Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1988, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1988, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1988. 17 I>V 1975-76 Víkmgur-Gummersbach.......................16-19/12-21 28-40 1978- 79 Víkíngur Halewood.........................10- 0/0-10 20- 0 Víklngur-Ystad..............................24-23/24-23 48-46 1979- 80 Vikingur-Heim.............................19-23/19-22 38-45 1980- 81 Vikingur-Tatabanya........................21-20/22-23 43-43 Víkingur Lugi...............................16-17/16-16 32-33 1981- 82 Vikingur-Atletico Madrid..................14-15/22-23 36-38 1982- 83 Víkingur-Vestmanna........................35-19/27-23 62-42 Víkingur-DuklaPrag..........................19-18/15-23 34-41 1983- 84 Vikingur-Kolbotn....................1....21-19/18-20 39-39 1984- 85 Víkingur-Fjellhammer.....................26-20/23-25 49-45 Víkingur-Tres de Mayo ............................ 28-21/28-21 56-42 Víkingur-Crvenka......................... 20-15/25-24 45-39 Víkingur-Barcelona..........................20-13/12-22 32-35 1985- 86 Vikingur-Teka ......................................... 20-21/19-21 39-42 1986- 87 Vikingur-Vestmanna ........................... ...,16-12/26-26 42-38 Víkingur-St. Otmar.........................22-17/19-20 47-31 Víkingur-Gdansk.............................26-26/17-22 43-48 1987- 88 Vikingur-Liverpool........................29-13/38-9 67-22 Vikingur-Kolding .................................... 19-16/25-21 44-37 Víkingur-ZSKA Moskva........................??-??/??-?? ??-?? Víkingum vísað úr keppni Hersingin storm- hrísluna var ekki í neinu sambandi viö leikinn sjálfan. Setti Wadmark slysalegt rúðubrot, ásamt áðurnefndum hrísluburði, á oddinn í þeim mála- ferlum sem sigldu í kjölfar leiksins: „Svona hefur ekki gerst fyrr né síð- ar og segir það sitt,“ sagði Páll Björgvinsson, einn þeirra Víkinga sem léku gegn Ystad í Svíþjóð. „Þetta er mesta sorgarsaga sem Víkinga heftur hent. Þetta var enda mjög óréttlátur dómur því þarna gerðist ekkert sem kom leiknum sjálfum beint við. Við bökuðum Svíana en ekki æðsta ráð IHF. Úr- skurðurinn var ekkert annað en kvikindisháttur í einum manni, Svíanum*Kurt Wadmark. Það sem skeði hjá okkur þarna úti var bara eins og gerist og gengur þegar vel tekst til. Fræknir sigrar höfðu unnist og því var eðlilegur galsi í mann- skapnum. Sá galsi orsakaði samt síður þau atvik sem urðu liðinu að falli. Þeir atburðir sem Víkingur hlaut dóm fyrir atvikuðust öðru fremur af ytri aðstæðum í Ystad, glerhálku og snjókomu," sagði Páll í spjalhnu við helgarblað DV. -JÖG Það er bara alltaf kappsmál manna að hnekkja á toppliðinu Fátt hefur glatt stuðnings- heim aö sækja,“ sagðí Þorbjörn menn Víkinga jafnmikið og jafnframt. „Vitanlega reyna velgengni þeirra á kappvellin- menn ákaft að leggja meistar- um. Liðiðhefurendaátttitilað ann og berja á honum, gildir veija í heilan áratug, annaö- þá einu hvaða félög eiga í hlut. hvort íslandskrúnuna eöa Víkingar eru hreint ekkert hat- bikarinn. SkrifHnnur helgar- aörienaðrir-þaðerbaraalltaf blaðsins fór á stúfana til að leita kappsmál manna að hnekkja á skýringa á þessum sífelldu toppliðinu,'1 sagði Þorbjörn. hamiörum Víkinga á flölunum: „Samstaðan i Víkingsliðinu „Víkingar hafa lengi haft gott er og hefur lengi verið ótrú- liö og sennilega hefur sam- leg,“ sagöi hins vegar Guðjón heldni leikmanna haldið liðinu Guðmundson i spjalli við tíð- viðefniðogátoppnum.Þáhafa indamann helgarblaðsins. - þeir haft góða þjálfara á upp- Guðjón var lengi formaður á gangsárum sínum.