Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1988, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1988, Blaðsíða 43
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1988. 55 gamlan glæsileik og njóta fagurs út- sýnis. Verðlagningu voru settar hömlur þannig að viðskiptahópurinn stækkaði. Leiðin, sem Austurlandahraðlestin fer í dag, er eftirfarandi: Hvað kostar glæsileikinn? Brottfarir frá London og Feneyjum eru tvisvar í viku. Eftirfarandi eru nokkur dæmi um verð: London-París frá 12.435 til 14.399 kr. án klefa. London-Folkestone, þar er farið um borð í ferju sem flytur fólk til Bologne. Lestin fer síðan frá Bologne til Parísar. Frá París fer lestin um hinar frjósömu sléttur Norður- Frakklands og til Sviss. Næsta stoppistöð er Ziirich. Síðan er farið er í gegnum hin frægu Arlberggöng og ferðast um Alpana. Útsýnið er ægifagurt á leiðinni til Innsbruck. Frá Innsbruck er fariö um Brenner- skarð og haldið niður á sléttur Ítalíu og suður til Veróna. Frá Veróna er ferðinni heitiö til Feneyja þar sem endastöðin er. Segja má að öll leiðin sé veisla fyrir augað og ætti engum að leiðast við gluggann. í annari grein hér í blaðinu er tæpt á þjón- ustu og aöbúnaöi og skal það ekki orðlengt hér frekar. ' London-Feneyjar frá 35.997 til 42.869 kr. með klefa. Verð er miðað við að tveir séu í klefa og er mismunandi eftir árstíðum. Innifaldar í verði eru máltíðir á með- an ferð stendur. Ef fólk vill hins vegar sérrétti þá kostar það auka- lega. Til gamans má geta að flug milh London og Parísar á fyrsta farrými kostar 10.420 kr. AUt verð er reiknað á gengi 18.2.1988. Hægt er aö bóka far með lestinni í gegnum íslenskar ferðaskrifstofur. Það er einnig hægt að greiða farið með krítarkorti og er þá númer kortsins gefið upp. -EG og kavíar viðtal við Mörtu Bjamadóttur og Þórarin Ólafsson um Austurlandahraðlestina Þegar maður heyrir nafnið Austur- landahraölestin þá dettur manni ósjálfrátt í hug virðulegir þjónar, fólk í silkifótum, kampavín og ka- víar. Þessi ímynd er ekki fjarri Austurlandahraðlestinni sem er í notkun í dag. Árið 1982 var Austurlandahraö- lestin endurvakin ef svo má segja. Reynt var að endurskapa þann glæsibrag og blæ sem fylgdi þessari nafiitoguöu lest. Eitt breyttist þó og það var leiðin sem lestin fór. Hún fer ekki lengur til Austur- landa með breskt heldra fólk heldur er áætlunin London-París -Feneyjar, með feröamenn af öllum tagi og þjóðemi. DV ræddi við hjón- in Mörtu Bjamadóttur og Þórarin Ólalsson um Austurlandahraðlest- ina en þau fóra einmitt með henni fyrir nokkrum áram. Hvemig datt þeim í hug að fara með þessari lest? ,JÉg hafði lesið að til stæöi að endurvekja Austurlandahraðlest- ina og að leiðin yrði London-Par- ís-Feneyjar,“ sagði Marta. „Mér fannst þetta strax mjög spennandi og langaði til að prufa þetta. Tæki- færið kom síðar þegar við hjónin þurftum að fara til London og Par- ísar vegna viöskipta Viö höfðum samband viö feröaskrifstofu sem pantaði fyrir okkur far með lest- inni.“ Kampavín og rauðir dreglar „Miðarnir biöu okkar í London og áttum við að mæta kl. 12 á Vict- oriastöð,“ sagði Marta. „Það var tekið á móti okkur raeð rauðum dregh og kampavíni," seg- Marta og Þórarinn i glæsilegum borosal lestarinnar. ir Þórarinn. „Það var svona forsmekkur að þvi sem koma skyldi. Við voram kynnt fyrir þjóni þeim sem sjá átti um okkur á leiö- inni. Því næst var okkur vísað í borðsal." „Borðsalur þessi var geysilega íburðarmikill,“ bætir Marta við. „Öll matarjfiöld vora úr kristal, postulíni og silfri. Þjónarair vora með hvíta hanska og allt umhverfið í svona knipplingastil. Við borðuð- um hádegsiverð í lestinni þegar hún var á leið til Folkestone en þar farið um borö í ferju. Þegar komiö var til Frakklands var fariö um borö í lestina aftur. Að vísu var ekki um sömu lest og í Englandi að ræða en þessi franska var alveg eins. Okkur var vísað til klefa okk- ar þegar viö komum í lestina í Frakklandi. Það var líkt með klef- ana og annað, allt var í íburðar- miklum gamaldags stíl.“ Flygiil á barnum „Eg man eftir að vaskurinn í klef- anum var úr postulíni,“ segir Marta. „Það var sérstakur bar, vagn, sem var fullur af leðursófum og stólum. i þeim vagni var flygill sem tónlistarmaður lék á af hjart- ans lyst. Hann spilaði mikið af lögum millistriðsáranna. Kampa- .vín virtist vera tilheyrandi drj-kk- ur þama því af því var veitt ómælt.“ „Um kvöldið var gengið í borðsal- inn,“ segir Þórarinn. „Flestir voru klæddir í charlestone tísku fót. Þetta ýtti enn meira undir þau áhrif áð maður væri kominn aftur í tím- ann.“ „Borðhaldið leið áfram eins og í draumi, þjónustan var frábær og matur og vin eins og best gerist," segir Marta. „Mig minnir að það hafi verið fimm eða sex réttað," bætir Þórar- inn við. „Að loknum kvöldverði var litill tími til stefnu fyrir okkur því við æfiuðum af lestinni í París. Okkur dauðlangaöi að halda áfram til Fen- eyja en því miður var París enda- stöð í þetta sinn.“ Staðráöin i að fara aftur Hvað kostaði þetta svo? „Ég man ekki nákvæmlega hvað þetta kostaði," segir Þórarinn „en við reiknuðum út aö þessi ferð hefði veriö ódýrari en að taka fiug- vél frá London til Parísar og borða á sæmilegum veitingastað í París. Tíminn sem fór í þetta var einnig ekki mikið meiri en það tekur að komast til og frá fiugvöllum, ásamt fiugi og leit að veitingastað. Okkur fannst því bæði tímanum og pen- ingum vel varið í þessa ferð,“ segir Þórarinn. „Við erum staðráðin í því að fara einhvem tíma alla leiðina til Fen- eyja,“ bætir Marta við dreymandi á svipihn. -EG
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.