Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1988, Page 35
ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1988.
35
_____________________________Fólk í fréttum
Þór Magnússon
Þór Magnússon þjóöminjavörður
hefur veriö í fréttum DV vegna
kaupa á fomri kirkjuklukku frá
Tröllatungu í Steingrímsfiröi. Þór
Eyfeld er fæddur 18. nóvember 1937
á Hvammstanga og var í námi í
íslenskum fræðum viö HÍ
1958- 1959. Hann var í námi í forn-
leifafræði og þjóöháttafræöi í
háskólanum í Uppsölum í Svíþjóð
1959- 1963 og lauk þaðan fil. cand.
prófi. Þór var safnvöröur við Þjóö-
minjasafn íslands 1964-1968 og
hefur verið þjóðminjavörður frá
1968 og formaður Húsafriðunar-
nefndar ríkisins frá 1969.
Þór kvæntist 22. ágúst 1964 Maríu
Heiödal, f. 13. júní 1939, heilsu-
verndarhjúkrunarfræðingi, for-
stöðumanni Heilsugæslustöðvar
Hlíðasvæðis. Foreldrar Maríu eru
Vilhjálmur Heiðdal, deildarstjóri í
Rvík, og kona hans, María Hjálm-
týsdóttir. Böm Þórs og Maríu eru
Jóhann, f. 17. október 1964, líffræði-
nemi, Þórður, f. 21. ágúst 1969,
starfsmaöur í Hagkaupi, og Auður
Harpa, f. 20. apríl 1972. Systkini
Þórs, samfeðra, sem upp komust,
eru Gunnar M. Richardsson, f. 24.
janúar 1934, sölustjóri hjá Ora,
kvæntur Hrafnhildi Guöbrands-
dóttur, og Jóhanna Dagmar, f. 21.
mars 1936. Sambýlismaður hennar
er Kolbeinn Þorgeirsson, múrari á
Höfn í Hornafirði. Fóstursystir
Þórs er Sigríður Karvelsdóttir, f.
6. desember 1949, gift Jóni Hilmari
Jónssyni málfræðingi, starfsmanni
Orðabókar Háskólans.
Foreldrar Þórs eru Magnús Ric-
hardsson, umdæmisstjóri á Borð-
eyri, síðar fulltrúi í Rvík, sem lést
1977, og Sigríður Jóhánna Þórðar-
dóttir. Fósturfaðir Þórs er Karvel
Sigurgeirsson frá ísafirði, sjómað-
ur í Rvík. Fósturmóðir Þórs er
Debóra Þórðardóttir, fyrrv. sím-
stöðvarstjóri á Hvammstanga.
Magnús var sonur Richards, prests
í Guttormshaga, Torfasonar, versl-
unarmanns í Vestmannaeyjum,
bróður Guðna, afa Brynjólfs
Bjamasonar ráðherra og langafa
Ragnars Stefánssonar jarðskjálfta-
fræðings og einnig langafa Ingi-
bjargar, móður Davíðs Oddssonar
borgarstjóra. Torfi var sonur
Magnúsar, prests í Eyvindarhól-
um, Torfasonar, prófasts á Breiða-
bólstað í Fljótshlíð, bróður Jóns,
langafa Þórarins, fóður Ragnheiðar
borgarminjavarðar. Torfi var son-
ur Jóns, prests í Hruna, Finnsson-
ar, biskups í Skálholti, Jónssonar,
fóður Hannesar biskups, ættföður
Finsenættarinnar. Móðir Torfa var
Guðrún Ingvarsdóttir, systir Krist-
ínar, langömmu Maríu, móður
Gunnars Thoroddsens forsætisráð-
herra og ömmu Jóns G. Tómasson-
ar borgarlögmanns. María var
einnig langamma Ólafs Briem, afa
Ólafs Egilssonar sendiherra. Móðir
Richards var Jóhanna Jóhanns-
dóttir, systir Péturs, afa Péturs
Jónssonar óperusöngvara og lan-
gafa Önnu Bjarnason blaðamanns.
