Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1988, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1988, Page 16
lff' MIÐ VIKUDAGUR1 30.' MáRS'M8. Spumingin Hvað verður í matinn hjá þér á páskadag? Dóra Kjartansdóttir: Humarsúpa í forrétt, hamborgarhryggur með rauðvínssósu í aðalrétt, í eftirrétt er heimatilbúinn ís og kaffi og koníak. Benedikt Benediktsson: Ég er ekki búinn að ákveða það, æth það veröi ekki nautasteik. Kristjana Árnadóttir: Ætli það verði ekki hamborgarhryggur. Brynhildur Sigursteinsdóttir: Ég er að hugsa um að hafa svínabógsteik. Ágústa Ágústsdóttir: Svínakjöt og heimatilbúinn ís á eftir. Bjarni Þórólfsson: Ég veit ekki hvað það verður, en örugglega eitthvað ljúffengt. Lesendur Lög til að brjóta? •.......................................................................................................................................... . Bréfritari telur lögin um skyldunotkun Ijósa og sætisbelta, áfengislög og útvarpslög meingölluð og afli Alþingi ekki þeirrar virðingar sem það leitar eftir. Árni Kristinsson skrifar: í kjallaragrein, sem birtist í DV hinn 25. mars, eftir Bergstein Jóns- son um ljósaskyldu á bifreiðum og Lögboðið áreiti, eins og greinin heit- ir, er að íinna margt af því sem menn myndu sjálfir vilja sagt hafa. Hins vegar er það ekki nema lítill hluti fólks sem hefur slg upp í það, eins og sagt er, að senda blöðum greinar eða lesendabréf. Ég er einn í þeim stóra hópi sem hef látið þetta undir höfuð leggjast, þar til nú. f nefndri grein Bergsteins lætur hann að því liggja, og raunar segir fullum fetum, að þessi þjóð búi við uppeldisskort og daglegur umgangur margra hér á landi sé slíkur að varla finnist samjöfnuður nema í ömurleg- um hverfum borga þriðja heimsins. - Þetta er alveg hárrétt hjá mannin- um og það þarf enginn að móðgast vegna þessa sannleika. Og það er einmitt vegna þessa upp- eldisskorts að hér er hægt að ganga á fólki með lagasetningum eins og þeim sem snúa að ökuljósaskyldu á bílum hvernig sem á stendur, jafnvel yfir bjartasta sumartímann! Ef fólk væri aæmilega uppalið og væru kenndar umgengnisreglur siðaðra þjóða væri hér allt annað viðhorf til sambýlis- og þjóðmála en nú er. Ég vil nefna þrenn lög, sem Alþingi hefur fjallaö um og látið frá sér fara, lög sem eru svo gjörsneydd tillits- semi og ganga svo þvert á siðgæðis- vitund fólks að fólk telur aö þeim (lögunum) sé stefnt sérstaklega gegn sér að óþörfu og þess vegna séu þau ekki nema til að brjóta, þegar svo býður við að horfa. Hér á ég í fyrsta lagi við svokölluð „áfengislög" sem skipta fólki í landinu í tvær stéttir, þá sem má kaupa áfengt öl - ef að hún fer í sigl- irfgu til útlanda - og hina sem ekki hefur tækifæri til þess. í öðru lagi svokölluð „umferðarlög“ sem einnig skipta fólki í tvo hópa, þann sem ekki þarf að nota sætisólar (leigubíl- stjóra eða atvinnubílstjóra, báðar stéttir eða aðra, veit aldrei hvort eða hvað er uppi á teningnum í því efni) og hinn sem er skyldugur að nota þessi belti! Einnig skyldan um ljósa- notktun sem brýtur í bága við allar fyrri hefðir og gerir nýju umferðar- lögin að rökleysu. í þriðja lagi svokölluð útvarpslög þar sem fólk, sem