Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1988, Blaðsíða 26
26
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1988.
Popp
J.C.
Superstar
gengur
aftur
Hópur tónlistarmanna og
söngvara æflr nú af kappi kunn-
uglega tónlist: ijómann úr
rokkóperunni Jesus Christ Su-
perstar. Dagskrá þessi er um
klukkustundar löng. Ætlunin er
aö flytja hana í veitingahúsinu
Evrópu á fóstudags- og laugar-
dagskvöldum í marsmánuði og
jafnvel lengur. Frumsýningin
veröur 4. mars næstkomandi.
Það eru Jón Ólafsson, útvarp-
og tónlistarmaöur, Haraldur Þor-
steinsson, Rafn Jónsson og
Guömundur Jónsson sem sjá um
undirleik í Superstar-dag-
skránni. Söngvarar eru Stefán
Hilmarsson, Eyjólfur Kristjáns-
9on og tvær stúlkur úr Verslxm-
arskólakórnum sem fóru með
einsöngshlutverk í nemenda-
mótsstykkinu Heitar nætur.
Megas er sagður
eiga eftir að
koma aðdáend-
um sinum ræki-
lega á óvart með
nýju plötunni.
Megas eykur afköstin
sendir frá sér nýja plötu á afmælisdaginn
Um það leyti sem þessi helgi líður
inn í eilífðina lýkur vinnu við nýj-
ustu hljómplötu Megasar. Miðaö við
afköst hans síðastliðinn áratug gátu
jafnvel hinir bjartsýnustu tæpast
gert sér í hugarlund að næsta plata
kæmi út fyrr en í fyrsta lagi með
haustinu. En óljúgfróðir kappar, sem
standa Megasi næst, hafa staðfest
fæðinguna tilvonandi.
Nýja platan verður tíu laga. Tvö
átti Megas í afgang eftir plötuna í
góðri trú og önnur tvö eftir Loft-
mynd. Hin sex voru samin í desemb-
er og janúar síðastliðnum. Og
hvernig skyldu þau svo hljóma? í
gamla góða Megasarstílnum? Svo
virðist ekki vera því að þeir sem
spurst var fyrir hjá segja að nýja
platan sé allt öðruvísi en annað það
sem Megas hefur látið frá sér fara til
þessa.
Það er Hilmar Örn Hilmarsson sem
hefur haft veg og vanda af vinnslu
nýju plötunnar sem hefur ekki hlotið
nafn er þetta er ritað. Hans hægri
hönd hefur verið Guðlaugur Óttars-
son. Auk þeirra og Megasar koma
fram á plötunni þær Björk og Inga
Guðmundsdætur og Rose McDowall.
Þarmeðupptaliö.
Nýja platan kemur út þann 7. apríl
næstkomandi. Þann dag verður Meg-
as 43ja ára gamall. Hann verður aö
heiman á afmælis- og útgáfudaginn.
Er raunar þegar farinn til Thailands
og ætlar að dvelja þar næstu þrjá
mánuðina.
-ÁT-
Grænar hugsanir
Smithereens
Bjartmar Guðlaugs-
sonoghinirjárn-
karlarnir ætla að
spara púðrið fram á
vor og sumar. Þá
verður lika allt sett í
Stórpopp austan járntjalds
Stærsti tónlistarviðburður, sem
efnt hefur verið til síðan Live Aid
hljómleikarnir voru haldnir sællar
minningar, er á næstu grösum. Hann
veröur ekki í New York, London,
París né í Múnchen. Moskva er stað-
urinn.
Dagana 25.-27. mars verður haldin
risavaxin popphátíð í höfuðborg Sov-
étríkjaima. í Olympíuhöll Moskvu
skemmta alþjóðlegir kraftar á borð
við Level 42, Jackson Browne, Sting,
Suzanni Vega, U2, Falco, Scorpions,
Tangerine Dream, Supertramp,
Saga, Jennifer Rush, Joe Jackson,
Iggy Pop, John Hyatti Black og Im-
periet.
Til viðbótar hefur verið reynt að
fá George Michael, Michael Jackson,
Madonnu, Bruce Springsteen, Ge-
orge Harrison og David Bowie til að
mæta. Óvíst er hvort sá hópur á
heimangengt. Þá munu aö sjálfsögðu
sovéskir listamenn taka þátt í fjör-
inu.
