Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1987, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1987, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1987. Fréttir Kvótafmmvarpið á Alþingi: Bið fram yfir áramót getur breytt miklu - verði frumvarpið ekki afgreitt i dag er talið að miklar breytingar verði gerðar á því Þeir alþingismenn sem DV ræddi við í gær töldu útilokað að kvóta- frumvarpið verði afgreitt fyrir áramótin. Jafnvel þótt fullur vilji væri bæði í sjávarútvegsnefnd og neðri deild þingsins að hraða af- greiðslu frumvarpsins, er talið tæknilega útilokað að gera það vegna þess að mörg önnur stórmál eru í afgreiðslu í neðri deild. Þingmenn voru einnig sammála um að fyrst (ef) afgreiðsla frum- varpsins dregst franr yfir áramótin aukist til allra muna líkur á því að verulegar breytingar verði gerðar á frumvarpinu. Megn óánægja er hjá meirihluta þingmanna með frum- varpið eins og það er og vilja menn fá allt frá einni og upp í fjölmargar breytingar á því. Þá var það líka samdóma áht manna að ekkert gerði til þótt af- greiðsla frumvarpsins drægist fram yfir áramótin. Lögin myndu virka frá 1. janúar þegar þau verða samþykkt og það tæki ekki nema nokkra daga af janúar aö afgreiða frumvarpið. Að auki eru til lög, bæði frá 1948, sem notuð voru sem stoð við undir- skrift reglugerða við útfærslu landhelginnar í öll skiptin og lög frá 1976 um stjórnun fiskveiða í land- helginni, sem ráðherra getur stjórn- að fiskveiðunum með ef kvótafrum- varpið tefst eitthvað á Alþingi. -S.dór Bókalisti DV1987: Uppgjór konu vinsælust Þessi listi, sem nú er birtur, er sá síðasti um bókavertíðina 1987 og byggist á samantekt þeirra tíu versl- ana sem hafa haft samstarf við DV frá upphafi. Hér er reynt að draga fram 10 söluhæstu bækur vertíðar- innar miöað við sölu í þessum verslunum. í raun er fátt sem kemur á óvart við þennan lokalista - allar þessar bækur, fyrir utan Stelpnafræðarann, hafa verið á listanum áður og greini- lega náð jafnri og góðri sölu. Það kom fram í máli þeirra sem við var rætt að um fjórar fyrstu bækumar verður ekki deilt - þær eru óumdeilanlega söluhæstu bækur vertíðarinnar. Þá verður varla deilt um að það er bók Höllu Linker, Uppgjör konu, sem slegið hefur í gegn. Hún hefur náð fátíðri sölu enda verið langefst á DV-listanum utan einu sinni. Það er athyglisvert að allar þessar bækur eru frá sama bókaforlaginu, Iöunni. Á lokalistanum er, eins og áður sagði, fátt óvænt, nema hvað Halldór Laxness reyndist vera sterkur í loka- sölunni á Þorláksmessu og fleytti það honum inn í 7. sæti á heildarlistan- um. Þá voru nokkrar bækur við það að sleppa inn á lokalistann og má þar nefna Stjörnustæla Andrésar Ind- riðasonar, Á besta aldri eftir Jó- hönnu Sveinsdóttur og Þuríði Páísdóttur, Minningar Huldu Á. Stef- ánsdóttur III og fleiri. -smj Listi DV yfir 10 sölu- hæstu bækur 1987: 1. Uppgjör konu 2. Helsprengjan 3. Ný hugsun, ný von 4. Sænginni yfir minni 5. Asta grasalæknir 6. Pottþéttur vinur 7. Dagar hjá múnkum 8. Stelpnafræðarinn 9. Skuldaskil 10. Skrifað í skýin III Halla Linker Alistair MacLean Mikail Gorbatsjov Guðrún Helgadóttir Atli Magnússon Eðvarð Ingólfsson Halldór Laxness Miriam Stoppard Hammond Innes Jóhannes Snorrason Egilsstaðir: Lögreglan lokaði flugeldasólunni Anna Ingólfedóttlr, DV, Egilsstöðum: Hjálparsveit skáta á Egilsstöðum tók á leigu húsnæði viö Tjamarbraut á Egilsstöðum til þess að vera með flugeldasölu sem er árlegur viðburð- ur hjá þeim eins og öðrrnn hjálpar- sveitum á landinu. Við Tjamarbraut em nokkur fyrir- tæki og verslanir. Hafði salan verið opin í tvo daga þegar einum ná- granna fannst skapast af henni heldur mikið ónæði og kærði hana til sýslumanns Suður-Múlasýslu á þeim forsendum að sprengingar hefðu átt sér stað við billjarðstofu sem er í næsta húsi við söluna. Við billjarðstofuna safnast oft margir unglingar og í þessu tilfelli vom þeir með flugelda sem þeir skutu upp 1 loft og varð af því mikill reykur. Að beiðni sýslumanns Suður- Múlasýslu kom lögreglan á staðinn og lokaði sölunni. Við athugun lög- reglu og hjálparsveitar kom í ljós aö þeir flugeldar sem óþægindunum ollu voru ekki eingöngu úr sölu Hjálparsveitar skáta heldur frá öðr- um söluaðilum á staðnum. Ekki var tekið neitt tillit til þess í kærunni. Hjálparsveitarmenn vom að von- um mjög óhressir með aðfarir þessar þar sem flugeldasalan er þeirra stærsta fjáröflunarverkefni. Urðu þeir því í snarhasti aö finna sér ann- aö húsnæði undir söluna en Kaup- félag Héraðsbúa sá aumur á þeim, skaut yflr þá