Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1988, Blaðsíða 52
64
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1988.
Hinhliðm
Afmæli
• Árni Baldursson segir að sig langí mest til að hitta Steingrim Herniannsson utanrikisráöherra og veiða
með honum einn eftirmíðdag í Laxá í Kjós enda hafi hann heyrt að Steingrfmur sé ekki síður góöur veíöimað-
ur en stjórnmálamaður.
í Laxá í Kjós“
Flestir stangaveiöi-
menn þekkja Árna
Baldursson. Hann er
slyngur veiðimaður
og hefur í sex ár verið
að „sanka“ að sér
veiðiám út um allt
land. Ævintýrið byrj-
aði fyrir sex árum er
hann ásamt félaga
sínum, Gunnari Más-
syni, tók Laxá og
Bæjará í Reykhóla-
sveit á leigu. Síðan
hefur þetta verið að
hlaða utan á sig. Árni
var mjög í sviðsljós-
inu sl. haust er hann
tók á leigu eina bestu
laxveiðiá landsins,
Laxá í Kjós, ásamt
þeim Skúla G. Jó-
hannessyni og Bolla
Kristinssyni. Einnig
er Árni með á leigu
Víðidalsá í Stein-
grímsfirði, efri hluta
Víðidalsár í
vatnssýslu,
leifsdalsá í Skagafirði
og Langavatn. Ami er
mikill athafnamaður
á sínu sviði og hefur
ekki sagt sitt síðasta
orð, hvorki í veiðinni
né leigumálum. Svör
Árna fara hér á eftir
en þess má geta að
þetta er síðasti þáttur-
inn með eftirfarandi
spumingum, í næsta
þætti, 1 næsta helgar-
blaöi, verða lagðar
nýjar spumingar fyr-
ir þann sem þá verður
fyrir valinu.
Fullt nafn: Árni Baldursson.
Aldur: 24 ára.
Fæöingarstaöur: Reykjavík.
Maki: Valgerður F. Baldursdótt*
ir.
Börn: Engin eins og er en eitt á
leiöinni.
Bifreið: Toyota Hilux árgerð 1985.
Starf: Vinn í laxeldisstöðinni
Smára í Þorlákshöfta og einnig
hef ég ásamt félögum mínum
stundað fiskirækt í ám og vötnum
ásamt því að selja veiðileyfi.
Laun: Mjög misraunandi
Helsti veikleiki: Ég er allt of upp-
tekinn af þvi sem ég er að fást
við hveiju sinni.
Helsti kostur Vinn samvisku-
samlega aö því sem ég tek raér
fyrir hendur.
Hefur þú einhvem tíma unnið i
happdrætti eða þvíliku? Fimmtíu
krónur í happaþrerinu en samt
búinn að kaup^mér mörg hundr-
uðmiða.
Uppáhaldsmatur: Nautaiundir
með ofnbakaðri kartöflu.
Uppáhaldsdrykkur: Kók.
Uppáhaldsveitingastaður: Eld-
vagninn.
Uppáhaldstegund tónlistar: Besta
tónlistin, sem ég hlusta á, er þessi
gömlu léttu íslensku dægurlög.
Uppáiialdshijómsveit: Manna-
kom.
Uppáhaldssöngvari: Pálmi Gunn-
arsson.
Uppáhaldsblað: DV og Mogginn.
Uppáhaldstímarit: Sportveiði-
blaöið.
Uppáhaldsíþróttamaður: Jóhann
Hjartarson.
Uppáhaldsstjórnmálamaður:
Steingrimur Hermannsson.
Uppáhaldsleikari: Sigurður Sig-
uijónsson.
Uppáhaldsrithöfúndur: Björn
Blöndal.
Besta bók sem þú* hefur lesið:
Vatnaniður eftir Bjöm Blöndal.
Hvort er í meira uppáhaidi hjá
þér, Sjónvarpið eöa Stöð 2? Geri
ekki upp á milli þeirra.