Fjörutíu þúsund áhorfendur geta
fylgst með hátíöinni. Henni verður
síðan að sjálfsögðu sjónvarpað um
víða veröld. Listamennimir munu
ailir skemmta ókeypis og verður
ágóða varið til styrktar baráttunni
gegn eiturlyfjum í Sovétríkjunum.
Hugmyndina aö þessari skemmtun
á Vladimir Kovalyov, blaðamaður
við tímaritið Ogonyok. Hann kom
henni áleiðis til menningarmálaráð-
herrans Vasili G. Zaharow sem leist
vel á tiltækið. Þykir þaö merki um
að glasnost-stefnan boði þíðu á fleiri
sviðum en í stjómmálunum einum.
-ÁT-
Smithereensaðdáendur: viðbúnir,
tilbúnir... og takið á sprett eftir
rúman mánuð. Þá kemur nýjasta
framleiðsluvara ykkar manna í
verslanir. Tíu laga hljómplata sem
ber nafnið Green Thoughts eða
grænar hugsanir.
Fjómenningarnir í Smithereens
hafa verið önnum kafnir undan-
farna mánuði undir stjórn Dons
Dixon. Þeir hljóðrituðu 25 lög, not-
uöu aöeins tíu og segjast eiga góðan
lager af lögum á B-hliðar smá-
platna næsta árið. Meðal laga, sem
Popp
Ásgeir Tómasson
ekki fóru á Green Thoughts, var
gamli smellurinn Something
Stupid sem Frank og Nancy Sin-
atra sungu hér um árið. Marti
Jones tók lagið með Pat DiNizio og
Smithereens í þessum ellismelli.
Allt til þess tíma er liðsmenn
Smithereens fóru í hljóðver með
lögin sín voru þeir á faraldsfæti um
Bandaríkin og önnur lönd. Meðal
annars fóru þeir í hljómleikaferð
um Norður-Ameríku í fylgd með
Los Lobos í fyrra. Þeir taka nú upp
þráðinn að nýju. Ef Evrópuferð
verður á döfinni í sumar er meira
en líklegt að hljómsveitin staldri
við hér á landi og haldi tónleika.
Sumsé, Smithereens-aðdáendur, ef
allt fer að óskum er ástæðan til að
kætast tvöfold eftir allt saman.
-ÁT-
gang.
Sting er meöal þeirra listamanna
sem stíga á svið i Moskvu til styrkt-
ar baráttunni gegn eiturlyfjum.
Útgáfudagur nýju plötunnar með Smithereens hefur verið ákveðinn 23.
mars.
Bjartmar í lið
meðjámkörlum
Bjartmar Guðlaugsson er kominTi
í hljómsveit - í annað skiptið á
ævinni. „Við höfum kallað hana
Járnkarlana. Ætli það nafn festist
ekki við hana,“ segir hann.
Með Bjartmari eru í hljómsveitinni
Jón Borgar Loftsson trommuleikari,
Kristján Edelstein gítarleikari og
Grafíkmennimir Hjörtur Howser og
Baldvin Sigurðarson. „Rokkhljóm-
sveit, fyrst og fremst. Þú getur sagt
að við spilum keyrslurokk," segir
söngvarinn.
Jámkarlamir hófu ferilin í Eyjum
fyrir tveimur helgum. Þeir ætla aö
taka lífinu með ró í vetur. Æfa og
safna kröftum fyrir vorið og sumar-
ið. Þó spila þeir á ísafirði um næstu
helgi og hafa bókað sig á nokkrum
stöðumívetur.
Samhliða því að æfa með Jámkörl-
unum hefur Bjartmar Guðlaugsson
haft nóg að gera við að leika einn
síns hðs á tónleikum víða um land.
Hossast í jeppum og jafnvel brotist í
snjóbílum yfir heiðar. Hefur aðsókn-
in síðan réttlætt allt erfiðið?
„Hún hefur veriö framar öhum
vonum,“ svarar Bjartmar. „Á Suður-
eyri komu til dæmis þrjátíu prósent
bæjarbúa til að hlusta á mig. Ég get
ekki annað en verið ánægður með
slíka aðsókn."
-ÁT-