Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1988, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1988, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 1988. Útlönd Hundrað Hundrað og þrettán manns fórust og meira en tuttugu þúsimd misstu heimili sin í eldsvoða sem varð í bænum Lashio á Burma á sunnu- dag. Að sögn stjórnvalda í landinu er þetta versti eldsvoöi sem orðið hefur í sögu þess. Sextíu og flórir hlutu alvarleg brunasár í eldinum, að sögn út- varpsins í Rangoon. Lashio er afskekktur bær og áreiðanlegar fregnir um manntjón í eldsvoðanum haía ekki borist enn. Að sögn útvarpsins í Rangoon byijaði eldsvoðinn með því að það kvikn- aði í eldhúsi í íbúðarhúsi í bænum. Breiddist eldurinn hratt út og gereyðilagði, áður en yfir lauk, meira en tvö þúsund byggingar í þrem hverfum bæjarins. Meðal annars brunnu tveir skólar til grunna. Árangurs að vænta Stjórnin í Nicaragua og fulltrúar kontraskæruliöa halda áfram friðar- viðræðum í dag og eru menn það bjartsýnir á árangur að þeir búast jafnvel við að hægt verði að komast að einhverju samkomulagi. Þetta eru fyrstu beinu viðræðumar milli fulltrúa stjómarinnar og kontraskæruliða. Hvor deiluaðili um sig gerði í gær frekari grein fyrir til- lögum sínum sem miða að því að friður komist á í Nicaragua þar sem rúmlega fimmtíu þúsund manns hafa fallið frá 1981. Humberto Ortega, vamarmálaráð- herra Nicaragua, hefur lagt til að skæruliðar taki smátt og smátt þátt í stjómmálalífi landsins og að þeir geti tekið þátt í frjálsum og réttlátum kosningum. Samkvæmt upplýsing- um heimildarmanns, sem nátengdur er sendinefnd stjórnarinnar, á Or- tega að hafa látið talsvert undan hvað varðar sakaruppgjof pólitískra fanga. Samkvæmt tiÚögunni myndi fjöldi þeirra fanga, sem látnir yrðu lausir, verða í samræmi við fjölda þeirra kontraskæruliða sem snúa aftur til borgaralegs lífs á meðan á þriggja mánaða vopnahléi, sem kom- ið yrði á í upphafi, stæði. Hingaö til hefur stjómin haldið fast við þá áætl- un sína að láta ekki lausa fangana, sem taldir eru vera þrjú þúsund, fyrr en stríðinu væri lokið. Var það af ótta við að þeir sem látnir yrðu laus- ir myndu taka upp baráttuna með þeim sem enn væru undir vopnum. Dukakis með forystu yfir Bush Skoðanakannanir benda til þess að Michael Dukakis, fylkisstjóri Massachusefts, njóti ívið meira fylgis meðal bandarískra kjósenda en George Bush varaforseti. Dukakis sækist eftir útnefningu sem forsetaefni demókrata og Bush er nær öruggur um að verða til- nefndur forsetaefni repúblikana svo að ekki er talið ólíklegt aö slag- urinn um forsetaembættið standi í raun milli þeirra tveggja í haust. Ékki munar miklu á fylgi þeirra Dukakis og Bush í skoðanakönn- uninni sem gerð var fyrir sjónvarp. Dukakis reyndist njóta fylgis fjörutíu og átta af hundraði aðspurðra en Bush hins vegar fjörutíu og sjö af hundraði. Þar sem skekkjumörk könn- unarinnar eru talin þrjú og hálft prósent er í raun ekki hægt að fúllyrða neitt á grundvelli þessarar niðurstöðu. Heræflngum að Ijúka Heræfingum þeim sem Bandaríkjamenn hafa staöið fyrir í Honduras undaníarna daga fer nú senn aö ljúka og um komandi helgi mun draga mikiö úr athöfnum bandariska herliösins í landinu. Æfingum þessum var ætlað að stöðva frekari árásir herliös frá Nicaragua