Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1987, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1987, Qupperneq 19
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1987. 19 Páll Magnússon: Uppgangur Stóðvar 2 er minnisstæðastur Það sem mér er minnisstæðast frá árinu sem er að líða er uppgangur Stöðvar 2. Við fórum þarna af stað á núlli og erum nú búnir að fá 30 þús- und áskrifendur sem dreifðir eru á flesta þéttbýlisstaði landsins. Það finnst mér vera alveg sérstaklega ánægjuleg byijun á svona stóru verkefni. Af einstökum atburðum, sem minnisstæðir eru, ber kosninga- sjónvarpið einna hæst. Þar sýndum við og sönnuðum á Stöð 2, með þess- ari sólarhringslöngu útsendingu, að hér var komin alvörusjónvarpsstöð. Varðandi það sem ég vænti af kom- andi ári þá er það nánast sama eðlis. Ég vonast til þess að Stöð 2 haldi áfram að vaxa og dafna og haldið verði áfram á sömu braut og hingað til. Auk þess vonast maður auðvitað til þess að áframhald verði á af- vopnunarviðræðum stórveldanna úr því að nú virðist loks sem alvara sé komin í viðræðumar. -IS Ema Indriðadóttir: Hræringar í stjómmálunum Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri: „Ýmsar hræringar í stjómmálum bæði innanlands og utan era ofarlega í huga mér um þessi áramót. Tilkoma Borgaraflokksins og fleiri líkir at- burðir sýna okkur að gamla flokka- kerfið hefur riðlast og menn fara nú nýjar leiðir til þess aö koma sínum málum á framfæri," segir Erna Ind- riðadóttir, forstöðumaður Ríkisút- varpsins á Akureyri. „Samkomulagið, sem þeir Reagan og Gorbatsjov undirrituðu í Was- hington, gefur góðar vonir og vonandi næst að stíga fleiri slík skref í framtíðinni. Af heimaslóðum er mér „fræðslustjóramálið“ mjög minnisstætt, þaö var mikið byggða- mál og mér fannst furðulegt að fylgjast með því máli. Nýja árið leggst mjög vel í mig. Að vísu er ég þegar farin að hafa áhyggj- ur af matarreikningunum og mér þykir það furðulegt að leggja skatt á matvæli. Ætli matvæli séu nokkurs staðar dýrari en hér á landi?“ Jón Sigurðarson: Samruni ullarvinnslu- fyrirtækjanna Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri: „Mér er efst í huga um þessi ára- mót ákvörðunin um samruna tveggja stærstu ufiarvinnslufyrirtækja landsins, samningaviðræðumar og ráðstafanimar sem því fylgdu," segir Jón Sigurðarson, forsfjóri Álafoss. „Einnig er ofarlega í huga mér að eftir ágæta efnahagsstjóm síðustu ára hallast nú mjög á efnahagsmer- inni og ekki tekst aö hafa stjóm á þessum málum, þetta er afar slæmt. Undirritun samnings stórveldanna í Washington er einnig atburður sem verður minnisstæður og vonandi á hann efiir aö setja mark sitt á fram- tíðina. Ég er fæddur bjartsýnismaður og lít því björtum augum fram á við þrátt fyrir minnkandi kaupmátt. Við skulum búa okkur undir minnkandi þjóðartekjur á réttan hátt en þó að þær skerðist verðum við áfram í hópi tekjuhæstu þjóða heims.“ Guðni Karisson: Áhrif firá friðar- hreyfingum Af erlendum vettvangi er minnis- stæðast það afl sem friðarhreyfingar hafa náö og kemur fram í aðgerðum þjóðarleiðtoga. Við íslendingar get- um verið stoltir af löndum okkar sem hafa beitt sér í þessum málum. Á innlendum vettvangi verða alþingis- kosningar alltaf minnisstæðar, einkum þegar miklar breytingar verða á þingliði og ný ríkisstjóm mynduð. Hvað sjálfan mig varðar er ef til vill minnisstæðast að koma út nýrri kenrislubók fyrir ökukennslu. Auk þess fermdist sonur minn og eiginkonan útskrifaðist sem stúdent úr öldungadeild. Á næsta ári vona ég að ríkisstjóm- in nái að halda niðri verðbólgunni. Það sem mestu varðar samt er að friðarhreyfingar eflist og það ræður ef til vill úrslitum varðandi framtíð mannkynsins. .jg Magnús Hreggviðsson: Þakklæti til samstarfs- fólksins Þakklæti til þess stóra hóps af hæfu starfsfólki sem ég hafði enn á ný Hvað er þér minnisstæðast frá árinu 1987? Eðvarð Þór Eðvarðsson: Afvopnunarvið- ræðumar minnisstæðastar lenda í einu af átta