Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1988, Side 34
34
ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1988.
Lífestni
BLAÐAUKI
ALIA
LAUGARDAGA
Þess má geta að mikil ásókn er í
einkatímana hjá Gunnlaugi og er
yfirleitt tveggja til þriggja mánaða
bið en tíminn kostar, eins og kort-
in, 1500 krónur.
„Stjömiispekin heillaði mig strax
sem ungíingur. Ég hef í gríni sagt
að ég hljóti að hafa verið stjörnu-
spekingur í fyrra lífi því að mér
fannst ég kunna þetta allt um leið
og ég las mér til og lærði fræðin.
Að grunni til er ég sjálfmenntaður
í stjörnuspekinni, enda er erfitt að
læra þetta í skóla. Stjörnuspekin
byggist svo mikið á reynslunni og
eigin athugunum. Hins vegar hef
ég farið á ótal námskeið víða um
heim, mest þó í Englandi, og leið-
beinendur mínir hafa margir
hverjir verið meðal þekktustu
stjörnuspekinga heimsins í dag, til
dæmis var ég á námskeiði síðastlið-
ið haust hjá dr. Liz Greene sem er
doktor í sálarfræði en starfar eigi
að síður sem stjörnuspekingur.
Ég hef verið á kafi í þessum vís-
indum frá árinu 1973 en fór að
vinna við stjömuspeki árið 1981 af
fullum krafti og tók þá fólk í einka-
tíma,“ sagði Gunnlaugur Guð-
mundsson stjömuspekingur.
-ATA
Gunnlaugur Guð-
mundsson stjörnu-
spekingur í
Stjörnuspekimið-
stöðinni á Lauga-
vegi 66.
DV-mynd BG
um, á rannsóknum sem ég hef gert
og á því sem ég læri á erlendum
námskeiðum en tek ekkert hrátt
upp úr erlendum bókum. Stað-
hættir hér em að mörgu leyti ólíkir
staðháttum erlendis. Það gildir til
að mynda önnur lýsing fyrir ís-
lenskt ljón en ítalskt. Ég er líka
sífellt að endurbæta textann með
tilliti til nýrra sanninda sem í ljós
koma. Núverandi útgáfa af fæðing-
arkortum er til dæmis sú fjóröa frá
1984.
Ég tek fólk einnig í einkatíma og
kenni því að lesa út úr kortunum
og svo held ég námskeið öðru
hvom. Fólk á oft erfitt með að fá
nákvæmlega réttar upplýsingar út
úr kortunum og því geta einka-
tímar oft hjálpað því. Ég er yfirleitt
með menn í einn og hálfan tíma og
les þá skýringarnar inn á kassettu
sem menn geta tekið með sér
heim,“ sagöi Gunnlaugur.
Viðhoifsbreyting til
stjömuspekinnar
...ó fullrí ferd
Á bdamarkaði DV á
laugardögum, auglýsa
fjöldi bílasala og
bílaumboða fjölbreytt
úrval bíla af öllum
geróum og I öllum
verðflokkum.
AUGLÝSENDUR
ATHUGIÐ!
Auglýsingar í bílakálf
þurfa að berast I slðasta
lagi fyrir kl. 17:00
fimmtudaga.
Smáauglýsingar i helgar-
blaó þurfa að berast fyrir
kl. 17:00 föstudaga.
Siminn er 27022
- segir Gunnlaugur Guðmundsson stjömuspekingur
„Við finnum fyrir mjög vaxandi
áhuga á stjörnuspeki hér í Stjörnu-
spekimiðstöðinni og ég hef ekki
síöur fundið mikla viðhorfsbreyt-
ingu hjá almenningi. Fyrst þegar
ég byrjaði með fyrirtækið hló fólk
og var vantrúað en nú koma ólík-
legustu menn og panta kort hjá
okkur án þess að efast,“ sagði
Gunnlaugur Guðmundsson
stjörnuspekingur sem hefur rekið
Stjörnuspekimiðstöðina frá stofn-
un hennar árið 1984.
„Stjörnuspekin er vísindi sem
eru sjálfsagt jafngömul mannkyn-
inu. Alla vega er stjörnuspekinnar
getið í elstu rituðum heimildum og
hún hefur því fylgt öllum menning-
arsamfélögum frá örófi alda.
ísland er lítið samfélag og ef ekk-
ert væri til í stjörnuspekinni og því
sem ég hef verið að gera hefði ekki
verið hægt að halda svona starf-
semi gangandi í fjögur ár. Og
eftirspurnin fer klárlega vaxandi.
Menn verða að gera sér ljóst að til-
gangurinn með skriflegu textunum
í stjörnukortunum er ekki sá að
gefa hundrað prósent rétta per-
sónulýsingu, þú ert svona og búið,
heldur sá að vekja til umhugsunar,
stuðla að vakningu og sjálfsþekk-
ingu. Og stjörnuspekin getur sýnt
okkur upplag fólks en hún sýnir
að sjálfsögöu ekki allt. Til dæmis
skipta uppeldi, umhverfi og erfða-
þættir einnig máli.
Það er líka nauðsynlegt að átta
sig á því aö ég er ekki að spá fyrir
fólki. Ég sýni þeim persónuleikann,
jákvæðar og neikvæðar hliðar,
’veikleika og styrkleika og hugsan-
legar leiöir til að efla jákvæðu
hliðarnar og vinna á þeim nei-
kvæðu.“
Gunnlaugur sagði aö í Stjörnu-
spekimiðstöðinni væri stefnt að því
að vera með sem mest af bók-
menntum sem stuðluðu að betra
lífi og jákvæðum lífsstíl. Til dæmis
væru þeir með bækur um sálfræði,
mataræöi, nudd, slökunar- og nátt-
úrulækningar og svo að sjálfsögðu
stjörnuspeki.
„Við erum með þrenns konar
stjörnukort. Fæðingarkortin eru
persónulýsingar. Þar er upplagið
tekið fyrir, kostir tíndir til svo og
skuggahliðárnar. Reynt er að vekja
fólk til umhugsunar og beina því
inn í æskilegan farveg.
Framtíöarkortið er enginn spá-
dómur heldur tekur það fyrir orku
viðkomandi á næsta ári. Það má
líkja kortinu við veðurkort þar sem
hægt er að vara fólk við hæðum
og lægðum í lífsorkunni þannig að
það geti verið meðvitað um það sem
er að gerast.
Samskiptakortið getur orðið
mjög góður umræðugrundvöllur
hjá fólki, til dæmis hjónum. Þar er
bent á eiginleika tvímenninganna,
orka þeirra borin saman og bent á
þarfir beggja aðilanna. Fólk á oft
erfitt með að sætta sig við eitthvað
í hegðun annarra, til dæmis mak-
ans, en á kannski erfitt með að
hefja máls á því og þá getur kortið
hjálpað vel til.“
Kortin kosta 1500 krónur stykkið
og eru afgreidd samdægurs eða
daginn eftir, eftir því hversu mikið
er að gera. Einnig er hægt að panta
kort í gegnum síma. Það eina sem
þarf að gefa upp er fæðingardagur
og ár, sem nákvæmastur fæðingar-
tími og fæðingarstaður.
„Ég hef sjálfur samið allan texta
í stjömukortunum. Við samningu
textans byggi ég mikið á eigin
reynslu, á því sem fólk hefur sagt
mér í einkatímum og á námskeið-
Dægradvöl
BlLA
MARKADUR