Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1988, Blaðsíða 20
20
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1988.
Iþróttir
Frétta-
■ .r m.......
stúfar
Real Madrid, sem vann
spænska meistaratitilinn í
knattspyrnu á dögunum, tapaði
á sunnudag fyrir Barcelona,
2-0, í deildarkeppninni. Real
Madrid lék án Jankovic og
Buitragueno og virtist þaö hafa
áhrif á liöiö. Gary Lineker og
Prancisco Carrasco tryggðu
Barcelona sigur í leiknum.
Barnes bestur
John Barnes var um síðustu
helgi kosinn knattspymumað-
ur ársins í Englandi af samtök-
um enskra íþróttafréttamanna.
Fyrir nokkru var John Barnes
einnig kosinn leikmaöur ársins
af samstarfsbræðrum sínum í
Englandi. Þessar útnefningar
koma víst engum á óvart því
Bames hefur leikiö stórkost-
lega meö Láverpool á keppnis-
tímabihnu og á stóran þátt í
velgengni liðsins.
Stórsigur PSV
PSV Eindhoven, sem þegar hef-
ur tryggt sér sigur í hollensku
1. deildar keppninni, vann á
sunnudag stóran sigur á Spörtu
frá Rotterdam. Lokatölur leiks-
ins uröu 6-2. Ajax vann á sama
tíma 3-1 sigur á Haarlem og er
í öðru sæti í deildinni, fimm
stigum á eftir PSV. Þess má
geta að markatala PSV er glæsi-
leg en liðið hefur skoraö 113
mörk og fengið aöeins á sig 28
en alls er lokiö 33 umferðum.
Rimmer markahæstur
Stuart Rimmer hjá Watford er
sem fyrr markahæstur í 1. deild
ensku knattspymunnar meö 28
mörk. John Aldridge, Liver-
pool, og Brian McClair,
Manchester United og Leroy
Rosenior, West Ham United
hafa gert 27 mörk og Lee Chap-
man, Sheffield Wednesday er
fimmti markahæstur með 23
mörk.
Tvö efst og jöfn
Sovéska deildarkeppnin í
knattspymu er nýlega hafin en
alls hafa veriö leiknar átta rnn-
ferðir. Zenit Lenigrad og
Zhalgiris Vilnius em jöfn í efsta
sætinu með 11 stig hvort félag.
Dynamo Kiev er í þriðja sæti
meö 10 stig. Dynamo Moskva
og Spartak Moskva koma í
næstu sætum meö níu stig.
Stopyra skrifaði undir
Franski landsliðsmaðurinn
Yannick Stopyra sem leikið hef-
ur undanfarin ár Toulouse,
leikur á næsta ári með Borde-
aux en Stopyra skrifaði i gær
undir samning við Bordeaux til
þriggja ára. Stopyra, sem 27
ára, hefur 32 landsleiki að baki.
Sigur hjá Celtic
Glasgow Celtic vann um helg-
ina Motherwell, 0-1, á útivelli í
skosku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu. Rangers tapaöi á
heimavelli fyrir Aberdeen, 0-1,
og Hearts tapaði einnig á
heimavelli, 0-1, fyrir St. Mirren
og verða það að teljast óvænt
úrslit f meira lagi.
Stefán í Þrótt
Stefán Aðalsteinsson, bróðir
Aðalsteins Aöalsteinssonar,
hefur ákveöiö að ganga til liðs
við 2. deildar félag Þróttar í
knattspymu en Stefán lék raeö
Víkingum í fyrra. Stefán þykir
mjög efiiilegur leikmaður og
verður hann löglegur raeð
Þrótti í þriöja leik Islandsmóts-
ins. Margir leikraenn hafa
gengiö í Þrótt á undanfómum
dögum og verður fróðlegt að
fylgjast með Þróttumm i sum-
ar.
Þetta verður mjög
eifiður leikur
- segir Atli Eðvaldsson
Víðir Sigurðsson, DV, Búdapest:
„Það er mjög sérstakt og skemmti-
legt að koma í þennan leik því þetta
er fyrsti vináttulandsleikurinn sem
ég spila í sex ár eða síðan í Finnlandi
sumarið 1982. Það eru einmitt svona
leikir sem okkur hefur alltaf vant-
að,“ sagði Atli Eðvaldsson, fyrirliði
íslénska iandshðsins, í samtah við
DV í gær.
Atli er bæði elsti og reyndasti leik-
maður liðsins en hann spilar í dag
48. leik sinn fyrir íslands hönd. Aö-
eins Marteinn Geirsson (67) og Árni
Sveinsson (50) hafa spilað fleiri.
„Þetta veröur mjög erfiður leikur,
á því er enginn vafi. Það hentar okk-
ur betur að leika að hausti en hins
vegar finnst öllum gaman að koma á
svona glæsilegan völl á þessum árs-
tíma. Þaö liggur við að maður þurfi
að halda aftur af strákunum, passa
að þeir ætli sér ekki of mikið á æfing-
unum því viljinn er svo mikill.
„Ungverjar taka þennan leik mjög
aivarlega. Þeir hafa ekki staðið sig
sem skyldi upp á síðkastiö og undir
stjórn nýs þjálfara ætla þeir sér
stærri hluti í framtíðinni. Þeir stefna
auðvitað ekki á neitt annað en örugg-
an sigur gegn okkur. Við þurfum að
leika sterkan varnarleik, það er
slæmt að vera án Guðna Bergssonar
því við vorum orðnir mjög samstillt-
ir með hann aftastan í fyrrahaust,
en það kemur maður í manns stað,“
sagði Ath.
Hann benti á að það væri nauðsyn-
legt að geta stillt upp sem sterkustu
liði í svona vináttuleik.
