Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1988, Page 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1988.
Útlönd
Fjármagn og skipulag
ráða miklu um framboðin
Ólafur Amaison, DV, New York:
Kosningabaráttan hjá forsetaefn-
unum í Bandaríkjunum er nú komin
til Suöurríkjanna. Þriöjudaginn 8.
mars verða forkosningar hjá bæöi
demókrötum og repúblikönum í tutt-
ugu ríkjum sem flest eru í sunnan-
veröum Bandaríkjunum. Sigurveg-
ararnir frá New Hampshire, þeir
Michael Dukakis og George Bush,
hafa gott veganesti í farteskinu en
þaö eru mörg ljón á veginum og
margir aðrir þættir sem munu hafa
mikil áhrif á niðurstöðurnar hinn 8.
mars. Nú mun ráða miklu hve mikið
fjármagn hver forsetaframbjóðandi
hefur á bak við sig. Skipulag og und-
irbúningur er mikilvægur. Styrk-
leikahlutföll frambjóðenda eru
önnur í suðri en í norðri og einnig
munu nýir menn koma fram á sjón-
arsviðið. Áherslumálin eru önnur og
spurningin er hvort mönnum tekst
að ná stuðningi við mál sem gengu
vel í Iowa og New Hampshire. Svo
eru einnig forkosningar i nokkrum
ríkjum í millitíðinni og úrslit þar
geta breytt miklu um styrk frambjóð-
enda hinn 8. mars.
Peningarnir ráða
Peningar skipta gífurlegu máli þeg-
ar kosið er í tuttugu ríkjum á einum
og sama deginum. Frambjóðendur
verða að verja milljónum dollara
hver til kaupa á sjónvarpsauglýsing-
um. Hjá demókrötum stendur
Michael Dukakis mjög vel að vígi.
Hann á nóg af peningum í kosninga-
sjóði. Hann er hins vegar tiltölulega
óþekktur í Suðurríkjunum og þarf
að auglýsa sig vel upp. Sama máli
gegnir um Richard Gephardt sem
sigraði í Iowa og varð númer tvö í
New Hampshire. Hann á hins vegar
lítið af peningum og þurfti meðal
annars að slá lán til að kosta síðustu
daga kosningabaráttunnar í New
Hampshire. Honum gengur þó vel að
safna í sjóð eftir að hann náði öðru
von á að Pat Robertson geti komið á
óvart ef honum tekst að virkja trúar-
hópa á bak við sig. Hann gæti unnið
sigra í einhverjum ríkjum út á það.
Robert Dole virðist eiga undir högg
að sækja hvað varðar undirbúning
kosningabaráttunnar í Suðurríkjun-
um og er skipulag kosningabaráttu
hans eitt stórt spur-ningarmerki.
Aðrar aðstæður
Albert Gore er stóra spurningar-
merkið hjá demókrötum. Hann
hunsaði Iowa og New Hampshire og
leggur allt í sölurnar hinn 8. mars.
Hann tekur mikla áhættu en ef dæm-
ið gengur upp hjá honum getur verið
aö hann standi uppi með mikinn
fjölda af fulltrúum fyrir flokksþing
demókrata í sumar en hinn 8. mars
verður kjörinn tæpur helmingur
fulltrúa. Gore er Suðurríkjamaður
og veit hvað fólk þar vill.
Það er hætt við að Dukakis og Gep-
hardt gangi illa að ná eyrum fólks í
Suðurríkjunum. Dukakis hefur
byggt kosningabaráttu sína á því að
hann hafi verið svo góður ríkisstjóri
í Massachusetts að hann sé hæfur til
að flytja í Hvíta húsið. Richard Gep-
hardt hefur gert út á eitt mál og það
er vemdar- og haftastefna í utanrík-
isviðskiptum. Þeir verða einfaldlega
að finna eitthvað nýtt, eitthvað sem
kjósendur í Suðurríkjunum telja
mikilvægt ef þeir ætla að eiga þar
möguleika. Jesse Jackson verður á
heimavelli hinn 8. mars og á eftir að
hala inn mikið af atkvæðum.
