Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1988, Síða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1988, Síða 52
F R 'TTASKOTIÐ T T Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið f hverri viku greiöast 5.000 krón- þá I sfma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstióm - Augilýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Mjólkurfræð- ingar sömdu í gærkveldi Eftir rúmlega 30 klukkustunda samningafund hjá sáttasemjara skrifuðu mjólkurfræðingar og við- semjendur þeirra undir nýja kjara- samninga undir miðnætti í gærkveldi. Fundurinn hófst klukkan 14.00 á mánudaginn. Geir Jónsson, formaður Mjólkur- fræðingafélagsins, staðfesti í samtali við DV í gær að samningamir væru að mestu samhljóða samningunum sem Iðja gerði á dögunum nema hvað í þeim eru að sjálfsögðu sérákvæði sem snerta mjóíkurfræðinga eina. Eftir þessa samninga er ljóst að engin truflun verður á framleiðslu mjólkur og mjólkurafurða fyrir páskana en svo hefði orðið ef mjólk- urfræðingar ynnu ekki yfirvinnu en það höfðu þeir ekki gert upp á síð- kastið. , -S.dór Átta félög hafa samþykkt Akur- eyrarsamningana » Nú þegar hafa átta verkalýðsfélög samþykkt Akureyrarsamningana en ekkert félag hefur fellt þá til þessa. Þau félög sem hafa samþykkt samningana eru: Þór á Selfossi, 22:12, Boðinn, Þorlákshöfn, 21:3, Báran, Eyrarbakka; 17:1, Víkingur, Vík í Mýrdal, 8:0, Rangæingur, Hellu, 28:3, Framsókn, Reykjavík, 115:8, Fram- tíðin, Hafnarfirði, 50:24, og verka- lýðsfélagið á Kópaskeri, 17:1. Önnur félög munu ætla að taka sér tíma fram yfir páska með að funda um samningana en verkalýðsfélögin hafa frest til 12. apríl aö afgreiða þá. -S.dór DV kemur næst út þriðjudaginn 5. apríl. Smáauglýsingadeildin er opin til kl. 18 í kvöld og á annan í páskum kl. 18-22. Síminn er 27022. Gleðilega páska Bílstjórarnir aðstoða SfTlDI BiLRS TÖ ÐITl LOKI Ekki er að sökum að spyrja - Hallur var ekki í peysunni! Skýrsla um skreiðarviðskiptin komin: Skuldimar meiri en ætlað var, eða á annan milljarð - talið hæpið að stór hlirti þessarar skuldar fáist greiddur Að kröfu Steingríms Hermanns- arð króna. Þar er hlutur eins Á sínum tíma var geymd önnur sonar utanrikisráðherra skipaöi útílytjanda rúmlega 600 mifijónir ávísun upp á hærri upphæð til Þorsteinn Pálsson forsætisráð- króna. Stór hlutur þeirrar skuldar ræðismannsins í sendiráðinu í herra nefnd til að rannsaka skreið- fæst ekki greiddur þar sem skreið- London, ef meö þyrfti, en ræðis- arviðskipti íslenskra aðila við in var flutt ólöglega inn til Nígeríu maðurinn fékk hana aldrei í Nígeríumenn. Þetta gerðist eftir að þegar bannað var að flytja skreið hendur. upplýst var í DV og fleiri fjölmiðl- til landsins sökum gjaldeyris- Margir skreiðarframleiðendur um að skuldir Nígeríumanna við skorts. hér á landi, sem lentu í þessum íslendinga næmu hundruðum Hluti af skuldabréfunum, sem viðskiptum,eruþegarorðnirgjald- miUjóna og megnið af skuldunum menn standa uppi með, mun verða þrota og fleiri munu verða það væri í verðlausum eða verðUtlum greiddur en vegna gengisfaUs vegna þessa máls. Viðskiptabank- skuldabréfum. gjaldmiðils Nígeríu verður það arnir, einkum Landsbankinn, Þessi skreiðarnefhd hefur nú ekki nema þriðjungur eða jafnvel munulíkatapaféáviðskiptunum. skflað skýrslu um málið en henni fjórðungur verðmætisins sem Eins og skýrt var frá í DV í fyrra- er haldið leyndri. Samkvæmt kemst til skUa. haust situr Landsbankinn uppi heimUdumDVerniðurstaðahenn- Þá er ljóst að þau 360 þúsund með skuldabréf frá Nígeríu fyrir ar verri en búist var við. Talaö var sterlingspund, sem Ikense, ræðis- nokkur hundruð miUjónir en menn um að skuldir Nígeríumanna væru maöur íslands í Nígeríu, fékk tfl greinir á um hve mikið af þeim 600 tU 800 milljónur króna en nú að liðka fyrir