Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1988, Side 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1988.
Sandkom
Fréttir
Vidtalid
Konan mín
Fyrir allmörgum árum tók DV upp
pistil í helgarblaði sínu er nefhdist
Hin hliðin. Þar hafa í gegnum tíðina
verið teknir á beinið menn sem eín-
hverra hluta vegna hafa vakiö
athygli ogþeir spurðir spjörunum úr.
I>etta hefur alla tiö verið mikið lesinn
og vinsæll þáttur í helgarblaðinu.
Eftir því sem á hefur liðið hafa svör
orðið staðlaðri. Fyrir nokkrum árum
vöknaði þjóðinni um augun þegar
hún las svar ákveðins manns við
spumingunni hvaða kvenmaður á
jarðríki væri fallegastur og hann
svaraði: „Konan mín." Fyrir vikið
varð maðurinn að hetju í augum eig-
ink venna þessa iands sakir róman-
tískrar hugsúnar og allir eiginmenn,
sem einh vetj a sjálfsvirðingu höíðu
og þótti enn pínulítið vænt um kon-
unasína,vilduþessamjukveðið -
hafa. Nú eru liðin nokkur ár og síöan
hafa aliir karimenn, sem ient bafa á
pínubekknum, svarað þessari spurn-
ingu á sama veg: „Konan mín.“ Þeir
djörfustu hafa spyrt saman konuna
sína og Marilyn Monroe 'eða Bo Derek
og komið vel út úr þessari erilðu
spumingalotu.
Stöðluð svör
Þegar einhver kemur fram á sjón-
arsviðið meðvinsæl mál er það
þjóðaríþrótt íslendinga aö herma eft-
ir. Þannig er það með Hina hliðina.
Ejöldamörg landsmálablöð birtasiík*
ar skýrslur vikulega eða mánaðar-
lega, eftir því hvað blöðin koma ört
út. Þessar greinar ganga undir mis-
munandi heitum. Það hefur vakið
athygli að svörin í þessum dálkum
em sífellt að verða staðlaðri og um
leið ieiðinlegri aflestrar. Menn kunna
orðið allar spumingamar og vita
hvemig á að s vara þeim svo það líti
sniðuglega út. En þessi „sniðugu''
s vör geta líka verið hreinlega leiðin-
leg þegar gengið er út í öfgar í
sniöugheitunum.
Hlynur Þór Magnússon, ritstjóri Vesturlands,
hefur ekkert ad fela og lœtur allt vaóa.
Fáttumsvör
Blaðið Bæjarins besta á ísafirði er
eitt þeirra blaða sem tekiö hafa upp
Hina hliðina. í síðasta tölublaðí kem-
tir greinilega í Ijós í hvihkar ógöngur
þessi viðtöi em komin víða um lands-
by ggðina. í blaðinu er rætt við Hiyn
Þór Magnússon, ritstjóra Vestur-
lands, blaðs sjálistæðismanna á
Vestfjörðum.
Hér fara á eftir nokkrar spumingar
og s vör Hlyns en spumingar í þessum
þætti eiga að varpa nokkru ljósiá
persónuna sem við er talað:
Helstu kostir: „Fer eftir atvikum."
Helstugallar: „Fereftiratvikum."
Laun?: „Heimsins."
Ef þú starfaðir ekki við þaö sem þú
gerir nú hvað vildir þú þá gera?;
„Sitja undirtré."
Ertu góður kokkur?: „Nógu góöur."
Besti matur sem þú færð?:
„Yflrleittþað
sem ég fæ hverju sinni."
Versö matur sem þú færð?:
„Enginnsérstakur."
Hvaö gerir þú í frístundum?:
„Ýmislegt"
Hvaða persónu langar þigmesttil að
hitta og h vers vegna?:
„Engasérstaka."
Hvaða stjómmálamaður er númer
eittaöþínumati?:
„Enginnsér8takur.“
Hvaða mál myndir þú setja á oddinn
ef þú yrðir bæjarstjóri í einn mánuð?:
„Veitþaöekki."
Hefúr þú náð takmarki iífs þins?:
„Fereftiratvikum.“
Og þá vitum við ailt það sem viö
vildum vita um þennan ágæta rit-
stjóraVesturlands.
