Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1987, Page 6
6
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1987.
Viðskipti
Mjög svo tímabær umræða:
Island hefúr kosti sem
bankaland eins og Sviss
Dr. Mikael M. Karlsson, Banda-
ríkjamaður sem kennir heimspeki
við Háskóla íslands, telur að íslend-
ingar eigi að huga vel að því hvort
ísland sé ekki upplagt land sem
bankaland líkt og Sviss og mörg önn-
ur smáríki. Hann segir að við eigum
aö huga að kostum þess að ráðast í
verkefni sem hafi reynst þjóðum á
stærð við okkar einkar hagkvæmt,
krefjist lágmarksíjárfestingar og
myndi til tilbreytingar hafa vænleg
Pemngamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggö
Sparisjóðsbækur ób. 20-22 Lb.lb. Ob.Vb, Sp
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 20-24 Ub.Vb
6 mán. uppsógn 22-26 Úb
12mán. uppsogn 24-30,5 Úb
18mán. uppsógn 34 Ib
Tékkareikningar, alm. 6-12 Sp.lb, Vb
Sértékkareikningar 12-24 Ib
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6mán. uppsögn 3,5-4 Ab.Úb, Lb.Vb
Innlán meðsérkjörum 18-34 Sb
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadahr 6-7,25 Ab.Sb.
Sterlingspund 7,75-9 Ab.Sb
Vestur-þýsk mórk 3-3,5 Ab.Sp
Danskar krónur 8,75-9 Allir nema Bbog Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 33-34 Sp.Lb. Úb.Bb, Ib.Ab
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) 36eða kaupgengi
Almennskuldabréf 36-37 Lb.Bb. Ib.Ab, Sp
Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 36-39 Lb.Bb. Ib.Ab.
Útlán verðtryggð
Skuldabréf 9,5-9,75 Allir nema Úb
Útlán til framleiðslu
Isl.krónur 31-35 Úb
SDR 8-9 Vb
Ba^daríkjadalir 9-10,5 Vb
- Sterímgspund 10,5-11,5 Vb.Úb
Vestur-þýsk mörk 5,5-6,5 Vb
Húsnæðislán 3,5
Lifeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 49,2 4.1 á mán.
MEÐALVEXTIR
óverðtr. des. 87 35
Verðtr. des. 87 9,5
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala des. 1886 stig
Byggingavisitala des 344 stig
Byggingavísitalades. 107,5stig
Húsaleiguvisitala Hækkaöi 5% 1 okt.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa veröbréfasjóöa
Ávóxtunarbréf 1,3536
Einingabréf 1 2,507
Einingabréf 2 1,466
Einingabréf 3 1,553
Fjölþjóðabréf 1,140
Gengisbréf 1,0295
Kjarabréf 2,518
Lífeyrisbréf 1.260
Markbréf 1,277
Sjóðsbréf 1 1,226
Sjóðsbréf 2 1,226
Tekjubréf 1,317
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennartryggingar 1.30 kr.
Eimskip 365 kr.
Flugleiðir 252 kr.
Hampiðjan 136 kr.
Hlutabr.sjóðurinn 141 kr.
Iðnaðarbankinn 154 kr.
Skagstrendingurhf. 186 kr.
Verslunarbankinn 133 kr.
Útgerðarf. Akure. hf. 174 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavixlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað viö sórstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viöskiptavíxla gegn 31 % ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = Iðnaðarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb = Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
ísland sem bankaland líkt og Sviss, Austurriki og Lúxemborg? Það er eng-
in spurning að ísland hefur marga góða kosti og þetta er ábatasöm atvinnu-
grein sem krefst litillar fjárfestingar og gerir smáþjóðum kleift að sneiða
hjá erfiðleikum sem oft hrjá þær í alþjóðlegum gjaldeyrisviðskiptum.
frekar en skaðleg áhrif á viðskipta-
hallann við útlönd. Um þetta ritar
Mikael mjög athyglisverða grein í
nýjasta hefti efnahagsritsins Vís-
bendingar. í greininni skírir hann
þessa þjónustu fjárhæli.
