Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1987, Page 45
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1987.
77
Sviðsljós
Leikendur í Vesalingunum voru alls um 30 talsins en þeir hneigja sig hér i lok sýningarinnar fyrir frumsýningargesti.
,, Vesalingamir ‘ ‘
Nú á annan í jólum frumsýndi
Þjóðleikhúsiö söngleikinn „Vesal-
ingana" (Les Misérables) eftir Victor
Hugo.
Bókmenntaverkið Vesalingarnir
var fyrst fært upp sem söngleikur
árið 1980 í París. Hann náði strax
vinsældum sem slíkur og hefur verið
færður upp víða um lönd síðan. í
London og New York hefur verkið
slegið öll sýningarmet og er vænst
mikils af uppfærslu verksins hér á
landi. Þegar hafa selst fyrirfram 8
þúsund miöar á sýningar verksins.
í tilefni sýningarinnar hefur verið
komið upp fullkomnu hljóðkerfi.
Hljóðnemum er komið fyrir á leikur-
unum og hátalarakerfi um allan sal
svo allir eigi að geta hlustaö án tillits
til fiarlægðar. Hefur þetta mælst vel
fyrir.
Benedikt Árnason er leikstjóri ís-
lensku uppfærslunnar og hljóm-
sveitarstjóri er Sæbjörn Jónsson. Um
þrjátíu leikarar koma fram á sýning-
unni og fer hver og eínn með fleiri
en eitt hlutverk. Aöalhlutverkin eru
í höndum Egils Ólafssonar og Eddu
Heiðrúnar Backman.
Áhorfendur á frumsýningunni
voru vel með á nótunum og hylltu
leikendur ákaft í leikslok.
Ahorfendur á frumsýningunni voru vel með á nótunum og hylltu leikendur ákaft í leikslok.
Tekið hefur verið í notkun fullkomið hljóðkerfi í Þjóðleikhúsinu og hljóðnemar festir á leikendur. Hér er Pálmi
Gestsson tengdur hljóðnema fyrir sýninguna.
Blysför
friðar-
sam-
taka
Á Þorláksmessu stóðu ein átta
samtök fyrir friðargöngu frá
Hlemmi niður á Lækjartorg þar
sem flutt var ávarp.
Að göngunni stóðu Friðar-
hópur fóstra, Friðarhreyfing
íslenskra kvenna, Friðarsamtök
listamanna, Menningar- og friö-
arsamtök íslenskra kvenna,
Samtök íslenskra eðlisfræðinga
gegn kjarnorkuvá, Samtök um
kjarnorkuvopnalaust ísland
og Samtök herstöðvaandstæð-
inga.
Friðargöngumenn voru heldur
óheppnir með veður en létu það
ekki á sig fá.
Regnhlifin kom i góðar þarfir fyrir friðargöngufólk á Þorláksmessu. Hér hlýðir fólk á ræðu á Lækjartorgi.
DV-mynd GVA
Ólyginn
sagði...
Ingemar
Stenmark,
skíðakappinn kunni sem nú
hefur hafið æfingar af krafti
aftur og keppir á fullu, lét
hafa eftir sér í blaðaviðtali
fyrir skömmu að hann gerði
sér engar vonir um að slá í
gegn á ný. Hann segist
finna það að hann sé orðinn
of gamall til þess að geta
staðist þeim yngri snúning
en hann muni halda áfram
að keppa á meðan hann
hafi einhverja ánægju af
því. Ingemar Stenmark er
nýskilinn við eiginkonu
sína, Ann, sem hann var
kvæntur um árabil.
Linda Gray,
sem leikur Sue Ellen í Dall-
as, á að baki að sumu leyti
svipaða fortíð í raunveru-
leikanum og í þáttunum.
Hún var gift J.R. í Dallas-
þáttunum, skildi við hann
og tók saman við hann aft-
ur. I raunveruleikanum var
hún gift manni sem heitir
Ed Trasher. Þau skildu fyrir
nokkuð löngu og nýjustu
fréttir af henni eru þær að
hún er tekin saman við hann
aftur.
Philippe Junot,
glaumgosinn frægi sem
frægur varð er hann kvænt-
ist Karólínu prinsessu, hefur
nú snúið baki við glaum-
gosalífi sínu. Hann hefur nú
kvænst sænskri stúlku,
Ninu Wendelboe, og eiga
þau von á barni eftir nokkra
mánuði. Philippe Junot
berst nú hatrammri baráttu
fyrir því að fá hjónaband
sitt við Karólínu ógilt hjá
páfa en til þessa hefur páfi
ekki gefið undanþágu því
skilnaðir eru ekki vel séðir
meðal kaþólskra.