“ Þetta sagði bekknum bjá Víkingum og Þorbjörn Guðmundsson Vals- skoðar þá því eðlilega með öðr- maður í spjalli við DV. Hann um hætti en Þorbjöm Valsmað- hefur lengi skoðað Víking frá ur. „Þessi samstaða, jafnt utan sjónarhóli mótheijans, hefur sem innan vallar, er að mínum eldað grátt silfur við liðið 1 árar- dómi lykillinn að mikilli og sér- aðir á kappvellinum. stæðri velgengni liðsins á „Víkingar eru með stemning- síðustu árum,“ sagði Guðjón. arlið og þau eru ávallt erfið -JÖG aði með Víkingar hafa oft mætt andstreymi á ferli sínum á Evrópumótunum. Þeim var til að mynda vísað úr keppni haustið 1978 en þá hafði liðið mætt sænsku bikarhöfunum frá Ystad. Tveir naumir sigrar dugðu Víking- um skammt því málaferh, og síðan dómur Alþjóða handknattleikssam- bandsins, hindruðu frekari fram- vindu liðsins í mótinu. Málum var á þann veg háttað að fáeinir sigurreifir Víkingar gripu jólatré nokkurt herfangi í veislu sem þeim var haldin eftir leikinn í Sví- þjóð. Stormaði hersingin síðan með hrísluna heim á hótel og var því þar fundinn staður með aðstoð dyravarð- arins. Ekki voru allir á einu máli um ágæti þessarar framgöngu Víkinga utan keppnisvallarins. Þótti Kurt nokkrum Wadmark einna minnst til koma en hann var og er sænskur stjómarmaður hjá Alþjóða hand- knattleikssambandinu. Tókst honum að bola Víkingum úr keppni, með aðstoð handgenginna manna, og hlýtur afrek hans að teljast nokk- urt þar sem gemingur Víkinganna íþróttir Víkingar hársbreidd frá úrslitum Steinar rotaður við undir- leik brasssveitar Börsunga Víkingar úr Hæðargarði leika á morgun sinn 41. Evrópuleik er þeir mæta sjálfum álfumeisturunum frá Moskvu. Lengi hafa Víkingar haldiö nafni íslendinga á lofti í fjölþjóðleg- um handknattleik. í heilan áratug hefur félagið spilað á einhveiju Evr- ópumótanna og gjaman náð góðum árangri. Tvívegis hefur félagið farið í sextán hða úrsht, þrisvar rutt sér braut í útsláttarkeppni átta Uða og einu sinni komist í undanúrslit í keppni bikarhafa. Fyrst spiluðu Víkingar í Evrópu- keppni árið 1975, þá við v-þýsku meistarana Gummersbach. Öttu þeir þar kappi viö oíjarla sína en fór þó svo að skriffinnar v-þýsku blaðanna lofuðu einn mann íslenska Uðsins öðrum fremur fyrir vasklega fram- göngu. Var það markvörðurinn Rósmundur Jónsson sem hlaut hólið en hann sté sárlasinn á fjöl í síðari hálfleiknum þama ytra - hafði 40 stiga hita. Varöi Rósmundur ekki færri en 20 skot á þessum fáu mínút- um og þótti skríbentum þýsku blaðanna sem þar færi einn af þrem- ur bestu markvörðum veraldar. Gárungarnir hér heima höfðu hins vegar á orði aö Þjóðveijamir hefðu bara kastað svo fast að Rósmundur hefði ekki komið sér undan þrumu- skotunum. Líklega er einna frægust for Vík- inga til Barcelona á Spáni þar sem Uðið ghmdi við heimamenn í undan- úrsUtum Evrópumótsins áriö 1985. Áður höfðu Uðin mæst í Reykjavík þar sem nautabanamir vom færðir í gapastokkinn með eftirminnilegum hætti. Steinlágu þeir, 20-13, og þurftu á annan tug mínútna til að vinna eitt einvígi við markvörð Víkingá, Kristján Sigmundsson. Á Spáni tók annað við og aö dómi Þorbergs Aðalsteinssonar, fyrrum Víkings, átti aðfor heimamanna við hann og aðra Víkinga lítið skylt við íþróttina sem Spánverjarnir þóttust þó stunda: „Við vorum dæmdir úr keppni- í Barcelona, ég gæti best trúað að dómurunum hafi verið mútað en þeir voru báðir settir af, úrskurðaðir í þriggja ára bann frá Evrópukeppni. Spánveijarnir beittu alls kyns bola- brögðum, rotuðu Steinar Birgisson á upphafsmínútunum og fengu síðan alla þá aðstoð sem til þurfti frá dóm- urunum,“ sagði Þorbergur. HöUin í Barcelona var