skreiðarsölunni en muni fást greitt. er taUð að þær séu á annan mUlj- mistókst, verða ekki endurgreidd. -S.dór Hér takast þeir í hendur áður en sest er að tafli, Páll Magnússon, fréttastjóri Stöðvar 2, og Haliur Hallsson, frétta- maður á Sjónvarpinu, en þeir eru með kunnari skákáhugamönnum sjónvarpsstöðvanna. Páll virðist ætla að beita Kortsnoj-afbrigðinu á Hall og svæla framan í hann en Hallur virðist ekki láta það á sig fá. Sjónvarpsstöðvarnar mættust i óformlegri hraðskákkeppni i Háskólabíói í gær og var teflt á fjórum borðum. Mótið var opnunaratriði íþróttahátíðar Orators, félags laganema. Stöð 2 sigraði í keppninni, fékk 6 vinninga en Sjónvarpið 2. Þess má geta að Páll lagði Hall í báðum skákunum. DV-mynd Brynjar Gauti Veðrið á morgun: Norðaustan- átt og kaldi Á morgun verður norðan- og noröaustanátt, vlðast kaldi eða stinningskaldi. Rigning verður á Suðausturlandi en slydda á Aust- fjörðum. Við norðurströndina er búist við snjókomu eða éljum en víða sæmilega björtu veðri á Vestur- og Suðvesturlandi. Hiti verður yfirleitt um eða rétt yfir frostmarki að deginum en nætur- frost 2 til 6 stig. Páskaveðrið: Búist við blíðu seinnipart helgar Veðurhorfur um páskahelgina eru nokkuð góðar fyrir allt landiö sam- kvæmt spá Veðurstofunnar og mun veður fara batnandi þegar liður á páskana. Á laugardag og páskadag virðist veðrið ætla að verða hið ákjósanlegasta til allrar útiveru. Á skírdag og fóstudaginn langa er búist við norðan- og norðaustanátt á landinu, viðast stinningskalda eða allhvössum vindi. Snjókoma eða él verða um norðanvert landiö en þurrt og víða léttskýjað syðra. Hiti verður um eða rétt yfir frostmarki að degin- um en næturfrost 2-6 stig. Á laugardag og páskadag er gert ráð fyrir mup betra veðri. Þurrt og bjart verður um mestallt land, breytileg átt og víðast hvar hægur vindur. Færð er nú góð um allt land sam- kvæmt upplýsingum frá vegaeftirlit- inu. Yfir páskahelgina verða helstu akstursleiðir mokaðar a skírdag, laugardag og annan í páskum. -JBj Skíðastaðir opnir alia páskahelgina Allir helstu skiðastaðir landsins verða opnir alla daga páskahelgar- innar og eru þá bæði föstudagurinn langi og páskadagur meðtaldir. Sam- kvæmt spá yeðurstofunnar mun víðast hvar viðra vel fyrir skíðafólk, sérstaklega á laugardag og páskadag. Skíðasvæðið í Bláfjöllum verður opið alla dagana frá ld. 10-18. Skíða- kennsla verður að venju á svæðinu auk þess sem áhersla veröur lögð á góðar göngubrautir ef veður leyfir. í Skálafelli verður opið alla dagana frá kl. 10-18. Skíðakennsla verður á svæðinu auk þess sem byriendamót fyrir 12 ára og yngri fer fram um helgina. Allir krakkar, sem ekki hafa tekið þátt í skíðamóti áður, geta ver- ið með. Á skíðasvæðinu á ísafirði veröur opið frá kl. 9-18 alla daga páskahelg- arinnar. í Hlíðarfjalli verður opið alla dag- ana frá kl. 10-18. Á páskadag kl. 14 fer þar fram árlegt Flugleiðatrimm þar sem gönguskíðamenn ganga sér til skemmtunar en ailir geta unniö til veglegra verðlauna óháð hversu góðir þeir eru í íþróttinni. Áður en trimmið hefst fer fram guðsþjónusta í Hlíðarfjalli. Guðsþjónustan hefst kl. 12. Þá fer fram skíöamót á laugardag. í Oddsskarði verður skíöasvæði opið frá kl. 10.30-18 alla daga páska- helgarinnar. Meistaramót Austur- lands fer fram í Oddsskarði á laugardag og sunnudag. -JBj Skákmótið í Oakham: ÞrosturogJón L. töpuðu Það gekk illa hjá íslendingunum í 2. umferð skákmótsins í Oakham í Englandi. Jón L. Árnason tapaði fyr- ir alþjóðlega meistaranum Baunnia frá V-Þýskalandi og Þröstur Þór- hallsson tapaði fyrir stórmeistaran- um Sokolov frá Júgóslavíu. Hannes Hlífar gerði hins vegar jafntefli viö Baiuliscu frá Rúmeníu. íslending- arnir eru því allir með einn vinning eftir 2 umferðir. -SM J

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.