Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1988, Síða 36
36
ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1988.
Jarðarfarir
Friðbert Friðbertsson frá Súganda-
firði, Kleppsvegi 124, er lést í Land-
spítalanum 17. febrúar, veröur
jarðsunginn frá Fossvogskirkju mið-
*■ vikudaginn 24. febrúar kl. 15.
Útfór Gísla Sveinssonar fer fram frá
Fossvogskirkju fímmtudaginn 25.
janúar kl. 15.
Garðar Sigfússon húsvörður, Espi-
gerði 2, Reykjavík, verður jarðsung-
inn miðvikudaginn 24. febrúar kl.
13.30. Útforin fer fram frá Kópavogs-
kirkju.
Útfor Guðrúnar Sigríðar Gísladótt-
ur, Þórufelli 8, Reykjavík, sem lést
17. þ.m. fer fram frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 25. febrúar kl. 13.30.
Sveinn Þórir Hannesson bóndi, As-
garði, Reykholtsdal, verður jarð-
sunginn frá Reykholtskirkju
miðvikudaginn 24. febrúar kl. 14.
Hóimfríður Sigurðardóttir, fyrrum
til heimilis á Sólvallagötu 51, verður
jarðsungin frá Fossvogskapellu mið-
vikudaginn 24. febrúar kl. 10.30.
Sigurður Sophusson lést 15. febrúar
sl. Hann var fæddur 15. september
1921, sonur hjónanna Sophusar
Árnasonar og Emelíu Sigfúsdóttur.
Ungur að árum fór Siguröur í versl-
unarrekstur ásamt föður sínum, en
samhliða því rak hann einnig Sjálf-
stæðishúsið á Siglufirði. Sigurður
fluttist til Reykjavíkur 1963 og vann
eftir það við viðskipti og verslun,
lengst af hjá Sláturfélagi Suðurlands,
en hin síðari ár hjá Víðisbræðrum,
> uns heilsan bilaði. Eftirlifandi eigin-
kona hans er Vilborg Jónsdóttir. Þau
'hjónin eignuðust ekki börn en ólu
upp tvö fósturbörn. Útför Sigurðar
verður gerð frá Garðakirkju í dag
kl. 13.30.
Kristjana L. Jóhannsdóttir lést 12.
febrúar sl. Hún var fædd í Reykjavík
24. október 1912. Foreldrar hennar
voru hjónin Sigríður Dagfmnsdóttir
og Jóhann Guðmundsson. Kristjana
giftist Lúther Sigurðssyni en hann
lést árið 1957. Þau hjónin eignuðust
þrjár dætur. Útför Kristjönu verður
^gerð frá Langholtskirkju í dag kl.
13.30.
Andlát
Sigurjón Steinþór Júliusson skip-
stjóri, Vesturvangi 36, Hafnarfirði,
lést laugardaginn 20. febrúar.
Unnur Ragnhildur Leifsdóttir,
Kambaseli 53, andaðist 21. febrúar.
Aðalheiður Eggertsdóttir, Skúla-
götu 76, Reykjavík, andaðist í
Landspítalanum að kveldi 20. febrú-
ar.
Sigurður Breiðfjörð Bragason, Ár-
túni við Elliðaár, lést í Borgarspítal-
arium 20. febrúar.
m Sigriður Jóhanna Hermannsdóttir
lést á heimili sinu, Ljósheimum 2,
Reykjavík, aðfaranótt sunnudagsins
21. febrúar.
Gísli Blöndal, andaðist 19. febrúar í
Bandaríkjunum.
Haukur Vilhjálmsson frá Fáskrúðs-
firði, Hringbraut 57, Keflavík, lést
föstudaginn 19. febrúar.
Sigríður Ingibjörg Kvist andaðist á
sjúkrahúsi í Danmörku þann 20. fe-
brúar.
Harold Wright lést á heimili sínu
fimmtudaginn 18. febrúar.
Jón Jónsson, fyrrv. kennari, Dálvík,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu, Akur-
eyri, sunnudaginn 21. febrúar.
Guðmundur Jónsson frá Borgar-
höfn andaðist í hjúkrunarheimilinu
Skjólgarði fóstudaginn 19. febrúar.
Árni Þórðarson, Austurbergi 6, lést
þann 21. febrúar.
Sigríður Einarsdóttir frá Neskaups-
stað andaðist á Sjúkrahúsi Seyðis-
fjarðar 21. febrúar.
Fundir
ITC deildin Irpa
heldur ræðukeppnisfund í kvöld kl. 20.30
í Síðumúla 17. Állir velkomnir.
Spilákvöld
Spilakvöld Samtaka gegn
astma og ofnæmi og SÍBS
Samtök gegn astma og ofnæmi og SÍBS-
deildimar í Reykjavik og Hafnaríirði
spila félagsvist í kvöld, þriðjudagskvöld,
kl. 20.30 í Ármúla 34, Múlabæ, 3. hæð.
Að vanda er ríkulegt kaffilúaðborö og
skemmtiatriði í hléinu. Allir eru vel-
komnir á spilakvöldið.
