Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1988, Blaðsíða 33
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1988.
33
LífsstQl
Þetta er fjandi óþægilegt
„Það er ekki mjög þægilegt að
fara í fótsnyrtingu. Raunar finnst
mér það fjandi óþægilegt. Sem bet-
ur fer þarf ég ekki á þessu að halda
nema annan hvern mánuð. Þetta
er mjög ódýrt, tíminn kostar ekki
nema 560 krónur,“ segir Friðrik
Ingþórsson, húsvörður í Lönguhlið
3.
En fótsnyrting er eitt af því sem
boðið er upp á í Félagsstarfi aldr-
aðra.
„Það er sem betur fer sjaldgjæft
að fólki finnist jafnóþægilegt að
fara í fótsnyrtingu og Friðrik þyk-
ir,“ skýtur Vilborg Sigurðardóttir
snyrtifræðingur inn í og bætir við:
„Það er algengt að fólk komi í fótsn-
yrtingu annan hvem mánuð, en
sumir koma þó mánaðarlega.“
„Þar sem ég bý hér tek ég lítinn
þátt í félagslífinu, enda nóg að gera
við húsvarðarstörfín. Ég er búinn
að vera húsvörður hér síðan það
var opnað eða í 10 ár þann L okt
næstkomandi. Vinnan er frekar
bindandi maður er eiginlega á vakt
allan sólarhringinn."
Enda ef Friðrik tekur sér frí,
finnst íbúunum allt ómögulegt,
segir Vilborg. -J.Mar
Friðrik i (ótsnyrtingu hjá Vilborgu. Með á myndinni er barnabarn hans.
DV-mynd GVA
Mikill áhugi
og frjó hugsun
„Þetta er í fyrsta sinn sem ég er
með kennslu fyrir aldraða. Og mér
líkar starfið ákaflega vel,“ segir
Hrafnhildur Sigurðardóttir, leið-
beinandi í tauþrykkinu.
„Þær konur sem sækja tímana hjá
mér eru mjög áhugasamar og fijóar
í hugsun. Þegar ég byijaði að kenna
hafði ég smááhyggjur af að þetta
myndi ekki ganga upp. Úti í bæ þyk-
ist enginn geta teiknað eða málað.
Því hélt ég að ég yrði að gera allt slíkt
fyrir nemendurna. En raunin hefur
orðið allt önnur. Konumar eru alveg
sérstaklega hugmyndaríkar og dug-
legar við að búa til munstur. Sem
þær nota síðan á hin margvíslegustu
stykki, svo sem veggteppi, gardínur,
dúka og fleira.
í fyrstu gerðum við einfalda hluti,
en þetta hefur verið að smáþróast og
nú er ég að byrja að kenna silki-
þrykk. Það má því segja að útkoman
Ég hef nú aðallega verið aö gera
viskustykki og dúka, segir Elín Jóns-
dóttir.
úr kennslunni hafi verið góð.“
-J.Mar
Tauþrykkið
er tímafrekt
Ingibjörg og Hrafnhildur við gardin-
una sem Ingibjörg var að vinna að.
DV-myndir GVA.
Við htum því næst við í tauþrykks-
tíma í Lönguhlíðinni. Þar hittum við
fyrir Ingibjörgu Sigurðardóttur sem
var í óöaönn að þrykkja munstur á
gardínuefni.
„Ég teiknaði munstrið sjálf og
ákvað aö nota það á gardínuefni. Það
er tímafrekt að eiga við þetta en um
leið mjög gaman. Ég byijaði í tau-
þrykkinu um áramótin og hef ég
verið að leika mér við að gera dúka,
veggmyndir og fleira áður en ég byij-
aði á gardínunni."
Á næsta borði við Ingibjörgu var
Ehn Jónsdóttir að klippa út munstur.
„Ég hef verið aö þrykkja dúka og
viskustykki. Þaö er reglulega gaman
að prófa eitthvað nýtt eins og tau-
þrykk. Ég er nú bara að þessu mér
tíl gamans. Ég held ekki að ég myndi
gefa neinum þetta.“
Þær Ingibjörg og Ehn sögðust vera
virkar í félagsstarfinu og koma
þrisvar til fjórum sinnum í viku í
Lönguhhðina. Þar væri margt um aö
vera sem gaman væri að taka þátt
í. Enda ríkti þar góður andi.
-J.Mar
Við erum að innrita 7-12 ára börn til viku og hálfs mánaðar dvalar hjá
okkur í sumar.
Reiðnámskeið, íþróttir, leikir, sveitastörf, siglingar, ferðalög, sund,
kvöldvökur og fleira.
Verð: Vikunámskeið kr. 9750.- Hálfsmánaðarnámskeið kr. 19500.-
(sy stkinaafsláttur).
Tímabil
23. maí - 28. maí. Vikunámskeið
29. maí - 3. júní —
5. júní - 17. júní Hálfsmánaðarnámskeið
19. júní - 1. júlí —
3. júlí - 15. júlí —
17. júlí - 29. júlí -
1. ágúst - 13. ágúst —
14. ágúst - 26. ágúst
Innritun fer fram á skrifstofu SH Verktaka Stapahrauni 4, Hafnarfirði, sími 652221.
Missið ekki af plássi í sumar!
Sumardvalarheimilið Kjarnholtum Biskupstungum.