ekki vill sjá eða heyra það sem Ríkisútvarpið býður, er skyldað til að greiða fyrir þá þjónustu engu að síður! Allar þessar þrjár laganefnur geta ekki talist lög heldur ólög og því er það að þau verða ávallt umdeild, svo lengi sem þeim verður ekki breytt. Það situr ekki á Alþingi sem stofnun að leita eftir virðingu þjóðar- innar meðan það afgreiðir frá sér svo meingallaða lagabálka á borð við þá sem hér er drepið á. Frábær Mána- klúbbur Páll hringdi: café. Okkur hjónunum kom svo sannar- í matsal Mánaklúbbsins er þægileg lega á óvart þegar við fórum eitt „dinner“-tónlist og þarna er algjör- kvöldið í Mánaklúbbinn í Þórscafé lega hljóðeinangrað frá skarkala úr hve huggulegt þar allt er og þjónust- öðrum salarkynnum. En á meðan á an frábærlega góð. máltíð stendur er hægt að standa upp Við höfum ferðast mikið erlendis frá borðum og taka nokkur dansspor og komið á marga þekkta staði, bæði og síðan í þægilegheitin aftur. matstaði og dansstaði, en viö höfum Sem sé staður sem kemur verulega hvergi rekist á eins smekklegan og á óvart aö öllu leyti. Umhverfi, matur „cosy“ stað og Mánaklúbbinn í Þórs- og þjónusta á heimssmælikvaröa. Hringið í síma 27022 millikl. 13 og 15, eðaskrifið. Hjá þeim eru götuljósin tölvustýrð, hjá okkur handstýrð - stundum. Skýringin á ökuljósum bifreiða í Svíþjóð: Hjá þeim eni götuljós tölvu- stýrð af bílljósum Jóhann Guðmundsson skrifar: Nú er komin skýringin á þessu ljósafári á ökutækjum hér á landi. Eg var í heimsókn hjá vinafólki mínu í Svíþjóð nýlega og þótti forvitnilegt að kynnast og skoða umferðarmenn- ingu Svía þar sem við höfum víst haft þá aðallega til fyrirmyndar í sambandi við nýju umferðarlögin okkar. Viti menn ekki ástæðuna fyrir því að Svíar verða alltaf að vera með ljós- in á þá er hún m.a. sú að vegna þess að smám saman er veriö að taka í notkun hjá þeim í Sviaríki tölvustýrð umferðarljós. Þau eru þannig úr garði gerð að þau eru sjálfstillandi eftir því hve umferðarþunginn er mikill og bílljósin hafa áhrif á tölvu- stýringu þessara ljósa. Sem dæmi get ég nefnt að er ég var eitt sinn á kvöldkeyrslu tók ég eftir því að ca 100 metrum áður en ég kom að götuljósinu kom rautt ljós en strax og ég kom að gatnamótunum breytt- ist það í grænt þar sem engin umferð var á þvergötunni sem ég kom aö. Mikið held ég að hún Salóme og kompaní hafi misskilið þetta „með- ljósin-á-alltaf ‘ hér á landi, nema þá að það sé í fjárlögum hér að skipta um umferðarljós riú á næstunni í samræmi við Svíana. Ef til vill getur einhver góður maður gefið nánari skýringu á þessari fáránlegu reglu hér á landi. Gárungarnir í Svíþjóð eru farnir að tala um að næsta skrefið í um- ferðarmálum þar i landi verði að allir skuli skikkaðir til að aka með hjálm og sértaka bílhanska og að á þaki bílsins verði menn skyldaðir tU aö hafa „saftblandara“, eins og lögregl- an er með á sínum bílum, til að gefa til kynna að einhver sé að koma ak- andi! Það væri kannski verðugt verkefni fyrir Salóme og kó að slá núSvíunum við með því aö koma með eitthvað slíkt og þá um leið að gera okkur að leiðinlegúfstu þjóð í heimi og komast upp fyrir Svía í þeim efnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.