Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1988, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1988, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1988. Fréttir Þjóðskjalasafnið í gömlu Mjólkursamsölunni: Þrjátíu og fimm hillu- kílómetrar af skjölum - eitft besta húsnæði sem völ er á - segir þjóðskjalavörður Þessum skjölum á eftir aö koma i öskjur og síðan upp í hillur. Húsnæði Þjóðskjalasafnsins mun rúma 35 hillukiló- metra af skjölum en þaö mun liklega ekki duga lengur en til aldamóta. Þjóðskjalasafn Islands flutti fyrir um einu ári í gamla Mjólkursamsöluhú- sið við Laugaveg í Reykjavík. Skrif- stofur og rannsóknastofa Þjóðskjala- safnsins er nú flutt i Mjólkursam- söluhúsið en mikið af skjölum er ennþá geymt í leigahúsnæði á Hest- hálsi og í Safnahúsinu þar sem lestrarsalur er einnig. Nýja hús- næðið er um 7400 m- að flatarmáli. Þar eru skrifstofur og rannsókna- stofa en seinna verður komið upp lestrarsal, bókasafni og gríðarstór- um skjalageymslum. Almenningur gerir sér litla grein fyrir hversu gífurlegt magn skjala er geymt í Þjóðskjalasafninu. Gróf- lega áætlað eru nú 12-13 hillukíló- metrar skjala í vörslu Þjóöskjaía- safnsins en í Mjólkúrsamsöluhúsinu verður hægt að varðveita 35 hillu- kílómetra. Búist er við að þetta pláss dugi næstu 10-15 árin. Þaö er því geysilega stórt húsnæði sem þarf undir skjalageymslur og eru þau fljót að sprengja plássið utan af sér. Menn eru því mjög ánægðir með að mögu- leiki er á að byggja við safnið í framtíðinni í portinu milli húsanna. Vantar um 150 milljónir Hús Mjólkursamsölunnar voru keypt fyrir Þjóðskjalasafnið í lok árs- ins 1985 á 110 milljónir á þáverr.ndi Fyllt verður upp í þessar dyr og þar fyrir innan komið fyrir skjalageymsl- um. verðlagi. Kaupin voru gagnrýnd af mörgum. Sérstaklega á þeim for- sendum að nýlega hafði verið tekið á leigu húsnæði á.Hesthálsi til 9 ára og töldu menn að það myndi liggja ónotað meðan leigusamningurinn væri að renna út. Sú hefur ekki orð- ið raunin því að þetta húsnæði er enn fullnýtt en tvær aðrar geymslur hafa verið teknar úr notkun. Til að full- gera byggingarnar vantar u.þ.b. 150 milljónir á núvirði að sögn Magnúsar H. Olafssonar arkitekts sem hefur umsjón með byggingunum. Hann segir ríflegan helming af þessari upp- hæð fara í hillukerfm en afganginn í þjófa- og brunavamakeríi ásamt almennu viðhaldi. Magnús sagði hins vegar að ef byggja hefði átt nýtt hús undir Þjóðskjalasafnið hefði það kostað 400 milljónir fyrir utan allan innri búnaö. . » Hentugt húsnæði Ólafur Ásgeirsson þjóðskjalavörð- ur segir það einstaka heppni að Þjóðskjaiasafnið hafi dottið niður á jafnhentugt húsnæði og gömlu Mjólkursamsöluna. „Þessar bygg- ingar henta geysilega vel undir starfsemi Þjóðskjalasafnsins. Með því að ráðast í þessi húsnæðiskaup er ég viss um að biðtími á lausn á húsnæðisskorti þess hefur verið styttur um 30 ár auk þess sem þessi lausn er miklu ódýrari en aö byggja nýtt hús. Húsið er í mjög góðu ásig- komulagi og einu breytingarnar sem gera þarf á flestum stööum er að mála og skipta um teppi eöa dúk á gólfum. Annars eru það bara einfóld- ustu viðhaldsatriði sem þarf að framkvæma. Burðarþol hússins er geysilega mikið og er það mjög mikil- vægt atriði þegar skjalasöfn eru annars vegar. Þá var viðgerðarstofa tilbúin í húsinu þegar við fluttum inn en undir hana gátum við notað rann- sóknarstofu Mjólkursamsölunnar næstum óbreytta. Viðgerðarstofan var áöur í 20 m2 húsnæði en hefur nú um 200 m2 til umráða svo að að- stæður þar hafa batnaö svo að um