Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1988, Side 2
2
MIÐVIKUDAGUR 4. MAl 1988.
Fréttir
Gagnrýni á lögreglu, ákæruvald og Sakadóm:
■ ■■ ■ ■ ■ ■ m *
Skorb skilmng a
eðll viðskiptanna
segir í skýrslu SIS um kaffibaunamálið
Sambandiö hefur látiö gera um
250 síöna skýrslu um gang við-
skipta á kaupum á hrákaífi.
Megiimiöurstaða skýrsluhöfundar,
Guðmundar Einarssonar verk-
fræöings, er að Rannsóknarlög-
regla, ákæruvaldiö og Sakadómur
hafi ekki skilið eöli viðskiptanna.
Guðmundur Einarsson birtir í
skýrslunni ýmis gögn sem ekki
haia verið lögö fram í málinu áöur.
Það er mat hans aö þau varpi nýju
ljósi á flesta þætti málsins.
Sakadómur komst að þeirri nið-
urstöðu aö viöskipti SÍS og Katfi-
brennslu Akureyrar hafi byggst á
umboðssölu. Guömundur telur sig
sanna að svo sé ekki. Þetta er helsti
átakapunktur málsins sem tekið
var fyrir í Hæstarétti í morgun.
Skýrsla Guðmundar verður lögð
fram sem gagn í málinu.
Guömundar leitaði viöa fanga við
gerð skýrslunnar, bæöi hér á landi
og erlendis. Ársverk liggur að baki
gerö hennar. Skýrslan var gerö að
frumkvæöi Guöjóns B. Ólafssonar
og Vals Amþiórssonar og SÍS
greiddi kostnað af gerð hennar.
Ekki fékkst uppgefið hver hann
var.
-sme
Kanínu-
miðstöðin
lögð niður
- vegna tapreksturs
Kanínumiðstöðin í Njarðvík, eitt
stærsta angórakanínubú í Evrópu,
hefur hætt starfsemi sinni. „Við er-
um hættir. Dæmið gekk ekki lengur
upp. Tekjur eru of lágar miöaö við
kostnaðinn. Við fáum núna 85 þýsk
mörk fyrir kílóið af ullinni en þurf-
um 125 þýsk mörk. Þegar við byrjuö-
um árið 1984 fengum viö hins vegar
220 þýsk mörk og ekkert útlit var þá
fyrir verðlækkun," segir Stefán Ól-
afsson, bústjóri Kanínumiðstöðvar-
innar.
Kínverjar eru með um 80 til 90 pró-
sent af heimsmarkaönum af kanínu-
ull. „Þeir kváðu hafi aukið fram-
leiðsluna eitthvað en meginástæðan
fyrir auknu framboði af kanínuull
skilst mér að sé sú að Argentínu-
menn og Chilebúar hafa komið
sterkir inn á markaðinn. Og þar er
hægt aö framleiöa við miklu minni
kostnað en hérlendis.“
Þegar best lét var Kanínumiðstööin
með um 3.600 kanínur. Þeim var
fækkað niður í þúsund þegar mark-
aöurinn varð erfiðari. í lokin var
stööin með 600 kanínur. Þær er nú
veriö að selja.
Kanínumiðstöðin hefur framleitt
um 2 tonn af ull á ári. Það er helming-
ur innlendrar framleiöslu. Um 87
kanínubú eru hér á landi. -JGH
Suðuriand:
Sinna aðeins
bráðaþjónustu
„Verkfalliö mun hafa stórfelld
áhrif á starfsemi sjúkrahússins. Viö
sendum þá heim sem hægt er að út-
skrifa og leggjum enga sjúklinga inn
af biðlistum heldur sinnum einungis
bráöaþjónustu. Starfsfólkiö mun
reyna að láta verkfallið bitna sem
minnst á þeim sem liggja áfram,“
sagði Bjarni Jónsson, forstöðumaður
Sjúkrahúss Suðurlands, í samtali við
DV í morgun, en verkfall ræstinga-
fólks á sjúkrahúsum á Suðurlandi
hófst á miðnætti í nótt.
Bjarni sagði að stjórn sjúkrahúss-
ins Uti verkfallið mjög alvarlegum
augum en miklar vonir væru þó
bundnar við að deilan leystist farsæl-
lega. „Þaö stefnir í neyðarástand ef
deilan stendur lengi. Aðfaranótt
fostudags hefur starfsfólk í þvotta-
húsi bóðað verkfall og ef engin
undanþága fæst höfum við tau til
mjög fárra daga fyrir allan þann
fjölda fólks sem ekki er hægt aö
senda heim. Talað er um aö senda
fólkiö af svæðinu á önnur sjúkrahús
ef engar undanþágur fást en það
væri algert neyöarúrræði," sagöi
Robert Newall, nágranni Smith og Taylor, stendur meö hurðina i garði Taylors. Hurðin, sem vegur um þrja-
tiu kíló, lenti í garði Smith-hjónanna og endaði á grindverkinu á milli garðanna. Sex ára dóttir Smith-hjónanna
og sonur Taylors eru ott að leik við þetta grindverk. Á myndinni er búið að draga hurðina yfir grindverkið, inn
i garð Taylors. Mynd Daily Mail, London
„Sá þennan hlut
skjótast yfir þakið“
„Ég sat í gróöurhúsinu okkar,
sem er meö glerþaki, og sá þennan
hlut skjótast yfir gróðurhúsið-
Hann lenti síðan í garðinum rétt
við húsiö og endaði á grindverki
þar,“ sagði Margareth Smith, sem
býr viö South Boume Close í Pinn-
er, í viðtali við DV í gær. Margareth
varð fyrir þeirri óþægilegu reynslu
í fyrradag að hurð af hjólrými einn-
ar af Boeing-þotum Flugleiða lenti
í garði hennar. Hurðin brotnaði af
þegar þotan var í aðflugi að Heat-
hrow-flugvelli við London.
