Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1987, Side 42

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1987, Side 42
74 MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1987. Jarðarfarir Eyþór Einarsson, Kambahrauni 8, Hveragerði, andaðist í sjúkrahúsi Suðurlands þann 23. desember. Jarð- arforin fer fram frá Hrunakirkju laugardaginn 2. janúar kl. 14. Bílferð "verður frá BSÍ í Reykjavík kl. 11 og frá Hótel Selfossi kl. 12. Geir G. Bachmann, fyrrum bifreiða- eftirlitsmaður, Borgarnesi, er látinn. Jarðsett verður frá Borgarneskirkju þriðjudaginn 5. janúar 1988 kl. 14. Gunnlaug Thorarensen lést í Krist- nesspítala mánudaginn 28. desemb- er. Jarðarfórin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 5. janúar kl. 13.30. Herdís Hjartardóttir, Hvanneyrar- braut 40, Siglufirði, lést í sjúkrahúsi Siglufjarðar á annan dag jóla. Útfór 'Sennar verður gerð frá Siglufjarðar- kirkju laugardaginn 2. janúar 1988 kl. 14. Þórunn Hjördís Gestsdóttir, Hjalla- braut 50, Hafnarfirði, lést af slys- forum 23. desember. Jarðarförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðju- daginn 5. janúar kl. 15. Þóroddur Ingiber Guðmundsson frá Kröggólfsstööum verður jarðsung- inn frá Kotstrandarkirkju í Ölfusi laugardaginn 2. janúar kl. 14. Hvað er þér miimisstæðast frá árinu 1987? Gunnar Ragnars: Afmælishald og afhending skipa Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Andlát Albert Jóhannesson, Kleppsvegi 12, iést þann 24. desember á Landa- kotsspítala. Jón Sigurðsson, Fagrahvammi 8, Hafnarfirði, lést í Borgarspítalanum mánudaginn 28. desember. Ragnhildur Helgadóttir frá ísafirði andaðist á heimili dóttur sinnar 26. desember. Þórdís Magnúsdóttir, Bollagötu 2, Reykjavík, er látin. Tómas Ólason, Stóragerði 6, Reykja- vík, lést mánudaginn 28. desember. Elín Elínmundardóttirfrá Langeyj- .arnesi, andaðist 27. desember í 'Franciskusjúkrahúsinu í Stykkis- hólmi. Tómas Ólason,Stóragerði 6, Reykja- vík, andaðist mánudaginn 28. desember. Jón Pétursson frá Neskaupstað and- aðist í Fjórðungssjúkrahúsinu 28. desember. Fiskaklettur einn meðflugeldasölu Villa slæddist inn í umfjöllun um flugelda hér í blaðinu í gær. Sagt var að fjórar björgunarsveitir stæöu saman að flugeldasölu Fiskakletts. jíietta er ekki rétt heldur stendur björgunarsveitin Fiskaklettur ein að sölunni. -PLP „Það sem stendur upp úr hjá mér er þegar við Akureyringar héldum upp á 125 ára afmæli bæjarins 29. ágúst, en þau hátíðarhöld tókust mjög vel,“ sagði Gunnar Ragnars, forseti bæjarstjórnar Akureyrar og framkvæmdastjóri Slippstöðvarinn- ar á Akureyri. „Varðandi Slippstöðina þá er mér mjög minnisstætt er við afhentum tvo raðsmíðabáta snemma á árinu. Og ekki síður er við sigldum hér út á Pollinn í júlíveðri í nóvember og afhentum þar togarann Sléttbak til Útgeröarfélags Akureyringa, en breytingarnar á honum eru stærsta verk sem við höfum ráðist í. Hvað varðar mig persónulega er mér einna minnissæðast að hafa eytt einni viku að Hellnum á Snæfells- nesi ásamt fjölskyldunni, vinum mínum og fjölskyldum þeirra. Við vorum þar í yndislegu veðri allan tímann. Þarna var margt að sjá og það sýndi sig að við íslendingar leit- um