Það eru fleiri til en þeir í Sviss
Hann segir þar: „Allir vita að sviss-
neskir bankar eru fjárhæli; í þeim
má geyma fjármuni í næði og með
leynd. En færri viröast vita hve al-
geng fjárhælisþjónusta er í heimin-
um. í meira en þrjátiu löndum er
slík þjónusta veitt en þó ekki alltaf
með sama hætti og í Sviss. Fjárhæli
er til dæmis að finna í Austurríki og
Lúxemborg, í Hong Kong og Singa-
pore, Liechtenstein og Andorra, í
Panama, Costa Rica og Dóminik-
anska lýðveldinu, í Líbanon og
Jórdaníu, á Mön og Ermarsundseyj-
um.“
Jafnvel í Sovétríkjunum
Mikael nefnir fleiri smáríki og seg-
ir svo: „Jafnvel í Sovétríkjunum
gilda lög sem tryggja útlendingum
bankaleynd leggi þeir beinharöan
gjaldeyri í þarlenda banka.“
Ennfremur: „Eins og sjá má eru
það einkum smáþjóðir, flestar reynd-
ar eyþjóðir, sem veita fjárhælisþjón-
ustu. Margir þeirra staða sem
nefndir voru hér aö ofan eru fámenn-
ari en ísland og sums staðar er
mannfjöldi jafnvel minni en í Kópa-
vogi.“
Þetta er ábatasamur
atvinnuvegur
Síðan kemur hann að mjög athygl-
isverðum punkti: „Fjárhælisþjón-
usta er ábatasöm, krefst frekar
lítillar fjárfestingar og gerir smá-
þjóðum kleift að sneiða hjá erfiðleik-
um sem oft hrjá þær í alþjóðlegum
gjaldeyrisviðskiptum."
Friðsælt á íslandi
Hann minnist næst á kosti íslands
sem bankalands og nefnir fyrst þann
frið sem ríkir á Islandi. „Auðvitað
er mikilvægt þeim sem leggur fé í
banka að fjármunir hans séu ekki í
hættu vegna innrásar, uppreisnar
eða annarra sviptinga í landinu. Það
er því skiljanlegt að útlendingum
fmnist ekki ýkja freistandi nú að
senda fé sitt til vörslu í Líbanon eða
Panama, og sumir hika jafnvel viö
að geyma fé í Hong Kong eða Singa-
pore. Samanboriö við margar þjóðir
sem veita fjárhælisþjónustu er
stjórnmálaástand á íslandi traust.“
ísland er á kortinu
Hann nefnir næst kunnugleikann:
„Norður-Ameríka er mikilvægasti
upprunastaður þess fjár sem geymt
er á fjárhælum, og íbúum Norður-
Ameríku fmnst öruggara að eiga
viðskipti við Evrópumenn en við
Asíumenn."
Við erum traustir í viðskiptum
Og þá nefnir hann sem kost að ís-
lendingar séu einir af Norðurlanda-
þjóðunum. „Af einhveijum
undarlegum ástæðum, sem Noröur-
landabúar skilja manna síst, eru þeir
taldir vera flestum öðrum vandvirk-
ari og áreiðanlegri i viöskiptum.
íslendingar ættu að njóta góðs af
þessu orðspori í samkeppni við aðrar
þjóðir, jafnvel Evrópuþjóðir.“
Enskan er með okkur
í fjórða lagi nefnir hann málakunn-
áttuna sem rök. „Fjárhælisþjónusta
er auðvitað alþjóðleg og krefst þess
að viðskipti fari fram snurðulaust á
ýmsum tungumálum, sérstaklega á
ensku. í þessu tilviki hafa íslending-
ar vinninginn í keppni við mörg
fjárhælislönd.“
Þögnin um peningana
Loks er það þagmælskan. „Víst er
aö þeir sem nota fjárhæli vilja
ógjarnan hafa hátt um það. Þeir vilja
gjarnan skipta við fjárhæli sem hafa
ekki hátt um þá starfsemi. Hvert
mannsbarn veit að í Sviss eru fjár-
hæli, en færri vita að nágrannalönd-
in Austurríki og Lúxemborg veita
slíka þjónustu. Þétta skýrir að hluta
velgengni Lúxemborgar í þessum
efnum. Sum fjárhælislönd, til dæmis
Lichtenstein, Caymaneyjar og Pa-
nama, eru ekki almennt þekkt sem
shk, en þau hafa gert þjónustu við
skattsvikara að sérgrein sinni og eru
þess vegna undir smásjá skattayfir-
valda víða um heim. Fíárhælisþjón-
usta í Lúxemborg beinist hins vegar
að löglegum viðskiptum og sleppur
þyí við óþægilega athygli."
