Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1987, Síða 22
22
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1987.
Skákárið 1987
Tveir heimsmeistarar
og áskorandi
Ólympíuskákmótið í Dubai var
lokaverkefni íslenskra skákmanna
á árinu 1986. íslenska sveitin náði
þar fimmta sæti en svo ofarlega
hafði íslensk sveit aldrei orðið á
ólympíumóti. Sagt var að þetta
yæri afrek sem erfitt yrði að endur-
taka. Árið 1987 átti samt eftir að
verða enn betra skákár. Kannski
verður þess minnst sem ársins sem
Jóhann Hjartarson sló í gegn og
um leið ársins er- tvö íslensk
ungmenni náðu því að verða
heimsmeistarar í sínum aldurs-
flokki.
Árið hófst með svæöismóti Norð-
urlanda í Gausdal í Noregi í janúar.
Þetta mót var umdeilt; það var
haldiö á þeim tíma er nokkrir
fremstu skákmenn svæðisins sátu
að tafli annars staðar og átján
skákmenn tefldu níu umferðir í
staö þess að mótiö væri lokað. Bent
Larsen var harðorður í garð FIDE
og danska skáksambandsins. í við-
tali í Ekstra blaöinu danska sagðist
hann aldrei framar myndu tefla
fyrir hönd Dana.
Ungur Svíi, Thomas Emst, varð
óvæntur sigurvegari mótsins,
hlaut 6 54 v. í 2.-4. saeti urðu Jóhann
Hjartarson, Jón L. Árnason og Svi-
inn Ferdinand Hellers með hálfum
vinningi minna. Það var ekki fyrr
en að mótinu loknu sem í ljós kom
að tvö efstu sætin gáfu þátttökurétt
í millisvæðamóti. Jóhann Hjartar-
son, 'sem var efstur þremenning-
anna á stigum, fékk þar með að
halda áfram í heimsmeistara-
keppninni. Reyndar mun það
aldrei áður hafa gerst í sögu heims-
meistarakeppninnar aö stig væru
látin ráða um 'áframhaldandi
keppni en síðar á árinu efaðist þó
enginn um að Jóhann ætti þangað
erindi.
Margeir sat að tafli í Hastings
þessa daga og reyndi að endurtaka
afrek sitt frá árinu áður er hann
varð efstur og tryggði sér stór- .
meistaratitil. Helgi tefldi á árlegu
skákmóti í Wijk aan Zee í Hol-
landi. Báðum gekk afleitlega,
Margeiri þó sýnu verr. Fyrri hluti
ársins átti eftir að verða Margeiri
sérlega erfiður og um miðbik þess
voru skákstigin hrunin af honum.
Hann átti hins vegar eftir að söðla
gjörsamlega um og ná ofurmann-
legum afrekum.
Short kom, sá og sigraöi
Af innlendum skákviðburðúm
ber IBM-stórmótið í Reykjavík í
febrúar hæst. Þar voru saman
komnir margir fremstu skákmenn
heims: Tal, Timman, Ljubojevic,
Kortsnoj, Portisch, Polugajevsky,
Short og Agdestein auk íslending-
anna Helga, Margeirs, Jóns L. og
Jóhanns. Strax í fyrstu umferð
mótsins, er Short tefldi við
Ljubojevic, mátti merkja hvaða
stefnu mótið myndi taka. Short
tefldi leikandi létta og fallega skák
sem áhorfendur hrifust af en
Ljubojevic sá aldrei til sólar -
hvorki í skákinni né mótinu. Er
yfir lauk var Ljubojevic, sem í
næsta mánuði átti eftir að sigra
glæsilega ásamt Kasparov í Bruss-
el, með neðstu mönnum en Short
hélt sigurgöngu sinni áfram og
varð verðskuldaður sigurvegari.
Þessi ungi en knái Englendingur
vann íslenska skákunnendur á sitt
band með laglegri taflmennsku.
Annar keppandi þótti þó tefla enn
skemmtilegar og af meiri krafti:
Viktor Kortsnoj, sem barðist eins
og ljón í hverri skák. Hann gerði
aðeins eitt jafntefli á mótinu, vann
sex skákir en tapaði fjórum.