munar. Sýningarsal í kjallara fáum við einnig í framtíðinni. Inn í hann verður gengið frá götunni og ekki er það verra að við erum mjög mið- svæðis og stutt í alla strætisvagna. Hvað skjalageymslurnar varöar þarf yfirleitt bara að þrífa og mála auk þess sem koma þarf upp hillukerfum og öryggisbúnaði," segir Ólafur Ás- geirsson þjóðskjalavörður. Hann segir enn ekki ljóst hvenær öll skjöl komist í geymslu í nýja Þjóðskjala- safninu. Það gerist ekki fyrr en stjórnmálamenn veita það fjármagn sem á vantar til að fullklára húsin. -JBj geróarstofu Þjóðskjalasafnsins. Safnið getur notað rannsóknastofu Mjólkursamsölunnar nær óbreytta undir viðgerðarstofuna. Miklilax í Fljótum: Full afköst strax á Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri: „Stöðin hefur veriö geysileg lyfti- stöng fyrir byggðarlagið hér. Á flestum bæjum hér hafa menn átt í erfiðleikum og orðið að skera nið- ur fé sitt vegna riðunnar én laxejd- isstöðin hefur sýnt okkur fram á að við eigum mikla möguleika á því sviði hérna,“ sagði Heiðar Alberts- son, stjórnarformaður Miklalax hf. í Fljótum, er DV kom þar við á dögunum. Framkvæmdir við stöð Miklalax hófust í júlí á sl. ári og þá um haustið voru tekin inn í stöðina um 700 þúsund hrogn. Útkoman nú, nokkrum mánuðum síðar, er sú að stöðin hefur selt seiði til Chile og mun selja um 420 þúsund seiði í vor. „Þetta er mjög góður árangur á fyrsta ári og nánast einsdæmi að stöð nái svona árangri strax á fyrsta ári,“ sagði Heiðar. Ekki er búiö aö ákveða hvert seiðin fara sem seld verða í vor en líklegt er talið að þau verði seld til Noregs. Samvinna við Skota „Við hér í Fljótunum kunnum ekkert varðandi fiskeldi. Við fórum því þá leið að fá skoska fyrirtækiö Fichfresh Deloment í samvinnu við okkur en það er mjög virt fyrirtæki er fylflst með vexti þeirra. DV-myndir GK, Akureyri á þessu sviði. Það sá um byggingu Tveir starfsmenn stöðvarinnar að vigta seiðin, en mjög nákvæmlega fyrsta árinu stöðvarinnar og allt sem inn í stöð- inni er er frá því komið. Skotamir munu sjá um stöðina í þijú ár. Þannig var samið við þá að þeir fái 12 cent fyrir hvert seiði sem selt veröur en ef eldið mistekst ganga þeir slyppir og snauðir frá verkinu. Skotamir em geysilega nákvæmir á allan hátt og ganga fast eftir því að öllum reglum sé fylgt hér í stöðinni." Heiöar sagði að um áramótin hefði stöðin selt 1200 augnseyöi til Heiðar Albertsson stjórnarformað- ur í stöö Miklalax hf. I Fljótum. Chile. Sá útflutningur hefði verið mjög arðbær því ekki þyrfti að hafa seiðin í stööinni nema 2-3 mánuði þegar seiðin væm seld svo ung. En Heiðar sagði að ljóst væri að stöðin gæti ekki byggt tilveru sína á seiða- sölu í framtíðinni. Miklir möguleikar I Miklavatni „Við emm nú að byija viðræður við Skotana um áframhald á upp- byggingu hér á staðnum. Mikla- vatn býður upp á mjög mikla möguleika en það er þeim eigin- leikum búið aö efst í því er ferskt vatn en heitur sjór undir. Þaö eru því mjög góöir möguleikar á strandeldi hér, að dæla heitum sjónum úr Miklavatni í ker hér við stöðina og ala laxinn í þeim í slátr- unarstærð. Við höfum ekki tekið endanlegar ákvarðanir í þessum málum en gerum það alveg á næst- unni,“ sagði Heiöar. Húsnæði Miklalax í Fljótum er 27x50 metrar og búið fullkomnustu • tækjum og öryggisbúnaði sem völ er á. Þar starfa að jafnaði um 5 manns, en yfirstjórnin er í höndum Skotanna. „Við þökkum Skotunum þann glæsilega árangur sem við höfum náð, þeir hafa svo sannar- lega sýnt að þeir kunna sitt fag,“ sagöi Heiðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.