Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1987, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1987, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1987. 23 pv__________________________________________Hvað er þér minnisstæðast frá árinu 1987? íris Gronfeldt: Tvö heims- meistaramót „Mér eru minnisstæðust tvö heimsmeistaramót sem ég tók þátt í á árinu. Annars vegar heimsmeist- aramótiö í frjálsum íþróttum í Róm, hins vegar þátttaka mín í heims- meistaramóti í ólympískum lyfting- um í Florída. Þar varð ég í 10. sæti af 23 keppendum. Þetta ár varð það fyrsta sem ég náði ekki að bæta ár- angur minn í spjótkasti og vona ég að það verði líka það eina sem það verður. Á næsta ári kemuf undirbúningur iyrir ólympíuleikana til með að bera 'hæst. Ég stefni að því að ná lágmörk- unum sem fyrst. Þá veröur betra fyrir mig að haga undirbúningnum rétt. Það getur einnig farið svo að ég keppi á Evrópumóti í lyftingum. Ég hef bætt mig verulega frá því að ég keppti í Florída. Sá árangur, sem ég hef náð á æfingum að undanfórnu, hefði dugað mér í íjórða sæti í Florída," sagði íris Grönfeldt íþrótta- kona. -sme Gunnsteinn Gíslason: Ferð á íslend- ingaslóðir „Ég fór ásamt konu minni og dóttur til Kanada. Þar kynntumst við nokkrum Vestur-íslendingum og sáum að hveiju landnemarnir gengu er þeir komu til Kanada á sínum tíma. Þetta var merkileg reynsla. Við hittum þar ættingja konunnar minnar. Hún er ættuð úr Skagafjarð- ar- og Eyjaíjarðarsýslum. Stranda- menn munu ekki hafa sótt mikið vestur. Landið kom mér verulega á óvart; þó svo ég hafi heyrt mikið um það þá komu þessir miklu skógar og sléttur mér á óvart. Sem sveitarstjómarmaður ber ég helst þær væntingar á nýju ári að byggðarröskuninni verði snúið við. Við sem hér búum erum í ótta um byggðina hér. Ég hef einnig áhyggjur af samdrætti í landbúnaði. Ég vona að þessu verði snúið við,“ sagði Gunnsteinn Gíslason, kaupfélags- stjóri á Norðurfirði á Ströndum. -sme Jonína Michaelsdottir: Ný ríkisstjóm „Þaö liggur auðvitað beint við aö nefna nýja ríkisstjórn, nýtt starf og samning Reagans og Gorbatsjovs. En mér er líka ofarlega í huga samning- ur Kristjáns Jóhannssonar við Scalaóperuna, fréttir af björgun litla barnsins sem festist í brunni í smábæ í Bandaríkjunum og listaverk Svövu Jakobsdóttur, Gunnlaðarsaga,“ sagði Jónina Michaelsdóttir, aðstoð- armaöur forsætisráðherra. „Kannski er þó minnisstæðust sú mikla almenna velmegun sem hefur ríkt hér á landi og maöur fmnur alls staöar fyrir. Ég á ekki betri ósk fyrir næsta ár en að stjórnvöldum og almenningi takist í sameiningu að vernda þessi lífskjör." -JSS. Yrsa Þórðardóttir: Finnskar konur fengu prests- réttindi í fyrsta lagi er mér efst í huga að fmnskar konur náðu þeim áfanga að fá réttindi til þess að gegna prestemb- ætti. Aðdragandinn stóð allan fyrri part ársins en þær náöu þessum áfanga einhvern tímann um miðbik ársins. Mér er einnig mjög ofarlega í huga að ég lauk námi við Háskóla íslands í guöfræði og tók prestsvígslu þann fimmtánda nóvember og flutti að Hálsi í Fnjóskadal viku síðar. Þetta voru stór tímamót í lífi mínu þar sem ég var lengi búin að stefna að þessum áfanga en nú loksins er hann orðinn að veruleika. í þriðja og síðasta lagi er veöurblíðan mér mjög minnisstæð en allt árið hefur verið einstaklega gott veður. Af komandi ári vænti ég blessunar guðs handa kirkjunni og landsmönn- um öllum og einnig vænti ég góðs samstarfs við söfnuði mína. -JBj Sá styr sem varð vegna tilboðsins í Útvegsbankann „Það eru margir minnisstæðir at- burðir á árinu sem erfitt er að gera upp á milli en sá þýöingarmesti vegna starfa minna er bankamálin og sá styr sem varð þegar Samvinnu- hreyfingin tilkynnti um kaup á Útvegsbankanum og allt það stíma- brak sem kom í kjölfariö,“ segir Valur Arnþórsson, stjórnarformað- ur Sambands íslenskra samvinnufé- laga og kaupfélagsstjóri KEA. „Nýja árið gæti orðiö gott ár ef myndarlega er tekið á efnahagsmál- unum og ef aðilar vinnumarkaöarins slíöra sverðin. En verði bitiö í skjald- arrendur er hætta á ferðum, ekki síst þegar við blasir í árslok sú hryggöarmynd að landsmenn hafa ekki haft stjórn á góöærinu og spann- að á sig verðbólgudrauginn." -JGH Óskum landsmönnum öllum árs og friðar. Þökkum samstarfið á liðnum árum og vonum að árið 1988 verði farsælt flutningaár. DALVÍK SIGLUFJÖRÐUR ' ÍSAFJÖRÐUR ÓLAFSFJÖRÐUR SUÐUREYRI SAUÐÁRKRÓKUR BOLUNGARVÍK NORÐURFJÖRÐUR BÍLDUDALUR TÁLKNAFJÖRÐUR PATREKSFJÖRÐUR / ... '** ’ \c HRISEY AKUREYRI GRIMSEY FLATEYRI ÞINGEYRI HÚSAVlK ÞÓRSHÖFN VOPNAFJÖRÐUR RAUFARHÖFN BAKKAFJÖRÐUR BORGARFJÖRDUR EYSTRI SEYÐISFJÖRÐUR MJÓIFJÖRDUR NESKAUPSTAÐUR ESKIFJÖRÐUR REYÐARFJÖRÐUR FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR STÖÐVARFJÖRÐUR sl RIKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.