Kortsnoj varð í 4 - 5. sæti ásamt
Portisch, hálfum vinningi á eftir
Tal og Timman (7 vinningar) en
Kasparov lauk viðburðaríku skákári með sigri sínum í einviginu við Karpov í Seviila.
Short sigraði meö 8 vinninga.
Næstur kom Polugajevsky meö 6
v., Jón L. og Agdestein fengu 5‘A
v., Jóhann, Helgi og Ljubojevic
hlutu 4 en Margeir rak lestina meö
2 v.
Tvær skákir mínar á mótinu
verða mér ætíð sérlega minnis-
stæðar. Skákin við Timman, þar
sem taflborðið lék á reiðiskjálfi og
tímahrakspatið var eitthvert það
mesta í manna minnum. Þar fór
allt úrskeiðis af minni hálfu sem
mögulegt var: í stað þess aö máta
Timman í þriðja leik lék ég skák-
inni niður í jafntefli og í næsta leik
niður í heldur lakara endatafl og
féll þá á tíma! Hin skákin var í síð-
ustu umferð gegn Kortsnoj. Ég
minnist þess ekki að hafa nokkurn
tíma verið leikinn jafngrátt og í
þeirri skák. Djúphugsaðir leikir
Kortsnojs voru slíkir að fyrr en
varði gat ég mig hvergi hrært og
hefði þó helst af öllu viljað taka
ofan. Minnugur skákarinnar við
Timman fór ég að sprikla og í tíma-
hrakinu missti Kortsnoj tökin og
tapaði. Þar með missti hann einnig
af 2. sæti á mótinu og vænni doll-
arafúlgu. Jóhanni tókst einnig að
leggja Kortsnoj að velli. Það er eina
skákin sem þeir hafa teflt saman
fyrir einvígið í Saint John í Kanada
sem hefst í lok janúar. IBM-mótið
var af 14. styrkleikaflokki og þó svo
íslenskir áhorfendur hafi margir
hverjir búist við meira af löndum
sínum var mótið okkur ómetanlegt
tækifæri til að etja kappi við
fremstu skákmenn heims.
Að IBM-mótinu loknu fóru ís-
lenskir skákmenn að hugsa sér til
hreyfings. Ég tefldi á alþjóðamóti i
Beer-Sheva í ísrael og hlaut 6 v. af
11 mögulegum en Kortsnoj og Spe-
elman urðu efstir með 8‘A v.
Kortsnoj náði fram hefndum gegn
mér með því að fórna hrók og vinna
glæsilega. Helgi og Margeir héldu
til New York og tóku þátt í sterk-
asta opna móti ársins. Helgi átti
erfitt uppdráttar en Margeir var
aö komast í ham en mátti sjá á eft-
ir efsta sætinu með tapi fyrir
Seirawan í síðustu umferð. Seiraw-
an og Adorjan urðu efstir og jafnir
með 8 v. af 11 mögulegum. Margeir
hlaut 7 v., Helgi 5 v. í neðri flokkum
var einnig barist af krafti. Sævar
Bjamason varð í 1.-4. sæti í næst-
efsta flokki og hlaut um 180 þúsund
krónur að launum.
Skák
Jón L. Arnason
Tveir heimsmeistarar!
í mai varð sá ánægjulegi við-
buröur að Hannes Hlífar Stefáns-
son sigraði á. heimsmeistaramóti
sveina 16 ára og yngri sem haldið
var í Innsbruck í Áusturríki. Hann-
es hlaut 9 54 v., hálfum vinningi
meira en helsti keppinautur hans,
Englendingurinn Ádams. Guðfríð-
ur Lilja Grétarsdóttir tók þátt í
telpnaflokki og stóð sig þar með
miklum ágætum, þótt árangur
hennar hefði að mestu horfið í
skugga Hannesar. Guðmundur Sig-
uxjónsson var þeim til halds og
trausts á mótinu og eins við undir-
búning þess.
Mikið var fylg^t með framgöngu
Hannesar í Innsbruck og þjóðin
stóð á öndinni daginn sem síðasta
umferð hófst. Hannes hafði þá hálfs
vinnings forskot og tefldi spenn-
andi skák við Frakkann Degraeve.
