Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1988, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1988, Page 15
MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 1988. 15 Húsnæðismálin: Til varnar Jóhönnu „Ráðherrann á samt heiður skilinn fyrir að leggja frumvarpið fram, þrátt fyrir andstöðu, og koma þar með umræðu af stað um þessi má!,“ segir m.a. í greininni. - Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra. Enn einu sinni er húsnæðiskerfið hér á landi til umræðu og sem oft- ast áður snýst sú umræða fyrst og fremst um lánamálin. Minna er rætt um kerfið sjálft og tilverurétt þess yfirleitt. Væri þó full ástæða til ærlegrar úttektar á þessu kerfi, bæði kostnaðinum af því fyrir skattborgarana og hagkvæmni þess yfirleitt, eða kannski réttara sagt óhagkvæmni þess. Enginn virðist þó hafa virkilegan áhuga á shkri umræðu. Um eitt ár að berast Hagkvæmni núverandi kerfis má m.a. marka af því að lánsloforð frá Húsnæðisstofnun eru um eitt ár að berast umsækjendum. Þannig á nú á næstunni að gefa út lánsloforð til þeirra er sóttu um húsnæðislán um þetta leyti í fyrra. Þá eru lánsum- sóknir m.a. afgreiddar frá Hús- næðisstofnun eftir því hvort lífeyrissjóður umsækjanda hefur keypt skuldabréf stofnunarinnar eða ekki. Um það bil 60% af íjár- magni húsnæðiskerfisins kemur frá lífeyrissjóðunum. Hér væri ástæða til að staldra viö og ræða sérstaklega hlutverk líf- eyrissjóöanna. Lífeyrissjóðimir hafa fyrst og fremst gegnt því hlut- verki að fjármagna húsnæðiskerf- ið. Þeirra hlutverk hefur aðallega verið að taka skatt af almennum launatekjum og færa til þeirra sem byggja eða kaupa íbúðir. Leigjend- ur hafa því aldrei fengið eyri af þessu fé, enda tilvera þeirra lengst af ekki verið viðurkennd af opin- berum aðilum á íslandi. Einhvers staðar sá ég spurt nú um daginn: Er nokkurt vit í þessu húsnæðiskerfi? Og hvað kostar þetta allt í framkvæmd? Ég hef oft- sinnis svarað fyrri spumingunni neitandi. Það er ekkert vit í þessu húsnæöiskerfi því fyrir utan að vera stirt, langdregið og óheiðar- legt, þá tekur það mið af allt öðmvísi efnahagskerfi en því sem nú ríkir. Sem flestir vita bjuggum KjaUarinn Jón frá Pálmholti rithöfundur og starfsmaöur Félagsmálastofnunar í Reykjavík við íslendingar um langt skeið við óverðtryggð inn- og útlán í verð- bólgu sem stundum var mjög mikil og alltaf nokkur. Lán voru því hag- stæð þeim sem fengu þau en innlagnir í banka eða aðra sjóði brannu þar upp í verðbólgunni. Flestir sem gátu reyndu því að ná út sem mestu lánsfé og breyta því í fasteignir. Húsnæðið á íslandi hefur því að stórum hluta gegnt því hlutverki að geyma peninga en ekki fólk. Fastir í neti Fyrir um það bil áratug var gerð sú róttæka breyting á efnahags- kerfi íslendinga að inn- og útlán vora verðtryggð. Gildir það síðan m.a. um húsnæðislán. Auk verð- tryggingar era vextir hér háir, svo fjármagnskostnaður hleðst upp. Flestir sem taka húsnæðislán era því meira eða minna fastir í neti þeirra og lánin þeirra lækka htið hvernig sem borgað er af þeim. Sumt þetta fólk er svo niðUmjörv- aö að þaö getur sig htiö sem ekkert hreyft, t.d. ekki staðið í meiriháttar kjarabaráttu. Þannig er húsnæðis- kerfið einn af hornsteinum núver- andi launastefnu. Verði samdráttur í atvinnulífi hér, svo yfirvinna minnki eöa kannski hverfi að mestu, verður víða hart í ári hjá lántakendum byggingasjóðanna. Nú hafa opnast hér nýjar leiðir til að geyma og ávaxta peninga. Með verðtryggingunni