Umsjón: Axel Ammendrup
Menningarverðlaun DV:
Anægð hvemig
til hefúr tekist
- segir Margrét Jónsdóttir, „keramíker" á Akureyri
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ég er sjálf ánægð með hvernig til
hefur tekist með þessa hluti fyrir
DV,“ segir Margrét Jónsdóttir,
„keramíker" á Akureyri, en hún er
höfundur menningarverðlaunanna
sem DV afhendir listamönnum að
þessu sinni.
Menningarverðlaun DV verða af-
hent í hádegisverðarboði að Hótel
. Holti og munu sjö listamenn hljóta
verðlaun að þessu sinni. Margrét
hefur útbúið stóra keramikvasa sem
eru brenndir með „rakú“-aðferð og
tengdir við trékubb með jámstöng-
um. Er óhætt að segja að þar em
óvenjulegir gripir á ferðinni.
Margrét, byggir afkomu sína að
mestu á gerð nytjahluta en fæst þó
einnig við gerð skrauthluta og
skúlptúra af og til. „Mér finnst þessi
verðlaúnaafhending mjög gott fram-
tak hjá DV og það var sérstaklega
ánægjulegt fyrir mig að fá tækifæri
til að búa til verðlaunagripina að
þessu sinni," sagði Margrét.
Þrír gripir af sjö. Margrél hefur skreytt verðlaunagripina/vasana með hálf-
afstrakt táknum fyrir listirnar. DV-mynd GK
Verðlaunagripir hennar sem nú
em tilbúnir til afhendingar munu án
vafa vekja athygli er þeir koma fyrir
sjónir manna á afhendingu Menn-
ingarverðlauna DV á fimmtudag.
Hvtastig sjávar lægra en undanfarin ár:
Hafísinn helst lengur
Hafrannsóknastofnun er nú í ár-
legum leiðangri úti fyrir landinu á
skipi stofnunarinnar, Áma Frið-
rikssyni, til að kanna ástand
sjávar. Sven Aage Malbergleiðang-
ursstjóri segir helstu niðurstöður
leiðangursiijs að hitastig sjávar
fyrir norðan land er mun lægra en
undanfarin ár. Nú er hitastig sjáv-
ar 2 gráður en var 4 í fyrra. Þetta
hefur þær afleiðingar að hafísinn
sem er úti fyrir Norður- og Norð-
austurlandi mun haldast Jengur en
ella.
Hafisinn færist nú aftur nær
Norðuriandi með norðanáttinni
sem nú ríkir eftir að hafa snúiö frá
landinu um tíma. Engin ástæða er
þó til að óttast að siglingaleiðir fo-
kist í bráð að sögn Þórs Jakobsson-
ar, veðurfræðings hjá hafísdeild
Veðurstofu íslands. Það gerist ekki
nema norðanátt verði ríkjandi í
nokkuð langan tíma. -JBj
Breytingar á aflaskipi
Sigurjór. J. Sigurðssonj DV, Isafiröi:
Fyrirhugaðar em breytingar á
aflaskipinu mikla, Guðbjörgu ÍS 46,
og gengið hefur verið frá samningn-
um við skipasmíðastöðina Sicbau í
Bremerhaven sem mun annast
breytingamar, Verkinu á að vera
lokið 9. maí nk.
Tilboð þýsku skipasmíðastöðvar-
innar var næstlægst eða um 44
milljónir króna. Það vakti athygli
hve mikill munur var á tilboðum í
breytingar á togaranum. Lægsta til-
boðið kom frá skipasmíðastöðinni í
Stettin í Póllandi. Það hljóðaði upp á
26,5 millj.króna. Var því ekki tekið
þar sem gert var ráð fyrir að verkið
■' ' ^ ^ ****»«»*»***** ?
Guðbjörg IS 46 við bryggju á isafirði - fremst á myndinni.
DV-mynd BB, ísafirði
tæki 10 vikur, hins vegar fimm vikur
hjá Sichau. Stöðin í Stettin hefur tek-
ið að sér að smíða nýjan Júlíus
Geirmundsson. Hæsta tifboðið var
frá Dannebrog Værft og hljóðaði upp
á 91,9 miUjónir króna eða 350%
hærra en lægsta tilboðið. í tilboðun-
um var aðeins tekið tiUit til vinnunn-
ar - ekki kostnaðar við búnað og
tæki.
