Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1988, Qupperneq 17
ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1988.
17
Lesendur
„Dveljið um tíma við nokkrar aðalumferðargöturnar, þar sem Ijós eru og takið eftir hve margir virða lögin þar!“
segir bréfritari. - Frá gatnamótum Hverfisgötu, Lækjargötu, Kalkofnsvegar og Hafnarstrætis.
Átak í umferðarmálum:
Mælirinn fullur
„Fullsaddur" skrifar:
Hið svokallaða átak í umferöar-
málum var að vísu virðingarvert, en
skilaöi engum sjáaniegum árangri.
Eitthvað fleiri hafa ljósin á, sam-
kvæmt mjög umdeildum lögum, og
beltin spennt, samkvæmt lögum sem
allir ættu að geta sætt sig við. - En
hvaö svo með hina svokölluðu tillits-
semi, umferðarmenningu og lög-
hlýðni?
Tiflitsleysi, ruddaskapur og lögbrot
á næstum hveiju horni, næstum
hverjum ljósum, svo tugum skiptir
daglega, er orðið svo alvarlegt mál,
að nú þarf að taka til höndum. Menn
aka yfir á rauðu ljósi svo áberandi
oft, að það eitt er himinhrópandi -
svo ekki sé talaö um framúr-akst-
urs-brjálæðið.
Sá sem þetta ritar skorar á lögregl-
una að fara í nokkurra daga könnun
um borgina og nágrennið á
ÓMERKTUM bíl og taka þá gjarnan
með myndatökumann frá annarri
eða báðum sjónvarpsstöðvunum til
að taka myndir af þessari umferöar-
geggjun, sem viö erum að verða
heimsfræg fyrir.
Dveljið um tíma við nokkrar aðal-
umferðargöturnar, þar sem ljós eru
og takið eftir hve margir virða lögin
þar! Fylgist með framúr-aksturs-
brjálæöingunum, sem helst vilja aka
á 100 km. hraða á helstu umferöar-
götunum og mun hraðar í nágrenni
þeirra. Nú veröur að gera kröfu til
þess að lögreglan fari að stunda eftir-
litið á ómerktum bílum. Enginn þarf
að hræðast það, nema lögbrjótarnir,
og það eru einmitt þeir sem þarf að
ná í rassinn á .
Að lokum vil ég minnast á eitt at-
riði, sem viðkemur þeirri leið er ég
ek daglega; hafiö heila gula línu á
beygjunni, vestan við Keldur, á Vest-
urlandsvegi - þar hefur margur mað-
urinn mætt glönnum og taugaveikl-
uðum lögbijótum á röngum vegar-
helmingi.
Ljósvakinn hafði
yfirburði
Einhliða lög-
reglufréttir?
Margrét Ásgeirsdóttir skrifar;
Ég vfl gera athugasemd við ein-
hliða fréttaflutning DV af lög-
reglumálum, þar sem aðeins önn-
ur hlið mála er birt. Það þykir
ekki vönduð biaöamennska. -
Margir hafa tekið eftir þessum
einhliða fréttaflutningi.
Ég vil beina því til yfirmanna
lögreglu, hvers vegna þeir reyni
ekki að rétta hlut sinna manna,
þar sem á þá er hallað. Lögreglan
þyrfö nauðsynlega að hafa eins
konar blaðafufltrúa, svo báðar
hliðar komist til skila. - Eða ber
að líta á lögreglufréttamenn blað-
anna sem blaðafulltrúa lögregl-
unnar?
Agatha hringdi:
Það eru áreiðanlega margir sem
taka undir með Hrefnu sem átti les-
endabréf í DV í gær um ágæti út-
varpsstöðvarinnar Ljósvakans. Ég er
mjög sammála öllum þeim sem hafa
skrifað um þessa útvarpsstöð og þau
eru nú ekki ófá bréfin sem birst hafa
í blööum og lýsa söknuði yfir að hafa
ekki lengur þá frábæru og þægilegu
tónlist sem leikin var í Ljósvakanum
og var bæði aíþreyingar- og sígfld
tónlist.
Ég á roskinn fóður sem hlustar
mikið á útvarpsstöðina Rót en sjálf
hlustaöi ég aðallega á Ljósvakann
þegar ég opnaði fyrir útvarp á annað
borö til að hlusta á tónlist því að
hann hafði talsverða yfirburöi yfir
hinar stöðvamar. Gamla ríkisút-
varpið er nú eitt á öldum ljósvakans
þar sem svipuð tónlist er þó enn leik-
in.
Ég hefði ef tfl vill átt að hringja tfl
Bylgjunnar og spyrjast fyrir um
hvort ekki væri von á eins tónlistar-
flutingi hjá þeim og var áður á Ijós-
vakanum en vfldi bara taka undir
með þeim mörgu sem hafa lýst yfir
ánægju með Ljósvakann og óánægju
með að hann skyldi hafa hætt starf-
semi.
VERSLUNARMANNAFÉLAG
SUÐURNESJA
Allsherjar atkvæðagreiðsla um kjör stjórnar- og trún-
aðarmannaráðs Verslunarmannafélags Suðurnesja
fyrir árið 1988 fer fram á skrifstofu félagsins dagana
25. og 26. maí nk. frá kl. 12.00-20.00 báða dagana.
Tveir framboðslistar hafa komið fram og liggja frammi
á skrifstofu félagsins ásamt kjörskrá.
Kjörstjórn
Starfsmenntun í
atvinnulífinu
Á vegum ráðuneytisins eru komin út í fjölriti erindi
sem flutt voru á ráðstefnu um starfsmenntun í atvinn-
lífinu er haldin var 28. nóvember 1987. Það hefur
verið sent til þátttakenda. Þeim sem ekki gátu setið
ráðstefnuna en hafa áhuga á að kynna sér erindin
er bent á að snúa sér til Bóksölu stúdenta, Félags-
heimili stúdenta við Hringbraut, sem hefur fjöritið til
sölu.
Félagsmálaráðuneytið,
13. maí 1988
Heildarvinningsupphæð: Kr. 4.633.664,-
1. vinningur var kr. 2.322.304,-
°g skiptist hann á milli 2ja vinningshafa, kr. 1.161.152,- á mann.
2. vlnnlngur var kr. 694.784,- og skiptist hann á milli 236 vinningshafa, kr. 2.944.- á mann.
3. vlnnlngur var kr. 1.616.576,- og skiptist á 6.968 vinningshafa sem fá 232 krónur hver.
DV hefur greint frá stöðum sem fólk
getur leitað til ef það telur sig mis-
rétti beitt í viðskiptum. En þetta eru
ekki bara kvörtunarskrifstofur heldur
er margháttuð þjónusta í boði hjá
flestum þeirra.
Við kynnum hana nánar og byrjum
á Félagi íslenskra bifreiðaeigenda en
það erstærstu neytendasamtök
landsins.
I Lífsstíl á morgun verður sagt frá
þjónustunni sem FÍB veitir.
l'*^r***~“
ll '
„Ég hefstundumséð látiðfólk
í eigin jarðarförum sitja á kistun-
um, dingla fótunum og virða
fyrir sér kirkjugesti," segir Glad-
y's Fieldhouse, breskur miðill
sem var hér á dögunum.
DV fór á skyggnilýsingafund
hjá Glady's og skýrir frá því sem
fyriraugu ogeyru bar.
í Lífsstíl á morgun segjum við
frá því hvað gerist á fundum sem
þessum og hverir komu í heim-
sókn að handan.