Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1988, Qupperneq 24
24
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1988.
Veröld vísindaima
Nýsjónvörp
að verða til
Allt bendir nú til að gömlu imba-
kassarnir heyri senn
sögunni til.
Nú er því spáð að eftir tvö til þrjú
ár verði ný gerð af sjónvörpum kom-
in á markaðinn. Ef allar spár rætast
verður þetta nýja tæki í tvennu lagi.
Annars vegar verður lítill skjár þar
sem hægt er að skoða hvað er í boði
á einstökum rásum. Hins vegar verð-
ur stór kristalsskjár í líkingu við
kvikmyndatjald.
Nú þegar eru mörg tæknileg
vandamál við gerð þessa sjónvarps
leyst og stórir sjónvarpsskjáir eru
notaöir á tónleikum og kappleikjum
til að bæta áhorfendum upp lélegt
útsýni. Samt eru mörg ljón 1 vegin-
um.
í nýju sjónvörpunum verður gamli
lampaskjárinn endanlega úr sögunni
og kristalsskjáir, eins og þeir sem
notaðir eru á úrum og vasatölvum,
komnir í staðinn. Enn eru þó vand-
kvæði á gerð verulega stórra krist-
alsskjáa. Japanir hafa þegar sett á
markað sjónvörp með allt að 6
tommu skjái af þeirri gerð og sagt
er að eftir fá ár verði hægt að fram-
leiða þá í fullri stærð og yfirstærð til
að hengja upp á vegg.
Raunar er stærð sjónvarpanna
ekki helsti vandinn heldur sá að í
hefðbundnum sendigeisla sjónvarps-
stöðva rúmast ekki nógu mörg merki
fyrir stóra skjái. Eins og málum er
nú háttaö verður myndin áberandi
gisin á stórum skjám. Nú er unnið
að því að fjölga línunum í skjánum
um helming en í því kerfi sem notað
er hér á landi eru 625 línur á skján-
um.
í Japan eru þegar hafnar tilraunir
með útsendingar fyrir skjái með 1125
línum. Nokkur evrópsk rafeindafyr-
irtæki vinna einnig að gerð kristals-
skjás með 1250 línum. Myndin á þeim
jafnast að sögn á við kvikmynd á
tjaldi að gæðum.
Enn eru nýju sjónvörpin því á til-
raunastigi og ekki ljóst á þessari
stundu hvenær almenningi gefst
kostur á að kaupa þau. Rafeindafyr-
irtækin segja að tæknilega verði
ekkert sem hamli framleiðslunni eft-
ir tvö til þrjú ár og þykir þá sýnt að
gömlu sjónvarpstækin verða orðin
úrelt snemma á næsta áratug.
Nýjar risaþotur að hefja flugið
Segulbönd fyrir
tölritaða tónlist
á markað í Evrópu
í haust verður hafin sala á nýrri gerð
af risaþotu frá Boeing-verksmiðjun-
um í Bandaríkjunum. Helstu kep-
pinautar Boeing í flugvélasmiði,
Airbus ogMcDonneU Douglas, hefja
einnig sölu á hliðstæðum þotum áður
en langt um líöur. Nýju þotumar eru
stærri en þær sem nú eru í notkun
og flugþol þeirra er mun meira.
Þegar nýju þoturnar eru komnar í
notkun lengjastflugleiðir. T.d. verð-
ur hægt að fljúga milli Lundúna og
Tokýo án miUilendingar. Þetta þýðir
að farþegar verða að halda tU í vélun-
um mun lengur en nú.
„Við veröum að létta með ein-
hverju móti álagið sem það óneitan-
lega er fyrir farþega að vera
innilokaðir í flugvél hátt í sólar-
hring,“ erhaft eftir Stuart E. Iddies,
markaðsstjóra hjá Airbus flugvéla-
verksmiðjunum í Evrópu.
Þetta er mun lengri flugtími en nú
þekkist. T.d. tekur flugið frá Lundún-
um til Singapore um 13 klukkutíma
en það er með lengstu flugleiðum
sem nú er flogið á án millilendingar.
Til þessa hefur ráðið til að stytta far-
þegunum stundir verið að gefa þeim
að eta ogdrekka.
Þegar flugtíminn lengist enn er
komið aö mörkum þess sem far-
þegarnir geta innbyrt af mat og víni.
AUir þessir matarflutningar hafa
líka áhrif á flugreksturinn. Nú er
talið að í venjulegu fimm tíma flugi
verði að hafa 13.5 kíló af matfóngum
með fyrir hvern farþega.
Lengist flugleiöir til muna getur
þessi skammtur farið upp í 30 kíló.
Maturinn íþyngir því ekki bara far-
þegunum. Flugfélögin verða einnig
að fækka sætum til að koma honum
fyrir.
Boeing flugvélaverksmiðjurnar
hafa nokkurt forskot á helstu keppi-
nauta sína í smíði nýju risaþotnanna.
Boeing hefur þegar kynnt lokagerð
flugvélar sem fengið hefur auðkenn-
ið 747-400. Þotan sú tekur 660 farþega
og nýtir eldsneytið 15% betur en fyrri
risaþotur.
Thomas R. Craig, markaðsstjóri
hjá Boeing, segir að nýja þotan hafi
um 60% meira flugþol en fyrsta
breiðþotansemkomámarkaðinn -
um 1970. Sú þota var þó léttari og tók
um 100 farþegum færra.