sprattu upp fjölmörg fyrirtæki sem taka þetta hlutverk að sér fyrir fjármagnseig- endur. Húsnæðið þarf því ekki að gegna þessu hlutverki eins og áður. Þessar staðreyndir hljóta að ýta undir spumingar, eins og t.d. þá hvort núverandi húsnæðiskerfi sé ekki óhæft eða jafnvel óþarft eins og það er. Hvers vegna geta menn ekki samið við sinn bankastjóra um kaup á íbúð, rétt einsog önnur viðskipti? Þá færi lengd lánstíma og annað eftir greiðslugetu við- komandi lántaka. Er ekki rétt að leggja Byggingasjóð ríkisins hrein- lega niður og fela banka og sjóða- kerfi verkefni hans beint og milhhðalaust? Ég vil taka undir margt í tillögum Júhusar Sólness og annarra þingmanna Borgara- flokksins um þetta. Hins vegar þarf að efla hinn bygg- ingarsjóðinn og breyta honum í byggingarsjóð félagslegra íbúða. Yrði honum þá gert mögulegt að lána fleirum en hinum margfrægu verkamannabústöðum sem ein- göngu eru eignaríbúðir. T.d. gæfist þarna tækifæri til að standa mynd- arlega að útfærslu nýrra hug- mynda. Búseti hefur t.d, komiö fram með nýjar tihögur til lausnar á húsnæðisvanda fólks og sama er að segja um áherslu Jóhönnu Sig- urðardóttur, félagsmálaráðherra, á kaupleiguíbúðir. Jóhanna er kraft- mikill stjómmálamaður sem vih vel en styrkur kerfisráöenda er enn slíkur að henni verður lítt ágengt, hvað sem verður. Ódýrara fyrir kerfið Ef byggingasjóður félagslegra íbúða lánaði Búseta myndarlega og væri verkamannabústöðunum breytt í kaupleiguíbúðir, yrði stór- um auðveldara fyrir almennt launafólk að tryggja sér öruggt húsnæði heldur en nú er. Væri ekki munur að geta tryggt sér ör- uggt húsnæði án þess að þurfa að binda sig niður með lánum? Þetta yrði hka stórum ódýrara fyrir kerf- ið því þá þyrfti ekki að lána nema einu sinni út á hveija íbúð. Þegar byggingarkostnaðurinn er greidd- ur þarf ekki að lána á ný í hvert sinn sem skipt er um íbúa. Ég veít ekki um neina þjóö aðra er lætur markaöslögmáhn stýra húsnæöisstefnu sinni. Öryggið, sem oft er talað um að séreigna- kerfið bjóði, má best sjá af því að árið 1983 vora 54 nauðungarupp- boð á íbúðum í Reykjavík, en í fyrra vora slík uppboð 854 alls. Séreigna- stefnan er ekki aðeins dýrasta húsnæðisstefna sem til er, m.a. vegna offjárfestinga, þar sem lánað er án tillits til þarfa og hærri bygg- ingakostnaðar þar sem hver byggir fyrir sig. Hún býður heldur ekki upp á meira öryggi en félagslegar leiðir, sé skynsamlega aö þeim staðið. Frumvarp Jóhönnu Siguröar- dóttur, félagsmálaráðherra, mun ekki eitt sér valda straumhvörfum í húsnæðiSmálum hérlendis þótt samþykkt verði. Þar þurfa róttæk- ari breytingar að koma th í pen- ingakerfinu. En ráðherrann á samt heiður skihnn fyrir að leggja frum- varpið fram, þrátt fyrir andstöðu, og koma þar með umræðu af stað um þessi mál. Vonandi beinist sú umræða meir en verið hefur að meginatriöi málsins, sem sé spurn- ingunni: Til hvers er húsnæði? Jón frá Pálmholti „Húsnæðið á íslandi hefur því að stór- um hluta gegnt því hlutverki að geyma peninga, en ekki fólk. Góðir Reykvíkingar og aörir lands- menn. Það hefur varla farið fram fijá neinum að fyrirhugað er að reisa ráðhús í norðvesturhomi Tjamarinnar, á mótum Tjamar- götu og Vonarstrætis. Fólk virðist skiptast nokkuð í tvo hópa í afstöð- unni til ráðhússins þótt einhverjir viti ekki ennþá í hvom fótinn þeir -eiga að stíga. Miðbærinn og mannlífið í upphafi þótti mér hugmyndin um ráðhús e.t.v. ekki svo fráleit en er ég fór að athuga máhð nánar sannfærðist