Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1987, Síða 10
10
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1987.
Úúönd
Nýr forsætisráðherra
Nýr forsætisráöherra var til-
nefndur í Kína í gær og mun hann
væntanlega taka viö embætti á
næsta ári, eltir að staðfesting þings
landsins á tilnefningu hans hefur
fengist. Þingiö kemur saman
snemma á næsta vori.
Þessi nýi forsætisráðherra heitir
Li Peng og tekur hann viö af Zhao
Ziyang sem veriö hefur forsætis-
ráöherra frá árinu 1980.
Vopn frá Gaddafí
Bresk yfirvöld sökuöu í gær Mo-
ammar Gaddafi, leiðtoga Líbýu, um
aö hafa sent hermdarverkamönn-
um írska lýðveldishersins, IRA,
mikiö magn vopna og sprengiefnis
á árunum 1985 og 1986.
Gaddafi hefur staðfaslega neitað
aö hafa sent IRA vopn en Bretar
teija sig nú hafa sannanir fyrir
slíku.
Mikil leit hefur fariö fram við
N-írlands og írska lýð-
vopnabirgðum sem þar
eru taldar geymdar á vegum IRA.
Erfíðleikar framundan
Utlitiö er nú talið fremur dökkt 1 fjármálum Evrópubandalagsins, eftir
að utanrikisráöherrar og landbúnaöarráðherrar aöiladarríkja bandalags-
ins náöu ekki samkomulagi um aögerðir til aö auka tekjur bandalagsins
og hefta útgjöld til landbúnaöarmála.
Er taliö að leiðtoga þjóðanna tólf, sem ætla aö hittast í Danmörku í
dag, bíði erfitt verkefni við aö leita lausna á vandkvæöum bandalagsins.
Telja sumir sérfræöingar jaínvel að efnahagsleg óreiða biði nú banda-
lagsins ef ekki verði gripið til róttækra aðgeröa.
Áhöfn bandarisks tundurduflaslæðara málar merki á brú skipsins fyrir hvert Tundurdufl sprengt á Persaflóa.
tundurdufl sem hún finnur og eyðileggur. Símamynd Reuter Simamynd Reuter
George Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í gær að stjóm-
völd í Sovétríkjunum væra ekki
reiöubúin til að samþykkja algert
bann við sölu á vopnum og víg-
búnaöi til írana. Vopnasölubanns
gagnvart íran er krafist í yfirlýsingu
Oryggisráðs Sameinuðu þjóðanna
um stríðið fyrir botni Persaflóa.
Aðspurður kvað utanríkisráðherr-
ann augljóst, af viðræðum sínum við
sovéska utanríkisráðherrann í Genf
undanfama daga, að Sovétmenn
væru ekki reiðubúnirtil þess að hefja
beinar aðgerðir gegn írönum. Sagðist
hann þó telja tímabært fyrir Banda-
ríkin að hefja beitingu refsiaðgeröa
til að þrýsta á írani um að gangast
að vopnahléi í stríði þeirra við írak.
Sagði Shultz augljóst að íranir
væru að fífla Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna. Þeir segöust hvað eftir
annað ætla að koma til funda um
styijöldina og hugsanlegar leiðir til
lausnar á deilumálum við Persaflóa
en létu síðan aldrei sjá sig.
íranir hafa undanfarna daga ráðist
að nokkrum skipum sem hafa verið
á ferð um Persaflóa.
Þá hafa þeir lagt töluvert af tundur-
duflum um flóann en yfirmenn
herskipa Bandaríkjanna, sem eru við
og á flóanum, segjast hafa fullt vald
á að eyða tundurduflunum eftir þörf-
um.
Samþykkja ekki
vopnasölubann
Dómari í E1 Salvador hefur
ákveðið aö draga þingmanninn
Roberto D’Aubuisson fyrir rétt fyr-
ir ætlaða aðild hans að morðinu á
Oscar Araulfo Romero, erkibisk-
upi í E1 Salvador, árið 1980.
