Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1988, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1988, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1988. Sérstæð sakamál Ein lítil yfiísión Bertram Winslade. Kerry Thornby átti ekki mörg leyndarmál svo atvinnurekandi hans vissi. Thornby var þrítugur vinnu- maður og haíði sig lítið í frammi. Skyndilega lést hann og kona bónd- ans sem hann vann hjá með vofveif- legum hætti og þá var nafn hans á allra vörum. Kerry Thornby hafði búið einn síð- an foreldrar hans dóu níu árum áður. Hann bjó í lítilli íbúð með einu svefn- herbergi í Stamford í Lincolnshire á Englandi. Um alllangt skeið hafði hann verið vinnumaður hjá Bertram nokkrum Winslade, bónda þar hjá. Bertram var kvæntur maður og hét kona hans Glynis. Höfðu þau búiö saman í tutt- ugu og sjö ár er hér var komið sögu. Leiðurá Glynis Bertram Winslade var orðinn mjög leiður á því að búa með konu sinni er kom fram á áriö í fyrra. Er leið á sumarið fór hann í alvöru að hugsa um leiðir til þess að losna við hana. í fyrstu íhugaði hann skilnað en komst að því að það yrði sér of dýrt því þá myndi frúin heimta að búinu yrði skipt og yrði hann annaðhvort að selja það og skipta með henni andvirðinu eða kaupa hennar hlut en það mun hann ekki hafa talið sig geta. Endanleg og ódýr lausn var það sem Bertram taldi sig loks hafa fundið. Þá var komið fram í ágúst. Lausnin var fólgin í því að myrða eiginkonuna. Það ætlaði bóndinn hins vegar að gera á full- kominn hátt svo að ekki félli á hann minnsti grunur. Hann hugsaði málið um hríð og komst svo að þeirri niöur- stöðu að honum ætti ekkert að vera að vanbúnaði til þess að ganga þann- ig frá öllu að vinnumaðurinn, Kerry Thornby, yrði talinn ódæöismaður- inn en til þess að Kerry fengi ekki tækifæri til þess að bera af sér morð- iö á frú Glynis Winslade yrði hann að deyja líka. Morðdagurinn rennur upp Er 11. ágúst rann upp var Bertram undir það búinn að myrða bæði konu sína og vinnumann enda hafði hann þá búið til sögu sem hann þóttist ekki í neinum vafa um að lögreglan myndi trúa. Hann ætlaði aö skýra svo frá að hann hefði komið að konu sinni lát- inni og svo vinnumanninum þar sem hann hefði haldið á haglabyssu eftir sjálfsvíg. Ástæðan væri augljóslega sú að vinnumaöurinn hefði staðið í ástarsambandi við eiginkonuna. Svo hefði sennilega kastast í kekki með þeim tveimur og Kerry Thornby þá örvinglast og ekki séð aöra leið út úr vanda sínum en að ráða hana af dögum og síðan sjálfan sig. Frúin kemur úr innkaupaferð Þennan dag fór frú Glynis Winslade í innkaupaferð. Er klukkan var að verða hálfþijú kom hún svo heim á bíl þeirra hjóna. Er hún ók inn á hlaðið sá hún mann sinn standa með tvíhleypta haglabyssu í hend- inni. Henni brá ekkert við það því hún vissi að hann fór stundum til veiða. Hún átti sér einskis ills von er hann gekk til hennar. Renndi hún niður hliðarrúðunni til aö tala við hann en þá bar hann haglabyssu- skeftið upp að vanganum og skaut úr báðum hlaupum. Hún beið þegar bana við stýrið en hún var þá nýbúin að stöðva bílinn. Röðin komin að Kerry Thornby Nú ákvaö Bertram að framkvæma síðari hluta áætlunarinnar um full- komna morðið. Hann gekk í áttina til KerTys þar sem hann var við vinnu nokkuð frá bænum. Kerry hafði heyrt skotin en kom ekki til hugar að neitt alvarlegt væri á ferð- um. Bertram gekk rólega til hans og fór að spjalla við hann. Síðan bað hann Kerry um að ganga með sér inn í hlöðuna vð bæinn. Er þangað var komið bar bóndi haglabyssuna öðru sinni að vanganum og skaut Kerry í höfuðið af örstuttu færi. Lést hann samstundis. Lögreglunni gert viðvart Winslade þurrkaði nú vandlega fingraförin