Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1988, Blaðsíða 41
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1988.
53
T .ífaaHll
Sjálfsagðir hlutir að hafa í bílnum. S
Vetri fylgja válynd veður:
Oryggið er mikil-
vægt í vetrarferðum
Góður hlífðargalli getur reynst vel t kulda og vosbúð.
Vetri fylgja válynd veður. Það er oft
sem menn gleyma þessu þegar þeir
leggja upp í ferðir og ósjaldan hefur
það haft vandræði í för með sér. í
þessum pistli er ætlunin að fjalla
örlítið um hvað vert er að hafa í
huga við lengri og styttri bílferðir.
Flestir hafa einhvern tímann lent
í að festa bílinn sinn. Þeir sem hafa
lent í vandræðum á ferð milh staða,
vita að oft var sá útbúnaður heima,
sem heföi bjargað þeim úr ógöngun-
um. Örhtil fyrirhyggja getur því haft
mikið að segja.
Hér á eftir verða nefndur nokkrir
hlutir sem nauðsynlegt er að hafa
með, þegar lagt er út í slæma færð,
svo og ýirtis atriði sem vert er að
hafa í huga:
1. Keðjur.
Keöjur geta komið þér á áfangastaö,
svo framarlega sem þær erujíomnar
undir, áður en í óefni er komið.
2. Skóflan er nauðsynleg.
3. Dráttartóg.
4. Vasaljós.
5. Sandpoki.
6. Aðvörunarmerki einhvers konar.
(þríhymingar). Það hefur komið fyr-
ir að keyrt hefur verið á bíl sem situr
fastur.
7. Neyðarblys.
Á fáfömum vegi er gott að geta látiö
vita af sér á einhvem hátt.
8. Sjúkrataska.
9. Slökkvitæki.
Hlýföt
Með þennan útbúnað i skottinu er
bíllinn vel útbúinn til vetrarferða.
En það er ekki nóg. Þó að þessi út-
búnaður sé með verður ekki mikiö
um aðgeröir hjá ökumanni á lakks-
kóm og jakkafötum.
Því er gott að hafa í bílnum ullar-
sokka og góða kuldaskó. Skíðagalh
er hentugur til að bregða sér í, húfa,
vettlingar og jafnvel skíðagleraugu
em hlutir sem gott væri að hafa
með. Munið eftir endurskinsmerkj-
unum. Það fer ekki mikið fyrir
þessum útbúnaði í skottinu, en gott
er að geta gripið til hans. Einnig er
skynsamlegt að hafa ullarteppi í aft-
ursætinu og eitthvað gott til að narta
í í hanskahólfmu.
Hér eru ekki taldir upp þeir vara-
hlutir sem sjálfsagt er að hafa í
bílnum, en gott er að minnast þess
að í vetrarferðum reynir meira á bíl-
inn en ella.
Ef bíllinn stoppar.
Hvað er til ráða ef bíllinn stoppar?
Fyrsta atriöið er að yfirgefa bíhnn
ekki. Þaö er mun fljótlegra að leita
að bíl heldur en manni. Haldið bhn-
um í gangi, hafið stöðuljósin á og
fylgist vel með að ekki skafi snjó fyr-
ir púströrið. Gott er að setja upp
Jón Þór Víglundsson, fulltrúi hjá
Landssambandi hjálparsveita skáta.
vaktir ef margir em í bhnum. Ef þú
er ein(n) þá skaltu drepa á búnum
meöan þú sefur. Hér kemur ullar-
teppið í góðar þárfir. Athugaðu með
púströrið áður en þú setur bOinn
aftur í gang.
Ekki gleyma því að þó búnaður sé
góöur í skottinu þá verður þú að fara
yfir hann reglulega og endumýja ef
eitthvað er orðið skemmt.
Veit einhver af þér?
Það hefur löngum v.erið aðall góðra
fjalla- og ferðamanna að láta vita af
ferðum sínum. Með því að skOja eftir
ferðaáætlun hjá öðru feröavönu
fólki, tryggja ferðalangar öryggi sitt
og firra aðstandendur óþarfa kvíða.
Landssamband hjálparsveita skáta
og Landsamband flugbjörgunar-
sveita bjóða ferðamönnum ókeypis
þjónustu í þessum efnum. Ferðafólk
getur hringt og látið vita um ferðatíl-
högun, fjölda ferðalanga, áæOaða
heimkomu og hvemig farartækjum
ferðast er á. Hér er ekki bara átt við
fjalla- og óbyggðaferðir. BOtúr til
Hveragerðis getur falhð hér undir.
Það kostar ekki nema eitt símtal að
láta vita af sér og eitt að tilkynna
heimkomu. Það er ólíkt þægOegra
að vita tO þess að einhver viti af ferð-
um þínum og að með þeim sé fylgst.
Tekiö er með í reOcninginn að tafir
geta alltaf orðiö og því ekki rokið af
stað í leit sé hópurinn ekki kominn
nákvæmlega á þeim tíma sem um var
rætt. Hins vegar styttist viðbragðs-
tíminn til muna og aðgerðir verða
markvissari ef til þarf að taka. Á
styttri leiðum er sendur bíll tO móts
við viðkomandi.
Ferðafólk getur haft samband ahan
sólarhringinn í síma 91-686068 en það
er jafnframt neyðarnúmer fyrir leit
og björgun. Sólarhringsvaktin er í
höndum Securitas sem annast útköh
leitarstjómar.
Rik ástæða er til að hvetja ferða-
menn tíl að notfæra sér þessa
þjónustu, jafnvel þó aðeins sé verið
að skreppa yflr eina heiði'. Þjónustan
er öllum að kostnaðarlausu og ef til
leitar kemur getur þessi öryggisráð-
stöfun skipt sköpum.
SMÁAHJGLÝSINGAR DV
MARKADSTORG
TÆKIFÆRANNA
Þú átt kost á aö kaupa og selja allt sem gengur kaupum og sölum. Bara aö
nefna þaö í smáauglýsingum DV, hinu ótrúlega markaöstorgi tækifæranna.
Markaöstorgiö teygir sig víöa. Þaö er sunnanlands
sem noröan, vestan sem austan, í bátum sem flug-
vélum, snjóbílum sem fólksbílum, hvarvetna er DV
lesiö.
Einkamál. Já, þaö er margt í gangi á markaöstorginu,
en um hvaö er samiö er auövitaö einkamál hvers og
eins.
Sumir borga meö fínpressuöum seölum. Menn ný-
komnir úr banka? Þarf alls ekki aö vera. Gætu hafa
keypt straubretti á markaöstorginu daginn áöur.
Smáauglýsingar DV eru markaöur meö mikinn mátt.
Þar er allt sneisafullt af tækifærum.
Þaö er bara aö grípa þau.
Frjálst.oháÖ dagblaö
ER SMÁAUGLÝSINGABLAÐtÐ
Þú hrfngir.. /U áCéC Vid blrtum... ÞaÖ ber árangur!
Smáauglýsingadeildln er i Þverholti 11.
Oplð:
Mánudaga-föstudaga, 9.00—22.00
laugardaga, 9.00—14.00
sunnudaga, 18.00—22.00
w—iiagi |
vtsa
KREDITKORTAÞJONUSTA
Þú hringir - viö birtum og auglýsingin verður færð á kortið.