skjólshúsi og gaf þeim leyfi til aö selja flugelda í húsakynn- um slátursölu Kaupfélags Héraðs- búa. Matthias Bjarnason, einn harðasti andstæðingur kvótafrumvarpsins, blaðar í skjölum sínum á meðan hann hlustar á ræðu til stuðnings frumvarpinu. DV-mynd Brynjar Gauti Lögin frá 1976: Skrapdagakerfið var byggt á þessum lögum í umræðum um kvótafrumvarpið í neðri deild Alþingis var á það bent að ekkert gerði til þótt fmmvarpið næði ekki fram að ganga fyrir ára- mót þar sem til væm lög frá 1976 um stjómun fiskveiða innan íslenskrar fiskveiðilögsögu sem ráðherra gæti stuðst við. Að sögn Gylfa Gauts, lögfræðings í sjávarútvegsráðuneytinu, em til tvenn lög um fiskveiðar í íslenskri landhelgi. Hin eldri em síðan 1948 og við þau var stuðst þegar reglugerðir vom samdar um útfærslu landhelginnar í öll skiptin sem það var gert. Gylfi ságði að lögin frá 1976 hefðu verið notuö meðan hið svokallaða skrapdagakerfi var í gangi áður en kvótalögin komu. í þessum lögum em víðtækar heimildiir fyrir sjávar- útvegsráðherra til að stjórna fisk- veiðunum innan landhelginnar. Meöal annars em ákvæði í lögunum sem banna veiðar með botnvörpu innan fiskveiðilandhelginnar nema með leyfi ráðherra. Þegar kvótalögin vom sett féllu þessi lög úr gildi en að sögn Gylfa „vakna“ þau aftur og taka við þegar kvótalögin falla úr gildi nú um ára- mótin ef ný löggjöf nær ekki í gegnum Alþingi fyrir áramótin. -S.dór Skák: Þröstur Ámason á siguibraiit Þröstur Ámason er nú í efsta slnni í gær. sæti Evrópumei8taramóts ungl- Þá byijuðu þeir Hastíngsfarar. inga, 16 ára og yngri, ásamt Tómas Bjömsson, Hannes Hlífar Júgóslavanum Markovic en þeir og Siguröur Daöi, mjög vel og unnu em með þijá vinninga eftir þijár allir lítt þekkta skákmenn í fáum umferðir. Þeir félagar mætast í dag leikjum í fyrstu umferö. og er þaö ein af úrslitaskákura Ekki gengur nógu vel hjá Þresti mótsins. í gær vann Þröstur Þórhallssyni í Hoilandi og tapaði Svíann Hjelm sem heimamenn hann ! 10. umferð fyrir Búlgaran- bundu miklar vonir við. Guðfrföur um Benev. -SMJ Lilja Grétarsdóttir tapaði skák Matthías Bjamason: Ég ætla að skoða þetta mál mjög vel „Ég ætla að skoða þetta mál mjög vel og það er alveg Ijóst að kvótafrumvarpið verður ekki af- greitt fyrir áramótin," sagði Matthias Bjamason, formaður sjávarútvegsnefndar Alþingis, í samtali við DV í gær. Þá hafði Matthías haldið einn fund í sjávarútvegsneöid og með- al annars kallað til viðtais Jakob Jakobsson, forstjóra Hafrann- sóknastofnunar. Matthías sagöist ætla aö gera allt sem í hans valdi stæði til að ná samstöðu í sjávarútvegs- nefndinni um málið og að £á fram breytíngar á frumvarpinu. Til þess þyrftí tíma. Hann sagöist myndi leggja sig fram um að koma í veg fyrir að nefndin kiofn- aöi. „Þetta er stærsta mál þjóðar- innar og þaö er Oarri mér að sýna eitthvert ábyrgðarleysi með því að afgreiöa frumvarpiö óskoðaö á einhverju hundavaði," sagöi Matthías Bjarnason. -S.dór Kvótafvumvarpið: Halldór með reglu- gerðir tHbúnar Halidór Ásgrímsson hefur í ræðum á Aiþingi vitnað í ósamd- ar reglugerðir varöandi veiðar smábáta, díúprækjuveiðamar og frumvarpiö í heild. Hann hefur ekki sagt hvemig þessar reglu- gerðir era. I gær þegar allt útlit var fyrir að kvótafrumvarpið næði ekki í gegnum neðri deild lyrir áramót stóð til að Halldór sýndi sjávarút- vegsnefnd neðri deildar þessar reglugerðir. Þannig ætlaði hann að freista þess aö hraða fram- varpinu í gegnum neöidina. Halidór mun hafa ætlaö aö sýna fulltrúum smábátaeigenda reglu- gerðina um 10. grein framvarps- ins og töldu menn vonir til þess að þeir féllu frá andstöðu sinni við kvótafrumvarpið. Það er álit margra þingmanna aö með því að rýmka veiðar smábátanna verulega eða fella 10. greinina niöur úr frumvarpinu myndi andstaða viö frnmvarpiö á þingi minnka verulega og þaö fara í gegn fljótlega. Halldór Ásgrímsson sagöi í samtali við DV i gær aö hann væri enn ekki vonlaus um að frumvarpiö kæmist í gegn fyrir áramót og taldi aö reglugeröimar gætu liðkað til fyrir málinu. -S.dór Lýst eftir manni: Ekkerthefurtil hans spurst í tvo mánuði Lýst er eftir 35 ára gömlum manni, Inga Jóhanni Hafsteinssyni. Til hans hefur ekki spurst síðan 3. nóvember. Ingi Jóhann er 180 sentímetrar á hæð í meðalholdum, hann er frekar breið- leitur, með alskegg og ljóst, litað hár. Síðast sást til ferða hans á Skaga- strönd aö morgni 3. nóvember. Allir þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir hans frá þeim eru beðnir um aö gefa sig fram við lögregluna. -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.