra Streisand eru, að sögn ljósmyndara, fulit eins óþægileg aö eiga við. En þeir eru líka margir sem amast ekkert við þeim og eru jafnvel samstarfsfúsir. Uppáhald allra ljósmyndara er Liz Taylor. Hún stillir sér jafnan upp fyrir myndatökur. Aðrir vinsælir eru Victoria Principal, Linda Evans, Joan Collins, Robert Wagner, Cibyll Shepherd og gömlu sjarm- örarnir Kirk Douglas og George Burns. Þau virðast öll skilja það að góðar ljósmyndir geta hjálpað upp á ímynd þeirra sem leikara. Bruce Willis er álíka slæmur og Sean. Sá versti, Sean Penn, með Madonnu eiginkonu sinni. Liz Taylor er svo samstarfsfús við Ijósmyndara að hér stillti hún sér upp með tveimur þeirra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.