„Við þurfum að ná því sama og
Svíarnir sem fá sína menn lausa í
átta landsleiki á ári, sama hvort þeir
eru í einhverju móti eða ekki. Ef fé-
lögin neita þurfa þau að greiða þeim
háar sektir," sagði Atli sem ekki fékk
að vita fyrr en á sunnudagsmorgun-
inn hvort þjálfari Bayer Uerdingen
gæfi honum leyfi til fararinnar.
Kristján Arason varð sem kunnugt er vestur-þýskur meistari í handknattleik um
bach. „Þetta var stórkostleg stund og núna slappar maður vel af og nýtur þes:
samtali við DV í gær. Hann hefur leikið frábærlega i vetur með Gummersbach og :
sér meistaratitilinn. Á þessari mynd, sem tekin var skömmu eftir að Kristján o
sínum, sést Kristján fagna með skjöldinn ásamt félaga sínum, Thomas Krokowsl
Fyrsti landsleikur íslendinga og Ung
Víðir Sigurðæan, DV, Búdapest
Leikurinn viö ísland annaö
kvöld er hður i markvissum und-
irbúningi Ungverja fyrir næstu
heimsmeistarakeppni. Eftir að
hafa verið í nokkurri lægð und-
anfarin ár ætla þeir sér aö byggja
upp öflugt landsliö á ný og hafa
sett stefnuna á úrslitakeppni HM
á ítahu áriö 1990.
Ungverjar hafa leikið mikið af
vináttulandsleikjum undanfarið,
síöast gerðu þeir 0-0 jaíhtefli við
Englendinga á Nep-leikvanginum
sl. miðvikudag. Þeir munu leika
landsleik á hverjum miðvikudegi
fram á mitt sumar.
Sex landsliðsmenn Ungverja
leika með erlendum liðum og þrír
þeirra verða fiarverandi annaö
kvöld vegna leikja með félagshö-
um sínum. Það eru snillingurinn
Lajos Detari, sem er talinn í hópi
bestu knattspymumanna í Evr-
ópu i dag og leikur með Frankfurt
í Þýskalandi, markvörðurinn
Szendrei, sem ver mark Malaga
á Spáni, og Roth sem leikur með
Feyenoord í Hollandi.
Hinir þrír, sem leika meö, em
allt mjög öflugir leikmenn, Mez-
aroz, Esterhazy og Garaba, og aö
hinum þremur undanskildum
munu Ungverjar tefla fram slnu
öflugasta Uði annaö kvöld.
Handkní
GeirogV
handbol
- skólahaldið vei
Ungverjar eri
léttleikand
Tveir af þekktustu handknattleiks-
mönnum landsins, þeir Geir Hallsteins-
son og Viðar Símonarson, standa fyrir
handboltaskóla í Hafnarfirði i vor og
hefst kennslan miðvikudaginn 25. maí
og henni lýkur 31. maí.
Gjaldið er 9000 krónur á mann í heima-
vist, fullt fæði og kennslugjald. Þeir sem
hvorki vilja vera í heimavist né fæði
greiða 5500 krónur. Ef tveir eða íleiri
koma frá sömu fiölskyldu fær hver 1000
króna afslátt.
- segir Guðmundur Baldursson, mark
færi með landsliðinu og þetta gefur mér
byr undir báða vængi fyrir sumarið,"
sagði Guðmundur Baldursson úr Val
sem ver mark íslands gegn Ungverja-
landi á Nep-leikvanginum í kvöld.
Guðmundur leikur nú sinn fyrsta
landsleik síðan sumarið 1982 en frá þeim
tíma átti hann erfitt uppdráttar, allt þar
til hann náði að sýna sitt besta á ný,
með Valsliðinu seinni hluta síðasta sum-
ars. Guðmundur er 28 ára gamall og
hefur leikið átta landsleiki.
„Það má segja að ég sé mjög heppinn
að vera valinn í liðið því bæði Bjarni
Sigurðsson og Friðrik Friðriksson eru
forfallaðir. Tíminn er heldur ekki sá
hentugasti, maður er varla kominn í
leikform ennþá. En það þarf alltaf ein-
hverja heppni til aö vel gangi og nú er
um að gera fyrir mig að grípa tækifærið,
láta vita af því að ég sé til. Þó það séu
Víðir Sigurðsson, DV, Búdapest:
„Það er stórkostlegt að fá á ný tæki-
Fullt fang af DV
'Víðir Sigurðsson, DV, Búdapest
Pétur Ormslev kom til Búda-
pest á sunnudaginn með sann-
kallaða himnasendingu handa
þeim sem farið höíðu utan 24.
apríl og verið í Hollandi og Aust-
ur-Þýskalandi. Hann hafði í
fórum sínum heila viku af DV og
þau blöð hafa veriö nánast lesin
upp til agna enda voru menn
orðnir þyrstir í gott lesefni að
heiman.
„Eggið“
„Eggið" í landsliðshópnum er
Rúnar Kristinsson, KR-ingur,
sem er langyngstur, 19 ára á
þessu ári. Pétur Arnþórsson er
mjög ánægður með að hafa Rúnar
í hópnum því hann hefur oft
mátt þola að vera yngstur og fá á
sig „egg“ viðumefnið.
Tólf ára munur
Það munar tólf árum á Rúnari
og þeim elsta í hópnum, Atla Eð-
valdssyni, sem er 31 árs. Ath lék
sinn fyrsta landsleik árið 1976 en
þá var Rúnar sjö ára gamall og
fyrir stuttu byrjaður að sparka
bolta.
Þessi mynd Einars Fals Ingólfssonar Ijósmyndara var á dögunum kjörin
körfuknattleiksljósmynd ársins. Hún sýnir Val Ingimundarson, UMFN, verj-
ast skoti Leifs Gústafssonar úr Val.