inn á landsvæöi skæruliða sem hafa þar bækistöðvar sínar. Heræfingar Bandaríkjamanna hafa gengið nokkuð slysalitið fyrir sig. Þó fórst ein af þyrlum bandaríska liðsins skammt frá Juticalpa í Hondur- as á mánudaginn og meiddust tíu bandarískir hermenn í slysinu. Þyrlan var af gerðinni UH-1 Húey. Fhnmtíu Tamilar felldir Allt að fimmtíu uppreisnarmenn úr röðum Tamíla hafa veriö felldir í aðgerðum indverskra hermanna á Sri Lanka undanfama daga, aö þvi er háttsettur indverskur liðsforíngí lætur hafa eftir sér í viðtali við dagblað á eynni. Um flmm þúsund indverskir hermenn hafa tekiö þátt í aðgerðum þess- um sem einkum hafa beinst að stöðvum skæruliöa í Vavuniya-héraði og nágrenni. VéUu vel, veUu Wang WANG Heimilistæki hf, Sætúni 8,105 Rvík ~ Sími: 91-6915 00 ' Bjartsýni ríkir í Nicaragua þar sem friðarviðræöur milli sandinista og kontraskæruliða fara nú fram. Símamynd Reuter Læknamir látnir lausir Gurmiaugux A. Járosan, DV, Lundi: í plastpokum. réttarins verið hnekkt og læknam- ...—--...............Aðalvitnið í málinu var fimm ára ir tveir látnir lausir. Það er nú Sænsku læknamir tveir, sem dóttir annars læknanna sem hélt saksóknarans í málinu að ákveöa grunaöir voru um morðið á vænd- því fram að hún hefði veriö við- hvortnýréttarhöldskulifarafram. iskonu,voruígærlátnirlausir.Það stödd er lik vændiskonunnar var Þó svo að læknamir hafi verið eru ár og dagar síöan réttarhöld í hlutaö niður. látnir lausir er staöa þeirra mjög Svíþjóð hafa vakið jafrnnikla at- Undirréttur hafði komist að erfið. Fjölmiölar hafa ijallaö svo hygli og réttarhöldin yfir læknun- þeirri niðurstöðu að læknamir ítarlegaummáliöaðþaöeráhvers um sem vom ekki einungis væru sekir og úrskurðaöi þá í geð- manns vörum og ljóst er að lækn- grunaöir um hafa myrt vændis- rannsókn. En ekki haíði tekist arnir liggja undir sterkum gran konuna heldur einnig að hafa notað betur til viö dómsuppkvaöninguna meöal almennings. krufningskunnáttusínatilaðhluta en svo að á henni var alvarlegur niður lík hennar og koma því fyrir formgalli. Því hefur nú niðurstöðu Segir sambandið við Bandaríkjamenn óbreytt Shimon Peres, utanríkisráðherra Israels, tók í gær á móti forsætisráð- herrahjónum ísraels, Yitzhak Shamir og Shulamit, eiginkonu hans, á Ben Gurion flugvellinum í Tel Aviv við komuna frá Bandaríkjunum. Símamynd Reuter Yitzhak Shamir, forsætisráðherra ísraels, sem nú er kominn heim frá viðræðum sínum í Washington við bandaríska ráðamenn, er sannfærð- ur um að ísrael muni halda áfram aö njóta stuönings Bandaríkjamanna þrátt fyrir aðgerðimar gegn Palest- ínumönnum á herteknu svæðunum og ósamkomuiag um friöartilraunir. Shamir var fagnað eins og hetju er hann kom til Jerúsalem í gær og var honum hrósáö fyrir að hafa nei+,- að samþykkja tillögur Band? manna sem fólu í sér afsal f bakkanum og Gazasvæðin- Shamir fullyrti við koi il ísraels að meirihluti i _,u í Bandaríkjunum styddi .raunir í sraelsmanna til að bæla ’ s óeirð- irnar á herteknu svæði jn. Áöur enShamirhéit .Bandaríkj- anna neitaði hann að verða við kröfu Shimon Peres utanríkisráðherra og Verkamannaflokksins um að greiða atkvæði um friðartillögur Banda- ríkjamanna. Shamir hefur hins vegar lofað að ákvörðun verði tekin fljótlega.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.