Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1988, Page 2
2
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1988.
Fréttir
60% hækkun iðgjalda
bifreiðatiygginga
Bífreiðatryggingafélögin munu
fara ffam á að fá að hækka iðgjöld
ábyrgðartiygginga um 59,7%. Þá
vilja tryggingafélögin fá að hækka
iðgjöld kaskótrygginga um 28% og
ífamrúðutrygginga um 38,6%.
Á fundi, sem samstarfsnefnd ís-
Ienskra bifreiðatryggingafélaga
hélt í gær, kom ffam að mikið tap
hefði verið á bifreiöatryggingum í
fyrra og reyndar heíði verið tap á
tryggingunum í fjögur ár. Mörg
félaganna eru afar illa stödd og á
fundinum kom fram að rekstrar-
grundvöllur tryggingafélaganna
væri gjörsamlega brostinn. Tap á
rekstri bifreiðatrygginga var 300 til
400 milljónir á síðasta ári.
í máli fundarboðenda kom fram
að fáist þessi hækkun ekki sé hags-
munum almennings teflt í tvísýnu
þar sem mörg tryggingafélaganna
eru það illa stödd að óvist er að þau
geti greitt bætur til þeirra sem
verða fyrir Ijóni. Ekki fékkst upp-
gefið hvaða tryggingafélög eru svo
illa stödd.
Samkvæmt nýju umferðarlögun-
um er tekin upp ný skyldutrygging,
slysatrygging ökumanns og- éig-
anda. Með henni stórbatna slysa- ekki afgreidd fyrr en um miöja
tryggingar ffá því sem áður var. næstu viku.
Meðal þýðingarmestu breyting- Til þessa hefur Tryggingaeftirht-
anna er aö hámarksbótaskylda ið ekki gert athugasemdir við
vegna ábyrgðartrygginga hækkar hækkunarbeiðnir tryggingarfélag-
úr 19,4 milljónum í 320 milljónir. anna.
Erlendur Lárusson, forstöðu- -Sme
maðm- Tryggingaeftirhtsins, sagði
að ekki væri búið að samþykkja
þessa hækkun og að beiðnin yrði
Nýju „flóðabílamir“:
Gangi þeim vel
- segir forstjöri Daihatsuumboðsins
„Við sendum menn út til að skoða
þessa bfla og gerðum tilboð í þá. Því
var ekki tekið og því varð ekkert úr
því að við keyptum bílana. Þeir hefðu
þurft að fást á lágu verði svo að það
væri eitthvert vit í kaupunum. Hefð-
um við keypt bílana hefðum við
líklega sett þá á almennan markað
sagði Jóhann Jóhannsson, forstjóri
Brimborgar, en fyrirtæki hans er
umboðsaðih fyrir Daihatsu á íslandi.
Fjórmenningamir, sem fluttu tfl
landsins á þriðja hundrað Subaru-
bíla sem lentu í flóðum á hafnar-
bakkanum í Drammen, hafa nú fest
kaup á fleiri bílum, samtals á annað
hundrað af árgerð 1988, Mazda og
Daihatsu.
Jóhann, forstjóri Brimborgar,
sagði ennfremur að hann vonaði aö
þeim mönnum sem nú hefðu fest
kaup á bflunum gengi vel og hann
sagðist vona að þeir stæðu vel að
þessum viðskiptum. Brimborg mun
þjónusta þessa bíla sem og alla aðra
bíla.
Steinn Sigurðsson, sölustjóri hjá
Bílaborg, sagðist ekki geta sagt um
hvernig hans fyrirtæki hygðist
bregðast viö innflutningi Mazdabfla
sem lentu í flóðunum í Drammen.
-sme
Ráðstefna um störf
skólastjórnenda
Ráðstefna um störf og ábyrgð
skólastjómenda hófst á Hótel Sögu
í gær, fóstudag, og lýkur i dag. Birg-
ir ísleifúr Gunnarsson mennta-
málaráöherra setti ráðstefnuna
með ávarpi. Hátt á annaö hundraö
manns var á ráðstefnunni í gær.
„Tilgangur ráðstefnunnar er
fyrst og fremst að kanna starf
skólastjórans í dag,“ sagöi Kristín
Tryggvadóttir, ráöstefnustjóri og
skólastjóri Selásskóla í Reykjavík.
„Við athugum til dæmis samskipti
skólastjóra við ráðamenn og þá
breytingu sem orðið hefúr á starfi
skólastjórans en starfið hefur orðiö
sífeht flóknara með árunum. T.d.
get ég nefnt aö skólastjórinn er rík-
Á annað hundrað manns kom á ráðstefnu um störf og ábyrgö skóia-
stjórnenda á Hótet Sögu i gær.
isstarfsmaður en þarf sífellt meira
að hafa umsjón með störfum sem
tengjast sveitarfélaginu, t.d. dag-
gæslu og mjólkursölu. Áður voru
hæfir kennarar valdir í skóla-
stjórastöðumar en nú teljum við
það ekki lengur forsenduna heldur
þarf skólastjórinn að vera hæfur
til að gegna mjög flóknu stjómun-
arstarfi. í rauninni erum við að
velta fyrir okkur hvort kennarar,
skólastjórar og ráðamenn eöa
skólakerfið í heild hafi orðið á eftir
og ekki aölagað sig breyttum þjóö-
félagsaöstæðum og hvað við getum
þá gert til aö lagfæra það,“ segir
Kristín.