Lúxemborg er góð fyrirmynd
Við grípum svo loks niður í grein
Mikaels þar sem hann segir hvernig
fjárhælisþjónustu íslendingar ættu
mest að huga að. „Sú fjárhælisþjón-
usta sem borgar sig fyrir okkur að
huga að, og mundi líkjast því sem
gerist í Lúxemborg, byggist ekki á
því að bjóða fyrst og fremst upp á
dularfulla bankareikninga og
geymsluhólf að fela í ljármuni. Hún
felst í víðtækri, alþjóðlegri banka- og
flárfestingaþjónustu, gjaldeyris-
verslun, útgáfu og sölu sparibréfa,
aðstöðu til alþjóðlegrar verslunar
með hlutabréf, verðbréf og jafnvel
aöra fjármuni."
-JGH
Sígarettur hamstraðar í október
í nóvember seldust um tveimur
miUjónum færri sígarettur en í okt-
óber að sögn Svövu Bernhöfts hjá
ÁTVR. Ástæðan er ekki sú að
landinn sé aö minnka við sig í reykn-
um heldur hækkuðu sígarettur 12.
október um 8 prósent og það var nóg
til þess að reykingamenn tóku við
sér.
Að sögn Svövu seldust um 35,6
milljónir sígarettna í nóvember á
móti um 37,5 níilljónum í október.
Sem fyrr er það rauður Winston sem
selst langmest. Af þeirri tegund seld-
ust um 12,8 milljónir sígarettna í
nóvember. Winston lights var í öðru
sæti með um 4,7 milljónir seldra síga-
rettna og Camel venjulegar voru í
þriðja sæti með sölu upp á um 3 millj-
ónir sígarettna.
Kóngurinn á markaðnum er Rolf
Johansen en hann er með um 80 pró-
sent af allri sígarettusölu í landinu.
-JGH
Víntegundum fækkar
um fimmtíu í Ríkinu
Vintegundum í verslunum er að hætta sölu á. Og af vodka
ÁTVR er að fækka um fimmtiu munu landsmenn ekki sjá í fram-
talsins. Sumar eru þegar dottnar tiðinni tegundir eins og Vladivar
út og aðrar eru á leiðinni í burtu, Imperial, Baranof og Greenland.
að sögn Þórs Oddgeirssonar, sölu- , j>að hefur sáralítið fallið út af
stjóra ÁTVR. „Það eru fyrst og léttvínum en það gæti orðið svo á
fremst þær tegundir sem lítiö hafa næstunni en þá koma örugglega
selst sem hafa veriö teknar úr nýjar tegundir inn í staðinn sem
sölu,“ segir Þór. líklegt er að raunu seljast,“ segir
Þór nefiúr koníak eins og Martel Þór.
og Luze Three Crowns sem verið -JGH
Dollarinn á 35,76 krónur
Dollarinn var skráöur hjá Seðla-
banka íslands á 35,76 krónur í gær.
Miöaö er við kaupgengi. Þetta er
lægsta verö á dollaranum í áraraðir
hjá Seðlabankanum. Þaö var í fyrra-
dag sem dollarinn rauf 36 króna
múrinn. Hann fór þá niður í 35,87
krónur. Mörg fyrirtæki á íslandi sáu
þessa þróun dollarans á árinu ekki
fyrir og reiknuðu reyndar frekar
með aö hann yrði kominn upp í 43
krónur í árslok. -JGH
Úlfiir er svartsýnn
Úlfur Sigurmundsson, viöskipta-
fulltrúi 1 New York, segir að
kaupmáttur fólks í Bandaríkjunum
sé að minnka og mikill viöskipta-
halli Bandaríkjamanna og lækk-
andi gengi Bandaríkjadollars hafi
slæm áhrif á útflutning okkar til
Bandaríkjanna. Þetta kom fram í
erindi hans á ráðstefnu hjá Útflutn-
ingsráði íslands á dögunum.
„Afleiðingin fyrir okkur íslend-
inga er mikill samdráttur í útflutn-
ingi og viðskiptum við Bandartkin,
sem virðist verða til þess aö við
minnkum markaöshlutdeild okkar
í Bandaríkjunum á öllum helstu
mörkuöum okkar þar,“ segirÚlfur.
Úlfitr segir ennfremur aö íslend-
ingar hafi að saraa skapi aukið
útflutning sinn til annarra landa
eins Evrópulanda og Japans. Um
fiskmarkaðinn í Bandaríkjunum
segir Úlfur: „Óvarlegt er að spá
neinni aukningu árið 1988 nema
eitthvað breytist í Efnahagsbanda-
lagslöndunura sem geri Banda-
ríkjamarkað eftirsóknarverðari.“
-JGH
Ulfur Sigurmundsson.