kjaftfull meðan á leiknum stóð, voru tíu þús- und áhorfendur öskrándi svo ekki heyrðist mannsins mál. Að auki spil- aði síðan sameinað brassband Börsunga ákaft á pöllunum og áttu dólgslætin að slá Víkingana út af lag- inu. „Svona gerist ekki nema einu sinni á öld, þetta var í raun miklu nær ævintýri en veruleika," sagði Hilmar Sigurgíslason í samtali við DV en hann var á línunni í Barcelona. „Taugastriðið byijaði strax á hótel- inu. Þegar við áttum að fara í leikinn hvarf rútan sem við höfðum haft til umráða fram að því. Við fórum því í leigubUum á keppnisstað. Þegar viö svo komum aö höllinni sjálfri var verið að smala í hana, mér skilst að múgurinn hafi einfaldlega farið frítt inn. Nú! Við vorum síðan ekki fyrr komnir á gólfið er upphófust gífurleg læti, bombur sprungu og fuku um allan sal og lúðrasveitir blésu ófrið- lega. Leikurinn hófst síðan með slagsmálum og við urðum einfald- lega sem steinrunnir í mótlætinu og hávaðanum. Spánverjarnir fengu að kýla og berja í vörninni og halda sið- an boltanum i sókninni þar tii þeir höfðu skorað," sagði Hilmar. „Ég vona svo sannarlega að maður lendi ekki í svona nokkru oftar. Það sem eftir situr er tapið og hinn gifur- legi hávaði í hölhnni sem var engu líkur,“ sagði Hilmar. -JÖG Það rættist úr apa- sveiflunni og liðsstj órinn engdist „Það var ótrúlega skemmtilegt aö skora úr aukakastinu. Gleðin var óstjórnleg og núverandi aðstoðar- þjálfari landsliösins, sem þá sat á bekknum hjá okkur Víkingum, marséraði inná gólfið, lagðist á það mitt og spriklaði höndum og fótum - í beinni útsendingu því leiknum var sjónvarpað um alla Austur-Evrópu. Líklega hefur fólkið þeim megin járntjaldsins hvorki fyrr né síðar lit- ið aðrar eins hamfarir." Þetta sagði Þorbergur Aðalsteins- son, fyrrum Víkingur, en hann kom Hæðargarðsfélaginu í 8 hða úrslit Evrópumótsins árið 1980 með eftir- minnilegu marki. Hafði Víkingur þá betur í einvígi við ungverska liðið Tatabanya og varð þannig fyrst ís- lenskra liða til aö slá félag frá austurblokkinni úr keppni. Þorbergur skoraði þetta mark beint úr aukakasti - eftir hefðbund- inn leiktíma - með svonefndri „apa- a miðju sveiflu11.. Vélaði hann fyrst varnarmúrinn allan úr skorðum með falshreyfingu og lét síðan ríðá af. Söng boltinn í netinu og olli mark- ið trylltri gleði Vikinga, dauðakyrrð á pöllunum, en síðan langri reki- stefnu dómara og tímavarða. Jón Örn Guðbjartsson „Eysteinn Helgason, sem þá var formaður handknattleiksdeildar Víkings, var þarna ofarlega á pöllun- um,“ sagði Þorbergur í spjallinu, „er Eysteinn sá rætast úr kastinu beitti hann öhum tiltækum ráðum til að komast niður á gólfið. Óð yfir bekk- ina í sigurvímu og áttu stuðnings- menn ungverska hðsins hreinlega fótum sínum fjör að launa. Heima- gólfinu menn tóku þessu áfalli raunar mjög illa, leikmenn slepptu baðinu en áður en þeir yfirgáfu salinn var lengi þráttað um hvort markið ætti að telj- ast gilt eða ekki. Dómararnir voru einbeittir en tímaverðir reyndu hvað þeir gátu. Það var síðan effirhts- dómari frá alþjóðasambandi hand- knattleiksmanna sem tók af skarið og sagði markið gott og gilt, hans úrskurði var sem betur fer ekki hnikað. Þess má til gamans geta að áður en kastiö var tekið voru læti mikil bæði á pöllunum og á gölfinu. Fóru heilar þijár mínútur í þvarg en á meðan stungum við Bogdan Kow- alczyk saman nefjum og lögöum á ráðin. Það má eiginlega segja að hann hafi átt hugmyndina að apa- sveiflunni. Ég hugsa að Bogdan hafi verið eini maðurinn í húsinu sem hélt stilhngu sinni á þessum örlaga- ríku mínútum," sagði Þorbergur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.