Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1988, Side 7
LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988.
7
dv______________________________Fréttir
Ættfræóisíða DV vekur athygli:
A Islandi er ættfræði
þjóðarástríða
- segir í frétt Reuters
„A Islandi er ættfræði þjóðar-
ástríöa," segir í fyrirsögn frétta-
skeytis sem DV barst frá Reuters-
fréttastofunni í gær. Er þar fjallaö
um geysilega mikinn ættfræðiáhuga
almennings hér á landi og hvernig
fjölskyldutengslum er háttað. í frétt-
inni er þ?í einnig slegið upp að hér
á landi séu allir frænkur og frænd-
ur. Þannig að hver einstaklingur
þurfi ekki að fara lengra aftur en í
áttunda eða níunda lið til að vera
búinn finna skyldleikatengsl við alla
þjóðina.
í fréttinni segir ennfremur: „Blaða-
greinar sem fjalla um þekkta íslend-
inga og íjölskyldur þeirra eru vin-
sælt lesefni í dagblöðum. Lesendur
grannskoða þær til að uppgötva
skyldleikatengsl við frsega menn og
konur.“ Þama er greinilega átt við
ættfræðisíðu DV sem hóf göngu sína
fyrir um ári og hefur aukið áhuga
landans á ættfræði til muna.
Fréttamaður Reuters segir ætt-
fræöigreinar í dagblöðum nauðsyn-
legar vegna þess að íslendingar beri
ekki ættamöfn heldur breytist eftir-
nafnið í hverri íjölskyldu með hverri
nýrri kynslóð. Auk þess sem hjón
beri ekki sama eftimafn.
Fréttin er byggð á viðtali við Öddu
Steinu Bjömsdóttur og skýrir hún
þar fyrir fréttamanni hvernig ís-
lenska nafnakerfið er uppbyggt.
-JBj
SUMARTILBOÐ Á NOTUÐUM BÍLUM
í EIGU UMBOÐSINS
TEGUND ARG GANGVERÐ OKKAR VERÐ
Citroen CX25Ddísil, 8 manna 1984 640.000 550.000
Citroen BX 1987 500.000 460.000
Toyota Corolla 1978 90.000 50.000
Toyota Corolla DX Liftback
sjálfsk., 1600 1980 170.000 140.000
Toyota Corolla 1300,51982 240.000 210.000
gíra Nissan Sunny station 1984 330.000 290.000
Sabb 99 GL 1982 290.000 230.000
Daihatsu Charmant LGX 1983 340.000 290.000
BMW315 1982 290.000 260.000
Lada Sport 1982 180.000 130.000
Peugeot 305 1982 230.000 190.000
Citroen BX19TRD 1985 430.000 350.000
dísil
Greiðslukjör við allra hæfi.
Rauði kross íslands:
Vatn selt fyrir þrjár milljónir
Um 3 milljónir króna hafa safnast
í vatnssölu Rauða krossins til hjálpar
fólki í vesturhluta Eþíópíu. Seldar
hafa verið um 15 þúsund vatnsdósir
en gert var ráð fyrir að selja tæplega
30 þúsund dósir. Haldið verður áfram
að selja vatnið í dag en að því loknu
heldur áfram gíróseðlasöfnun sem
þegar er hafin.
Gunnlaugur Snædal hjá Rauða
krossi íslands sagöi í samtali við DV
að verkefnið væri til þriggja ára og
til þess að fjármagna það þyrfti 20
milljónir króna.
„Eg á ekki von á að viö náum því
markmiði að safna 20 milljónum. Það
hefur aldrei verið gert áður hér á
landi að safna til fyrirbyggjandi
starfs heldur hafa safnanir alltaf far-
ið fram þegar neyðarástand hefur
skapast. En það verður að sjálfsögðu
miklu dýrara að hjálpa fólkinu ef til
neyðarástands kemur,“ sagði Gunn-
laugur.
Rauði kross íslands stendur einn að
þessu verkefni í samvinnu við Rauða
kross Eþíópíu. Ætlunin er að vernda
vatnslindir fyrir hálfa milljón
manna, auk þess sem bæta á heilsu-
vernd og vernda gróður. Gunnlaugur
sagði að ef tré á svæðinu hyrfu myndi
grunnvatnsborð lækka. Á umræddu
Sjálfboðaliðar
til Krísuvíkur
Sjálfboðaliöasamtök um náttúru-
vernd leggja upp í dagsferð til Krísu-
víkur á laugardag. Lagt verður af
stað frá ferðamiðstöðinni klukkan 9
aö morgni. Að sögn Þorvaldar Arnar
Ámasonar, hjá Sjálíboöaliðasamtök-
unum, er ferðin ókeypis og opin al-
menningi.
„Reykjanesfólkvangur leggur til
rútur og verkfæri,“ sagði Þorvaldur,
„en ferðalangarnir sjá um sitt eigið
nesti. Ætlunin er að ljúka við göngu-
stígagerð í Krísuvík, en unnið hefur
verið að henni í þrjú ár.“
Ferðalöngunum er ráðlagt að hafa
með sér sundfatnaö, því ferðinni lýk-
ur í Bláa lóninu. -StB
Yfimefnd fundar
um nýtt
fiskverð í dag
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins fundaði í gærmorgun um
nýtt fiskverð. Lítið nýtt kom fram á
fundinum og að sögn Sveins Finns-
sonar hjá Verðlagsráði hefur annar
fundur verið boðaður í dag, laugar-
dag.
Ákvörðun um nýtt fiskverð var
vísað til yfirnefndar sl. þriðjudag.
-StB
svæði er stöðuvatn þar sem mögulegt
væri að nýta fisk í mun meira mæli
en innfæddir gera. íslendingar vir.na
nú að athugun á því og tengist athug-
unin þessu verkefni. -JBj
Opið virka daga
frá 9-18
og laugardaga
frá 13-17
Ghbusa
Lágmúli 5, Sími 91-681555