„Með mér í garðhúsinu var sex
ára dóttir mín,“ sagði frú Smith
ennfremur „sem var mest mildi því
hún er svo oft að leika sér í garöin-
um og þá einmitt viö grindverkið
sem huröin lenti á. Hún leikur sér
þar einmitt oft við son Taylors í
næsta húsi.“
Taylor, nágranni Margareth, hef-
ur lítið við fréttamenn viljað tala.
Hann hafði samband við Flugleiðir
og mun honum hafa verið boðin
ferð til Flórída sem skaöabætur en
grindverkið milli garðanna mun
hafa verið hans eign.
Aðspurö kvaðst Margareth Smith
ekki hafa haft samband við Flug-
leiðir enn. Þingmaður Pinner á
breska þinginu hafði í gær sam-
band við hana og benti henni á að
láta kanna hvort einhver hlutur
úr þotunni hefði hugsanlega lent á
þaki húss hennar. Sami þingmaður
bar fram fyrirspum á breska þing-
inu vegna málsins í gær og krafðist
rannsóknar á því. Kröfu sína bygg-
ir þingmaðurinn ekki einvörðungu
á þessu óhappi Flugleiða, heldur
einnig því að svipuð atvik hafa ve-
rið fremur tíð undanfarið.
Margareth Smith sagðist í gær
ætla aö láta fara fram athugun á
hvort skemmdir hefðu orðið á eign
hennar þegar hurðin lenti í garðin-
um. í framhaldi af því myndi hún
síðan ákveða, í samráði við lög-
fræðing sinn, hvort hún gerði
einhveijar kröfur á hendur Flug-
leiðum. Hún sagði Flugleiðir ekki
hafa haft samband við sig enn sem
komið væri.
-HV
Kaffibaunamálið:
Máffiutn-
ingur hófst
íHæstarétti
í morgun
Málflutningur hófst í kaffibauna-
málinu í Hæstarétti í morgun. Fimm
aðilar, sem allir vom starfsmenn
Sambandsins á ámnum 1979 til 1981,
eru ákærðir fyrir fjársvik, skjalafals
og gjaldeyrislagabrot í viðskiptum
Sambandsins og Kaffibrennslu Ak-
ureyrar. í Sakadómi Reykjavíkur
voru fjórir af fimm ákærðu sakfelld-
ir. Erlendur Einarsson, fyrrverandi
forstjóri Sambandsins, var sýknað-
ur.
Sakadómur Reykjavíkur, dæmdi í
Kaffibaunamálinu 17. febrúar 1987,
og komst að þeirri niðurstöðu að SÍS
hefði svikið umtalsvert fé i viöskipt-
um sínum við Kaffibrennslu Akur-
eyrar. En SÍS annast kaup á hráefni
fyrir Kaffibrennsluna. Sakadómur
taldi að um umboðsviðskipti hefði
verið aö ræða en forráöamenn SÍS
neituðu því og töldu að viðskiptin
hefðu byggst á hreinum vömkaup-
um og sölu.
Á árinu 1979 hóf Sambandið gerð
tvennra mishárra vörureikninga um
kaup á hrákafíi. Kaffibrennsla Akur-
eyrar greiddi Sambandinu hráefnið,
vexti og þóknun samkvæmt hærri
reikningunum, þrátt fyrir að lægri
reikningamir væm raunverulegt
innkaupsverð. Þar sem Sakadómur
Reykjavíkur taldi að um umboðsviö-
skipti hefði verið aö ræöa hefðu
starfsmenn Sambandsins leynt
kaupanda kaffisins verði og greiðslu-
kjörum og náð meö ólöglegum hætti
til sín um 180 milljónum króna.
Sakadómur komst að þeirri niður-
stöðu að vörureikningar fyrir
tveimur sendingum af hrákaffi á ár-
inu 1980 og 1981 hafi sannanlega
veriö hækkaðir að beiðni SÍS. Og mat
dómsins var aö í þeim viðskiptum
hafi Kaffibrennslan veriö beitt
blekkingum. Notkun hærri reikn-
inga í þessum tveimur tilfellum taldi
Sakadómur aö varðaði brot á 158.
grein almennra hegningarlaga.
Niðurstaða Sakadóms var sú að
fjórmenningarnir, allir eða að hluta,
hefðu gerst sekir um fjársvik, gjald-
eyrislagabrot og blekkingar. -sme
Mengunarslysið:
Gátum ekki
fundið
neinn
sókudólg
- segir Gunnar Steinn
„Viö reyndum að finna ákveðinn
sökudólg en gátum ekki hengt það á
neinn. Það virðist sem mengunin,
sem alltaf er þarna í Hveragerði,
hafi valdið dauöa fiskanna. Það renn-
ur skolp úr bænum í ána og það
kemur alltaf eitthvað úr ullarþvott-
arstöðinni. Þegar þetta gerðist var
lítið í ánm og þá hafði þessi mengun
meiri áhrif,“ sagöi Gunnar Steinn
Jónsson hjá Mengunarvömum þegar
hann var spurður um ástæöu fyrir
dauða hundraða fiska í Varmá í
Hveragerði í síðustu viku, sem DV
greindi frá.
Er ekki ástæða til aögerða þegar
mengun, sem alltaf er í ánni, getur
drepið 1 henni líf um leið og minnkar
í ánni?
„Jú, við erum aö vinna aö endur-
bótum. Þaö var sett upp skolp-
hreinsistöð í fyrra og frekari úrbóta
er þörf. Það er von á skýrslu um
mengunina þarna og á henni má
byggja úrbætur," sagöi Gunnar
Steinn.. . -gse