Hannes lék- ónákvæmt í skákinni
og um miðbik skákarinnar var haft
eftir Guðmundi, aðstoðarmanni
hans, að kóngsstaða hans væri var-
húgaverð. En Hannes sneri vörn í
sókn og tókst að ljúka skákinni
með laglegri fléttu.
í júlí fengu íslendingar svo annan
heimsmeistara. Þá sigraði Héðinn
Steingrímsson í flokki 12 ára og
yngri á geysifjölmennu barna- og
unglingaskákmóti í Puerto Rico.
Héðinn hlaut 9‘A v. af 10 möguleg-
um og sigraði með nokkrum yfir-
burðum. Næsti maður, E. Láss frá
ísrael, hlaut 8 v.
Árangur Héðins er stórglæsileg-
ur en kemur þó ekki algjörlega á
óvart. Héðinn hefur getið sér gott
orð á skákmótum hér innanlands
og verið einkar sigursæll á Norður-
landamótum í skólaskák. Heims-
meistaratitlar Héðins og Hannesar
bera gróskumiklu unglingastarfi
skákhreyfmgarinnar fagurt vitni.
Sigurganga Margeirs
Jóhann Hjartarson og Margeir
Pétursson tóku þátt í alþjóðlegu
skákmóti í Moskvu í júní og náði
Jóhann þar þriöja sæti. Margeiri
gekk lakar en mótið var þó bersýni-
lega góð æfing fyrir þá báða. í
næsta mánuði gerði Margeir sér
lítið fyrir og varð Norðurlanda-
meistari í skák í Þórhöfn í Færeyj-
um. Margeir hlaut 8 v. af 11
mögulegum. Helgi Ólafsson tapaði
í síðustu umferð fyrir Tisdall og
fékk 7 v. Danirnir Mortensen og
Curt Hansen voru efstir lengst af
en íslendingunum tókst að snúa á
þá í lokaumferðunum. íslendingar
voru annars afar sigursælir á mót-
inu í mörgum flokkum. Tómas
Björnsson varð efstur í meistara-
flokki.
Áð loknu Norðurlandamótinu
hélt Margeir til Gausdal og tók þátt
í opnu móti. Margeir hefur verið-
afar sigursæll upp til fialla í Noregi
og nú setti hann nýtt staðarmet.
Hlaut 854 v. úr 9 skákum.
Enn hélt sigurganga Margeirs
áfram í september. Þá varð hann
skákmeistari íslands en keppni í
landsliðsflokki fór að þessu sinni
fram á Akureyri. Margeir var
óstöðvandi á mótinu; fékk 12 v. af
13 mögulegum og Helgi, sem hlaut
■ 11 v., varð að láta sér lynda 2. sæti
þrátt fyrir svo háa vinningatölu.
Jóhann verður áskorandi
í ágúst varð skáksprenging á ís-
landi er Jóhann Hjartarson vann
hveija skákina á fætur annarri á
millisvæðamótinu í Szirak í Ung-
veijalandi. Eftir jafntefli við
Beljavsky í síðustu umferö mótsins
var Jóhann í efsta sæti ásamt sov-
éska stórmeistaranum Valery
Salov, með 1254 v. af 17 möguleg-
um. Síðan komu Portisch og Nunn
með 12 v., Beljavsky hlaut 11 v.,
Andersson 10'/2 v., Ljubojevic 10
v. og Christiansen 9 v.
Árangur Jóhanns er glæsilegasti
árangur íslendings á skáksviöinu
síðan Friðrik gerði garðinn frægan
í Portoroz 1958 og vann sér rétt til
að tefla í áskorendamóti. Jóhann
tryggði sér rétt til að tefla í áskor-
endakeppnni 14 stórmeistara í
Kanada, sem hefst 24. janúar. Hann
mætir Viktor Kortsnoj í sex skáka
einvígi í fyrstu umferð. Sigurvegar-
inn heldur áfram keppni og þá
bætist Anatoly Karpov í hópinn.
Síðan verða tefld einvígi til úrslita,
þar til einn áskorandi stendur uppi
sem hefur unnið sér rétt til að heyja
einvígi við heimsmeistarann Kasp-
arov.
í október tók Jóhann þátt í stór-
móti Investbankans í Belgrad.
