Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1988, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1988.
17
DV
Lesendur
„Verð landbúnaðarvara haekkar vegna þess að hagræði, samkeppni og sérhæfing stórbúskapar mega ekki njóta
sín,“ segir brétritari m.a.
Hækkað verð til neytenda:
Milljarður í landbúnaðinn
Reiður neytandi skrifar:
Nær allar vörutegundir, þ.m.t.
landbúnaðarvörur til neytenda hafa
stórhækkað að undanfórnu, vegna
þess að halda verður meðalbúi í þess-
ari grein gangandi og framleiðsla og
verðlagning verður að miðast við það
bú. Og það er einmitt helsti tilgang-
urinn í verðlagningunni.
Verð landbúnaðarvara hækkar
vegna þess að hagræðing, samkeppni
og sérhæfmg stórrekstrar mega ekki
njóta sín í þessari grein atvínnustarf-
semi og halda verður öllum í meðal-
mennskunni.
í raun er verið að lögleiða eins
konar hokurbúskap þar sem allir eru
jafnir og þar sem allir eru að tapa.
Það er verið ganga marga áratugi
aftur í tímann í vinnubrögðum með
þessum reglum. - Af hverju má ekki
vera samkeppni við framleiðslu í
þessari grein eins og öðrum þar sem
þeir hæfustu standa sig best, eins og
reynslan hefur sýnt sig hingað til í
þessum greinum?
Það skal fullyrt hér að ef ekki hefði
verið samkeppni í þessum greinum
undanfarin ár og misseri þá væri
verð tii neytenda margfalt hærra en
það er í dag vegna þess að þá væri
meðalmennska hvarvetna í fyrir-
rúmi.
Maður gæti stundum haldið að
maður byggi í Sovétríkjunum en ekki
í vestrænu landi, svo gerræðisleg eru
sum vinnubrögð þeirra manna sem
landbúnaöarmálum stjórna. Kostn-
aðinum af öllu þessu er síðan velt
yfir á neytendur og skattgreiðendur
enda er ekki langt síðan landbúnað-
arráðherra fékk mörg hundruð
milljónir í umframíjárveitingar (eins
og reyndar fleiri ráðuneyti Fram-
sóknarflokksins) og mun meira en
nokkur önnur ráöuneyti þegar fjár-
lög voru endurskoðuð nýlega.
Reikninginn fá síöan skattgreiðend-
ur og neytendur - það er ekkert mál
fyrir Framsókn.
Næsta skref landbúnaðarráðherra
verður eflaust að veita tugi ef ekki
hundruð milljóna til loðdýrabænda.
Þeir mega ekki fara á hausinn eins
og aðrir atvinnurekendur sem hafa
farið illa að undanfórnu. Það er enn-
fremur athyglivert aö Alþýðuflokk-
urinn og Sjálfstæðisflokkurinn skuh
líða þessa framleiðslustjórnun á
eggjum, kjúklingum og svínum, þrátt
fyrir ákvæði í seinustu kjarasamn-
ingum sem einmitt var beint gegn
þessu.
Hvaða greinar verða næstar á dag-
skrá í framleiðslústjórnun: loð-
dýrabú, fiskeldi, brauðgerð?
Aðför að sparrfjáreigendum:
Verða mynduð samtök?
H.J. hringdi:
Hvemig skyldi standa á því að
forstööumenn sparisjóða og banka,
sem geyma sparifé okkar, láta ekk-
ert í sér heyra núna þegar sumir
stjómmálamenn heimta sparifé
okkar fyrir lítiö, ýja raunar að
eignaupptöku, til að rétta við hag
illa rekinna skjólstæðinga sinna,
fyrirtækjanna, eða til aö grynna á
skuldasúpu andvaralausra.
Viö sem höfum eignast nokkrar
krónur 1 sparisjóði höfum oft þurft
að neita okkur um hluti og spara
við okkur og viö höfum þegar greitt
aila skatta af þessum peningum.
Væri óskandi að hægt væri aö segja
það sama um suma stjómmála-
mennina og gælufyrirtæki þeirra.
Sennilega verðum við að bindast
samtökum til að verjast ágengni
þeirra.
Stöndum vörö um lágmarksrétt
okkar sem þjóðfélagið ætti að verö-
launa okkur fyrir því að svo gífur-
lega nauðsynlegur er innlendur
spamaður aö hann er grundvöllur
allra framfara í landinu.
Neyðið okkur ekki til aö taka út
sparifé okkar og eyða því í glys og
glingur.
38
peru bekkir
27 kæliviftur.
Ný gerö andlitsljósa
10-10 VIRKA DAGA.
10-19 LAUGARDAGA.
13-19 SUNNUDAGA.
im
SÓLBAÐSSTOFA
NÓATÚNI 17.
SlMI 21116
PANTIÐ
TÍMA
OPIÐ FRÁ KL.
LUKKUPOKAR - rnn
Verðmæti kr. 3.000,-. Verð kr. 1 lUUUf**
Engir tveir pokar eins.
POSTSENDUM
J^annprtiatoersluntn
€rla Snorrabraut 44, sími 14290
ÍSLANDSSTRENGUR
í 10 þráða hör, stærð: 16x110 cm.
i aida, stærð: 18x127 cm.
Verð á pakkningu án járna kr. 2.100,-
SKJALDARMERKI
í 10 þráða hör. Stærð 35x40 cm.
I aida. Stærð 45x50 cm.
Verð á pakkningu kr. 1.850,-
^ ..
&
Gallabuxur eiga sér
langa og sérstæða
sögu. Þær komu
fyrst f ram á sjónar-
sviðið í Ameriku um
miðja siðustu öld og
í fyrstu voru það
einkum verkamenn,
kúrekar og sjómenn
sem klæddust þess-
um merkilegu tlík-
um. Síðan urðu þær
tískuvara og breidd-
ust eins og eldur i
sinu útum heiminn.
í Lífsstíl á morgun
verður stiklað á
sögu gallabuxnanna
og á þar margt eftir
að koma á óvart.
Sumarbústaðaeign lands-
manna eykst stöðugt. Æ fleiri vilja
eiga sumarbústaði og ekki er orðið neitt
tiltökumál fyrir almenning að annaðhvort kaupa
bústað eða leigja sér í stuttan tíma. Skarkalinn
í höfuðborginni er slíkur að fólk finnur sífellt hjá sér
hvöt til þess að flýja út í sveit og leita á náðir
náttúrunnar sem er sterk í okkur öllum. Sumarbú-
staðir eru kostur sem borgarbörn og þétt-
býlisfólk á og nýtir sér í miklum mæli.
Nánar í Lífsstíl á morgun.
Lýsing í heimahúsum og
nýjungar á þvi sviði verða
til umfjöllunar I Lifsstil á
morgun. Halógenperur
eru fyrirbæri sem margur
hefur undrast yfir vegna
smæðar þeirra miðað við
hefðbundnar glóðarper-
ur. Ljósmagnið er margf-
alt miðaðvið þær
hefðbundnu og þær eyða
minna rafmagni. Leitað
er ráða hjá lýsingarhönn-
uði sem gefur hollráð
varðandi lýsingu og stað-
setningu lampa og Ijós-
gjafa. Við munum á
morgun fræðast í máli og
myndum um nýjungar i
heimi lýsingar.