af haglabyssunni og tók síðan um hendur Kerrys til þess að komá fmgraförum hans á skefti, gikk og aðra hluta byssunnar. Síðan lagði hann byssuna þannig við hlið hans að auðséð væri aö hann hlyti að hafa framið sjálfsvíg. Að þessu loknu hringdi Bertram til lögreglunnar. Var hann mjög skjálfraddaður er hann tilkynnti um það sem gerst heföi. Saga Bertrams Er lögreglan kom skýrði Bertram frá því að hann hefði verið inni í húsinu er hann hefði heyrt skot utan af hlaði. Heföi hann flýtt sér út og séð að bíll þeirra hjóna heföi staðið fyrir utan. Er hann hefði nálgast hann hefði hann séð að kona hans var látin við stýrið, illa leikin eftir haglaskot. Augnabliki síðar heföi hann svo heyrt önnur skot úr hlöðunni og flýtt sér þangað. Heföi hann þá komið að Kerry Thornby þar sem hann hefði legið örendur með haglabyssuna við hlið sér. Hún var mérótrú sagði Bertram Winslade þegar lög- reglan innti hann eftir því hvort hann gæti gefið einhverja skýringu á þessum voðalega atburði. Kvaðst Bertram hafa komist að þessu sam- bandi er í ljós heföi komið að Kerry hefði ekki alltaf verið við þau störf sem hann hefði átt að vera að vinna. Heföi hann þá verið á leynilegum ástarfundum með konu sinni. Heföu þau hist í hlöðunni. „Hví rakstu hann ekki?“ spurði lögreglan er hún haföi heyrt söguna. Bertram Winslade sagðist ekki hafa treyst sér til þess þvi hann hefði ekki haft til neins annars að leita til að hjálpa sér viö störfin á bænum. Bertram lét svo í ljós þá skoðun að vera kynni að Kerry Thornby hefði myrt Glynis af því að hún hefði neit- að af fara fram á skilnað og heföi hann þá sennilega misst stjóm á til- fmningum sínum. Að svo sögðu var gert hlé á viðræð- unum við Bertram og þóttist hann nú fullviss um að hann væri búinn að segja lögreglunni það sem duga myndi til þess að málið yrði leitt til lykta á þann hátt sem hann hafði gert sér vonir um. Lögreglan hefur sína athugun Lögreglan vildi ekki hafna hug- myndum Bertrams Winslade en að venju hóf hún sína eigin athugun. Var nú tekiö að ræða við vini þeirra hjóna til þess að reyna að komast að því hvort þeir vissu um samband vinnumannsins og frú Glynis. Þótti sennilegt að það heföi ekki farið fram hjá nágrönnunum enda ólíklegt að elskendurnir heföu látið sér nægja að hittast eingöngu í hlöðunni. Ýmsar athyglisverðar upplýsingar komu nú fram. REYKJAVÍKURHÖFN Reykjavíkurhöfn óskar eftir að ráða byggingarverk- fræðing eða byggingartæknifræðing til starfa í tæknideild. Verkefni: Tæknideild Reykjavíkurhafnar sér um byggingu, viðhald og rekstur hafnar- mannvirkja og annarra eigna hafnar- sjóðs. Starfssvið: Starfið er m.a. fólgið í undirbúningi verka, framkvæmd verka með starfs- mönnum hafnarinnar og verktökum og eftirliti með framkvæmdum. Nánari upplýsingar um starfið gefur að- stoðarhafnarstjóri í síma 28211. Umsóknir um starfið skulu hafa borist fyrir 27. febrú- ar nk. ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI St. Jósefsspítali, Landakoti, býður ákjósanlegan vinnustað í hjarta borgarinnar. Góðar strætisvagna- ferðir í allar áttir. Okkur vantar hjúkrunarfræðinga á eftirtaldar deildir: Handlækningadeild l-B, sem er eina augndeild landsins. Handlækningadeild ll-B, sem er lítil almenn deild. Handlækningadeild lll-B, almenn deild. Barnadeild, unnið er eftir einstaklingshæfðri hjúkr- unaráætlun. Hafnarbúðir, sem er öldrunardeild, þar vantar nætur- vaktir en aðrar vaktir koma einnig til greina. Vöknun, þar er dagvinna. Fóstru vantar á leikstofu barnadeildar. Einnig vantar yfirfóstru á barnaheimilið Litlakot, sem er með börn á aldrinum 1-3 ára. Reykjavík 18. febr. 1988.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.