Uppáhaidssjónvarpsmaður:
Guöni Bragasoa
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Geri ekki heldur upp á mflli
þeirra.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Bjarni
Dagur á Stjörnunni.
Hvar kynntist þú eiginkonunni?
Á Þingvöilum.
Helstu áhugamál: Laxveiöi á
stöng og allt sem henni viðkemur
eins og tfl dæmis fiskirækt.
Fallegasti kvenmaður sem þú
hefur séð: Konan mín, auðvitað.
Hvaöa persónu iangar þig mest
til að hitta: Steingrím Hermanns-
son utanríkisráðherra og veiða
meö honum einn eftirmiödag í
Laxá í Kjós því ég hef heyrt að
hann sé ekki síður góður veiði-
maður en stjómmálamaöur.
Fallegastí veiðistaöur á íslandi:
Vitaðsgjafl í Nesiandi í Laxá í
Þingeyjarsýslu.
Faliegasti staður á íslandi: Allt
umhverfl Laxár í Aðaldai.
Hvaö ætlar þú að gera í suraarfrí-
inu: Ég ætla auðvitað að sinna
fyrsta barninu minu, sera keraur
væntanlega í heiminn í júlí,
ásamt þvi að gera laxveiðimii góð
skil.
Eitthvaö sérstakt sem þú stefirir
að á þessu ári:
Ég steftai að því að gera margt
sérstakt á þessu ári og eitt af því
er að vinna markvisst að því að
auka þjónustuna við lax- og sil-
migsveiðimenn.
Ragnar Axel Helgason
Ragnar Axel Helgason, lögreglu-
fulltrúi í Vestmannaeyjum, til
heimilis að Brimhólabraut 11,
Vestmannaeyjum, er sjötugur í
dag. Ragnar fæddist að Kálfatjörn
á Vatnsleysuströnd og ólst þar upp
hjá foreldrum sínum. Hann fór til
sjós sextán ára og stundaði sjóinn
tfl ársins 1951 en þá hóf hann störf
í lögreglunni í Eyjum þar sem hann
starfar enn.
Kona Ragnars er Vilborg, f. 1.6.
1917, dóttir Hákonar trésmiðs
Kristjánssonar og Guðrúnar Vil-
helmínu, en þau bjuggu í Vogunum
og síðar í Vestmannaeyjum.
Ragnar og Vilborg eiga íjögur
börn. Þau eru Friðrik Helgi, kvænt-
ur Erlu Víglundsdóttur, en þeirra
börn eru Sigurður og Vilborg sem
býr meö Siguröi Þresti Óskarssyni;
Ánna Birna á tvo syni, Ragnar Vil-
berg Gunnarsson og Hákon Páls-
son, en sambýlismaður Önnu er
Sigurður Magnússon; Hafsteinn er
kvæntur Steinunnni Hjálmarsdótt-
ur og eiga þau Guðrúnu, Hjálmar
og Hafstein; Ómar er ókvæntur og
búsettur í Noregi.
Foreldar Ragnars voru Helgi
Jónsson í Tungu við Suðurlands-
braut og kona hans, Friðrika
Þorlákssína Péturdóttir, en þau
áttu þrettán börn. Tveir synir
þeirra, Ragnar ög Axel, dóu ungir,
en hin systkinin eru Pétur, Þórdís,
Elísabet, Sigríður, Helgi, Svein-
þjörn, Ragna, Ragnar Axel, Gunnar
Örn, Áslaug og Sjöfn. Nú eru á lífi
Ragna, Eísabet, Áslaug, Sjöfn og
Ragnar Axel.
Til hamingju með tiaginn
75 ára 9A, Grindavik, er fimmtugur í dag. Sverrir Karvelsson, Brekkugötu 32, Þingeyri, er fimmtugur í dag. Kolbrún Kristjánsdóttir, Fossvöll- um 18, Húsavík, er fimmtug í dag.
Sólveig Bjarnadóttir, Vífilsgötu 15, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára í dag.