-JBj
Óttar Guðmundsson og Þórarinn Tyrfingsson, læknar SÁÁ, héldu opinni læknastofu i Kringlunni í gær. Fjöldi
manns ræddi við þá um áfengismál sín og annarra, bæöi undir fjögur augu ög eins sköpuðust oft fjörlegar umræður
í stærri hópum. DV-mynd KAE
Samnlngaviðræður:
litið fundað í dag
Lítið verður um fundahöld í samn-
ingaviðræöum Verkamannasam-
bandsins og vinnuveitenda í dag
vegna aðalfundar Alþýðubankans og
árshátíðar framkvæmdastjórnar
VSÍ. Fundir munu hins vegar verða
meö eðlilegum hætti á morgun. Þeg-
ar DV fór í prentun í gærkvöldi var
verið að ganga frá samningum um
breytingar á vinnutíma en enn var
ekki farið að ræða launalið samning-
anna.
„Vaxtalækkunin er náttúrlega
vottur þess að ástandið sé eitthvað
að skána þó hún ein og sér breyti
náttúrlega ekki miklu,“ sagði Þórar-
inn V. Þórarinsson, framkvæmda-
stjóri VSÍ, þegar DV innti hann eftir
því hvort forráðamenn fiskvinnsl-
unnar væru nú fúsari til viðræðna
en áður. Þórarinn sagði að samn-
ingamenn hefðu ekkert heyrt frá
stjórnvöldum í gær.
Steingrjmur Hermannsson utan-
ríkisráðherra sagöi að þriggja manna
ráðherranefnd hefði ekkert rætt um
efnahagsráðstafanir til að liöka fyrir
samningum.
-gse
Verdlagsstofnun
leiðréttir augtýsingu
Verðlagsstofnun hefur sent frá
sér eftirfarandi athugasemd:
„I auglýsingu viöskiptaráðu-
neytisins, sem byggðist á upplýs-
ingum úr verðkönnun Verðlags-
stofnunar, og sem birtist í blaði
yðar 19. febrúar, urðu þau leiðu
mistök að mynd af frystu græn-
meti frá ORA birtist í matarkörfu
þeirri sem ætlað var að sýna dýr-
ustu körfuna. Fryst grænmeti frá
ORA var hins vegar ekki dýrasta
grænmetistegundin og átti því
ekki heima í þessari körfu. Þessi
mistök í myndbirtingu hafa engin
’ ákrif é tölulegar niöurstöður
könnunarinnar og ekki auglýs-
ingarinnar heldur.“
Leiðrétting
I DV í gær var sagt frá því aö Pa-
ata Burchuladze syngi á vegum
Tónlistarfélagsins í Háskólabíói í dag
kl. 14.30. Rétt er þaö að söngvarinn
syngur á þessum tíma í Háskólabíói.
Skíðafæri um helgina:
Best fýrir austan
- nokkuð gott
Nokkuö gott skíöaveður verður
um allt land um helgina samkvæmt
spá Veðurstofunnar. Hiti verður um
frostmark og fremur hæg vestan- og
suðvestanátt. Best verður skíðaveðr-
ið á Austurlandi en þar er spáð björtu
veðri eða sól. Á suðvesturhorninu
verður lítfls háttar éljagangur en
bjart inni á milli. Flest skiðasvæði
landsins verða opin um helgina og
nægur snjór víðast hvar.
Á Bláflallasvæðinu er nægur sifiór
og verður svæöið opiö ef veður leyfir
frá kl. 10-18 laugardag og sunnudag.
í Hveradölum verða gönguskíða-
leiðir áreiðanlega opnar en ekki er
vist hvort nægur snjór verður í
brekkunum tfl að halda lyftum opn-
um um helgina. Svæðið er opið frá
kl. 10-24.
Óvíst er hvort opið verður í Skála-
annars staðar
felli þar sem lítill snjór er á svæðinu.
Stólalyftan verður ekki sett í gang
um helgina en verið getur að minni
lyfturnar verði opnar á sunnudag.
Það verður þá auglýst í útvarpi.
í Hlíðarflalli á Akureyri er nægur
snjór og verður svæðið opið báða
dagana frá kl. 10-17 ef veður leyfir.
A ísafirði er nægur snjór og verður
skíðasvæðið opið almenningi frá kl.
10-18 á laugardag og sunnudag ef
veður leyfir. Vestflarðamót 15 ára og
eldri í svigi og stórsvigi fer einnig
fram á ísafirði um helgina.
í Oddsskarði verður skíðasvæðið
opið um helgina frá kl. 10.30-17 báða
dagana. Þar hefur verið glaöasólskin
og nægur snjór og gerir veðurspáin
ráð fyrir svipuðu veðri um helgina.
-JBj