Ríkissjóður 1988:
Hallinn um 2,7 milljarðar
Liðlega 2,7 mUljarða halU varð á
rekstrarreikningi ríkissjóðs árið 1987
og er hér um að ræða lakari útkomu
en búist hafði verið við. Stafar hall-
inn af meiri vaxta- og launagreiðsl-
um síðustu mánuði ársins en gert
hafði verið ráð fyrir. Nemur hallinn
um 1,3% af áætlaðri landsfram-
leiðslu ársins, en fil samanburðar
má nefna að árið 1986 nam rekstrar-
halUnn um 1,9 miUjörðum króna sem
samsvarar 1,2% af landsframleiðslu.
Árið 1987 námu heUdartekjur ríkis-
sjóðs 49 miUjörðum tæpum sem er
tæpum 6 miUjörðum meira en áætlað
var í ijárlögum segir í tilkynningu
frá fjármálaráðuneytinu. Utgjöldin
urðu einnig meiri á árinu eða tæp-
lega 6 miUjörðum króna.
-ój
Ragnar Oskarsson, framhalds-
skólakennari og varaþingmaður
Alþýðubandalags.
Stunda
lunda-
veiðar á
sumrin
Ragnar Óskarsson, varaþing-
maður Alþýðubandalags, tók
sæti Margrétar Frímannsdóttur á
alþingi fyrir tæpri viku. Ragnar
er búsettur í Vestmannaeyjum
þar sem hann starfar sem kenn-
ari við framhaldsskóla Vest-
mannaeyja auk þess sem hann
er forseti bæjarstjómar í Vest-
mannaeyjum. Þetta er í fyrsta
skipti sem Ragnar tekur sæti á
þingi. í næstu viku mun hann
mæla fyrir þingsályktunartiUögu
í sameinuðu þingi sem fjallar um
greiðslusamninga vegna skóla-
mannvirkja.
„Það sem fyrst blasir við manni
þegar inn á alþingi er komið er
hvað alUr taka vel á móti manni,
bæði þingmenn og starfsfólk. Það
er mjög skemmtilegt og sérstök
lífsreynsla að koma inn á þing í
fyrsta skipti og sjá nákvæmlega
hvernig þingið starfar og hvemig
mál era afgreidd," segir Ragnar.
Ragnar er fæddur og uppahnn
í Vestmannaeyjum og hefur búið
þar alla tíð fyrir utan 10 ár sem
hann eyddi í höfuðborginni við
nám í menntaskóla og Háskóla
íslands. Hann útskrifaðist frá
Háskóla íslands árið 1975 með BA
próf í sagnfræði, íslensku og
heimspeki. Þegar hann kom aftur
til Vestmannaeyja gerðist hann
kennari við grunnskólann í Vest-
mannaeyjum og starfaði síðan
sem skólastjóri grunnskólans í
átta ár. Þá gerðisí hann kennari
í framhaldsskólanum.
Eiginkona Ragnars heitir Jó-
hanna Njálsdóttir og stundar nú
nám í öldungadeUd framhalds-
skólans í Vestmannaeyjum.
„Hún er alveg framúrskarandi
nemandi. Ég kenni henni að vísu
ekki núna en hún hefur veriö í
íslenskutímum hjá mér og stóð
sig mjög vel.“ Þau hjónin eiga
þijú böm. Óskar, 16 ára, VaUý, 9
ára, og Njál, 4 ára.
- En hver eru áhugamál þín?
„Áhugamálin em’ náttúrlega
póhtíkin og þá sérstaklega bæjar-
máUn í Vestmannaeyjum. Það fer
mikiU tími í þetta starf enda þarf
forseti bæjarstjómar að snúast í
ýmsu. Svo hef ég starfað í Al-
þýðubandalagsféiaginu í Vest-
mannaeyjum frá 1975.
Annars hef ég mjög gaman af
lundaveiði og triUuveiði. Hér áð-
ur fyrr sótti ég handfæri en þaö
hefur minnkað mikið á síðustu
ámm. En ég veiði lunda á hveiju
sumri og finnst það óskaplega
skemmtilegt. Þá fer ég einn og
einn dag og fæ mér í soðið. Maður
fær geysUega skemmtilega úti-
veru á veiðunum en það er mér
ekkert kappsmál aö veiða mikið
heldur sækist ég mest eftir því
að vera úti í náttúrunni."
-JBj
- --a