40 ára
70 ára
Haukur Helgason tæknifræðingur, Deildarási 5, Reykjavík, er fertugur í dag. Örn Helgason, Langagerði 120, Reykjavík, er fertugur í dag. Páll Hauksson, Akurgerði 33, Reykjavík, er fertugur í dag. Hulda Guðvarðardóttir, Blöndu- bakka 13, Reykjavik, er fertug í dag. Bergur Hjaltason, Safamýri 17, Reykjavík, er fertugur í dag. Sigþrúður Gunnarsdóttir,' Hraun- bæ 128, Reykjavík, er fertug í dag. Helga Sigurðardóttir, Auðbrekku 2, Kópavogi, er fertug í dag. Aðalsteinn Bernharðsson, Suður- götu 55, Siglufirði, er fertugur í dag. Steingrímur Hallgrímsson, Baug- holti 4, Húsavík, er fertugur í dag.
Ásta Maríusdóttir, Skúlagötu 76, Reykjavík, er sjötug í dag. Benedikt Björnsson, Skúlagötu 78, Reykjavík, er sjötugur í dag. Margrét Hulda Magnúsdóttir, Hjarðartúni 5, Ólafsvík, er sjötug í dag.
50 ára
Finnlaug G. Óskarsdóttir, Hléskóg- um 14, Reykjavík, er fimmtug í dag. Guðmunda B. Ólafsdótir, Elliða- völlum 3, Keflavík, er fimmtug í dag. Guðný K. Guðjónsdóttir, Vörðu- brún 3, Keflavík, er fimmtug í dag. Gunnþór Pétursson, Víkurbraut
Til hamingju með morgundaginn
80 ára morgun.
Guðrún Steingrímsdóttir, Ásgarðs- vegi 16, Húsavík, verður áttræð á morgun. Hallgrímur Steingrímsson, Héðins- braut 7, Húsavík, verður áttræður á morgun. Marinó Pétursson, Hafnartangá 2, Skeggjastaðahreppi, verður átt- ræður á morgun. 50 ára
Bjarni Hannesson, Lindarflöt 45, Garðabæ, verður fimmtugur á morgun. Svanhildur Stefánsdóttir, írafossi I, Grímsnesi, verður fimmtug á morgun. Hún tekur á móti gestum á afmælisdaginn milh klukkan 15 og 18.00 í mötuneyti írafossvirkjun- ar.
75 ára
Arinbjörn Kristjánsson, Marar- braut 19, Húsavík, verður sjötíu og 40 ára
fimm ára á morgun. Snorri Sigurðsson, Hjarðarhaga, Öngulsstaðahreppi, verður sjötíu og fimm ára á morgun. Sóldís Aradóttir, . Hálsaseli 6, Reykjavík, verður fertug á morgun. Sigrún Valbergsdóttir, Ránargötu 20, Reykjavík, verður fertug á morgun. Guðlaugur H. Sigurgeirsson, Hamrabergi 14, Reykjavík, verður
60 ára
Guðjón Guðmundsson, Laugarnes- vegi 78, Reykjavík, veröur sextugur á morgun. Sigurborg Gísladóttir, Nökkvavogi 24, Reykjavík, verður sextug á morgun. Guðmundur Björgvinsson, Miðleiti 5, Reykjavík, verður sextugur á morgun. Halldór Jónsson, Hvanneyri, Hófa- túni, Andakílshreppi, verður sextugur á morgun. Ragnar Hermannsson, Tryggva- fertugur á morgun. Hörður Sævar Bjarnason, Hlíðar- vegi 26, ísafirði, verður fertugur á morgun. Jóhanna Gunnarsdóttir, Heiðar- lundi 8H, Akureyri, verður fertug á morgun. Valgeir Hjartarson, Hlíðatúni 5, Höfn í Hörnafirði, verður fertugur á morgun. Jón Þórisson, Kambahrauni 50, Hveragerði, verður fertugur á morgun.