oft of langt í sumarleyfum okkar. Næsta ár verður tímamótaár hjá mér því þá verð ég fimmtugur. Eg sé enga ástæðu til annars en bjart- sýni því það er mikill hugur í mönnum, bæði hér á Akureyri og annars staðar við Eyjafjörð,“ sagði Gunnar. Héðinn Steingrímsson: Sennilega er mér skákmótið minnisstæðast „Sennilega er mér skákmótið í Pu- erto Rico og heimsmeistaratitillinn, sem ég vann þar, minnisstæðast frá árinu sem er að líða. ég hugsa það. Vönduð leðurlíkis sófasett 5 LITIR Verð 66.400,- Staðgreiðsluverð 59.760,- Greiðslukjör allt að 11 mánuðir. VILDARK/OR V/S4 EURO KREDIT TEPPABÚÐIN SUÐURLANDSBRAUT 26 - S(MI 84850 P. O. BOX 8266 - 128 REYKJÁVlK Á næsta ári vona ég bara að öllum líði vel og að okkur gangi vel í skák- inni hér á íslandi,“ sagði hinn ungi heimsmeistari í skák, Héðinn Stein- grímsson. -S.dór Pétur Valdimarsson: Stofnun Þjóðar- flokksins breytti allri umræðunni „Mér er efst í huga frá liðnu ári stofnun Þjóðarflokksins sem má kalla eðlilegt þar sem ég er formaður hans. Að auki tel ég að stofnun hans hafl um tíma breytt allri umræðu manna um stjórnun landsins og byggðamál almennt. Menn hættu að tala um byggðamál sem einhverja ölmusu til landsbyggðarmanna og fóru að gera sér grein fyrir því að þau eru allt annað og meira. Ég var að vona að þetta yrði til þess að menn færu að láta lands- byggðarmenn alla sjá um eigin mál því að það er hin eina sanna byggða- stefna. ■ Á komandi ári vænti ég þess að hagur íslands megi blómgast og að mönnum auðnist að stjórna landinu þannig að það verði betur stætt eftir en það er í dag. Ég vænti þessa jafn- vel þótt fátt bendi nú til þess að svo verði.“ -S.dór Valgeir Guðjónsson: Síldin og góða veðrið „Það sem ég er að vinna við þessa stundina er mér minnisstæðast frá þessu ári sem nú er að líða. Það er vinnan við söngleikinn „Síldin kem- ur“. Sýningar á söngleiknum eiga að hefjast snemma á næsta ári. Einnig er mér minríisstætt þetta góða veður sem verið hefur mestallt árið. Á nýju ári vona ég að islendingar alhr, þá er ég og mitt fólk meðtalið, komi til með hafa það sem allra best á nýju ári. -sme Albert Guðmundsson: Afsögn úr rikisstjóm „Aðdragandinn að afsögn minni úr ríkisstjórn og framkoma og bak- tjaldavinna formanns Sjálfstæðis- flokksins verða mér ógleymanleg sem andstæða drengskapar í sam- starfi,“ sagði Albert Guðmundsson, formaður Borgaraflokksins, um árið sem er að líða. „Stofnun Borgaraflokksins, kosn- ingarnar í apríl og sigur Borgara- flokksins svo og vinátta og traust fólksins við mig verða mér einnig ógleymanleg. Þegar horft er til framtíðar er mér efst í huga velmegun og velgengni íslensku þjóðarirmar undir forystu drenglyndra forystumanna - sem sagt: Ný ríkisstjórn sem fyrst á árinu 1988,“ sagði Albert. -KMU ión Sigurðsson: Fækkum slys- um í umferðinni „Langdregnar og erfiðar viðræður um stjórnarmyndun í kjölfar þing- kosninganna eru mér minnisstæðar auk þeirra breytinga á daglegu lífi mínu sem fylgdu því að ég tók nú í fyrsta sinn beinan þátt í stjórnmál- um, sem frambjóðandi, þingmaður og ráðherra," sagði Jón Sigurðsson, viðskipta-, dóms- og kirkjumálaráð- herra. „Óvissa er í efnahagsmálum. Breyttar aðstæður erlendis