Móðir Magnúsar var Málfríður
Lúðvíksdóttir, systir Lámsar, skó-
kaupmanns í Rvík.
Móðurbróðir Þórs var Björn, fað-
ir Lýðs sagnfræðings. Sigríður er
dóttir Þórðar, símstöðvarstjóra á
Hvammstanga, Sæmundssonar, b.
í Bakkaseli í Strandasýslu, Lýðs-
sonar, b. í Bakkaseli, Sæmunds-
sonar, b. á Hrafnadal í Bæjar-
hreppi, Lýðssonar, b. í Hrafriadal,
Jónssonar, b. í Skálhöltsvík,
Hjálmarssonar, prests í Trölla-
tungu, Þorsteinssonar, bróður
Björns, langafa Sigrúnar, ömmu
Huldu Jensdóttur ljósmóður. Móö-
ir Lýðs var Sigríður Andrésdóttir,
b. á Skriðnesenni í Bitm, Sig-
mundssonar, ættfóður Ennisættar-
innar, fóður Jóns, langafa Búa,
fóður Ásgerðar veflistarmanns.
Móðir Sigríðar var Guðrún Sveins-
dóttir, vinnumanns á Svaríhóli í
Stafholtstungum, Jóhannessonar,
b. á Haugum í Stafholtstungum,
Sveinssonar. Móðir Sveins var
Ingibjörg Halldórsdóttir, b. og
fræðimanns á Ásbjarnarstöðum,
Pálssonar, fóður Margrétar,
langömmu Jóns, fóður Þorsteins
frá Hamri og langömmu Þórunnar,
ömmu Guðmundar Sigþórssonar,
skrifstofustjóra í landbúnaðar-
ráðuneytinu. Bróðir Ingibjargar
var Jón, langafi Halldórs H. Jóns-
sonar arkitekts. Bróðir Ingibjargar
var einnig Einar, langafi Helgu,
móður Pálma Gíslasonar, for-
manns UMFÍ. Móðir Guðrúnar var
Helga Magnúsdóttir, b. á Geir-
mundarbæ á Akranesi, bróður
Guðmundar, afa Björns Fr. Björns-
Þór Magnússon.
sonar, fyrrv. alþingismanns.
Magnús var sonur Hjálmars, b. í
Grafardal í Skorradal, Jónssonar,
b. í Tungu í Svínadal, Björnssonar,
b. í Kalastaðakoti, Jónssonar, bróð-
ur Þórodds, langafa Jóns, langafa
Ara Gíslasonar fræðimanns. Móðir
Helgu var Solveig Eiríksdóttir, b. í
Geirmundarbæ, Péturssonar, b. á
Heggstöðum, Halldórssonar, bróð-
ur Sigríðar, ömmu Ámurida,
langafa Harðar Ágústssonar hst-
málara og Sigurlaugar, móður
Jóhanns Hjartarsonar stórmeist-
ara.
Afmæli
Jón Guðnason
Anna Karisdóttir
Jón Guðnason, bóndi að Götu í
Hvolhreppi, er sjötugur í dag. Jón
fæddist að Miðkoti í Vestur-Land-
eyjum en flutti með foreldrum
sínum að Uxahrygg í Rangárvalla-
hreppi þar sem þau bjuggu í sex
ár áður en þau fluttu að Hólmum
í Austur-Landeyjum en þar bjuggu
foreldrar hans frá 1924-60. Jón
vann öll almenn sveitastörf en fór
ungur á vertíð til Vestmannaeyja
þar sem hann reri fimm vertíðir.
Hann starfaði mikið í ungmennafé-
lagi sveitarinnar og var um skeiö
í stjóm þess. Jón stundaði nám við
Bændaskólann á Hólum í Hjaltadal
en þaðan útskrifaðist hann 1941.