ég æ betur um hversu alvarlegar afleiðingar byggingin myndi hafa fyrir miðbæ Reykjavík- ur og mannlífið þar. Mér rann þó fyrst kalt vatn milli skinns og hör- unds fyrir nokkrum dögum er ég skoðaði kynningu þá á ráðhúsinu sem nú er í gangi í kjallara Iðnaöar- mannahússins. Morgunblaðið hefur verið iðið við að sýna okkur suðurhlið ráðhússins á myndum en umhverfishreytingin, sem húsið veldur frá Vonarstræti séð, hefur lítiö verið kynnt. Ég tók þess vegna - með mér myndavél og reyndi að gera mér sem besta grein fyrir því hvernig væri að standa í Vonar- strætinu og horfa suður á bóginn ef ráðhúsið væri þar risið. Ég myndaði litla hvítmálaða hkanið sem best ég gat og það sem mynd- irnar sögðu mér varð til þess að ég hrökk í kút. Atriðin þrjú Gat huggulegt hkan virkilega verið svona blekkjandi? A.m.k. í skugga ráðhússins skilur aðeins eftir tiltölulega stuttan útsýniskafla milli aust- urgaflsins og Iðnó..Það útsýni er hins vegar undir mjög þröngu sjónarhorni því ráðhúsið nær það langt frá Vonarstrætisbakk- anum að Tjamagötuhúsalengj- an hverfur að mestum hluta sjónum. 2. Stærð hússins er ógnvekjandi. Ekki nóg með að það hafi lengst til austurs og sé nú mun stærra á likaninu en á skipulagsupp- drættinum, heldur er hæðin slík, er maður reynir aö ímynda sér hana frá jörðu séð, aö helst má líkja viö háan múr eða kastala- vegg (nær gluggalausan!) sem varpar skugga yfir Vonarstrætið Og girðir bókstaflega Tjörnina Kjallajiim Ingi Gunnar Jóhannsson landfræðingur og tónlistarmaður frá miðbænum. 3. Engu er líkara en að gleymst hafi að gera ráð fyrir fólki um- hverfis ráðhúsið. Hvergi er „Viljum við virkilega fórna þessum dýrmætabletti... fyrir steinkastala, sem rænir ökkur bæði útsýninu og möguleikanum á samvistum við nátt- úruna á þessum stað?“ varð þessi myndataka mín af líkan- inu th þess að gera mér eftirfarandi atriði mun ljósari en ella: 1. Ráðhúsið lokar algjörlega fyrir útsýnið suður yfir Tjörnina á löngum kafla við Vonarstræti og almennilegt pláss fyriríjölskyld- ur meö böm sem njóta vilja sumars og sólar mót suðri og e.t.v. gefa öndum brauömola. Eina plássið fyrir slíkt era gang- stéttir og göngubrú. Suðvestan ,Gat huggulegt likan virkilega verið svona blekkjandi?' undir húsinu er smávegis land- spilda en þar hindra tvær bíla- gjár aðgang að vatnsbakkanum. Lith „pollurinn" norðvestan hússins fylhr eina svæðið sem gæti t.d. verið torg með bekkjum og gróðri. Neyðarkall úr Tjarnargötu Góöir samborgarar, gerum við okkur fyllilega grein fyrir ofan- greindum staðreyndum? Gerum við okkur grein fyrir því hvað hér er í húfi? Viljum við virkilega fórna þessum dýrmæta bletti þar sem miðbærinn, Tjörnin og mannlífið mætast í einum punkti, fyrir stein- kastala sem rænir okkur bæði útsýninu og möguleikanum á sam- vistum við náttúruna á þessum stað? Ef ráðhúsið rís glatast þessi verðmæti okkur að eilífu. Því mið- ur stoðar htt aö vera vitur eftir á. Það eru síðustu forvöð að vakna af þymirósarsvefninum og stöðva þessa óheillaframkvæmd áöur en þaö verður of seint. Kæra borgarfuhtrúar, ábyrgð ykkar er mikh í þessu máh. Eink- um og sér í lagi vegna þess að ráöhús má með góðu móti reisa annars staðar. Ég leyfi mér því að senda út neyðarkaU héðan úr Tjarnargötunni tU bjargar verð- mætum sem ekki felast í stein- steypu og gleri. Með vonina eina að vopni vona ég aö Vonarstrætið eigi sér ennþá von um birtu og yl. Ingi G. Jóhannsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.