efstu sætunum á ólympíuleikunum. Ég hef einnig trú á því að handboltalandsliöinu takist að ná langt og að fleiri íslenskir íþróttamenn verði í flokki átta bestu í Seoul,“ sagði Eðvarð Þór Eðvarðs- son. -ATA tækifæri til að vinna með við að ná góðum árangri í rekstri þess fyrir- tækis sem viö öll vinnum hjá - Frjálsu Framtaki. Áframhald skemmtilegrar og stundum erfiðrar baráttu við að reyna aö ná góðum árangri í starfi og vonandi einnig nýrra verkefna. -IS um að hægt væri að lifa af þrátt fyr- ir allt. Fundur þeirra tveggja og örfárra prósenta niðurskurður á kjamorkuvopnum er þó altént byij- un. Við vitum ekki um framhaldið. Ef Gorbatsjov verður undir í Sovét- ríkjunum, sem mér finnst allt eins líklegt, syrtir að í heiminum og ger- ræðisöflin munu Jilómstra þar. Vonin um friö hefur fengið byr undir báða vængi, eða alla vega annan. Hvað næsta ár varðar þá vonast maður eftir áframhaldandi afvopnun eða að minnsta kosti skrefum í átt- ina, en allt er þetta svo brothætt að engu er hægt að spá. -IS Birgir Sigurðsson: Akaflega skemmtilegt ár Þegar stórt er spurt finnst manni ekki miklu skipta manns persónu- lega líf. Sjálfur hef ég átt ákaflega. skemmtilegt ár, líklega það besta síð- an ég fæddist í þennan heim. En efst í huga manns frá árinu sem er að líða er fundur þeirra Reagans og Gorbatsjovs og aðdragandinn frá ár- inu á undan. Fáir einstakir atburðir í heiminum hafa vakið meiri vonir „Afvopnunarviðræður Reagans og Gorbatsjovs finnst mér bera hæst á árinu sem er að líða. Ég vona bara að heimsleiðtogarnir beri gæfu til að halda áfram á sömu braut á næsta ári,“ sagði Eðvarð Þór Eðvarðsson sundmaöur, en hann hefur gert það gott á sundmótum bæði hérlendis og erlendis á árinu. „Hjá mér persónulega ber hæst árangurinn á Evrópumeistaramót- inu í sumar en þar náði ég fjórða sæti og setti Norðurlandamet. Svo hefur verið mjög ánægjulegt að fylgj- ast með handboltalandshðinu og framfórum þess á árinu. Á næsta ári, sem er ólympíuár, verður vonandi framhald á góðu gengi íslenskra íþróttamanna. Ég stefni að því að bæta mig á árinu og Ólafúr Hauksson: Velgengni Stjömunnar á árinu Persónulega er mér efst í huga að ég skipti um starf á árinu og gerðist útvarpsstjóri hjá Stjömunni. Vel- gengni Stjömunnar er mér efst í huga. Á aðeins hálfu ári hefur hún náð fótfestu svo um munar. Stjaman hefur hrifsaö mikla hlustun frá Bylgjunni og Rás 2 og þakka ég það frábæru starfsfólki. Ég get ekki annað en haldið mig við útvarpið þegar ég tjái mig um næsta árið. Ég vonast aö sjálfsögðu eftir áframhaldandi velgengni Stjömunnar. En ég veit líka aö af- koma Stjömunnar, likt og annarra útvarpsstöðva í einkaeign, fer að ýmsu leyti eftir því hvemig Ríkisút- varpið heldur á sínum málum. Eins og er heldur Ríkisútvarpið tekjum einkastöðvanna niðri með því að selja niðurgreiddar auglýsingar. Það hefur margsinnis sýnt sig að einka- aðilar geta gert sömu hluti og opinberir aðilar á niiklu betri og ódýrari hátt. Þaö er hreint fáránlegt aö leyfa Ríkisútvarpinu að reyna að kæfa í fæðingu þá sem eiga að erfa hlutverk þess. -is INNLAUSNARVERÐ VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS Í1.FL.B1986 Hinn 10. janúar 1988 er fjórði fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 1. fl. B1986. Gegn framvísun vaxtamiða nr. 4 verður frá og með 10. janúar nk. greitt sem hér segir: __________Vaxtamiði með 50.000,- kr. skírteini_kr. 2.805,00_ Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinannafyrirtímabilið 10. júlí 1987 til 10. janúar 1988 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1364 hinn 1. janúar 1986 til 1913 hinn 1. janúar nk. Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gialddaga. Innlausn vaxtamiða nr. 4 ferfram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka Islands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. janúar 1988. Reykjavík, 31. desember 1987 SEÐLABANKIÍSLANDS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.