Hann kvæntist árið 1944 og hóf
búskap að Götu sama ár en þar
hafa þau hjónin búið myndarbúi
síðan. Þess má geta að gæðingar
og hlaupahross frá Götu em iöngu
kunn meðal hestamanna.
Kona Jóns er Ragnhildur Ásta
ljósmóðir, f. 30.8.1911, dóttir Guð-
mundar, sjómanns í Vestmanna-
eyjum, sem ættaður var úr
Landeyjum, Guðmundssonar og
Sigríðar, frá Kúfhól í Landeyjum,
Sigurðardóttur.
■ Jón og Ragnhildur Ásta eignuð-
ust fjögur böm en eiga þrjú á lífi.
Þau eru Ástríður, húsmóðir í
Grindavík, f. 1944, gift Guðmundi
Snorra Siguijónssyni vélstjóra, og
eiga þau fimm böm; Bjarghildur,
húsmóðir í Grindavík, f. 1946, gift
Helga Einarssyni skipstjóra, og
eiga þau fjögur börn; Guðni Vignir,
f. 1951, á einn son.
Jón á þijú systkini sem eru Andr-
és, heildsali í Reykjavík; Kristrún,
húsmóðir í Reykjavík; og Magnea
Guðbjörg, yfirljósmóðir og hús-
móðir í Venusborg í Svíþjóð.
Foreldrar Jóns: Guðni, f. að
Hrauk i Vestur-Landeyjum og b.
að Hólmum, Magnússon og kona
hans, Rósa Andrésdóttir frá
Hemlu. Bróðir Rósu var Andrés,
klæðskeri í Reykjavík. Foreldrar
Rósu voru Andrés, b. í Hemlu frá
Jón Guðnason.
1877-1919, Andrésson og kona
hans, Hólmfríður, frá Skála undir
Eyjaíjöllum, Magnúsdóttir. For-
eldrar Guðna voru Magnús
Guðmundsson og Bjarghildur, frá
Skeggjastöðum í Vestur-Landeyj-
um, Guðnadóttir.
Jón verður ekki heima á afmælis-
daginn.
Anna Karlsdóttir, Mýrarbraut 8,
Blönduósi, er áttræð í dag. Anna
fæddist að Þórólfstungu í Vatnsdal
og ólst upp hjá foreldrum sínum.
Hún giftist 3.6. 1929 Ellert Bergs-
syni, f. 3.6. 1893, d. 1950, en þau
fluttu þá til Blönduóss þar sem
Anna hefur búið síðan. Ellert
stundaði lengst af alla almenna
verkamannavinnu en Anna hefur
búið hjá dóttur sinni síðustu árin.
Anna og Ellert eignuðust tvö
börn.. Þau eru Sigtryggur, síma-
maöur í Reykjavík, f. 31.3. 1931,
kvæntur Brynhildi Friðriksdóttur,
og eiga þau tvö börn, og Herdís,
húsmóðir á Blönduósi, f. 27.11.1934.
Hún á einn son og er gift Jóni Kr.
Jónssyni símamanni.
Anna átti niu systkini en tvær
systur hennar eru látnar. Systkini
hennar eru Halldóra sem er látin
en var húsmóðir í Reykjavík og síð-
ar á Akureyri, gift Guðmundi
Halldórssyni og síðar Ragnari Jó-
hannessyni, starfsmanni í Ofna-
smiðjunni í Reykjavík; Katrín, lést
í barnæsku; Jón, skrifstofumaður
á Blönduósi; Herdís, húsmóðir í
Reykjavík og ekkja eftir Guðna
Skúlason, leigubifreiðarstjóra hjá
BSR; Björn, sem lengi vann hjá
Vegagerðinni á Blönduósi, kvænt-
ur Helgu Daníelsdóttur; Ingibjörg,
húsmóðir á Blönduósi og ekkja eft-
ir Guðmund Jakobsson verka-
mann; Guðni, verkamaður í
Þorlákshöfn, kvæntur Helgu Þor-
steinsdóttur; Pálmi, leigubifreiðar-
stjóri á Akureyri, kvæntur Elsu
Halldórsdóttur; og Júlíus, verka-
maður á Blönduósi, kvæntur
Rögnu Kristjánsdóttur.
