Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1988, Page 32
SAUÐÁRKRÓKUR
DV óskar eftir að ráða umboðsmann á Sauðárkróki.
Upplýsingar í síma 27022 og hjá umboðsmanni í
síma 95-5654.
Framhaldsaðalfundur
knattspyrnudeildar Víkings verður haldinn í dag, -
þriðjudaginn 23. febrúar, í félagsheimilinu
Hæðargarði.
Mætum vel og sýnum starfseminni áhuga.
Stjórnin
FLUGLEIDIRjmt
■ Aðalfundur Flugleiða hf.
verður haldinn þriðjudaginn 22. mars 1988 í Kristal-
sal Hótel Loftleiða og hefst kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 10. gr. samþykkta
félagsins.
2. Breytingar á samþykktum félagsins, tiilaga um
útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi,
► skulu vera komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar
en 7 dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir á
aðalskrifstofu félagsins, Reykjavíkurflugvelli, frá og
með 15. mars nk. frá kl. 09.00-17.00.
Afhendingu atkvæðaseðla lýkur á hádegi fundar-
dags.
Stjórn Flugleiða hf.
Vinningstölurnar 20. febrúar 1988
Heildarvinningsupphæð: Kr. 5.058.032,-
1. vinningur var kr. 2.536.428,-
og skiptist hann á milli 3ja vinningshafa, kr. 845.476,- á mann.
2. vinningur var kr. 758.500,-
og skiptist hann á 250 vinningshafa, kr. 3.034,- á mann.
3. vinningur var kr. 1.763.104,-
°g skiptist hann á 7.871 vinningshafa sem fá 224 kr'. hver.
Upplýsingasími: 685111
ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1988.
Lífsstm
Palmer útskýrir fyrir blaðamönnunum Isak Sigurðssyni og Erlendi Garðarssyni út á hvað dáleiðsla gengur.
DV-mynd KAE
Hef dáleitt menn
í gegnum síma
- segir John-lvan Palmer sem er talinn fljótasti dávaldur í heimi
„Menn verða að gera sér grein
fyrir því hvað dáleiðsla er, annars
verða þeir fyrir vonbrigðum. Þeir
dáleiddu eru meðvitaðir um um-
hverfið og allt sem gerist í kriijgum
þá og í dáleiðslu er ekki hægt að
fá menn til að framkvæma hluti
sem þeir vita að eru rangir," sagði
John-Ivan Palmer, frægur banda-
rískur dávaldur sem er staddur hér
á landi.
„Þegar fólk gleymir sér í dag-
draumum er það í raun og veru í
eins konar dásvefni. Og ef menn
eru niðursokknir og einhver fer að
tala við þá og þeir svara án þess í
rauninni að -vita hvað um er að
ræða eru þeir líka í eins konar dá-
svefni.
Þegar ég dáleiði fólk missir það
ekki meðvitund. Ég tala til undir-
meðvitundarinnar og það er ekki
einu sinni víst að sá dáleiddi muni
hvað ég sagði honum þegar hann
vaknar aftur. En undirmeðvitund-
in hefur meðtekið það.“
Palmer kom fram í Sjónvarpinu
í síöustu viku í þætti Hermanns
Gunnarssonar og dáleiddi þar fjór-
ar manneskjur í beinni útsendingu.
„í Bandaríkjunum er dáleiðsla í
beinni útsendingu bönnuð enda
hætta á að margir sjónvarpsáhorf-
enda dáleiðist í leiðinni og það
getur verið varasamt. Þegar ég er
búinn að dáleiðá móttækilegan
mann nokkrum sinnum er það oft
nóg fyrir mig að klappa saman lóf-
Dægradvöl
unum eða slá saman fingrunum til
þess að hann komist í dásvefn. Ég
hef meira að segja dáleitt í gegnum
síma,“ sagði Palmer sem talinn er
fljótasti dávaldur heims.
„Dáleiðsla er algerlega hættu-
laus. Það hefur aldrei neinum orðið
meint af dáleiðslu og ef dávaldur-
inn er ekki til staðar til að vekja
þann dáleidda af svefninum vaknar
hann af sjálfu sér á innan við fimm
mínútum."
Palmer sagði að allir gætu lært
að dáleiða, þetta væri ekki sérstak-
ur hæfileiki sem sumir býggju yfir
en aðrir ekki.
„Þetta er eins og með allt annað,
til dæmis vélritun. Það geta alhr
lært að vélrita en menn verða hins
vegar misflinkir. Sjálfur lærði ég
dáleiðslu með því að lesa bækur
um efnið og með því aö æfa mig.
Æfingin skapar meistarann og það
á ekki hvað síst við um dáleiðslu."
Palmer kemur mikið komið fram
á samkomum í Bandaríkjunum og
er eftirsóttur dávaldur. Þá hjálpar
hann fólki til að hætta að reykja
og drekka og til að grenna sig.
Einnig fer hann á vinnustaði og
hjálpar fólki að einbeita sér þannig
að það nái betri árangri í starfi.
Palmer verður staddur á íslandi
fram yfir mánaðamót og mun koma
fram á samkomum og skemmtun-
um auk þess sem hægt er að panta
einkatíma hjá honum í símum
652296 og 652333.
-ATA
„Fylgdu vinstri hendinni vel eftir með augunum."
Erlendur er meö augun sem límd við höndina og
skömmu síðar er hann dáleiddur. DV-mynd KAE
Kristján Ari Einarsson er hér að vakna af dásvefni
og virðist hálfruglaður á svipinn enda tók smátima
aö vekja hann. DV-mynd EJ