Sala á A-340 frá Airbus og MD-11
frá frá McDonnell Douglas hefst árið
1990. Flugþol þeirra á að vera meira
en hjá nýju Boeing þotunni en þær
verða minni. Hjá McDonnell Douglas
er stefnt að smíði 1200 risaþotna af
MD-11 gerðinni áður en þessi öld er
úti.
Nu er ljost að í framtíðinni verður
öll tónlist tölrituð og gefin þannig út
á geisladiskum eða böndum. Útgef-
endur tónlistar horfa nú æ meir til
tölritaðra segulbanda sem í ensku
máli hafa fengið auðkenniö DAT
(Digital Audio Tape). Til skamms
tíma hafa tónbönd af þessu tagi að-
eins verið fáanleg í Japan en nú er
framleiðsla á þeim einnig hafin í
Sviss og þau sett á markað í E vrópu.
Snældur með tölritaðri tónlist eru
um það bil helmingi minni en hefð-
bundnar snældur en rúma fjögurra
tíma upptökur. Tónlistin er geymd
með því að breyta hverjum tóni í
tölu samkvæmt tvíundakerfi. Orðið
tölritun er tilraun til íslenskunar á
enska heitinu digital og er það hugs-
aö eins og orðin hljóðritun eða fjölrit-
un.
Mikil andstaða hefur verið við sölu
segulbanda fyrir tölritun í Banda-
ríkjunum vegna þess að mjög auðvelt
er að taka upp á þau af geisladiskum.
Tölritunin gerir það að verkum að
upptakan brenglast ekkert. Hjá
bandarískum útgáfufyrirtækjum er
því haldið fram að útgáfa tónlistar á
plötum og geisladiskum dragist
verulega saman ef almenningur get-
ur gert fullkomnar eftirtökur í
heimahúsum.
Hjá hljómplötuútgáfu CBS, sem nú
er í eigu Sony, hefur verið ákveðið
að svara þessu með því að rugla upp-
tökur á geisladiska þannig að ekki á
að vera hægt að taka upp eftir þeim.
Þessi tilraun hefur mælst vel fyrir
þótt margir efist um að hún komi að
gagni.
Sagt er að auðvelt sé fyrir rafeinda-
fræðinga að finna lykilinn aö ruglun-
inni og stela upptökunni óbrenglaðri.
Tilraun CBS komi því ekki í veg fyr-
ir „sjóræningjaútgáfur" af tónlist
þótt almenningur geti ef til vill ekki
notað sér hina nýju upptökutækni.
MD-11 þotan frá McDonnell Douglas og A-340 þotan frá Airbus.
Molar
Súrtregndrap
risaeðlumar
Jarðefnafræðingurinn Douglas
Macdougall segir að súrt regn hafi
orðið risaeðlunum að fjörtjóni. Vís-
bendingar um þetta hefur hann
fundið með því að mæla strontíum
í steingerðum beinum þessara
dýra. Súra regnið á að hafa mynd-
ast þegar gríðarstór loftsteinn
rakst á jörðina fyrir 65 milljónum
ára.
„Regnið var álíka súrt og sýran
í rafhlöðum," segir Macdougall.
„Súra regnið hefur sett mark sitt á
lífið á jöröinni í nokkur ár og hlýt-
ur aö hafa gengið nærri mörgum
dýrategundum."
Kenning Macdougalls er nýjasta
framlagiö tíl deilunnar um hvað
olli því að allar risaeðlur á jörðinni
drápust út á skömmu tíma. Fræði-
menn hefur lengi greint á um þetta.
Veirur
til
lækninga
Bandarískur læknir, að nafni
Michael Oldstone, heldur því fram
að hægt sé að nota veirur, sem
annars eru banvænar, tíl lækn-
inga. Hann hefur gert tilraunir í
þessa veru tíl að lækna sykursýki
í músum.
í þessu felst að vísu ekki full
lækning en veirumar virðast koma
aö gagni við að halda sjúkdómnum
í skefjum. Oldstone hefur ræktað
sérstök afbrigði af veirum sem hafa
þá eiginleika að ráðast á sýktar
frumur en ekki heilbrigaör.
Nýsjálendingar telja síg eiga mikla orkuauðlind I metangasi sem geng-
ur frá sauðfé.
Orkan í sauðfénu
Nýsjálendingar hafa reiknað út að frá hverri kind, sem reikar um haga
þar á eyjunum, komi um 20 lítrar af metangasi. Þegar tekið er tíllit til
að Nýsjálendingar em fjársterkir menn - þeir eiga 70 milljón kindur - þá
er hér um að ræöa verulega orkuauölind.
Vandamálið er að safna gasinu saman. Sumir segja aö söfnunin getí
aldrei orðið arðbær en aðrir telja í það minnsta þess virði að reyna að
leysa þetta vandamál. í allt er gasið 1,4 milljarðar litra og því tílvinnandi
að ná broti af því.
Nú er talið að metan í andrúmsloftínu aukist um 1%- á ári og þar sem
aðeins litill hluti þess nær að brenna gæti metanið orðið verulegt mengun-
arvandamál í náinni framtíð.
Nýjasta kenningin er að súrt regn
hafi drepið risaeölurnar.
Fyrir nokkmm árum kom sú kenn-
ing fram aö loftsteinn eða loftstein-
ar hafi rekist á jöröina og raskað
lífríki hennar svo mjög að stærstu
dýrin drápust út.
Enn hafa örugg merki um árekst-
urinn ekki fundist og enn er veriö
aö útfæra í smáatriðum hvaða
áhrif þessi hugsanlegi árekstur
hafði.