Mótiö var mjög í fréttum hér heima
enda væntingar í Jóhanns garð
orðnar óskaplegar. Jóhann tefldi
vel framan af móti en eftir að hann
missti af pattfléttu gegn Júgóslav-
anum Popovic fór að halla undan
fæti. Sigurvegari mótsins varð
Júgóslavinn sókndjarfi Ljubojevic
sem var ýmist efstur eða neðstur á
skákmótum ársins. Jóhann leit
fyrst og fremst á mótið sem góða
æfmgu fyrir einvígið við Kortsnoj.
Innlend alþjóðamót
Opna Austfiarðamótið var haldið
á Egilsstöðum fyrstu daga júní-
mánaðar. Mótið var minna í
sniöum en ætlunin var, því að er-
lendir stórmeistarar treystu sér
ekki til fararinnar. Keppni í efsta
flokki var því felld niður og 55 þátt-
takendum mótsins skipt í tvo
flokka. Sigurvegari í efri flokki var
Anna Aksharumova, eiginkona
Boris Gulko, skákmeistarans land-
flótta.
Á haustmánuðum voru tvö al-
þjóðleg skákmót haldin á lands-
byggðinni. í' nýju glæsilegu
félagsheimili í Ólafsvík var teflt í
október og þar sigraði Jón L. Árna-
son eftir krappan dans við Danann
Henrik Danielsen. Björgvin Jóns-
son missti naumlega af áfanga að
alþjóðameistaratitli.
Titilveiðurunum gekk betur á
móti í Njarðvík sem var af sömu
styrkleikagráðu. Þar náðu Björg-
vin og Hannes Hlífar í fyrsta áfanga
að alþjóðameistaratili og Þröstur
Þórhallsson náöi loks í lokaáfanga
sinn að titiinum. Sigurvegari móts-
ins varð Bretinn David Norwood.
Þröstur Þórhallsson var útnefnd-
ur alþjóðlegur meistari á þingi
FIDE í Sevilla í byrjun desember
og Hannes Hlífar og Ingvar Ás-
mundsson voru sæmdir FLDE-
meistara nafnbót.
Af eriendum vettvangi
Short og Kortsnoj urðu efstir í
Wijk aan Zee í janúar; Short á IBM-
-mótinu í Reykjavík í febrúar;
Kasparov og Ljubojevic á stórmóti
í Brussel í apríl; Timman og
Karpov á minningarmóti um Euwe
í Amsterdam í maí;* Vaganjan í
Leningrad í byijun júní ogTimman
á Interpolismótinu í Tilburg í okt-
óber. Er þá fátt eitt upp talið.
Síðsumar og haust einkenndust
af millisvæðamótunum. Auk Jó-
hanns, Salovs og Portisch (sem
lagði Nunn í einvígi), frá milli-
svæðamótinu í Szirak, komust
Short, Speelman og Sax áfram úr
millisvæðamótinu í Subotica og
Kortsnoj, Seirawan og Ehlvest
uröu efstir á mótinu í Zagreb.
Endahnútinn á viðburðarikt
skákár rak heimsmeistaraeinvígi
Karpovs og Kasparovs í Sevilla á
Spáni. Þeir hófu taflið 12. október
og skiptust á um aö halda foryst-
unni. Langur kafli undir lok ein-
vígisins mun eflaust fljótt falla í
gleymskunnar dá. Kasparov hafði
forystu og virtist ætla að halda
heimsmeistaraititlinum á því að
tefla til jafnteflis. Er tvær skákir
voru til loka var staðan 11 - 11
og þá dró svo sannarlega til tíð-
inda.
Karpov tókst að vinna 23. og
næstsíðustu skákina sem var
spennandi og sérlega vel tefld af
hans hálfu. Þá lagaði hann stöðuna
í 12 -11 og nægði jafntefli í síðustu
skákinni. Flestir töldu víst að hann
yrði heimsmeistari en Kasparov
lagði ekki árar í bát. Eftir æsi-
spennandi og magnaða lokaorr-
ustu vann Kasparov og hélt þar
með heimsmeistaratitlinum á
jöfnu. Einvíginu lauk 12 -12 og þar
með lauk jafnframt skákárinu 1987.
-JLÁ