Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1988, Page 34
34
MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 1988.
LiíÆsstQI_____________________________________
Árleg páskaeggjaprófun neytendasíðu DV:
Dýrasta eggið
þótti best
~ Eins og undanfarin ár könnuðum
við páskaeggjamarkaðinn nú. Könn-
unin fór þannig fram að farið var í
verslanir og keypt páskaegg af hverri
tegund. Síðan var farið með eggin og
þau vigtuð og skoöuð. Að síöustu
smakkaði nefnd súkkulaðisérfræð-
inga af ritstjóm DV eggin.
Páskaeggjamarkaöurinn er óvenju
fátæklegur þetta árið. Okkur tókst
ekki að fmna egg frá nema þremur
framleiðendum, en imdanfarin ár
hefur yfirleitt verið hægt að finna
mun meira úrval af páskaeggjum.
Framleiðendumir eru Nói Síríus,
Móna og eitt innflutt egg, merkt fyr-
irtæki sem heitir íslensk dreifing.
Innflutta eggið mun vera franskt
að uppmna þó ekki sé hægt að greina
það á umbúðum, eina merkið um
uppmna er súkkulaðifrankar sem
eru í eggjunum. Þetta egg hefur einn-
ig nokkra sérstöðu því í því er
málsháttur á íslensku og mun það
vera í fyrsta skipti sem innflutt egg
hefur málshátt. Þetta egg er líklegt
til mikilla vinsælda því það er mun
ódýrara en sambærilegt íslenskt egg.
íslensku framleiðendumir mega því
hafa sig alla við ef þeir eiga ekki að
missa hlutdeild í markaðnum.
Neytendur
Eggfn vigtuð
Við byrjuðum á þvi að vigta eggin.
Þá kom í ljós að franska eggið er
ekki 390 grömm, eins og stendur á
umbúðunum, heldur aðeins 320
grömm. Umbúðir íslensku eggjanna
höfðu enga þyngdarmerkingu, en
eggiö frá Mónu var í stærðarflokkn-
um 8 og reyndist vega 240 grömm,
og egg í stærðarflokki 3 frá Nóa Sír-
íusi vó 265 grömm.
Verð var einnig mjög misjafnt.
Þannig kostaöi eggið frá Nóa Síríusi
kr. 847 og var langdýrast. Eggiö frá
Mónu kostaði kr. 676, en franska egg-
ið var langódýrast, kostaði aðeins kr.
390 og var samt þyngst.
Skurn og innlhald
Veigamesti hluti páskaeggs er
súkkulaðiskumin. Við vigtuðum
hana sér og reyndist franska skumin
langþyngst enda eggið stærra en hin.
Hún vó 220 grömm. Skumin frá ís-
lensku framleiðendunum virðist
steypt í sama mótið. Það kom því á
óvart að nokkur munur reyndist
vera á þyngd. Þannig vó skumin frá
Mónu 190 grömm en skumin frá Nóa
Síríusi vó 200 grömm.
Innihald eggjanna var einnig vegið.
Enn reyndist franska eggið hafa
vinninginn, en innihald þess vó 100
grömm. Innihald íslensku eggjanna
var mun minna, Móna setti aðeins
50 grömm af sælgæti í sitt egg og Nói
Síríus aðeins 75 grömm.
Eggin smökkuð
Sérfræðingar DV réðust næst á
eggin og smökkuðu þau vel og vand-
lega. Gefnar voru einkunnir fyrir
þrennt: Bragð skurnar, útht, og sæl-
gæti. Það var eggið frá Nóa Síríusi
sem reyndist standa sig best í öllum
þessum liðum, en fyrir bragð fékk
það einkunnina 25, fyrir útlit eink-
unnina 17 og fyrir sælgæti einkunn-
ina 18. Eggið frá Mónu kom lakast
Þarna hafa eggin verið opnuð.
Lengst til vinstri eggið frá Mónu, þá
franska eggið, og síðast eggið frá
Nóa Sfriusi.
Íminsim.
sSKwsS'®*
w.W-.s
Páskaeggin fyrir prófun. Talið frá vfnstri: Desertegg frá Mónu, egg frá Nóa Siriusi, franska eggið, og eggið frá Mónu.
DV myndir GVA.
Merkingar á páskaeggjum
Merkingum á þeim páskaeggjum
sem hér em á markaði er í ýmsu
ábótavant. Þær þtjár tegundir sem
við keyptum voru allar á einhvem
hátt vanmerktar.
Páskaeggið frá Mónu var merkt
með innihaldslýsingu, en ekki var
orð um þyngd né heldur var gefið
upp heimilisfang framleiðanda.
Páskaeggið frá Nóa Síríusi var
ekki merkt innihaldslýsingu né
heldur var um þaö að ræða að gef-
ið væri upp heimilisfang framleið-
anda.
Franska eggið var að ýmsu leyti
vel mérkt miöaö við aðrar innflutt-
ar vörar. Allar merkingar vora á
íslensku og fylgdi innihaldslýsing.
Ekki var hins vegar eitt orð um
framleiðanda eggsins, það var ein-
ungis merkt nafni innilytjanda.
Heimihsfang innflyljanda var svo
á málshættinmn sem var inni í egg-
inu sjálfu. Þetta egg var hið eina
sem var merkt þyngdarmerkingu
en hún reyndist röng á því eggi sem
við höfðum undir höndum.
Ekkert eggjanna var stimplað
með síðasta söludegi en það er hið
versta mál því þetta er vara sem
selst aðeins í stuttan tíma á ári.
Dæmin sanna að kaupmenn geta
átt það til að geyma eggin frá ári
til árs, a.m.k. fundum við eitt í fyrra
sem var merkt síðasta söludegi
Páskaegg
H Verð pr.100 gr.
út í bragðprófun skumar. Einkunnin
sem það fékk var 16. Það stóð sig
betur hvað sælgæti varðar, en í þeim
hð fékk eggið einkunnina 18, eða þá
sömu og eggið frá Nóa Síríusi. Úthts-
einkunn Mónueggsins reyndist vera
14. Franska eggið þótti hafa betra
súkkulaði en eggið frá Mónu. Það
fékk einkunnina 19. Fyrir útht og
sælgæti fékk það einkunnina 13.
Heildareinkunn
Ef reiknað er saman meðaltal eink-
unnagjafa kemur í ljós að eggið frá
Nóa Síríusi kemur langbest út með
20 í einkunn. Egg hinna reyndust
lakari, Móna fékk 16 í einkunn og
franska eggið 15. Öh eggin reyndust
því nokkuð góð en greinilegt að gæði
era í beinu sambandi við verð.
-PLP
Sérfræðingar DV íbyggnir viö smökkunarstörf
Upplýsingaseðill
til samanburðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar
ijölskyldu af sömu stærð og yðar.
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Fjöldi heimilisfólks
Kostnaður í febrúar 1988:
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annað kr.
Alls kr.