Foreldrar Önnu voru Karl,
vinnumaður og bóndi, uppalinn á
Gunnfríðarstöðum í Svínavatns-
hreppi, Jónsson, og kona hans,
Guðrún Sigurðardóttir. Föðurfor-
eldrar Önnu voru Jón, jámsmiður
á Gunnfríðarstöðum, Hróbjartsson
og kona hans, Anna Einarsdóttir.
Guðríður Sigurðardóttir
Þorbergur
Jónsson
Guðríður Sigurðardóttir, Sunnu-
braut 43, Kópavogi, er sextug í dag.
Guðríður fæddist á Geirseyri við
Patreksfjörð og ólst þar upp en fað-
ir hennar átti jörðina og var þar
útvegsbóndi. Guðríður fór í Hús-
mæðraskóla Akureyrar og var þar
fyrsta veturinn sem skólinn starf-
aði, 1945-46. Hún gifti sig 17.6.1955
og flutti þá til Bíldudals þar sem
þau hjónin bjuggu í sautján ár. Þau
fluttu síðan til Reykjavíkur og hafa
búið þar síðan. Eftir að þau komu
til Reykjavíkur keypti Guðríður
verslunina Regnhlífma á Lauga-
veginum sem mun vera önnur elsta
snyrtivöruverslun hér á landi og
hefur verslað þar síðan. Guðríður
hefur tekið virkan þátt í félagslífi
en hún var einn af stofnendum
skátafélags á Patreksfiröi og var
um skeið formaður Slysavamafé-
lagsins á Bíldudal.
Maður Guðríðar er Jónas, aðal-
bókari HÍ, f. 24.9. 1930, sonur
Ásmundar, sjómanns á Bfldudal,
Jónassonar og Mörtu Ólafíu Guð-
mundsdóttur.
Guðríður og Jónas eignuðust þijá
syni. Þeir eru Ásmundur, f. 20.7.
1957, læknir í framhaldsnámi í
Vesterás í Svíþjóð, kvæntur Guð-
rúnu Vignisdóttur; Gylfi, f. 24.6.
1960, viðskiptafræðingur í fram-
haldsnárrú í mcU'kaðsfræðum í
Boston í Bandaríkjunum og býr
með Ásdísi Kristmundsdóttur
söngkonu sem stundar framhalds-
nám í söng; Helgi Þór, f. 20.7.1964,
verkfræðinemi í Karlsruhe í Vest-
ur-Þýskalandi. Stjúpdóttir Guðríð-
ar og dóttir Jónasar frá því fyrir
hjónaband er Guðrún Jóna, f. 31.12.
1952, gift Þóri Þorsteinssyni, sjó-
manni á Patreksfirði.
Guðríður átti ellefu systkiiú og
eru sjö þeirra á lífi. Þau eru Sigurð-
ur, bifvélavirki á Patreksfirði; Ásta
Margrét, húsmóðir í Borgamesi;
Þóroddur, vatnsveitustjóri í
Reykjavík; Ingveldur Helga, kaup-
maður í Reykjavík; Guðmundur,
verkstjóri hjá Jarðborunum ríkis-
ins; Rögnvaldur Geir, heildsali í
Reykjavík; og Ásgeir Hjálmar, úti-
bússtjóri Samvinnubankans á
Vopnafirði.
Foreldrar Guðríðar voru Sigurð-
ur Andrés Guðmundsson, hrepp-
stjóri í Breiðuvík, f. í Hænuvík í
Rauðasandshreppi 28.11. 1886, d.