Menning
Schuberthatað i Operunni
Andreas Schmidt og Thomas Palm fluttu Die schöne Mullerin í gærkvöldi
Þýski barítonsöngvarinn Andreas
Schmidt, sem kom hér við í fyrra
og heillaði mannskapinn með
ljóðasöng sínum, er kominn aftur.
Hann var í Gamla bíói í gærkvöldi
og flutti okkur Schubert; Die
schöne Mullerin. Og þetta var bara
byrjunin, hann ætlar að flytja Vetr-
arferðina líka, í kvöld, og síðan
Svanasönginn o.fl. á flmmtudag-
inn. Semsé heilt Schubertfestival.
Með Schmidt er á ferðinni fágætur
ljóðapíanisti, Thomas Palm.
Þaö var ekki í kot vísað frekar
en fyrri daginn, þarna í íslensku
óperunni, ekki hvað snertir mús-
íktrakteringar. Mikið óskaplega
Tónlist
Leifur Þórarinsson
söng maðurinn fallega og Ijómandi
var nú pianóspilið kúltíverað og
nett. Kannski hefði einhvem lang-
að í meiri og augljósari tilfinninga-
belging, meiri og klúrari klökkva
til að orna smásálinni. En þetta er
ekki þannig músík og þaðan af síö-
ur þannig ljóð. Samt nístir þessi
dempaða sorg þeirra Schuberts og
Andreas Schmidt.
Mullers skálds inn að hjartarótum,
einmitt þegar svona er farið með
hana. Þetta var ljóðaflutningur
með skáldlegri innlifun og látleysi
þess sem kann og getur.
Já, Andreas Schmidt er undra-
verður söngvari sem mikill fengur
er að fá hingað til landsins. Hann
flytur ekki aðeins með sér hjartans
hefö hinnar stórþýsku ljóðamenn-
ingar, heldur einnig fágæt og
lifandi viðhorf þess sem leitar að
nýjum, saklausum, ungum hljómi.
Ég skora á menn að missa ekki af
Vetrarferðinni í kvöld. Hún hefst
klukkan hálfníu.
-LÞ
Tónleikar
Tónleikar í Islensku óperunni
Gítarleikararnir Símon ívarsson og Tor-
vald Nilsson frá Svíþjóð munu halda
tónleika í íslensku óperunni miðvikudag-
inn 24. febrúar nk. kl. 20.30. Þetta verða
aðrir hljómleikar í röð nokkurra sem
haldnir eru á vegum styrktarfélags ís-
lensku óperunnar. Þeir Símon ívarsson
og Torvald Nilsson leika ýmist einleik
eða dúett á þessum tónleikum. Á efnis-
skránni eru tónverk frá fimm öldum - frá
endurreisnartímanum ög allt fram á okk-
ar daga. Miðaverð á tónleikana er kr.
500. Styrktarfélögum íslensku óperunnar
er veittur 20% afsláttur af miðaverði.
Tilkynniiigar
Húsmæðrafélag Reykjavíkur
Sýnikennsla verður miðvikudaginn 24.
febrúar nk. kl. 20 í félagsheimilinu, Bald-
ursgötu 9. Halldór Snorrason matreiðslu-
meistari sýnir. Allir velkomnir.
Félag eldri borgara
Opið hús í dag. Kl. 14 félagsvist, kl. 17
söngæfmg, kl. 19.30 bridge.
Lögfræðiaðstoð Orator,
félags laganema er á fimmtudagskvöld-
um kl. 19.30-22 í síma 11012.
Meistaramót íslands
í frjálsíþróttum
fer fram 5. og 6. mars í íþróttahúsinu við
Seljaskóla og í Baldurshaga. Keppt verð-
ur i eftirtöldum flokkum: piltar og telpur
fædd 1974 og 1975. Strákar og stelpur
fædd 1976 og síðar. Keppt verður í eftir-
töldum greinum: hástökki, langstökki,
langstökki án atr., 50 m hl. og kúluvarpi.
Piltar og telpur kasta 4 kg kúlu en strák-
ar og stelpur kasta 3 kg kúlu. Þátttökutil-
kynningum skal skila í síðasta lagi
mánudaginn 29. febrúar til Fijálsíþrótta-
deildar FH c/o Haraldur Magnússon,
Hverfisgötu 23c, Hafnarfirði, sími
91-52403. Ætlast er til að skráningum sé
skilað á þar til gerðum spjöldum. Þátt-
tökugjald fyrir hverja grein er 150
krónur.
Kvöldvaka Ferðafélagsins
Næsta kvöldvaka Ferðafélagsins verður
haldin miðvikudaginn 24. febrúar nk. í
Risinu, Hverfisgötu 105 og hefst stundvis-
elga kl. 20.30. Á þessari kvöldvöku verður
ijallað um: Þjórsáhraunið mikla - stærsta
hraun á íslandi. í erindinu mun Ámi
Hjartarson jarðfræðingur segja í máli og
myndum frá þessu mesta hruni á ís-
landi, sem stundum hefur verið nefnt
Þjórsárhraimið mikla. Á eftir erindinu
eru umræður og kaifi.
