Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1988, Blaðsíða 60
FRÉTT ASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá i síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað i DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Rftstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreif’ng: Sími 27022
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1988.
Hraðskákmótið í Kanada:
Helgi komst
áfram
Aðeins einn íslendinganna komst
áfram í 16 manna úrslitin í heims-
meistarakeppninni í hraðskák sem
nú fer fram í St. John í Kanada. Það
var Helgi Ólafsson sem lagði Valery
Salov að velli í bráðabana eftir að
staðan hafði verið 2-2 að loknum
fjórum skákum. Tvær fyrstu skák-
irnar í bráðabananum urðu jafntefli
en Helgi lagði Salov í þeirri þriðju.
Karl Þorsteinsson tapaði fyrir
heimsmeistaranum Kasparov,
'/j-2 /i, og átti Karl aö hafa verið með
unna stöðu í jafnteflisskákinni. Mar-
geir tapaði á sorglegan hátt fyrir
Nogueiras, 3-2, eftir að hafa unnið
tvær fyrstu skákirnar.
Þeir sem komust áfram í 16 manna
úrslitin voru Helgi Ólafsson, Kasp-
arov, Karpov, Tal, Nogueiras, Dlugy,
Wilder, Vaganian, Jusupov, Ehlvest,
Georgiev, fvanov, Spielman, Ivanow-
itch, Chernin og ísraelsmaðurinn
með erfiða nafnið, Dzindzichashvili.
ÍS
Jón Baldvin:
. Evrópsk
herstoð
á íslandi?
Jón Baldvin Hannibalsson fjár-
málaráðherra viðraði í gær hug-
myndir um að Evrópubandalagið
tæki að sér varnir íslands. Þetta kom
fram á fundi ráðherrans með for-
ystumönnum norrænna jafnaðar-
mannaflokka í Svíþjóð. Jón Baldvin
sagði þetta koma til greina gegn því
að íslendingar fengju fríverslunar-
samninga við bandalagið. Ekki komi
til greina að veita löndum bandalags-
ins réttindi til veiða í íslenskri
lögsögu.
Fjármálaráðherra vill því skipta á
herstöð ’Evrópuþjóða á Islandi, þar
sem fylgjast má með umferð á og í
hafinu, og tollfrjálsum fiskútflutn-
ingi frá íslandi.
-JH
ÞRDSTUR
68-50-60
VANIR MENN
LOKI
Ef myndin prentast vel má
greina fingrafar á húddinu!
Handleggsbrotið á
Feðgamir settir af
inn gekk hvað harðast fram í verðaþvímennirniráhálfumlaun- segja til um hverjir mennimir
meðhöndluninni á Sveini. um um einhvem tíma," sagði væru.
„Málið fer nú til ríkissaksóknara. Böövar Bragason lögreglusfjóri. Böðvar Bragason lögreglustjóri
Þar hefur það sinn framgang og Böðvar sagði að ítarlega hefði hefurrættþettamálviðdómsmála-
hlýtur að hafa siim enda. Þeir em veriö um máliö fjaliað innan lög- ráðherra. Böðvar sagði að ákvörö-
leystir frá störfum þar til niöur- reglunnar. Niðurstaða þeirrar unin um tímabundna brottvísun
staða fæst í þessu máli. Þetta er umfjöllunar helði sem sagt verið væri alfarið frá sér komin og að
gert samkvæmt lögum um rétt og sú aö tveir menn heföu veriö leyst- ráðherra hefði ekki haft nein af-
skyldur opinberra starfsmamia og ir frá störfum en sagðist ekki vilja skipti af ákvörðuninni. -sme
Böðvar Bragason, lögreglustjóri
í Reykjavík, ákvað í gær að leysa
frá störfum tvo lögregluþjóna sem
tengdust misþyrmingunum á
Sveini Jónassyni.
Samkvæmt heimildum DV eru
það feðgarnir sem komusem mest
við sögu í málinu. Sonurinn á bíl-
inn sem málið snerist um og faðir-
Sparisjóðimir
lækka vexti
Sparisjóðimir hafa ákveðið að
lækka vexti. Vextir almennra
skuldabréfa lækka um 6%. Innláns-
vextir lækka frá 2 til 7%. Vextir
almennra sparisjóðsbóka lækka um
3%. -JH
Kvosarskipulagið:
Þorsteinn frestar
afgreiðslu Jóhönnu
Þorsteinn Pálsson forsætisráð-
herra óskaði eftir því við Jóhönnu
Sigurðardóttur félagsmálaráðherra í
gær að hún frestaði afgreiðslu sinni
á Kvosarskipulaginu til Reykjavík-
urborgar. Þorsteinn vildi ekkert láta
uppi um þaö í gær hvaða ástæða
lægi að baki þessarar beiðni.
Þegar þessi beiðni kom frá Þor-
steini var málið tilbúið frá hendi
félagsmálaráðherra. „Það kemur í
ljós þegar ég afgreiði málið til borgar-
innar,“ sagði Jóhanna þegar DV
innti hana eftir því hvort hún hefði
afgreitt skipulagið athugasemda-
laust eða sent það aftur til borgar-
stjórnar. Jóhanna sagði að þessi ósk
Þorsteins breytti engu um hennar
ákvörðun. Hún sagði að afgreiðsla
skipulagsins væri einvörðungu mál
félagsmálaráðherra, ríkisstjórn eða
forsætisráðherra gætu ekki breytt
niðurstöðum hennar.
„Ég hef engar áhyggjur af þessu
máli,“ sagði Davíð Oddsson borgar-
stjóri í samtali við DV í gærkvöldi.
„Mér liggur ekkert á að kanna það
fyrr en ég mæti til vinnu á mánu-
dagsmorgun.“ -gse
Billinn margfrægi. Eigandinn ætlar að leggja fram bótakröfu á hendur Sveini Jónassyni fyrir að hafa unnið miklar
skemmdir á vélarhlíf bílsins, eins og eigandinn segir. DV-mynd BG
Kjaftháttur og píslarvottarsaga
- segir annar lógreglumaðurínn sem leystur hefur verið frá stórfum
„Það sá á bílnum og að sjálfsögöu
mun ég leggja fram bótakröfu. Held-
urðu að ég ætli að gefa manninum
þetta?“ sagði lögreglumaðurinn og
eigandi bílsins sem Sveinn Jónasson
hrasaði á og greint var frá í DV í
gær. Lögreglustjórinn í Reykjavík
hefur nú leyst bíleigandann og fóður
hans frá störfum þar til meðferð
málsins lýkur.
Bíleigandinn sagði að um töluvert
tjón á vélarhlíf bílsins væri að ræða.
„Ég get sagt þér annaö, að það sem
hefur komið fram í fjölmiðlum er
allt tóm lygi. Þetta er bara píslarvott-
ur og ekkert annaö."
í lok samtals DV viö bíleigandann
ítrekaði hann að saga Sveins Jónas-
sonar væri kjaftháttur og píslarvott-
arsaga sem fjölmiðlar gerðu sér mat
úr. -sme
Veðrið um helgina:
Él á Vesturíandi og bjart á Austuriandi
Á morgun, sunnudag, veröur suðvestanátt með éljum um landið vestanvert en bjart veður á Norðaustur- og
Austurlandi. Hiti um eða rétt undir frostmarki. Á mánudag verður vestan- og norðvestanátt með éljum vestan-
lands og á annesjum norðanlands en bjart veður austan- og suðaustanlands.