23.12. 1948, og kona hans, Svandís
Ámadóttir, f. að Suðurvöllum á
Akranesi 9.9. 1893, d. 1966. Föður-
foreldrar Guðríðar vom Guð-
mundur Sigurðsson, bátasmiðs
Breiðvíkings, og Helga Thorodd-
sen, dóttir Jóns Thoroddsen, b. að
Hvallátrum. Móðurforeldrar Guð-
ríðar vom Ami> sjómaður á
Akranesi, Guðmundsson, sem fórst
með Kútter Emilíu í mannskaða-
veðrinu 1906, og kona hans, Ing-
veldur Sveinsdóttir, b. að
Innstavogi Sveinssonar og konu
hans, Sigríðar Narfadóttur. For-
eldrar Arna voru Guðmundur
Bjamason á Seltjarnanesi og kona
hans, Jóhanna Sigríður Jónsdóttir.
Þorbergur Jónsson, bóndi að
Prestbakkakoti í Hörgslands-
hreppi, er sjötíu og fimm ára í dag.
Þorbergur fæddist í Gaulveijabæ
en flutti á fyrsta árinu með foreldr-
um sínum í Hörgsland og ólst þar
upp í Prestbakkakoti. Hann hefur
ætíð stundað bústörf að þvi undan-
skildu að hann fór rúmlega tvítug-
ur til sjós og var þá þijár vertíðir
á trillum frá Grindavík. Þorbergur
tók við búi foreldra sinna 1950 og
héfur búið þar síðan.
Þorbergur kvæntist 1940 Sig-
rúnu, f. 1912, d. 1973, dóttur Önnu
Kristófersdóttur og Jóns, b. í
Hörgsdal í Hörgslandshreppi,
Bjarnasonar, en þess má geta að
niðjar Jóns héldu á síöasta ári fjöl-
mennt ættarmót að Hlégarði.
Þorbergur og Sigrún eignuðust
þijú börn. Þau em Steinunn, hús-
freyja á Litlu-Heiði í Mýrdal, f. 1944,
gift Tómasi pálssyni b. þar, og eiga
þau þijú böm; Helga Guðrún, hús-
móðir í Kópavogi, f. 1948, gift
Jónatan Jósafatssyni bankastarfs-
manni, og eiga þau þijú böm; Jón,
rafvirki í Hörgslandshreppi, f. 1951,
kvæntur Sólveigu Pálsdóttur, og
eiga þau tvo syni.
Þorbergur átti tvö systkini en
systir hans er látin: Margrét, f.
1910, saumakona í Reykjavík, sem
lést fyrir rúmum þijátíu árum, og
Bergsteinn, f. 1921, starfsmaöur hjá
Ríkisspítulunum í Reykjavík.
Foreldrar Þorbergs vom Jón, b.
í Prestbakkakoti, f. 1880, d. 1960,
Steingrímsson, b. á Fossi á Síðu en
f. að Heiðarseli í Kirkjubæjar-
hreppi, Jónsson og kona Jóns,
Steinunn, f. 1881, d. 1972, Bergs-
dóttir, b. í Múlakoti og Kálfafelli í
Fljótshverfi.
85 ára_______________________
Anna Björnsdóttir, Borgarbraut 65,
Borgamesi, er áttatíu og fimm ára
í dag
70 ára_________________________
Ingibjörg Jónína Níelsdóttir,
Hvassaleiti 5, Reykjavík, er sjötug
í dag.
Arnaldur Þór garðyrkjubóndi,
Blómvangi, Mosfellssveit, er sjö-
tugur í dag.
Snorri Gíslason, Strandgötu 6,
Höfðahreppi, er sjötugur í dag.
Rögnvaldur Jónsson, Stórholti 3,
Akureyri, er sjötugur í dag. Hann
verður ekki heima á afmælisdag-
inn.
Kristinn Kristinsson, Gíslholti,
Holtahreppi, er sjötugur í dag.
50 ára
Hulda Guðráðsdóttir, Ásgarði 77,
Reykjavík, er fimmtug í dag.
Erna Helgadóttir, Steinholtsvegi 9,
Eskifirði, er fimmtug í dag.
40 ára
Gunnar Gröndal, Brekkubyggö 34,
Garðabæ, er fertugur í dag.