hafa veruleg neikvæð áhrif á efnahags- þróun hérlendis en nýsamþykkt fjárlög sýna raunsæi og einbeitni rík- isstjórnarinnar við það að ná betri tökum á stjórn efnahagsmála. Samkomulag um fækkun kjarna- flauga gefur nýja ástæðu til bjartsýni um framtíð mannkyns. Frábær frammistaða íslenska landsliðsins í handknattleik varð mér til mikillar ánægju svo og glæsi- legur árangur Jóhanns Hjartarsonar stórmeistara. Þetta vekur okkur bjartsýni og sýnir hversu hæfileika- rík íslensk æska er. Fjölgun umferðarslysa í landinu veldur mér hins vegar miklum áhyggjum. Slysin hrópa á varnarað- gerðir. Um þessi áramót stígum við á stokk og strengjum þess heit að fækka slysum í umferðinni á kom- andi ári með öllum tiltækum ráðum,“ sagði Jón Sigurðsson. -KMU Kristín Einarsdóttir: SigurKvennalistans „Sigur Kvennalistans í þingkosn- ingum og sú athygli sem íslenskar konur vöktu á adþjóðavettvangi er mér eftirminnilegast frá árinu,“ sagði Kristín Einarsdóttir sem kjörin var á þing fyrir Kvennalistann. „Konur hafa verið að skynja sinn kraft sem ég vona að þær nýti enn frekar. Ég vona að konur standi vel saman á næsta ári til að bæta kjör sín. Fyrsta skref stórveldanna til af-. vopnunar verður mjög minnisstætt. Auðvitað vonum við að það leiði til einhvers meira. Það vekur mér hins vegar svart- sýni sú mikla óvissa sem er á öllum sviðum efnahagsmála okkar. Þar virðist ekki vera bjart framundan þótt ég voni að þær breytingar verði ekki eins erfiðar fyrir fólk og ég ótt- ast,“ sagöi Kristín. -KMU Merming Framandi spil - japanskur kvintett hjá Kammermúsíkklúbbnum í gærkvöldi Aðrir tónleikar Kammermúsík- klúbbsins á þessum vetri voru í Bústaðakirkju í gærkvöldi. Þar var kominn klassískur píanókvintett alla leið frá Japan og lék á als oddi í verkum eftir Mozart, Haydn, Schumann o.fl. Fyrst var píanókvartett reyndar, sá í g-moll K 478 eftir Mozart. Dáht- ið var spilið nú framandi, líkt og lögð væri áhersla á aðrar taugar en maður er vanur. Eða kannski mætti kalla það áhersluleysi, líkt og reynt væri að draga úr óvæntum viðburðum. Þetta var sumsé „öðru- vísi“ Mozart en maður heyrir hjá þeim í Evrópu og mér fannst það svosem allt í lagi. Nú hættist fyrsti fiðlari, Jin Hir- asawa, í hópinn og lék með Fukuyama (fiðla), Nakayama (vi- ola) og Moriya (selló) strengja- Tónlist Leifur Þórarinsson kvartett op. 76 nr. 1 eftir Haydn en píanistinn Kyoko Morihara, sem lék fallega í Mozart, tók sér frí um stund. Þetta var ágætur Haydn, lýrískur og snöggur upp á lagið en kannski dáhtið kaldhaminn á köfl- um. Hins vegar voru fimmmenn- ingarnir miklu frjálsari í leik sínum eftir hlé, þegar komið var að kvintett Schumanns op. 44, sem svo margir vildu kveðið hafa, ekki síst hæga þáttinn fagra. Þar sýndu Japanarnir á sér rómantískari hliðar og gerðu talsvert úr and- stæðum. En þeir fóru aldrei yfir mörkin og útkoman var sérlega fágað en þó blæbrigðaríkt spil. Að lokum léku þau ókynnta jap- anska músík sem virtist byggja að nokkru leyti á lagrænni „pentatón- ík“ japanskri og verkaði þægilega. Þetta var sannarlega ánægjuleg kurteisisheimsókn sem gjarnan mætti verða framhald á. LÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.