Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1987, Qupperneq 9
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1987.
9
dv Útlönd
Andrés
önd
stjómar
jólahaldi
Svía
Guimlaugur A. Jónsscm, DV, Lundú
Skoðanakönnun, er gerð hefur ver-
ið um jólahald Svía, sýnir að það
stjómast að verulegu leyti af sjón-
varpsdagskránni og þá fyrst og
fremst af Andrési því það er sama
teiknimyndasyrpan um Andrés önd
og félaga sem sýnd er ár eftir ár og
byrjar ætíð klukkan 15.00 á aðfanga-
dag.
Segja má að Andrés önd gegni sama
hlutverki fyrir Svía og kirkjuklukk-
urnar heima klukkan 18.00 á að-
fangadag. Andrés önd er nefnilega
staðfestingin á því að jólin séu raun-
venilega gengin í garð.
Á aðfangadag í Svíþjóð má segja
að tíminn miðist við Andrés önd, fyr-
ir og eftir Andrés önd. Áðumefnd
skoðanakönnun sýnir að mikið
meira en helmingur barnafjöl-
skyldna landsins borðar aðalmáltíð
dagsins áður en Andrés önd byijar í
sjónvarpinu og aðeins sjö prósent af
ljölskyldunum vogar sér að setjast
að borðum á meðan Andrés önd er í
sjónvarpinu. Margar þeirra snæða
fyrir framan sjónvarpstækið.
Kirkjan hefur lika gert sér grein
fyrir því að ekki sé mjög viturlegt
að messa á sama tíma og Andrés önd
er sýndur í sjónvarpinu. Þess vegna
eru flestar fjölskylduguðsþjónustur
látnar byija á tímabilinu 13.00 til
14.00 á aðfangadag þannig að fjöl-
skyldan nái ömgglega heim áður en
teiknimyndasyrpan byijar.
Mörgum þykir nóg um hvemig
sjónvarpið hefur þannig gjörsamlega
tekið völdin yfir jólahaldi Svía. Ann-
að prógram, sem hefur svipað
aðdráttarafl og Andrés önd um hátíö-
arnar, er myndin víðfræga um
greifynjuna og þjóninn. Það er orðin
alveg föst hefð að sjónvarpið sýni þá
mynd klukkan 22.50 á gamlárskvöld
og það er sama hve Svíinn hefur inn-
byrgt mikið af kampavíni eða
annarri fljótandi fæðu þegar þar er
komið sögu á gamlárskvöld þá sér
hann ætíð til þess að missa ekki af
þessum dagskrárlið sem hann hefur
þó séð ótal sinnum áður.
Sagt hefur veriö að böm elski end-
urtekningar og með því era vinsæld-
ir Andrésar andar á aðfangadag
skýrðar. Þau hafa ekkert á móti því
aö heyra sömu söguna fimm til sex
sinnum. Og á gamlársdag er eins og
allir Svíar verði börn og vilji sjá
greifynjuna og þjóninn enh einu
sinni.
EGILL VILHJÁLMSSON HF.
einkaumboð riAMCJeep
Tilkynning
Aukin þjónusta í E. V.
húsinu, Smiðjuvegi 4c.
Bifveiðaverkstæði Egils
Arnar hefur opnað í E. V.
húsinu og tekur að sér
viðgerðarþjónustu fyrir
AMC-Jeep. Afþessu til-
efni vill AMC-Jeep
umboðið bjóða Egil Örn
og starfsmenn hans vel-
komna til þjónustu og
væntir góðs af samstarfi
við þá til hagsbóta fyrir
viðskiptavini sína.
Friðbjörn G. Jónsson
þjónustustjóri E.V.
Þjónustudeild E.V. ásamt bif-
reiðaverkstæði Egils Arnar
mun leitast við að veita eig-
endum AMC-Jeep bifreiða
fullkomna, alhliða þjónustu.
Þjónustudeild E.V. bendir á
stóraukinn varahlutalager og
aukna þjónustu í sérpöntunum
án aukagjalds.
BIFREIOAVERKSTÆÐI
EGILS ARNAR
viðhaldsþjónusta AMC-
Jeep, sími 75150.
AMC-Jeep eigendur, verið
velkomnir. Við munum veita
ykkur markvissa og örugga
þjónustu, 10.000 km skoðun
-vetraskoðun-smurstöð. Bíll-
inn þinn er i góðum höndum
hjá okkur.
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI
riAMCJeep
Egill Vilhjálmsson hf. Einkaumbod
AMC-Jeep og Bifreiðaverkstæði Eg-
ils Arnar, viðhaldsþjónusta AMC-
Jeep, óska öllum AMC-Jeep
eigendum fararheillar á komandi ári.
EGILL VILHJÁLMSSON HF.,
____Smiðjuvegi 4, Kópavogi, símar 77200 - 77202._