Þótt George Bush eigi lögheimili í
Texas er hann upprunalega frá norð-
austurhluta Bandaríkjanná og óvíst
er að honum gangi eins vel að ná til
kjósenda í Suðurríkjunum og honum
hefur gengið að ná til flokksleiðtoga
þar.
Dole gæti lent í þvi að hagnast mjög
á því sem virðist hafa orðið honum
að falli í New Hampshire. í New
Hampshire hélt Bush því fram að
Dole vildi setja sérstakt innflutnings-
gjald á olíu. I New Hampshire er fólk
lítið hrifið af þeirri hugmynd. í Suð-
urríkjunum, og þó sérstaklega í
Texas, er hins vegar mikill oliuiðna'ð-
ur og þar myndu menn hagnast
gífurlega á innflutningsgjaldi á olíu.
Það er líklegt að Pat Robertson hljóti
stuðning frá strangtrúuðum sem eru
allfjölmennir í mörgum suðurríkj-
anna.
Michael Dukakis þykir einna líklegastur demókratanna til að ná árangri en virðist þó ekki afgerandi frambjóðandi.
Simamynd Reuter
Nauðungaruppboð
annað og síðara
á eflirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Suðurgötu 57,
á neðangreindum tíma:
Akurgerði 15b, þingl. eig. Oddbjörg
U. Jónsdóttir, miðvikudaginn 24. fe-
brúar 1988 kl. 11.45. Uppboðsbeiðandi
er Jón Sveinsson.
Bárugata 15, þingl. eig. Halldór Júl-
íusson, miðvikudaginn 24. febrúar
1988 kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur eru
Ferðamálasjóður, Landsbanki íslands
og innheimtumaður ríkissjóðs.
Garðabraut 45, 3 hæð, 1, þingl. eig.
Óskar Pálmi Guðmundsson, miðviku-
daginn 24. febrúar 1988 kl. 14.15.
Uppboðsbeiðendur eru Iðnaðarbanki
íslands, Jón Sveinsson hdl.j Akranes-
kaupstaður, Landsbanki Islands og
Veðdeild Landsbanka íslands.
Vallholt 13, miðhæð, þingl. eig. Magn-
ús B. Karlsson, miðvikudaginn 24.
febrúar 1988 kl. 11.30. Uppboðsbeið-
endur eru Guðjón Ármann Jónsson
hdl. og Landsbanki íslands.
Bæjarfógetinn á Akranesi
ótviræða yfirburði yfir aöra fram-
bjóöendur demókrata þegar kemur
að skipulagi kosningabaráttunnar í
Suöurríkjunum. Þeir eru báðir að
sunnan og eru með þéttriðið net
stuðningsmanna um öll sunnanverð
Bandaríkin sem er töluvert meira en
sagt verður um þá Dukakis, Gep-
hardt og Simon. Þetta mun vega
þungt og líklegt er að Gore komi
mjög sterkur út úr forkosningunum
hinn 8. mars og margir telja að Jesse
Jackson eigi eftir að koma gífurlega
á óvart.
George Bush á lögheimili í Texas
og allir helstu forystumenn Repú-
blikanaflokksins í Suðurríkjunum
hafa lýst yfir stuðningi við hann.
Hann verður því fyrirfram að teljast
hafa gott forskot á áðra frambjóðend-
ur repúblikana. Margir eiga samt
Ljón á veginum
Fyrir 8. mars eru forkosningar í
nokkrum ríkjum. Niðurstöður úr
þessum ríkjum geta breytt verulega
stöðunni hinn 8. mars. Paul Simon
hefur lýst því yfir að ef hann vinnur
ekki sigur í einhverju ríki fyrir 8.
mars muni hann líklegast draga sig
í hlé. Það er einnig mikið í húíl fyrir
Gephardt og Dukakis. Báðir eiga eft-
ir að sýna hvers þeir eru megnugir.
Sigur Dukakis í New Hampshire var
að mestu leyti þakkaður því aö hann
er ríkisstjóri í Massachusetts, ná-
grannaríki New Hampshire. Hann
þarf að sýna fram á aö hann geti afl-
að sér atkvæða utan norðaustur-
horns Bandaríkjanna.
