Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1988, Síða 22
22
ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1988.
NBA-deildin í körfubolta:
Pétur
íhugar
að fara
fráSpurs
- lék í 3 mínútur í nótt er Spurs tapaði
-Pétur óánægður hjá félaginu
„Ég get ekki neitað því að ég er óánægður hjá San
Antonio Spurs. Ég er greinilega ekki í náðinni hjá
þjálfaranum og fæ mjög lítið að leika með liðinu,“
sagði Pétur Guðmundsson, körfuknattleiksmaður hjá
NBA-liðinu San Antonio Spurs, í samtali við DV í
morgun. Pétur íhugar nú að fara frá félaginu eftir
keppnistímabilið enda fær hann lítið sem ekkert að
spreyta sig.
• Pétur Gudriundsson skorar hér fyrir San Antonio Spurs í leik gegn Los Angeles Lakers. Pétur lék aðeins
með i þrjár mínútur í nótt og er óánægður með gang mála hjá Spurs.
„Ég get ekki neitað því að það
hefur hvarflað að mér að fara frá
félaginu eftir þetta keppnistímabil.
Ég passa greimlega illa inn í hðið
og ég fæ lítið að leika með því. Það
væri gaman að spreyta sig hjá öðru
liði sem maður myndi passa betur
inn í. Ég botna ekkert í þjálfaran-
um og skil ekki hvað hann er að
gera og það gera raunar fáir leik-
menn í liðinu. Það eru sérstaklega
innáskiptingarnar sem menn skilja
ekki og ég er ekki einn um að botna
ekkert í þeim. Ég er hins vegar
ekki á þeim buxunum að hætta í
NBA-deildinni. Ef þetta lagast ekki
þá hef ég áhuga á því að spreyta
mig annars staðar en þó geri ég
mér fylhlega grein fyrir því að ég
ræð ekki miklu þar um sjálfur,"
sagði Pétur í samtalinu í morgun.
„Ég var í byijunarliðinu gegn
Portland Trailblazers í fyrradag
og lék þá í 28 mínútur. Brickow-
ski var meiddur og því fékk ég
að leika. Ég skoraði 9 stig og hirti
7 fráköst. Við töpuðum leiknum,
sem fram fór á heimavelli Port-
land, 117-112. Brickowski var
síðan aftur með í nótt gegn Gold-
en State Warriors og þá fékk ég
htið sem ekkert að spila. Ég var
með í 3 mínútur og náði ekki að
skora. Svona gengur þetta og ég
er greinilega ekki inni í myndinni
hjá þjálfaranum. Þetta verður
maður bara að sætta sig við og-
við þessu er lítið að gera. En ég
mun hugsa mig vel um þegar
þessu keppnistímabih lýkur og
ef til vill mun ég fara fram á það
að fá að fara tU annars félags í
deildinni í vor,“ sagði Pétur Guð-
mundsson. -SK
Skakkaföll hjá ÍR-ingum:
Guðmundur er
nefbrotinn!
„Það má segja að nefið sé brotið í
mél en ég á eftir að fá úrskurð hjá
sérfræðingi um framhaldið. Þá fyrst
kemur í ljós hvort ég missi úr ein-
hveija leiki en ég held í þá von að
geta spilað gegn KR um næstu helgi,“
sagði Guðmundur Þórðarson, hand-
knattleiksþjálfari og leikmaður með
ÍR, í samtali viö DV í gærkvöldi.
Guðmundur fékk mikið högg á nef-
ið snemma leiks gegn Val í 1. deUdar
leik liðanna í gærkvöldi og var flutt-
ur á sjúkrahús. ÍR-liðið var eins og
höfuðlaus her án hans og má ekki
við því að hann missi úr leik'i þar sem
það á erfiöa fallbaráttuleiki fyrir
höndum.
-VS
Enska bikarkeppnin:
Arsenal mætir Forest
Enska bikarkeppnin hefur fengiö
talsvert rými í ljósvakamiðlunum
síðasta kastið og um nýliðna helgi
komu til að mynda tveir leikir hingað
tíl lands um gervihnött frá sjálfu
knattspymuvíginu - Englandi.
' í kjölfar leikjanna var síðan dregið
fyrir næstu umferð þótt ekki hafi
ráðist úrslit í öllum þeim viðureign-
um sem fram fóru. Þessi lið munu
etja saman kappi í átta liða úrslitum:
Arsenal - Nottingham Forest
Wimbledon - Port Vale eða Watford
Manchester City - Liverpool
QPR eða Luton - Portsmouth
-JÖG
• Guðmundur Þórðarson.
Kvennakarfa:
Allt í hnút
á toppnum
ÍS vann mikilvægan sigur á ÍR,
43M2, í 1. deild kvenna í körfu-
knattleik í gærkvöldi. Þar með
stefnir allt í æsispennandi keppni
þessara liða og ÍBK um meistara-
titilinn því ÍS og ÍR eru nú með
20 stig hvort eftir 13 leiki en ÍBK
18 stig eftir 12 leiki. -VS
Styrkur til Árbæinga:
Fyikir fær Öm
og Ameríkana
„Ég er ákveðinn í að fara aftur til
míns gamla félags, Fylkis. Þetta gekk
ekki upp eins og ég hafði reiknað
með á Selfossi," sagði Örn Valdim-
arsson knattspyrnumaður í samtali
við DV í gærkvöldi.
Örn er upphaflega Fylkismaður en
hefur leikiö með Fram í 1. deildinni
í fjögur ár. Hann hafði ákveðið að
leika með Selfossi í 2. deild næsta
sumar en hefur nú söðlað yfir til
Árbæinganna sem unnu 3. deildina
í fyrra.
„Hópurinn hjá Fylki er sterkur og
ég vonast til þess að við verðum í
toppbaráttunni í sumar,“ sagði Örn.
Bandarískur markvörður er vænt-
anlegur til Fylkis um næstu mánaða-
mót en sá hefur spilað með þremur
úr Árbæjarliðimr í skólahði þar
vestra síðustu vetur. Til viðbótar
hafa nýliðarnir fengið Stefán Steins-
en úr KR og endurheimt Brynjar
Níelsson frá Val og ættu að mæta
sterkir til leiks í 2. deildinni í sumar.
• Örn Valdimarsson.