Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1988, Qupperneq 7
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR. 1988.
7
Fréttir
Iðnaðarfyrirtæki á Akureyri:
Sölu- og dreifingarstöð
komið á fót í Reykjavík?
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ég tel fulla ástæðu til að kanna
þetta mál tO hlítar og hugmyndinni
var vel tekið,“ sagði Hólmsteinn
Hólmsteinsson sem hefur lagt fram
hugmynd í atvinnumálanefnd Akur-
eyrar um að komið verði á fót sölu-
og dreifingarmiðstöð fyrir norð-
lenskan iðnað á Reykjavíkursvæð-
inu. '
Hólmsteinn sagði í samtali við DV
að það væri vitað að norðlensk fyrir-
tæki væru að berjast ein og sér á
markaðnum á höfuðborgarsvæðinu
með miklum tilkostnaði en oft með
litlum árangri. í mörgum tilfellum
gætu þessi fyrirtæki átt samleið í
sölu- og kynningarstarfsemi sinni.
Atvinnumálanefnd Akureyrar
samþykkti að fela Þorleifi Jónssyni,
starfsmanni nefndarinnar, að und-
irbúa og kynna fyrir forsvarsmönn-
um iðnfyrirtækja á Akureyri
hugmyndir að starfrækslu öflugrar
söluskrifstofu í Reykjavík, rekstur
birgðageymslu og vöruafgreiðslu
með dreifingarþjónustu og að athuga
hvort þeir aðilar, sem stunda inn-
flutning á Akureyri, eiga samleið
með þessum aðilum um vörudreif-
ingu.
„Hugmyndir um nánari útfærslu á
þessu eru ekki fullmótaðar og kemur
það væntanlega í hlut þeirra sem
koma til með að standa að þessu að
ákveða nánara fyrirkomulag ef af
þessu verður,“ sagði Hólmsteinn, og
hann sagði einnig að ekki væri ljóst
hvort þessi sölu- og dreifmgarmið-
stöð yrði eingöngu fyrir fyrirtæki á
Akureyri eða hvort fyrirtæki víðar á
Norðurlandi yrðu þátttakendur.
„Það er full ástæða til þess að kanna
þetta mál nánar,“ sagði Hólmsteinn.
Unnið við steypuvinnu i félagsheimili Þórs i fyrradag. Gísli Lórenzson, form-
aður bygginganefndar og Aðalsteinn Sigurgeirsson, formaður Þórs, sjást
fremst á myndinni. DV-mynd, gk-Akureyri
Akureyri:
Þórsarar byggja félagsheimili
Gylfi Kristjánsson, DV, Akuxeyri:
„Við stefnum á það að taka húsið
í notkun um mitt ár 1989 og ég vona
að þær áætlanir standist," sagði Gísli
Lórenzson, formaður bygginga-
nefndar íþróttafélagsins Þórs á
Akureyri, en félagið er nú að byggja
stórt félagsheimili á íþróttasvæði
sínu.
Þórsarar notuðu veðurblíðuna í
fyrradag og steyptu plötu hússins og
munu strax hefjast handa við vinnu
í kjallara. Félagsheimilið verður
kjallari, hæð og hátt ris, og er heild-
arflatarmál byggingarinnar um 1200
fermetrar.
í kjallara verða m.a. vélageymsla,
búningsherbergi og böð, sólstofa og
nuddsalur, á hæðinni verða kaffiter-
ía, þreksalur, eldhús og félagsað-
staða og í risinu verða setustofa,
fundarherbergi og íbúð húsvarðar.
Þórsarar vinna að langmestu leyti
við byggingu hússins í sjálfboða-
vinnu og hafa um 20 menn verið að
störfum þegar mest hefur verið. Á
morgun, sunnudag, ætla Þórsarar að
bjóða upp á kafli og meðlæti við
bygginguna og gefa öllum Þórsurum
kost á að koma og fylgjast með fram-
kvæmdunum.
Jeep Comanche
4x2 pick-up
til sölu, árg. 1988, nýr og óekinn, 4ra gíra, beinskipt-
ur, 4ra cyl., vél 2500 cc, litur hvítur. Verð aðeins kr.
570.000.
EGILL VILHJÁLMSSON HF.
Smiðjuvegi 4, Kópavogi, símar 77200 - 77202
NEW NATURAL COLOUR
TANNFARÐI
PEARLIE tannfarðinn fæst loksins á Islandi. Peariie er EKKI tannkrem, heldur TANNFARÐI (TOOTH MAKE-UP). Gefur aflitudum tönnum, tann-
fyllingum og gervitönnum NÁTTÚRULEGA HVÍTA áferd. Notað af fyrirsætum og sýningarfólki. Einfalt i notkun, penslað á á fáeinum augnablikum.
Rannsakað á efnafræðistofnun; skaðlaust heilsu notenda, skaðlaust tönnum. PÓSTSENDUM (póstkrafa) UM LAND ALLT OG REYKJAVÍK. Send-
ið auglýsinguna i heilu lagi, útfyllta hér að neðan: [WTiBPTSB
VINSAMLEGA SENDID MER-
Nafn
stk. PEARLIE tannfaröa.
Póstnr._
Stöð_
EDA HRINGIÐ I SIMA (91)611659, simsvari allan sólarhringinn, og pantið simleiðis hvort sem þér búið i Reykjavik eða á landsbyggðinni.
SENDIST TIL:
PEARUE UMBOÐIÐ, SKÓLABRAUT 1. BOX 290, 171-SELTJARNARI\IES. (91)6-11-6-59
HAGP0RT S/F KEFLAVÍK
auglýsir nú í fyrsta sinn
- þó þess gerist varla þörf!
Höfum til sölu:
Þónokkuð af Mazda 626 2000 árg. 1988
og heldur meira af Daihatsu Charade árg. 1988,
en aðeins örféa Subaru Sedan með fjórhjóladrifi árg. 1987.
Mazda 626 2,0
- 4 dyra - sjálfskiptir
- 5 dyra - vökvastýri
- 5 gíra - sóllúga
- rafmagnsrúður
Daihatsu
- 3 dyra TS
- 5 dyra CS
- Turbo
Subaru
f jórhjóladrif— rafmagnslæsingar
5 gíra - rafmagnsspeglar
vökvastýri - topplúga (rafmagns)
- rafmagnsrúður
- ALLIR SELDIR MEÐ EINS ÁRS ÁBYRGÐ
- Söluaðili:
Opið virka daga
og laugardaga
kl. 10-19
BILASALAN BUK
SKEIFUNNI 8,
SÍMAR 686477, 687177, 687178 0G 686642