Dómsmálaráðherra E1 Salvador
sagði fréttamönnum í gær að dóm-
arinn hefði farið þess á leit við þing
landsins að D’Aubuisson yrði
sviptur þinghelgi.
D’Aubuisson hefur neitað öllum
sakagiftum.
Óeirðir á Haíti
Þrír létu lifið og nokkrir særðust
í átökum á Haiti í gær. Mikils of-
beldis hefur gætt í kosningabaráttu
í landinu undanfama daga en nú
eru fimm dagar til forsetakosninga
þar. Verða þaö fyrstu forsetakosn-
ingar á Haiti um þijátíu ára skeið.
Lögregiumenn skutu í gær á sex
vopnaða menn sem reyndu að
kveikja í stórverslun, skammt frá
aöalstöövum eins af frambjóöend-
um í kosningunum. Felldu lög-
reglumennimir einn tilræðis-
mannanna.
Búist er við frekari ofbeldisverk-
um í landinu á næstu dögum.
Minjagripurinn molnaði
Tugir safnara, sem komnir voru saman hjá uppboðshaldara í Mið-
Englandi í gær, urðu þar fyrir miklum vonbrigöum. Þeir voru saman
komnir til þess að bjóða í mipjagrip um bresku konungsflölskylduna.
Þegar giipurinn var dreginn upp úr geymslupoka, þar sem hann haföi
veriö um hríö, molnaði hann niöur og varð að engu fyrir augum þeirra.
Ekkert varð úr uppboöinu og tekiö skal fram að tjónið hefur ekki enn
verið metið enda ekki vitað með vissu hvar gripurinn var tryggður.
Minjagripurinn var hálfétin ristuð brauðsneið með smjöri af morgtm-
verðarborði Karls prins og Díönu. Haföi bitinn náðst af leifúm fyrsta
morgunverðar hjónakornanna eftir brúökaup þeirra 1981.
Samningaviðræður milli kúbönsku
fanganna í Louisiana og Atlanta og
yfirvalda í Bandaríkjunum þokast
nú ekkert áfram. Hafa tólf einstakl-
ingar eða hópar komið fram sem
fulltrúar fanganna síðasta einn og
hálfan sólarhringinn og hafa allir
borið fram mismunandi kröfur.
Enn rýkur úr rústum fangabúð-
anna sem fangarnir kveiktu í í
upphafi róstanna og reynt er aö
slökkva eldinn úr þyrlum sem
sveima yfir búðunum. í Atlanta eru
það nær fjórtán hundruð fangar sem
taldir eru hafa sjötíu og fimm gísla í
haldi. i Louisiana tóku þúsund fang-
ar á laugardaginn tuttugu og átta
gísla.
Þúsund lögreglumenn standa á
verði fyrir utan fangabúðirnar í Atl-
anta þaðan sem þijú hundruð
fimmtíu og einn fangi hefur þegar
verið fluttur á brott. Hófst brottflutn-
ingurinn í gær og var fjöldi strætis-
vagna notaður við flutningana.
Fangelsisyfirvöld vildu ekki greina
frá hvert ferðinni væri heitið en sum-
um eiginkvenna fanganna var tjáð
að flytja ætti þá til annarrar stofnun-
ar.
Yfirvöld á Kúbu tilkynntu í gær að
kúbönskum flóttamönnum í Banda-
ríkjunum, sem snúið yrði aftur til
Kúbu, jrði veitt sakaruppgjöf fyrir
þá glæpi er þeir kynnu að hafa fram-
iö áður en þeir fóru frá Kúbu. Hins
vegar yröu þeir sem gerst hefðu brot-
legir viö lögin eftir komuna til
Bandaríkjanna að afplána fangelsis-
dóma á Kúbu.
■
■y^í-
Rúmlega þrjú hundruð kúbanskir fangar voru fluttir á brott frá fangabúðun-
um í Atlanta í gær. Ekki var greint frá því hvert þeir yrðu fluttir.
Símamynd Reuter