Trúnaðarbréf afhent
Hinn 13. febrúár afhenti Þórður Einars-
son sendiherra Ramiz Aha, forseta
Albaníu, trúnaðarbréf sitt sem sendi-
herra íslands í Albaníu með aðsetri í
Stokkhólmi.
Föstumessur og bænastundir
í Fríkirkjunni
Þrjár föstumessur verða sungnar í Frí-
kirkjunni i ReyKjavík á þessari föstu. Hin
fyrsta miðvikudaginn 24. febrúar, önnur
miðvikudaginn 9. mars og sú þriðja og
síðasta miðvikudaginn 23. mars. Þær
hefjast allar kl. 20.30. Safnaðarprestur
flytur stutta hugleiðingu, sungið verður
úr Passíusálmum síra Hallgríms Péturs-
sonar og Litanía síra Bjarna Þorsteins-
sonar á Siglufirði verður tlutt af
Fríkirkjukórnum. Söngstjóriogórganisti
er Pavel Smid. Þá verða og stuttar bæna-
stundir í kirkjunni þriðjudaga, miðviku-
daga, fimmtudaga og föstudaga kl. 18 eins
og verið hefur undanfarin ár. Hin fyrsta
þeirra verður þriðjudaginn 23. febrúar
en hin síðasta miðvikudaginn 30. mars.
Guðsþjónustur á páskum 1988 verða aug-
lýstar síðar.
Tapaö fimdið
Kötturinn Misi týndur
hann hvarf frá heimili sínu, Rauðagerði
38, þann 9. febrúar sl. Þeir sem gefið
gætu upplýsingar um hann vinsamlegast
hringi í síma 35061 eða 16935.
Kvikmyndir
Háskólabíó/Hættuleg kynni:
„Varist framhjáhald!"
Don (Michael Douglas) eftir hættulegu kynnin.
Hættuleg kynni (Fatal Attractlon)
Bandarisk frá 1987
Framleiðendur: Stanley Jaffe og Sherry
Lanslng
Leikstjóri: Adrian Lyne
Handrit: James Dearden
Tónllst: Maurice Jarre
Aðalhlutverk Michael Douglas, Glenn
Close og Anne Archer
Það hefur verið beðið með nokk-
urri eftirvæntingu hér á landi eftir
nýjustu mynd Adrian Lyne, Hættu-
legum kynnum. Það liggur í augum
uppi að hér er á ferðinni mynd sem
þó nokkuð er spunnið í annars
heföi hún varla hlotið eins góðar
undirtektir og raun ber vitni vest-
anhafs. En þó verður að taka með
fyrirvara það sem þaðan kemur því
að oft hefur komið á daginn að
myndir frá Bandaríkjunum, sem
hlotið hafa fádæma vinsældir þar,
hafa ekki fallið í kramið hérlendis.
Það á hins vegar ekki við um
Hættuleg Kynni þar sem leiðin til
að nálgast áhorfandann byggist á
sammannlegum þáttum eins og
ást, hatri, sorg og gleði, svo að ekki
sé talað um afbrýði. Þegar á líður
umtumast þessir þættir svo í
hreina geðveiki. (Hún er laus við
ameríska drauminn)
Hin unga efnilega Glenn Close
(Skörðótta hnífsblaðið) leikur konu
að nafni Alex Forrest, nýráðinn
ritstjóra sem kemst í kynni við fjöl-
skyldumann, Don Galagher að
nafni, leikinn af Michael Douglas.
Þau eiga saman góöar stundir á
meðan eiginkonan er íjarri heimil-
inu. Don litur á þessi næturkynni
sem stundargaman. Hins vegar
tekur Alex þau öllu alvarlegar,
reynir í fyrstu að fremja sjáifsmorð
en þegar í ljós kemur aö hún er
kona ekki einsömul ásækir hún
manninn.
Hættuleg kynni er mögnuð upp
stig af stigi eftir þvi sem meira
dregur af Alex og er þaö frábærlega
af hendi unnið. Grámi hversdags-
leikans er sýndur þegar Alex er
annars vegar en hið ljúfa fjöl-
skyldulíf þegar Don birtist ásamt
eiginkonu og dóttur. Sá hluti
myndarinnar er meistaralega vel
gerður og þröngt sjónarhom kvik-
myndavélarinnar fær notið sín til
fullnustu. Ennfremur er hlut-
verkaskipanin mjög sterk, Michael
Douglas og Glenn Close sýna
snilldartakta. Með þessari mynd
hefur Michael Douglas loks náð sér
á strik.
Það má greina ýmislegt sameig-
inlegt með Níu og hálfri viku og
Hættulegum kynnum (Adrian
Lyne leikstýrir báðum), ástríðan
verður sjúkleg og í báðum tilvikum
verða konurnar „húkt“, eins og
sagt er á Ijótu máli af karlmönnun-
um. En það sem helst greinir þær
að er að Hættuleg kynni hefur yfir
sér hryllingsblæ og verður sann-
kölluð hrollvekja þegar fram líður.
Auk þess er hún öllu betur unnin
á allflestan hátt. Lokaatriðið er eitt-
hvert það magnaðasta sem lengi
hefur sést. Verið við öllu búin; va-
rist framhjáhald!
-GKr