Robert Dole þarf nú mjög á að sigri
að halda í einu eða fleiri ríkjum áður
en kosið verður í Suðurríkjunum.
Þannig getur hann dregið úr því for-
skoti sem Bush náöi með stórsigrin-
um í New Hampshire. Það getur
reynst skeinuhætt fyrir Bush ef Dole
og Pat Robertson skjóta honum aftur
fyrir sig í Suður-Dakota og Minne-
sota hinn 23. febrúar og Suður-Karó-
línu hinn 5. mars.
Það er því engan veginn ljóst nú
hverjir verða í forsetaframboði í
haust. Óvissuþættirnir eru margir
en eftir 8. mars er hugsanlegt að lín-
ur verði orðnar eitthvað skýrari.
George Bush varaforseti þykir sigurstranglegur meöal repúblikana en
frammistaða hans i forkosningum næstu vikna gæti orðið áhrifarik, bæði
til hins betra og hins verra fyrir framboð hans. Simamynd Reuter
sætinu í New Hampshire og ætti því
að geta verið með af krafti. Það er
verra með Paul Simon sem varð í
þriðja sæti í New Hampshire og er
næstum kominn á hausinn. Svo get-
ur farið að hann dragi sig í hlé fyrir
8. mars. Jesse Jackson getur horft
björtum augum til 8. mars. Hann
eyðir ekki miklum peningum í aug-
lýsingar heldur sjá fréttamenn
honum fyrir ókeypis auglýsingum
með þeirri miklu umfjöllun sem þeir
veita honum. Albert Gore, sem tók
hvorki þátt forkosningunum í Iowa
né í New Hampshire, er frá Suður-
ríkjunum og er talið að hann sé
tiltölulega fjársterkur.
Hjá repúblikönum er það George
Bush sem er best staddur fjárhags-
lega. Er talið að í kosningasjóði hans
sé nú um einn milljarður íslenskra
króna. Robert Dole er einnig vel
stæöur en skortir töluvert til að jafn-
ast á við Bush. Það er stór spurning
hvernig Pat Robertson gengur að
safna peningum en þó er talið að
hann muni ekki verða í vandræðum.
Þaö er vegna þess hve margir fjöl-
mennir kristnir heittrúarhópar eru
í Suðurríkjunum. Jack Kemp, sem
varð í þriðja sæti í New Hampshire,
mun að líkindum ekki hafa úr eins
miklu að spila og aðrir frambjóðend-
ur og líklegast er að hann muni draga
sig í hlé eftir 8. mars.
Undirbúningur og skipulag
Jesse Jackson og Albert Gore hafa
Robert Dole er hvergi banginn þótt
skoðanakannanir bendi til yfirgnæf-
andi fylgis George Bush meðal
repúblikana. 8. mars verður úrslita-
dagur fyrir framboð hans.
Simamynd Reuter
Richard Gephardt á við ramman
reip að draga hinn 8. mars. Hann
er lítt þekktur í suðurfylkjunum og á
litla sjóöi að ganga í, svo honum
er varla ætlaður stór hlutur við kjör-
borðið. Simamynd Reuter
Jack Kemp þykir ekki líklegur til
stórræða en talið er líklegt að hann
dragi sig i hlé eftir 8. mars.
Símamynd Reuter
Pat Robertson, sjónvarpsprédikar-
inn, sem segist ekki vera pólitíkus
þrátt fyrir framboð sitt, á von á drjúg-
um stuðningi heittrúaðra i suður-
fylkjunum. Simamynd Reuter
Paul Simon er sagður orðinn blank-
ur og talið hugsanlegt að hann muni
draga framboð sitt til baka fyrir 8.
mars. Simamynd Reuter
Jesse Jackson verður á heimavelli
hinn 8. mars. Hann þarf ekki að
verja jafnmiklum fjármunum og aðr-
ir frambjóðendur til auglýsinga, því
fjölmiðlar í suðurfylkjunum sjá um
kynningu á honum og málefnum
hans. Simamynd Reuter